Tíminn - 17.03.1960, Blaðsíða 16
62. bla».
Fimnitudaginn 17. marz 1960.
Áskriftarverð kr. 35.00.
s%r ,4 ''"///■
islendingar
fylla skipin
Færeyingar hafa ekki mikinn áhuga
fyrir Islandsferðum
Eins og skýrt var frá á dög-
unum hefur Fiskimannafélag
Færeyja nú aflétt því banni,
að færeyskir sjómenn megi
ekki ráða sig á íslenzk fiski-
skip. Nokkrir Færeyingar eru
væntanlegir hingað til lands á
næstunni, en ekki virðist vera
mikill áhugi hjá þeim fyrir því
að koma hingað.
Togarinn Keilir er væntanlegur
á næstunni með 16 Færeyinga, og
eru það þeir einu, sem vitað er
að koma munu nú um sinn. Nokkr
ir hafa ýmist skrifað íslenzkum
útgerðarmönnum eða sent þeim
skeyti, með fyrirspurn um það,
hvort þeir mættu koma.
Við höfum menn
Reyndin hefur hins vegar orðið
sú, að útgerðarmennirnir hafa
svarað fyrirspurninni neitandi
vegna þess, að þeir hafa ráðið fs-
lendinga í skiprúmin. Þegar allt
kemur til alls, hefur þessi deila
orðið til þess að sýna íslendingum
að þeir geta sjálfir mannað sín
skip að mestu en þurfa ekki að
sækja áhafnir til annarra landa.
Tóbak og vín
hækkar
Áfengið hækkaði
tóbakið á morgun
í verði
í fyrradag, en
Áfengið hefur nú hækkað í
verði eins og annað, en sá
munur er á, að hjá vínverzlun-
inni eru birgðirnar hækkaðar,
en ekki beðið effir endurnýjun
með hækkunina. Hækkunin
nemur allmiklu, sem sézt á
því, að „Svarta dauða" flaskan
hefur hækkað úr kr. 140 upp
: kr. 170,00, eða um 30 krónur.
Vodka hefur hækkað úr kr. 150
upp í 180 kr. Er þar um meiri
hækkun að ræða en á brennivíni,
þótt hækkunin sé sú sama að
krónutölu, því að vodkað er í
tveggja pela flöskum en brenni-
vínið í þriggja pela.
Viskíið á kr. 315.00
Einna mest mun hækkunin hafa
orðið á skozku vískíi, sem nýtur
mikilla vinsælda, a. m. k. meðal
efnameiri manna, en það var
hækkað um kr. 5000, úr kr. 265
í kr. 315 og gin, sem .sennilega
er óhætt að telja í öðru sæti á
vinsældalistanum, hækkar úr kr.
200 í kr. 240.
Létt vín líka
Létt vín eru látin sitja við sama
borð og brennd, og hækkar hver
flaska af frönskum borðvínum um
kr. 20. Hvítvín hækkar um 10 kr.,
úr 52 kr. í 62 kr.
Svo kemur tóbakið
í fyrramálið hækkar svo tóbakið
frá Tóbakseinkasölunni. Ekki tókst
blaðinu að fá upplýsingar um verð
einstakra tóbakstegunda eftir
ti ntoknnáa*. álagið mun vera
nálægt 15—16 af hundraði, dálítið
misjafnt eftir því hvaða tegund í
hlut á. Verðið er hækkað á birgð-
um Tóbakseinkasölunnar, en þess
ber að gæta, að útsölur mega ekki
hækka gömlu birgðirnar.
Hér sést Gamli-Ford Bjarna Hrlendssonar á Víðistöðum. Hann er enn gangfær og notaður til að bera á túnið.
Varahlutir í Gamla-Ford
- flibbar og gaddavír -
Rætt viS eigendur elztu bíla landsins
frá
er
og báðum hann að segja okkur
sitthvað af Gamla-Ford. Geir var á
förum til Ameríku á vegum Sölu-
miðstöðvarinnar en gaf sér tíma
til að rabba við okkur meðan frú-
in hellti á könnuna.
I skýrsiu sem greinir
bifreiðaeign landsmanna
sérstök skrá um aldur bif-
leiða. Þar sést aS árið 1955
hafa flestar bifreiðar verið
fluttar inn, 3427 að tölu. Hins siökkviliSsbíll
vegar höfðum við upp á tveim- ' Jg keypti bílinn fyrir fjórum
ur bifreiðaeigendum sem arum af hvítasunnupresti í Hafnar-
munu eiga elztu bifreiðir á jfirði. Nikulási trésmið Jónssyni.
landinu. Það eru Geir Mngnús-;
son viðskiptafræðingur í
Keykjavík og Bjarni Erlends-
son á Víðistöðum við Hafnar-
fjörð.
Geir keypti fyrir fjórum árum
Ford-bíl K-2989 frá árinu 1923,
mesta kostagrip og sómakerru.
Rjarni á Víðistöðum á einnig Ford-
vörubíl, G-347, smíðaár 1925 og er
hann enn gangfær og notaður.
Við hittum Geir að máli í gær
var 300 krónur. —
Bíllinn er kominn hingað til lands
írá Sviþjóð, árið 1923 og var not-
aður sem slökkviliðsbíll á Akur-
eyri. Þá voru settar langsumfjaðrir
á hann að aftan þar sem slökkvi-
dælan var en sæti fyrir tvo fram í.
Síðan var bíllinn nokkurn tíma á
Óiafsfirði en þaðan fluttur til
Hafnarfjarðar og settur út úr
embætti sem slökkviliðsblll.
Þó var hann hafður um tíma á
Selfossi í forföllum, og þá varð að
fara á honum Þingvallaleiðina því
hann komst ekki upp Kambana. —
Það var alsiða að fara aftur á bak
upp brekkur á gömlu bílunum,
vegna þess að engin olíudæla var
í þeim og síður hætta á að þeir
bræddu úr sér ef ekið var aftur á
bak upp.
Á leikhús og böil
Ég smíðaði sjálfur hús á bílinn
þegar ég fékk hann og ók á honum
hér um göturnar í fjögur ár. Þegar
heitmey mín sá hann fyrst, sór
hún þess dýran eið að láta aldrei
sjá sig náíægt honum en það fór
á aðra leið. Við fórum bæði á leik-
hús og böll í bílnum og hann stóð
sig með mestu prýði.
Þetta eru vandaðir bílar og þarf
(Framháld á 3. síðu).
Bjarrti
75 aura á mann
Geir
aftur á bak upp
Þetta er bifrelð Geirs Magnússonar. Hann fór á honum á leikhús og böll
og sína stoltustu stund llfðl Gamll-Ford fyrir nokkrum árum, þegar hann
dró í gang splúnkunýjan lúxusbll.
íá,'///..
////m / V/
/ZyW/////
Regn
Nú er dagur regnhlífanna.
I dag á sem sé að rigna
dálítið á kollana á okkur,
en ekki verður það neltt
ofstopaveður, því að vind-
ur er mjög lítill og af
austri.