Tíminn - 17.03.1960, Side 2
2
T f MIN N, fimmtudaginn 17. marz 1960.
Adenauer ánægð-
ur með fundinn
NTB. Washington, 15. marz. að byggjast á öryggi og frelsi íbúa
Konrad Adenauer forsætisráð- Veslur-Þýzkalands og rétti þeirra
* sjalfsakvorounar, -segir í yfir-
herra Vestur-Þýzkalands átti 1
morgun viðræður við Eisen-
bower forseta í Hvíta húsinu í
Washington Með forsætisráð-
herranum á fundinum voru
Heinrich von Brentano utan-
ríkisráðherra og sendiherra
Vestur-Þýzkalands í Banda-
rík.iunum.
Ekki voru gefin upp nein sér- ræðzt
stök mál, sem ræða skyldi á fund sinna
inum, en reiknað var með að yrðu
helzt á dagskrá Berlínar-vanda-
málið og önnur þau stórmál, sem
mest mun bera á góma á ráðstefn-
unni -milli ríkisstjórna austurs og
vesturs 1. maí í vor.
Þá hefur og frétzt, að Adenauer
muni leggja mikl-a áherzlu á af-
vopnunanmálin og lausn þeirra á
friðsaml-egan hátt í viðræðum sín
um við Eisenhower forseta.
í yfirlýsingu, sem undirrituð er
af þeim báðum Adenauer og Eisen
hower segir, að þeir álíti, að fund
ur þessi, þar sem þeim sé gefinn
kostur á að ræða skoðanir sínar
og viðhorf til alþjóðamála hafi
stuðlað að frekari samstöðu þjóð-
anna í viðhorfum sínum til fjölda
sameiginlegra mál a.
Voru þeir báðir á sama máli um
það, að þeir muni halda áfram
í viðleitni sinni til að koma á sam-
stjórn í Þýzkalandi með friði og
ró. Sérhver framtíðarákvörðun
um málefni V-Þýzkalands verður
til
lýsingunni.
Herter og Brentano
Að lokum sagði forsetinn, að
Bandaríkin myndu styðj-a þau
markmið s-em evrópsk samfélög
settu sér og vinna að aukinni efna
ha-gslegri samvinnu milli ríkja inn
an Atlantshafsbandalagsins. Haft
er eftir talsmanni Hvíta hússins,
að Eisenhower og Adenauer hafi
við án viðveru ráðgjafa
Aftur á móti voru þeir Herter
utanríkisráðherra og von Brentano
á fundi í öðru herbergi með ráð-
gjöfum sínum, en þó tóku þeir
nokkurn þátt í viðræðum þeirra
Eisenhowers og Brentano sem stóð
yfir í tvo tíma.
Thompson á Keflavíkurflugvelli
Tyler Thompson, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi fór í sina fyrstu
opinberu helmsókn til Keflavíkurflugvallar hlnn 10. marz s. I. til þess a3
glöggva slg á staðháttum og aðbúnaði þar. Eftir að hafa hlýtt á lýsingu ur u-m að
Colonel Ben. Willis, yflrmanns varnarliðsins, á staðnum og lífinu þar, var j eftirleiðis
farið stutt hringflug yfir nágrennið og Þingvelli, og loks skoðaði sendiherr- j
ann nokkra staði á Keflavíkurflugvelli. Myndin sýnir Tyler Thompson
ásamt yfirmönnum varnarllðslns.
Náði taki
og táfestu
Vestmannaeyjum, 14. marz. — Að
loknum dansleik hér s.l. laugar-
dagskvöld kom Sveinn Magnússon
lögregluþjónn auga á bíl sem ók
gegnum mannþröngina fr'aman vift
húsið og voru of margir farþegar
innanborðs. Hugðist Sveinn stöðva
bifreiðina, en hún herti þá ferð-
ina. Þó tóks-t Sveini að ná taki á
henni og táfestu á bretti.
Bílstjórinn vildi ekki láta sér
segjast en ók með ofsahraða eftir
nokkrum götum svo Sveinn má-tti
hafa sig allan við að hanga á
bílnum. Að loku-m staðnæmdist
hann niður við höfn og mun bfl-
stjórinn væntanlega verða áminnt
temja sér betri siði
S.K.
Snorri“ kemur
mánudaginn
Nýja Cloudmaster-flugvélin,
„Sn-orri“, sem Loftleiðir hafa
keypt, er væntanleg til íslands n.
k. mánudag, 21. þ. m. frá Banda-
ríkjunum og verður Jóhannes
Fjórir nýir bátar til
Ölafsvíkur á tæpu ári
Enn er ekkert lát á afla í Ólafsvík, e’n hver
bátur fiskar 20—30 lestir daglega
Ólafsvík, 15. marz. — Ekk-Nýr bátur
ert lát er ennþá á aflanum hér
í Ólafsvík. Er afli bátanna frá
20—30 tonnum að meðaltali á
d.ag. Hér er margt aðkomu-
fólk, einkum þó úr nálægari
byggðum, en öllu er til skila
haldið með að það hafizt und-
an að taka á móti því, sem að
Markússon flugstjóri. Báðar nýju| berst.
Cloudmaster-flu-gvélarnar munu: Jökulfellíð var hér um helgina
hefja reglubundið flug í áætlun-; og tók þá 7000 kassa af fiski. Einn-
arf-erðum Loftleiða um næstu. ig kom saltskip og losaði 300 tonn
mánaða-mót. 1 af salti.
