Tíminn - 17.03.1960, Qupperneq 13
9
T f M I N N, fimmtudaginn 17. marz 1960.
Bék ársins 1960:
Vestur-íslenzkar æviskrár
Meðal íslendinga hefur frá
fornu fari verið mikill áhugi á
sögu þjóðarinnar og ættfræði.
Þeim áhuga má að verulegu leyti
þakka að hinar fornu bókmenntir
íslendinga urðu til og að síðan
hefur haldizt við þekking á ættum
manna og sögu einstaklinga, óslit-
ið að kalla má til okkar daga.
Hefur það reynzt ómetanlegur
styrkur í baráttu íslendin.ga fyrir
sjálfstæði sínu og tilveru sem
sjálfstæðrar þjóðar. Og enn lifir
sami andinn. Menn vilja vita deili
á frændum sínum, þótt fjarskyldir
séu og búi í öðrum löndum. Ef
litið er á það, sem íslendingar
vestan hafs hafa skrifað, sést að
sami áhuginn hefur lifað þar, enda
miklar heimildir um ættfræði og
mannfræði í íslenzkum ritum og
blöðum vestan hafs.
Til þess að endurvekja hin
gömlu kynni og skapa ný tengsl
milli frænda báðum megin hafsins
hef ég hafizt handa um að safna
í eina heild stuttum æviágripum
með myndum sem flestra núlif-
andi manna af íslenzkum ættum í
Vesturheimi og gefa út.
Eins og að líkum lætur, er út-
gáfa slíks ritverks, sem að miklu
leyti hefur orðið að vinna í ann-
arri heimsálfu, mjög kostnaðar-
söm, og má segja, að framhalds-
starfið verði því aðeins unnið, að
unnt reynist að tryggja því fjár-
hagslegan grundvöll þegar í upp-
hafi. í því skyni verður leitað eft-
ir áskriftum að æviskránum og
þess vænzt, að allir, sem ættfræði
og mannfræði unna gerist áskrif-
endur. Nær sú hvatning jafnt til
íslendinga austan hafs og vestan.
Verða æviskrár þessar mun ýtar-
legri en fslenzkar æviskrár, sem
Bókmenntafélagið gaf út fyrir
nokkru, auk mynda af öllum við-
komandi mönnum, sem það leyfðu.
Þá verður aftast í bindinu nafna-
skrá yfir alla, sem þar er getið.
En þeir munu skipta mörgum þús-
undum. Kemur fyrsta bindið út í
ár. Það verður um 500 bls. í stóru
broti, prentað á myndapappír.
Fræðimennirnir sr. Benjamin
Kristjánsson á Laugalandi og sr.
Jón Guðnason þjóðskjalavörður í
Reykjavík, búa æviskrárnar undir
prentun, en útgáfu annast Bóka-
forlag Odds Björnssonar á Akur-
eyri, og er það góð trygging fyrir
vandaðri vinnu. Verð þessa bindis
er ákveðið til áskrifenda kr. 350.00
í bandi, en óbundið kr. 320.00. —
Bókhlöðuverð verður kr 450.00 ib.
og kr. 420.00 ób.
Til þess að létta undir með hin-
um mikla útgáfukostnaði, fylgir
boðsbréfi þessu áskriftarseðill, og
eru það vinsamleg tilmæfi min til
þeirra, sem gerast vilja áskrifend-
ur, að þeir sendi kr. 50.00 fyrir-
framgreiðslu ásamt áskriftarseðl-
inum,
Þeiin, sem greiða þetta fyrsta
bindi að fullu við pöntun, eru boð-
in þau kostakjör að eignast bókina,
„Frá Kotá til Kanada“ eða þá
„Dalaskáld“ eftir eigin vali, ásamt
ritinu Eddu, öllu sem út er komið,
fyrir aðeins kr. 20.00 — Athugið
vel þetta boð.
