Tíminn - 17.03.1960, Síða 8
8
T f M IN N, fimmtudaginn 17. marz 1960.
VETTVAN6UK ÆSKUNNAE
RITSTJÓRI: GUTTORMUR SIGBJARNARSON
ÚTGEFANDi: SAMBANÐ UNGRA- FRAMSOKNARMANNÁ
Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar eru
svívirðileg árás á unga fólkið I landinu.
Aðstaða jnga fólksins
Gamalt íólk minnist oft
þeirra daga, þegar það var
ungt. Við, sem yngri erum,
undrumst, þegar það segir
frá því, hvernig þvi voru all-
ar leiðir lokaðar, ef það vildi
leita menntunar, eða ef það
vildi reyna að koma þaki yfir
höfuðið á sér. Þeir einir, sem
áttu ríka foreldra, gátu veitt
sér nokkuð slíkt. Á þessu ó-
fremdarástandi urðu ekki'
teljandi breytingar fyr en
eftir 1940, en eftir þann tíma
hefur ungt og dugandi fólk
yfirleitt verlð fært um að
afla sér þeirrar menntunar,
sem hugurinn girntist, og
enn fremur hefur það einnig
átt möguleika á því að koma
sér upp mannsæmandi íbúð
um. Ungir menn hafa einnig
haft nokkra möguleika á því
að skapa sér sjálfstæðan at-
vinnurekstur, sem verið hef-
ur mjög mikilsvert fyrir þjóð-
félagið í heild.
Aðstaða anga fólksins til
menntunar og athafna hef-
ur verið þjóðfélaginu sá
örfandi straumur, sem gert
hefur þessi ár að mesta
framfaratímabili í sögu
þjóðarinnar.
ViðbrSgð yfirvaldanna
Þrátt fyrir þessar stað-
reyndir, þá hafa íslenzk
stjórnarvöld oft á þessu tíma
bili verið sofandi fyrir þörf-
um unga fólksins, og mikið
hefur á vantað að reynt hafi
verið að skapa ungu fólki
þau mennta- og starfsskil-
yrði, sem æskilegt hefði
verið. í því sambandi má
benda á það, hversu mikill
skortur ^r á viðunandi skóla
húsnæði og kennslutækjum,
og hvað lánsfjárskorturinn
hefur háð langskólafólki, og
ekki síður þeim, sem reynt
hafa að koma fótunum fyrir
sig í atvinnulíinu.
Hvað er framundan?
Nú hafa þau fáheyrðu tíð-
indi gerzt, að ríkisstjómin
hyggst með einni iagasetn-
ing;i færa allt fjármálakerfi
þjóðarinnar a.m.k. 50 ár aftur
í tímann. Það á í stuttu máli
sagt að skera niður við trog
allt, sem áunnizt hefur i efna
hagsmálum þjóðarinnar síð-
asta áratuginn. Þar með á
að svipta unga fólkið öllum
þeim möguleikum sem það
hefur aflað sér til mennta
og athafna.
Jafnframt missir þjóðfé-
lagið þann örfandi kraft,
sem bjartsýn, námfús og at
hafnasöm ung kynslóð er
þvi á hverjum tlma.
Ef ríki'sstjórninni tekst að
hrinda ráðagerð sinni í fram
kvæmd, þá verða það aðeins
böm hinna riku og út.völdu,
sem geta leyft sér að hugsa
um langskólamenntun, íbúða
byggingar, atvinnutæki og
þess háttar. Börn hinna fá-
tæku þurfa ekki að hugsa um
slíkt, þvi að þeim mun eng-
inn kostur gefinn.
Til þess eru refirnir
skornir
Höfuð markmið efnahags-
aðgerða ríkisstjórnarinnar
virðist vera það, að gera hina
ríku rikari og hina fátæku
fátækari, enda munu refirn-
ir til þess skornir að skapa
örfáum auðmönnum sérrétt-
indaaðstöðu í þjóðfélaginu.
Launaskerðingin verður
þungbær
Gengisfellingin ein hlýtur
að leiða af sér all verulega
launaskerðingu, auk þess
munu ýmsar aðrar af efna-
hagsaðgerðum ríkisstjórnar-
innar skerða laun almenn-
ings mjög mikið, svo sem
aukin skattheimta, þó að í
óbeinum sköttum sé. Annað
aðalatriði í efnahagsstefnu
ríkisstjórnarinnar er sam-
dráttur I öllum framkvæmd-
um og atvinnulífi þjóðarinn
ar.