Á sunnudagsmorgun kom hing-
að nýr bátur, Valafell, SH. 157.
Báturinn er 70 lestir að stærð,
smíðaður hjá Sören Larsen í Ny-
köbing í Danmörku og er úr eik.
Teikningu af honum gerði Egill
Þorfinnsson í Keflavík.
Skortir ekki lög
heldur hirðusemi
Út af erindi frá Dýravernd-
unarnefnd varðandi gamlar
girðingar. sem víða liggja 1
hirðuleysi stórhættulegar
skepnum, samþ. Búnaðarþing
nýlega svofellda álvktun:
„Búnaðarþing ályktar að beina
mjög alvarlega þeirri áskorun til
allra hreppsnefnda og bæjar-
stjórna í landinu, að þær hlutist til
um það hver í sínu umdæmi, að
vanhirtar girðingar í beitilöndum
og aðrar áþekkar hættur fyrir bú-
fé verði lagfærðar svo hættulaus-
ar séu, eða teknar upp og fjarlægð
ar að öðrum kosti“.
í greinargerð segir:
Búnaðarþingi hefur borizt er-
indi frá Dýraverndunarnefnd varð
andi hirðuleysi, sem ríki víða í
landinu um að fjarlægja úr beiti-
löndum meðfram vegum og víðar
girðinga-slitur og símavíraslitur
o. fl. af völdum setuliðsins og tel
ur að tjón á skepnum hafi hlotizt
af.
Búnaðarþingi er Ijóst, að víta-
ver-t hirðuleysi er víða í þessu efni
en lítur hins vegar svo á, að ekki
sé það vegna skorts á lagafyrirmæ-1
um um s-kyldur manna um viðhald
girðinga og annarra mannvirkja,
•sem orðið gætu búfé hættuleg.
En lög um þessi efni sem önnur
eru ekki einhlít, ef ekki er eftir
þeim farið. Það virðis-t því fylli-
lega tímabært að tilraun sé gerð
til að hvetja almenning til menni
legri viðhorfa og athafna til úr-
bóta, og mætti vænta þess að ein-
hver áhrif kynni að hafa að stjórn
B.I. ritaði hverri hreppsnefnd og
bæjarstjórn erindi um málið um
leið og ályktun Búnaðarþin-gs er
send þeim.
Framsögumaður jarðræktar-
nefndar í þessu máli var Þorsteinn
Sigfússon.-
Aðalaflvélar bátsins eru tvær,
af GM-gerð, 280 hö. hvor. Tvær
skiptiskrúfur, spil og önnur tæki
eru tengd við báðar vélar og er
það nýung hérlendis. Báturinn er
húinn radar, miðunartækjum,
sendistöð o. s. frv. og öll eru sigl-
inga- og öryggistæki hans af nýj-
ustu og fullkomnustu gerð.
f reynsiuför gekk báturinn 13
mílur. en 10,5 á heimleið. Var hann
4% sólarhring á leiðinni en þess
ber að gæta, að hann tafðist rúman
sclarhring í Færeyjum. Gunnar
Valgeirsson, verkstjóri S.Í.S. á
Kirkjusandi, sigldi bátnum heim
og er það > annað sinn sem hann
annast slíka siglingu. Eigendur
bátsins eru kaupfélagið Dagshrún
og Jónas Guðmundsson, sem jafn-
f-amt verður skipstjóri. Valafellið
fór á veiðar þegar samdægurs og
það kom og er væntanlegt inn með
afla í dag.
Fjórir báfar á tæpu ári
Þetta er 4. báturinn sem kemur
hingað á tæpu ári af stærðinni 70
—80 lestir Hinir eru Jón Jóns-
son smíðaður í skipasmíðastöð
K.E.A. á Akureyri og er eigandi
hans Halldór Jónsson, Stapafell,
smíðaður i Svíþjóð, eigandi Víg-
’.undur Jónsson o. fl. og Sæfell,
vestur-þýzkur, eign Kaupfél Dags-
brúnar og Guðmundar Jenssonar.
Þrír- af þessum nýju bátum
leggja upp hjá Dagsbrún.
Vantar lýsistanka
Húni frá Skagaströnd leggur nú
hér upp h.iá kaupfélaginu. Hann
fór fyrst : róður á laugardag og
kominn með 33 tonn, 26 á sunnu-
dag og 20 > gær.
Lýsistanka skortir hér mjög til-
finnanlega og er brýn nauðsyn að
hæta úr því fyrir framtíðina. Þá
fer einnig að vanta hjallaefni og
tunnur. A. S.
Framsóknarfélag
Kjósarsýslu
Aðalfundur félagsins verður
haldinn að Hlégarði í Mosfells-
sveit sunnudaginn 3. apríl kl.
1.30 e. m.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Frumvarp að lögum fyrir
félagið.
3. Venjuleg aðalfundarstörf.
4 Önnur mál.
Jón Skaftason alþingismað-
ur mætir á fundinum.
STJÖRNIN.
VICON LELY
Fasttengda Vicon Lely múgavélin hefur farið sigur-
för um landið, enda lang ódýrust allra múgavéla,
sem nú eru fluttar inn. Áætlað verð í vor rúmar
kr. 8000.0.
Þar sem innflutningur lanrlbúnaðartækja mun
sennilega verða gefinn frjáls, munum vér geta út-
vegað bændum þessar landskunnu vélar í vor.
Sendið pantanir sem allra fyrst.
ARNi C/E&TöSON
Vatnsstíg 3.
Sími 17930.