Tíminn - 24.02.1960, Page 2
2
TÍMINN, mtSvikndaginn 24. febrúar 1960.
Aðalf undur miðst jórnar
ASalfundur miðstjórna og fundur formanna Fram-
sóknarfélaganna hefst n. k. föstudag kl. 1,30 í Fram-
sóknarhúsinu uppi. Aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir á flokksskrifstofunni í Edduhúsinu.
Búizt er við að fundurinn standi yfir í þrjá daga.
Upptök eldsins
oftast íkveikja
Blaðinu hefur borizt skýrsla I
Slökkvistöðvarinnar í Reykja-]
vík um útköll og eldsvoða í
Reykjavík árið 1959 Kennir
þar margra grasa í sambandi
við upptök eldsvoða. útköll
með og án tilefnis, í hverju
eldurinn var, á hvaða tíma
sólarhrings, og loks um tjón
af eldsvoðum.
Er þá fyrst frá að segja, að
á árinu voru 338 eldsvoðar í
Reykjavík, og þar kemur fram sú
furða, ag upptök eldsins ovru lang
oftast íkveikja, eða hundrað og
þrisvar sinnum. Þá kemur næst
ókunnug orsök, eða 61 sinni, og
sfðan sjaldnar hvað af öðru, eld-
færi og ljósatæki, önnur raf-
magnstæki, olíukyndingartæki, ým
islegt, og loks sjaldnast reykháfa
ogreykrör, og raflagnir með 13
skipti hvert. Eru þar með upp-
talda r'ástæður eldsvoða í Reykja
vik 1959.
Gabb 68 sinnum.
Slökkviliðið var kallað 475 sinn
um út á árinu ,oftast í síma, eða
379 sinnum, en einnig með bruna j
boða og sendiboðum. Erilsamasti
mánuður hefur verið apríl með
65 skipti. Af þessu reyndust 137
kvaðningar vera án elds, og var
þar um að ræða gabb 68 sinnum,
grun um eld 57 sinnum og sam-
slátt á línum 12 sinnum.
Ýmislegf
Það sem oftast hefur þurft að
slökkva er á skýrslunni kallað
ýmislegt, en það mun vera ýmis-
konar skran og rusl, sem er ekki
beinlínis verðmæti. Þá hefur og
ver'ið slökktur eldur í íbúðarhús-
um, útihúsum, bröggum, skipum,
bílum og verkstæðum, alls eins
,og fyrr segir, 338 sinnum.
Milli 15 og 18
íkveikjuhættasti tími sólarhrings
ins virðist vera milli kl. 15—18,
á þeim tíma eru eamtals 97 elds-
voðar. Sá tími sem næst kemur
er milli 18—22, svo ekki verður
betur séð en mest eldhættan sé
um hábjartan daginn og fram á
kvöld, en sjaldnast hefur kviknað
í milli kl. 06—09.
162 sinnum skaðlaust
Sem betur fer er ekki nærri
því alltaf tjón af þessu, því af
þessum 338 eldsvoðum var ekk-
ert tjón 162 sinnum, lítig 119 sinn
um, talsvert 55 sinnum og mikið
tvisvar sinnum.
Vann 35 skákir
af 41
AKUREYRI, 22. febr. — Friðrik
Ólafsson, stórmeistari, kom hing-
að fyrir helgina í boði Skákfélags
Akureyrar. Tefldi hapn fjöltefli
í Lóni síðdegis í gær, á 41 borði.
Leikar fóru þannig, að Friðrik
tapaði 2 s’kákum, gerði 4 jafntefli
og vann 35. Samtímis fjölteflinu
tefldi hann 3 blindskákir við
meistaraflokksmenn og tapaði 2
en gerði 1 jafntefli. í kvöld ætlar
Friðrik að tefla klukkuskák við
10 beztu taflmenn hér. E.D.
Vara við af-
leiðingunum
Ályktun íslenzkra háskólastúdenta í Frakk-
landi vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar
Samtök íslenzkra stúdenta í
Frakklandi vara við þeim al-
varlegu afleiðingum, sem
væntanlegar efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar hljóta óhjá-
kvæmileg*. að hafa fyrir ís-
lenzka námsmenn erlendis.
