Tíminn - 17.03.1960, Side 14
14
T f M I N N, fimmtudaginn 17, marz 1960.
inn. Þér skuluð spyrja eftir
mér, ég heiti Noel Strachan
og er elzti lögfræðingurinn í
fyrirtækinu.
Henni var vísað inn til mín
stundvíslega klukkan hálf
ellefu á laugardagsmorgun.
Hún var í meðallagi há og
dökkhærð, fríðleiksstúlka á
yfirlætislausan hátt. Það var
yfir henni einhver ró, sem ég
á erfitt með að lýsa, en fylgir
suihum skozkum konum. Hún
var klædd dökkblárri kápu og
samlitu pilsi. Eg stóð á fætur,
heilsaði henni og bauð henni
sæti. Svo tók ég fram skjöl-
in.
— Jæja, ungfrú Paget. Eg
frétti til yðar í gegn um föð-
ursystur yðar, Agöthu Paget.
Hún kinkaði kolli. — Ag-
atha frænka skrifaði mér, að
hún hefði fengið bréf frá yð-
ur. Já hún er föðursystir mín.
— Svo að þér eruð dóttir
Arthur og Jean Paget, sem
bjuggu í Southampton og
Malaya?
— Það er rétt. Eg er með
fæðingarvottorð mitt og gift-
ingarvottorð foreldra minna,
ásamt fæðingarvottorði móð-
ur minnar. Hún tók skjölin
úr tösku sinni og lagði þau
á borðið, ásamt vegabréfi
sínu-
Eg aðgætti skjölin vandlega.
Um það var engum blöðum að
flettá, hún var sú, sem ég leit-
aði að.
Eg hallaði mér aftur í stól-
inn og tók ofan gleraugun.
— Segið mér, ungfrú, Paget,
hittuð þér nokkurn tíma móð-
1 urbróður yðar, Douglas Mac-
t fadden?
j Hún hikaði. — Eg hef ver-
1 ið að velta því fyrir mér, sagði
' hún hreinskilnislega. — Eg
' gæti ekki svarið, að ég hefði
nokkurn tima séð hann, en ég
held þó að það hljóti að hafa
! verið hann, sem við fórum að
finna með mömmu í Skotlandi
I þegar ég var um tíu ára. Við
fórum öll saman — mamma,
I Donald og ég. Eg man eftir
1 gömlum manni í loftlitlu her-
bergi. Eg held að það hafi
verið móðurbróðir minn, en ég
er ekki viss.
Þetta kom heim við það sem
Macfadden hafði sagt mér um
heimsókn systur sinnar og
barna hennar árið 1932. Þá
hlaut stúlkan að hafa verið
ellefu ára gömul. — Segið mér,
ungfrú Paget, er Donald bróð-
ir yðar á lífi? spurði ég.
Hún hristi höfuðið. — Hann
dó 1943 — hann var striðs-
fangi. Japanir tóku hann fast
an í Singapore þegar við gáf-
umst upp þar og svo var hann
sendur i járnbrautina.
Eg fylgdist ekki með. — í
járnbrautina?
Hún horfði dálítið kulda-
lega á mig og mér fannst til-
lit hennar tjá umburðarlyndi
með fáfræði þeirra, sem verið
höfðu heima í Englandi. —
Járnbrautina, sem Japanir
létu Asíumenn og stríðsfanga
leggja frá Siam til Burma.
Þar dó maður fyrir hvem
þverbjálka, sem lagður var og
brautin er nær tvö hundruð
mílur á lengd. Donald var einn
af þeim.
Það varð svolítil þögn.
— Það hryggir mig, sagði ég
svo. — Því miður verð ég að
— Svo má segja, anzaði ég,
— en þér mynduð aðeins fá
vextina af eignum hans þang
að til 1956. Að þeim tíma liðn-
um hafið þér fullan ráðstöf-
unarrétt yfir höfuðstólnum.
— Hve mikið lét hann eftir
sig?
Eg greip blað úr skjalabunk
anum fyrir framan mig og leit
yfir niðurstöður heildarupp-
gjörsins. — Þegar erfðaskatt
ur og dánargjafir hafa verið
greiddar, sagði ég hægt, — þá
verða eftirstöðvarnar sem
Framhaldssaga
ir það, að ég þarf aldrei að
vinna framar, nema ég óski
þess sjálf.
Hún hitti naglann á höfuð-
ið með síðustu orðum sínum.