Afleiðingarnar af sam-
drcetti í atvinnulifinu eru
vissulega ennþá alvarlegri
heldur en launaskerðingin
vegna gengisféllingarinnar.
Frá aukavinnu til
atvinnuleysis
Á undanförnum árum hef-
ur mi'kil og vel borguð auka
vinna verið höfuðþátturinn í
almennri velgengni. Föstu
launin hafa sjaldnast hrokk-
ið fyrir brýnustu lífsnauð-
synjum. Aftur á móti hefur
ungt og dugandi fólk brotizt
áfram til góðrar efnahagsaf-
komu með mjög mikilll auka
vinnu. Fyrsta afleiðingin af
samdrætti í atvinnulífsinu
verður vissulega sú, að öll
aukavinna hverfur úr sög-
unni, ef ríkisstjórninni tekst
áform sitt. Næsta skrefið
verður svo, að atvinnuleysið
heldur innreið sína. Sérstak-
lega er mikil hætta á árs-
tímabundnu atvinnuleysi viða
út um land, og einnig er
hættan mi'kil hjá þeim, sem
hafa unnið að framkvæmd-
um, sem byggjast á fjárfest-
ingu.
Skólafólk oq unglingar
fá ekki atvinnu
Þeir aðilar sem mest fá að
kenna á atvinnuleysinu,
verða skólafólk og ungling-
ar. Atvinnumöguleikar skóla-
fólks í sumarleyfum sínum
verða sáralitlir og stopulir, en
fjöldi af ungu fólki byggir
skólagöngu sína á sumarat-
vinnunni.
Atvinnulausir unglingar
flœkjast í hópum eftir göt-
um bœjanna, sjálfum sér og
öðrum til leiðinda, og það
er of alkunnugt til þess að
þörf sé að rœða það, hvað
slíkt er hœttulegt fyrir upp
eldi œskulýðsins.
Erlendir skólamenn hafa
öfundað okkur mikið af því,
hvað við höfum getað veitt
unglingunum mikil atvinnu-
skilyrði, því að verkefnaskort
ur ungiinga er víða mikið
vandamál. Þessu er verið að
bjóða hér helma.
Við þörfm.’mst tækni-
menntaðs fólks
Nútíma þjóðfélagi er fátt
nauðsynlegra en fjölmennur
hópur vel menntaðra bjóðfé-
lagsborgara. Sérstaklega er
mikil þörf fyrir mikinn fjölda
af tæknimenntuðum mönn-
um, verkfræðingum, vélfræð-
ingum, iðnfræðingum o.s.frv
Við þurfum að sækja mikið
af okkar tæknimenntun til
útlanda eins og málum er nú
háttað.
En hvemig eru viðbrögð
stjómarinnar gagnvart skóla
fólkinu? Þar bólar hvergi á
hjálparhönd, heldur þvert á
móti. Minnkandi atvinna og
atvinnuleysið verður skóla-
mönnum mjög þungt í skauti,
eins og minnzt hefur verið á.
Margir iðnnemar fara sér-
staklega illa vegna þessara
ráðstafana. Mikill fjöldi iðn-
nema byggja nám sitt að
verulegu leyti á aukavinn-
unni, sem verið hefur mjög
mikil I mörgum iðngreinum.
Hvernig gæti iðnnemi með
fjölskyldu. dregið fram lífið
án aukavinnu?
Hva8 verSur um þá náms
menn, sem stunda nám
erlendis?
Allra svívirðilegastar eru
þó aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar gagnvart þeirr. námsmönn
um, sem stunda nám erlend
is. Auk þeirra erfiðleika sem
minnkandi atvinna skapar
þeim, þá bætist það við, að
þeir eru sviptir öllum þeim
fríðindum, sem þeir hafa
haft, jafnframt gengisfelling
unni, án þess að nokkrar bæt,
ur komi í staðinn. Margir
þeirra, sem nú stunda nám
erlendis, munu neyðast til að
hætta námi og hverfa heim,
og það er ekki glæsilegt útlit
fyrir þá, sem hafa hugsað sér
langt og dýrt nám við erlenda
skóla. Þar sem tæknimennt-
un þjóðarinnar er svo mikið
sótt til útlanda, og það er
jafnframt staðreynd, að
tæknimenntaðir menn koma
sjaldnast úr auðmannastétt-
um, þá iiggur það í augum
u'oj’ hverjar afleiðingarnar
verða. Verkmenning þjóðar-
innar er í alvarlegri hœttu.