Efni þessa boðsbréfs er fyrst og
fremst að kynna Æviskrárnar og
þann tilgang, sem að baki liggur,
að gefa slíkt rit út. En hann er í
stuttu máli þessi:
1. Skapagrundvöll að persónu-
legum tengslum milli íslendinga
austan hafs og vestan.
2. Fá yfirlit um, hvern þátt fólk
af íslenzkum ættum hefur átt í
þjóðfélögunum í Ameríku, þar
sem fram kemur, hvaða stórf það
hefur unnið, og hvert áhugi þess
hefur beinzt.
3. Verða þáttur í ísl. ættfræði
og söguleg heimild sem unnt sé
að byggja á í framtíðinni um ætt-
artengsl manna báðum megin
hafsins og vekja með því áhuga
yngri kynslóðarinnar vestra á
ættarböndunum við ísland.
Það er hugmynd mín að þ^rna
verði skráð heimild um menn af
íslenzkum stofni sem hafi varan-
legt gildi fyrir sögu landa þeirra,
ekki síður en íslenzka ættfræði,
og sýni hvern þátt hinn litli, ís-
lenzki þjóðstofn hefur spunnið í
líf hinna fjölmörgu þjóða í Ame-
ríku. Einnig megi þetta verða til
þess, að efla almennt menningar-
samband milli íslands annars veg-
ar og Canada og Bandarikjanna
hins vegar.
Áð lokum vil ég þakka öllum
þeim fyrirfram, sem gerast áskrif-
endur að Æviskránum og leggja
þar með fram sinn skerf til þess,
að mynda meginþráð yfir hafið
milli íslendinga austan hafs og
vestan, og styrkja þannig og
treysta samstarf og kynni við
þessa fjarlægu frændur okkar og
vini.
Akureyri, 15. marz 1960.
Árni Bjarnarson.
Sýnishorn af einni blaðsíðu úr bókinni
. ’PShIÍ
5ai...............................
K i hiiði líkMijin n.Jiimvíl ,
imt i-oi:.: < -u.'nuííi)-!;.: K.íii" ítss.s.tn, ÍH'rp
20. jan. JÍIU9, oy; k. h. Si-rjAur GKhutu!m\ i.22. k:br, ri
\ - - Btn'n Jí!f utj : ‘i. í íörfyt<r,
5P!;. Vauw2. AvnvjÍD F,íéd.m>r, i'. H/máí ,1’OÍvfpE
'"Afy,.., Mrryío. h\ *v a-h. j, ibiílvíri, L 14/klnv „
víúj mymktíokm h\.- -.t.iv'.í.t.vmt \V|mHj>cg í'ribvtnc. UrÍ!itiijtc|’,
. '• i, í. f/. jól! ýV:.i:W.;r::ó.WMIÉtíimm
í. ' . > - V.;/. í --'i i-i í- .1..,
gj | Clarc Um>, \\ n l -I Vi>
, ::«:;í :.:: .luí^tj: í t j;i ' i.«>t >a!. > v. -i /. I i i n t.' i (<. i • i :Ki«vÍ|aVí|§2
síÁ.in tor>!.-M; S lir ( isn.i tmm. Sl > iim i
! ,. i‘vcm :! litljesKkii'li'iitffí'
, ___________________—.............
lllllÍSll®®fe>Í«ös; ttá UH5, Skiji.sAur r,cÁi<.m;iðiíi
Áskriftarseðill að Vestur-íslenzkum æviskrám I.
Ég undirrit gerist hér með áskrifandi áð Vestur-
íslenzkum æviskrám I., sem koma út í sumar og kosta
til áskrifenda kr. 350.00 ib. og kr. 320.00 ób. að við-
bættum kostnaði, og sendi hér með kr...................... .
NAFN: . . .
HEIMILI: .
PÓSTSTÖÐ:
Pantanir sendist: Bókaverzl. Edda h.f. Akureyri.