— Einmitt, sagði ég, — ekki
nema þér óskið þess sjálf.
— Eg veit ekki hvað ég ætti
af mér að gera, ef ég þyrfti
ekki að fara á skrifstofuna,
sagði hún. — Það er allt mitt
líf.
— Þá myndi ég halda á-
fram að fara á skrifstofuna 1
yðar sporum, sagði ég.
Hún hló. — Ætli að það sé
ekki bezt.
— Eg er gamall maður, ung
frú Paget og hef oft breytt
Nevil Shute,-
VÍDA LIGOJA VEGAMÚT
spyrja yður enn einnar spurn
ingar. Hafið þér dánarvott-
orð?
Hún starði á mig. — Nei,
það hef ég sannarlega ekki.
— Jæja . . . Eg hallaði mér
afturábak í stólinn og tók
arfleiðsluskrána af borðinu.
— Þetta er erfðaskrá Dougl-
as Macfadden sagði ég. — Eg
lét taka afrit af henni handa
yður, en ég held að bezt sé að
ég segi yður efni hennar með
venjulegu orðalagi. Pöður-
bróðir yðar gaf tvær smá dán
argjafir. Afgangurinn átti að
renna til Donalds bróður yðar.
Siklyrðin voru þau, að móðir
yðar nyti vaxtanna um sína
daga. Ef hún dæi áður en bróð
ir yðar yrði myndugur, var arf
urinn bundinn þar til hann
yrði tuttugu og eins árs. Ef
bróðir yðar andaðist áður en
honum tæmdist arfurinn, þá
áttuð þér að taka hann eftir
andlát móður yðar, en þó með
því skilyrði, að hann yrði yð-
ur ekki afhentur til umróða
ur ekki afhentur til umráða
verðið þrjátiu og fimm ára
gömul. Þér skiljið, að okkur
er nauðsynlegt að fá lögform
lega staðfestingu á andláti
bróður yðar.
Hún hikaði um stund en
sagði svo- — Eg er hrædd um,
að ég sé ákaflega heimsk,
herra Strachen. Mér skilst að
þér viljið fá eitthvert sönnun
argagn fyrir því, að Donald
sé dáinn. En skil ég rétt að
að því loknu fái ég allar þær
eigur, sem Douglas frændi
minn lét eftir sig?
Sigríður Thorlacius
þýddi
3.
næst fimmtíu og þriggja þús-
und punda virði, miðað við
núgildandi verðlag. Eg legg á-
herzlu á, að sú upphæð er
miðuð við núgildandi verð-
lag, ungfrú Paget. Þér getið
ekki treyst því, að það verði
sú upphæð, sem þér erfið 1956.
Verðfall á verðbréfum hefur
einnig áhrif á erfðaféð.
Hún starði á mig. — Fimm-
tíu og þrjú þúsund pund?
Eg kinkaði kolli. — Það virð
ist vera niðurstöðutalan.
— Hve miklir vextir myndu
fást árlega af þeirri fjárhæð,
herra Strachan?
Eg leit aftur á blaðið. — Sé
hún látin standa í þeim verð-
bréfum sem hún nú er í, ættu
brúttótekjurnar að vera um
1550 sterlingspund, þar frá
verður að draga tekjuskatt.
Þér mynduð fá um níu hundr
uð pund á ári í eyðslueyri,
ungfrú Paget.
— Ó . . . . Það varð löng
þögn. Hún starði á borðið fyr
ir framan sig. Svo leit hún á
mig og brosti. — Maður þarf
að venjast slíku, sagði hún.
— Eg á við — ég hef alltaf
unnið fyrir mér, herra Strach
an og hefur aldrei dottið í hug
að ég ætti annarra kosta völ,
nema ef að ég giftist og það
er raunverulega aðeins að
skipta um starf. En þetta þýð
heimskulega og það hef ég
lært af heimskupörum mínum
að maður á aldrei að flýta sér
of mikið að taka ákvarðanir.
Ef ég má bjóða yður mín ráð,
þá tel ég að þér ættuð að
halda áfram starfi yðar fyrst
um sinn að minnsta kosti og
ég held ekki að þér ættuð að
ræða um arfinn á skrifstof-
unni. í fyrsta lagi munu líða
nokkrir mánuðir þar til þér
fáið eignarrétt yðar staðfest
an. Fyrst verður að leita stað
festingar á dauða bróður yðar,
þar næst að fá staðfestingu
skiptaráðendaréttar í Skot-
landi og selja nokkuð af
skuldabréfum til að mæta á-
föllnum kostnaði. Segið mér,
hvað starfið þér hjá Pack og
Levy?