Kveðjs ríkisstjórnarinnar
tií húsbvogjenda og heimilis-
‘to^nenda
Síðasta afrek ríkisstjórn-
arinnar var, þegar þessar
llnur voru ritaðar, að hœkka
alla útlánsvexti upp í okur
vexti. Þetta greiðir öllum
þeim fjölda ungs fólks, sem
stendur í húsbyggingum eða
heimilisstofnun, slíkt rot-
högg að ófyrlrsjáanlegt er,
hversu geigvœnlegar afleið-
ingar þetta kann að hafa.
Það eitt er vist að peninga
mennirnir munu fylgjast
vandlega með nauðungarupp
boðum á næstunni, því að
hækkaðir vextir og minnk-
andi atvinna mun gera mörg
um ókleift að standa undir
vöxtum og afborgunum af ný
byggðum og hálfbyggðum j
íbúðum. í sárabætui handa
húsbyggendum hyggst ríkis- '■
stjómin útvega húsnæðis-j
málastjórn 40 milljónir kr. (
— með aðeins 9% ársvörtum.
— Það hafa að vísu verið
taldir okurvextir fram til
þessa, og ásælnir peninga-
menn verið dregnir fyrir rétt
út af slíkum smámunum. j
Vextirnir drepa atvinnulífið
i dróma
Ekki verður álitlegra fyrir
unga menn að leggja út í
sjálfstæðan atvinnnrekstur,
enda úti’okað, að nokkur geti
byrjað á einhverju «rku án
verulgs lánsfjár. Nú girða
okurvextirnir fyrir það. —,
Hvernig fer fyrir þeim, sem
nýlega hafa keypt sér vöru-
bíl eða ráðist í stofnun ein-
hvers verkstæðis af lítilli
getu? Hætt er við, að margir
þeirra lcmdi í greiðsluþrot,
þegar víxlarnir falla. Við get
um alveg eins búist við því,
að það verði nóg verkefni fyr
ir unga fólkið að vera á snöp
um eftir stopulli atvinnu.
Er verið ?ð gera efnahags-
mál íslendinga að tilrauna-
stöð fyrir hagfræðinga?
Erum við neydd til að trúa
þvi, að ríkisstjórnin vilji
koma hér öllu á kaldan klak-
ann, eða er verið að gera ís-
land að tilraunastöð fyrir
hagfræðinga til að sann-
reyna einhverjar hagfræði-
kenningar á svipaðan hátt og
byggingar og ýmsar aðrar
stórframkvæmdir á vegum
Reykjavikurbæjar hafa verið
tilraunaviðfangsefni arkitekta
og verkfræðinga, þó að það
hafi hvað eftir annað kostað
hinn almenna skattborgara
nokkra milljónatugi.
Ef til vill ný bjargráð
Ef til vill ætlar ríkisstjórn
in að koma með ný bjargráð
fyrir atvinnulífið, þó að hún
þegi nú sem fastast. Ef til
vill er hægt að selja einhver
landsréttindi til vlðbótar,
t d. með auknum framkvæmd
um á vegum varnarliðsins. svo
sem herskipahöfn handa
auknum sjóher Einnig hafa
ýmsir erlendir aðilar ágirnd
á fossunum okkar.
Hver veit?
Hvað ber tramtíðin I
ckauti sér?
Við erum stödd á vegamót-
um í efnahavsmálum þjóðar
innar. Hvað er framundan0
Ungir sem gamlir verða að
líta upp og gefa því gætur,
hvað er að gerast i kringum
þá. Er verið að sökkva okkur
í mvrkur fátæktarinnar? Sér-
staklega ber nnw fóikinu að
fylgjast með bví hvað er að
gerast hví ^ð það er það, sem
landið erfir.
Eina vörniv fyrir nnga
fólkið oeon þeirrj arán *em
að hevni er beint, er að rísa
upp til varnar og láta ekk-
ert tœkifœri ónotað. til að
7áta andúð sína í Ijósi. m.eð
orðum eða athöfnum. Hver
verður framtv* lg.ndsins ef
æskan g etur "kki lengnr
verið bjartsýn námfús og
athafnasöm?