Með samþykkt þeirra yrði
þeim gert algjörlega ókleift að
halda námi sínu áfram af eig-
m rammleik.
Jafnvel þótt gert sé ráð fyrir
óbreyttu styrkja- og lánakerfi
(þ.e. að stuðningur hins opinbera
verði eftir sem áður látinn nægja
fyrir námskostnaði þriggja mán-
aða), er óhugsandi, að námsmenn
ga>tu unnið fyrir námskostnað-
inum að öðiu leyti, þar sem auð-
sýnt er, að hann muni allt að
því tvöfaldast.
Verða hart úti
Samtökin benda á þá augljósu
staðreynd, að við fyrirhugaðar
ráðstafanir verða ís'lenzkir stúd-
entar erlendis harðar úti en allir
aðrir. Komi þær til framkvæmda
er sýnt, að mikill hluti stúdenta
ætti ekki annars völ en hætta
námi og hverfa heim. Því eru ekki
aðeins í veði hagsmunir þeirra.
heldur og þjóðarinnar allrar. —
Biðja samtökin ríkisstjórnina að
gæta þess, að endurskoði hún ekki
afstöðu^ sína, sé uti um þá sér-
stöðu fslands, sem verið hefur
stolt þjóðarinnar, að allir hafí
aðstöðu til að stunda háskólanám.
Hlnn nýt ambassador Dana á fslandi, herra Bjarne W. Paulson, afhentl
í dag forseta íslands trúnaðarbréf sltt við hátfðlega athöfn á Bessastöðum.
Viðstaddur athöfnlna var utanríklsráðherra.
Vegna andláts H. C. Hansens, forsætlsráðherra Danmerkur, var há-
degisverðarboðl fyrlr hlnn nýja ambassador og frú hans aflýst.
Vísindasjóður aug-
lýsir styrki 1960
Vísindasjóður hefur auglýst
styrki ársins 1960 lausa til
umsóknar. Sjóðurinn skiptist í
tvær deildir: Raunvísindadeild
og Hugvísindadeild Formaður
stjórnar Raunvísindadeildar er
dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur, en formaður stjórn
éT Hugvísindadeildar dr. Jó-
hannes Nordal bankastjóri.
Formaður yfirstjórnar sjóðsins
er dr. Snorri Hallgrímsson próf.
Raunvísindadeild annast styrkveit
ingar á sviði náttúruvísinda, þar
með taldar eðlisfræði og kjarn-
orkuvíslndi, efnafræði, stærð
fræði, læknlsfræði, líffræði, líf-
eðlisfræði, jarðfræði, dýrafræði,
grasafræði, búvísindi, fiskifræði
og tæknifræði.
Hugvísindadeild annast etyrk-
veitingar á sviði sagnfræði, bók-
menntafræði, málvísinda, félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, heim-
speki, guðfræði, sálfræði og upp
eldisfræð’i.
Efla rannsóknir
Hlutverk Vísindasjóðs er að
efla fslenzkar vísindarannsóknir,
og í þeim tilgangi styrkir hann:
1) Einstaklinga og vísindastofn
anir vegna tiltekinna rannsóknar-
verkefna.
2) Kandídata til vísindalegs sér
náms og þjálfunar. Kandídat verð
ur að vinna ag tilteknum sérfræði
legum rannsóknum eða afla sér
vísindaþjálfunar til þess að koma
til greina við styrkveitingu. *
3) Rannsóknastofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til greiðslu
á öðrum kostnaði í sambandi við
starfsemi, er sjóðurinn styrkir.
'Jmsóknir
Umsóknir þurfa ag hafa borizt
fyrir 1. apríl n.k. Umsóknareyðu
blöð ásamt upplýsingum fást hjá
deildaritur'um, á skrifstofu Há-
skóla íslands og hjá sendiráðum
íslands erlendis. Deildarr'itarar eru
fyrir Raunvísindadeild Guðm. Arn
laugsson menntaskólakennari og
fyrir Hugvisindadeild Bjarni Vil-
hjálmsson skjalavörður.
