Tíminn - 17.03.1960, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.03.1960, Blaðsíða 13
9 T f M I N N, fimmtudaginn 17. marz 1960. Bék ársins 1960: Vestur-íslenzkar æviskrár Meðal íslendinga hefur frá fornu fari verið mikill áhugi á sögu þjóðarinnar og ættfræði. Þeim áhuga má að verulegu leyti þakka að hinar fornu bókmenntir íslendinga urðu til og að síðan hefur haldizt við þekking á ættum manna og sögu einstaklinga, óslit- ið að kalla má til okkar daga. Hefur það reynzt ómetanlegur styrkur í baráttu íslendin.ga fyrir sjálfstæði sínu og tilveru sem sjálfstæðrar þjóðar. Og enn lifir sami andinn. Menn vilja vita deili á frændum sínum, þótt fjarskyldir séu og búi í öðrum löndum. Ef litið er á það, sem íslendingar vestan hafs hafa skrifað, sést að sami áhuginn hefur lifað þar, enda miklar heimildir um ættfræði og mannfræði í íslenzkum ritum og blöðum vestan hafs. Til þess að endurvekja hin gömlu kynni og skapa ný tengsl milli frænda báðum megin hafsins hef ég hafizt handa um að safna í eina heild stuttum æviágripum með myndum sem flestra núlif- andi manna af íslenzkum ættum í Vesturheimi og gefa út. Eins og að líkum lætur, er út- gáfa slíks ritverks, sem að miklu leyti hefur orðið að vinna í ann- arri heimsálfu, mjög kostnaðar- söm, og má segja, að framhalds- starfið verði því aðeins unnið, að unnt reynist að tryggja því fjár- hagslegan grundvöll þegar í upp- hafi. í því skyni verður leitað eft- ir áskriftum að æviskránum og þess vænzt, að allir, sem ættfræði og mannfræði unna gerist áskrif- endur. Nær sú hvatning jafnt til íslendinga austan hafs og vestan. Verða æviskrár þessar mun ýtar- legri en fslenzkar æviskrár, sem Bókmenntafélagið gaf út fyrir nokkru, auk mynda af öllum við- komandi mönnum, sem það leyfðu. Þá verður aftast í bindinu nafna- skrá yfir alla, sem þar er getið. En þeir munu skipta mörgum þús- undum. Kemur fyrsta bindið út í ár. Það verður um 500 bls. í stóru broti, prentað á myndapappír. Fræðimennirnir sr. Benjamin Kristjánsson á Laugalandi og sr. Jón Guðnason þjóðskjalavörður í Reykjavík, búa æviskrárnar undir prentun, en útgáfu annast Bóka- forlag Odds Björnssonar á Akur- eyri, og er það góð trygging fyrir vandaðri vinnu. Verð þessa bindis er ákveðið til áskrifenda kr. 350.00 í bandi, en óbundið kr. 320.00. — Bókhlöðuverð verður kr 450.00 ib. og kr. 420.00 ób. Til þess að létta undir með hin- um mikla útgáfukostnaði, fylgir boðsbréfi þessu áskriftarseðill, og eru það vinsamleg tilmæfi min til þeirra, sem gerast vilja áskrifend- ur, að þeir sendi kr. 50.00 fyrir- framgreiðslu ásamt áskriftarseðl- inum, Þeiin, sem greiða þetta fyrsta bindi að fullu við pöntun, eru boð- in þau kostakjör að eignast bókina, „Frá Kotá til Kanada“ eða þá „Dalaskáld“ eftir eigin vali, ásamt ritinu Eddu, öllu sem út er komið, fyrir aðeins kr. 20.00 — Athugið vel þetta boð. Efni þessa boðsbréfs er fyrst og fremst að kynna Æviskrárnar og þann tilgang, sem að baki liggur, að gefa slíkt rit út. En hann er í stuttu máli þessi: 1. Skapagrundvöll að persónu- legum tengslum milli íslendinga austan hafs og vestan. 2. Fá yfirlit um, hvern þátt fólk af íslenzkum ættum hefur átt í þjóðfélögunum í Ameríku, þar sem fram kemur, hvaða stórf það hefur unnið, og hvert áhugi þess hefur beinzt. 3. Verða þáttur í ísl. ættfræði og söguleg heimild sem unnt sé að byggja á í framtíðinni um ætt- artengsl manna báðum megin hafsins og vekja með því áhuga yngri kynslóðarinnar vestra á ættarböndunum við ísland. Það er hugmynd mín að þ^rna verði skráð heimild um menn af íslenzkum stofni sem hafi varan- legt gildi fyrir sögu landa þeirra, ekki síður en íslenzka ættfræði, og sýni hvern þátt hinn litli, ís- lenzki þjóðstofn hefur spunnið í líf hinna fjölmörgu þjóða í Ame- ríku. Einnig megi þetta verða til þess, að efla almennt menningar- samband milli íslands annars veg- ar og Canada og Bandarikjanna hins vegar. Áð lokum vil ég þakka öllum þeim fyrirfram, sem gerast áskrif- endur að Æviskránum og leggja þar með fram sinn skerf til þess, að mynda meginþráð yfir hafið milli íslendinga austan hafs og vestan, og styrkja þannig og treysta samstarf og kynni við þessa fjarlægu frændur okkar og vini. Akureyri, 15. marz 1960. Árni Bjarnarson. Sýnishorn af einni blaðsíðu úr bókinni . ’PShIÍ 5ai............................... K i hiiði líkMijin n.Jiimvíl , imt i-oi:.: < -u.'nuííi)-!;.: K.íii" ítss.s.tn, ÍH'rp 20. jan. JÍIU9, oy; k. h. Si-rjAur GKhutu!m\ i.22. k:br, ri \ - - Btn'n Jí!f utj : ‘i. í íörfyt<r, 5P!;. Vauw2. AvnvjÍD F,íéd.m>r, i'. H/máí ,1’OÍvfpE '"Afy,.., Mrryío. h\ *v a-h. j, ibiílvíri, L 14/klnv „ víúj mymktíokm h\.- -.t.iv'.í.t.vmt \V|mHj>cg í'ribvtnc. UrÍ!itiijtc|’, . '• i, í. f/. jól! ýV:.i:W.;r::ó.WMIÉtíimm í. ' . > - V.;/. í --'i i-i í- .1.., gj | Clarc Um>, \\ n l -I Vi> , ::«:;í :.:: .luí^tj: í t j;i ' i.«>t >a!. > v. -i /. I i i n t.' i (<. i • i :Ki«vÍ|aVí|§2 síÁ.in tor>!.-M; S lir ( isn.i tmm. Sl > iim i ! ,. i‘vcm :! litljesKkii'li'iitffí' , ___________________—............. lllllÍSll®®fe>Í«ös; ttá UH5, Skiji.sAur r,cÁi<.m;iðiíi Áskriftarseðill að Vestur-íslenzkum æviskrám I. Ég undirrit gerist hér með áskrifandi áð Vestur- íslenzkum æviskrám I., sem koma út í sumar og kosta til áskrifenda kr. 350.00 ib. og kr. 320.00 ób. að við- bættum kostnaði, og sendi hér með kr...................... . NAFN: . . . HEIMILI: . PÓSTSTÖÐ: Pantanir sendist: Bókaverzl. Edda h.f. Akureyri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.