— Eg hraðrita og vélrita,
sagði hún. — Eg er einkarit-
afi herra Pack.
— Og hvar búið þér?
— Eg leigi mér herbergi í
Campion Road 43, rétt hjá
Ealing almenningnum. Það er
gott herbergi, en venjulega
borða ég á matsölum.
Eg hugsaði mig um. — Eig
ið þér marga vini í Ealing-
hverfinu? Hve lengi hafði þér
búið þar?
— Eg þekki ekki margt fólk,
sagði hún, — eina eða tvær
fjölskyldur — samstarfsfólk
mitt. Eg hef verið hér í rösk
tvö ár eða síðan ég komst
heim aftur. Eg var nefnilega
í Malaya, herra Strachan og
var eins konar stríðsfangi þar
í hálft fjórða ár. Þegar ég
komst heim, þá fékk ég þetta
starf hjá Pack og Levy.
Eg skrifaði heimilisfang
hennar. — Jæja, ungfrú Pag-
et, í yðar sporum myndi ég
láta sem ekkert væri fyrst um
sinn, sagði ég. — Eg mun snúa
mér til hermálaráðuneytisins
á mánudag og fá skjölin varð
andi bróður yðar eins fljótt og
auðið er. Segið mér fullt nafn
hans, númer og herdeild.
— Hún gerði það og ég skrif
aði það allt hjá mér. — Þegar
það er fengið, mun ég fá erfða
skrána staðfesta, en við verð
um fjárhaldsmenn yðar þang
að til 1956.
Hún leit á mig. — Viljið þér
útskýra þetta nánar fyrir mér.
Eg er ekki vel að mér í lög-
fræði.
— Eg skil það. Þér munuð
sjá þetta allt í afritinu, sem
ég fæ yður, en meiningin er
þessi, að móðurþróðir yðar
hafði litla trú á getu kvenna
til að stjórna fjármálum. Mér
þykir leitt, að verða að segja
þetta en þér eigið heimtingu
á að vita allan sannleikann.
Hún hló. — Verið ekki að af
saka hann, herra Strachan.
Og hvað svo?
— í fyrstu vildi hann ekki
að þér fenguð umráð yfir höf
uðstólnum fyrr en þér væruð
orðin fertug, sagði ég, en ég
var því andvígur. Þó tókst mér
ekki að fá hann til að færa
aldurstakmarkið neðar en
þetta. Hann tilnefndi fjár-
haldsmenn yðar, sjálfan mig
og félaga minn, og það er okk
ar skylda að sjá um það eft-
ir beztu getu, að höfuðstóll-
inn rýrni ekki, þar til við af-
hendum erfingjanum hann á
tilskildum tíma.
— Eg skil. Frændi hefur
óttast að ég myndi kannske
eyða þessum fimmtíu og
þremur þúsundum strax.
Eg kinkaði kolli. — Einmitt.
Hann þekkti yður auðvitað
ekki, svo að þetta beindist
ekki að yður persónulega.
Hann taldi aðeins að konum
væri slður sýnt um að fara
með fjármuni á unga aldri en
körlum.
Hún sagði stillilega. — Það
má vel vera rétt. Stundar-
.....ápaiið yöur Hkup
A .ralUi margra. veralanaií
OÖNUOðL
ÁÖUUM
títíUH!
-AusturstræCi
EIRIKUR
víöförli
Töfra-
sverðið
88
‘•’f^OONOIZJTUoí^l
— Þar hverfa matvæli okkar og
skinntreyjur, tautar Ormur, þegar
þeir sjá Mongólana hverfa úr aug-
sýn. ... — Við verðum að fara á
eftir þeim, segir Þorkell.
— Þú hefur á réttu að standa,
segir Eiríkur. — Við höfum farið í
þessa ferð til að finna sverð Týs.
Aðeins ef okkur heppnast þetta,
getum við bjargað þúsundum sak-
Lausra undir harðstjórn Bor
Khans.
Soltnir og kaldir halda þeir af
stað. Rorik er nær dauða en lífi.
Hann er að hugsa um að strjúka og
flýja niður að strönd. Ormur hefur
hið sama í huga.
Allt í einu sjá þeir ljós fram-
undan. Mongólar «lá upp tjaldbúð-
um fyrir nóttina.