Fjöltefli
Friðrik Ólafsson, stórmeistari,
teflir fjöltefli við unglinga, 10—16
ára, í KR-heiimilinu miðvikudag
inn 24. febr. kl. 8 e.h., og í Tóm-
stundaheimilinu að Lindargötu 50,
fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8
e.h. Þátttakendur mæti stundvís-
lega og hafi með sér töfL
Fjöltefli þetta er liður í sam-
starfi Æskulýðsráðs Reykjavíkur
og Taflfélags Reykjavíkur, en þess
ir aðilar hafa starfað saman að
skákkennslu unglinga undanfarin
ár, í taflklúbbum víðs vegar um
bæinn. Þar hafa unglingarnir not-
ið tilsagnar þekkti'a skákmanna,
tekið þátt í kappmótum og teflt
fjöltefli við kunna skákmenn.
Lagaskrá
komin út
Lagasafnið kom út árig 1954.
Síðan það kom út hafa orðið mikl
ar breytingar á löggjöf landsins.
Á þessum tæpu 6 árum hafa verið
sett 232 ný lög, 198 lög hafa verið
felld úr gildi og 128 lögum verið
breytt. Lagasafnið er því orðið
varasöm heimild um gildandi lög
gjöf og harla tafsamt að leita af
6'ér grun uan breytingar er kunna
að hafa verið gerðar á löggjöfinni
síðan Lagasafnið kom út.
Próf. Ármann Snævarr, sem á
sfnum tíma sá um útgáfu Laga-
safnsins ásamt próf. Ólafi Lárus-
eyni, hefur nú tekið saman Laga
skrá. Er það skrá um þær breyt-
ingar er orðið hafa á íslenzkri
löggjöf síðan Lagasafnið kom
út, og er lögunum skipað í flokka
á sama hátt og gert er í Laga-
safninu. Skráin er nauðsynleg
öllum þeim, er Lagasafnið nota
og til mikils hagræðis í starfi. —
Útgefandi er Hlaðbúð.
Hlé á ílugi til
Vestfjarða og
Siglufjarðar
Katalínaflugbátur Flugfélags ís
lands „Sæfaxi“, sem að undan-
förnu hefur verið notaður til flug
ferða til Vestfjarða og Siglufjarð
ar, mun nú verða tekin til eftir-
'lits og viðgerðar, og verð-ur því
hlé á flugi til þeirra staða, um
6'inn. Ekki er unnt að segja um
það fyrirfram hve langan tíma
skoðun á flugbátnum tekur, en
henni mun verða fiýtt svo sem
föng eru á.
Upphaflega var fyrirhugað að
íisafjarðarfl-ugvöllur yrði tilbúin
til umferðar á s.I. hausti, en bygg
ing hans hefur tekið lengri tíma
en áætlað var.
Einnig var áætlað að Katalinu
flug legðist niður s.l. haust, en
til þess að koma til móts við flutn
ingaþörf Vestfjarða, ákvað Flug-
félag ístands að halda flugi þang-
að áfram með Katalínuflugvél um
óákveðinn tíma.
Vinstri menn
unnu á í Múr-
arafélaginu
Um síðastliðna helgi fór fram
stjórnarkjör í Múrarafél. Reykja-
víkur. Listi Sjálfstæðismanna og
Alþýðuflokksmanna fékk 98 at-
kvæði, en listi vinstri manna 79
atkvæði. Vinstri menn unnu á í
kosningunum, fengu nú átján at-
kvæðum meira en síðast.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Framsóknarfélag Reykjavíkur boðar til fundar um hús-
næðis- og efnahagsmál i Framsóknarhúsinu annað kvöld
kl. 8,30 síðd. Nánar skýrt frá fundinum síðar.
Almennur stjornmálafundur
í Rangárvallasýslu
Framsóknarmenn cfna til almenns stjórnmálafundar i Hvols
skóla annað kvöld kl. 8.30 Frummælendur á fundinum verða
Ágúst Þorvaldsson, alþm., Björn Fr Björnsson, alþm., Helgi
Bergs, verkfr. og Óskar Jónsson, bókari í Vík.
Að þessum fundi loknum verður haldinn aðalfundur Fram-
sóknarfélags Rangárvallasýslu.