Tíminn - 19.03.1960, Síða 1

Tíminn - 19.03.1960, Síða 1
TÍMfNN flytur daglega meira af innlendum frétt- um en önnur blöö. Fylgizt meö og kauplð TÍMANN. mmartMwaracwuiicni 44. árgangur — 64. tbl. TÍMINN er sextán rijiU'mi sföwr daglega og flytur fföl- breytt og skemmtllegt efnl sem er vlð allra haefl. Laugardagur 19. marz 1960. Nú fer vorið að nálgast, og nátt- úran öll að vakna til lífsins eftir veturlanga hvíld. Trén fara að laufgast áður en langt um líður, blómin skjóta upp kollinum og farfuglarnir koma til baka. En fuglarnir sem heima sátu, og héldu fast við gamla Frón, þótt kalt væri, iífgast líka til muna. Endurn- ar á Tjörninni fara að líta hver aðra hýru auga, og eru meira að segja þegar byrjaðar að para sig. Ljósmyndari blaðsins tók eftir þessu, er hann gekk meðfram tjörninni á dögunum og festi andahópinn á filmu. (Ljósm.: Tíminn KM) Bretar lýsa nií yfir að þriggja I gær'kvöldi var lýst eftír manni frá Hafnarfirði, sem síðast er vit- að um á hafnarbakkanum í Kefla vík, á miðnætti síðast liðinn fimmtudag. Maður þessi heitir Sig urjón Sigurðsson, til heimils á Hamarsbraut 10, Hafnarfrði. Sig- urjón er 36 ára gamall, meðalmað ur á hæð, frekar grannur, með skollitað há, ljós yfirlitum. Klædd ur var hann í ljósbláan jakka, dökkar buxur, uppháar gúmmí- bomsúr, með gráa enska húfu á höfði. Þeir sem hafa orðið Sigur- jóns varir síðan á miðnættí á fimmtudagskvöldið, eru beðnir að ! gera næsfu lögreglustöð viðvart. Varaforsetar kjörnir og fundarsköp samþykkt. ísland mikið rætt í blöðum í dag lauk undirbúningi á sjóréttarráðstefnunni í Genf og mun fyrsti eiginlegi starfs- fundur verða á mánudag. Var gengið frá ýmsum formsatrið- nm svo sem fundarsköpum og einnig voru kjörnir 17 vara- íorsetar Enginn þeirra er úr bópi ísl. fulltrúanna, enda þótt fregnir frá Genf hermi að ís- Verðhækk- anirnar Verðhækkanirnar eru alltaf að stinga upp kollin- um. Nýlega hækkaði Þvol þvottalögur í verði. Hálf- flaska sem áður kostaði 9.65 kostar nú 11.30, heil- flaskan kostaði 16 50. kost- ar nú 19.50. Þýzkar ískökur í pökkum kostuðu áður kr. 3.90 pakkinn, kosta nú kr. 5.25. land sé nijög til umræðu í blöðum i sambandi við ráð- stefnuna. Van prins, sem er forseti ráð- stefnunnar, en það var hann einnig 1958, sagði í dag, að hann teldi líklegt að unnt yrði, að ljúka henni á einum mánuði. ísland til umræðu í sambandi við gerð fundarskapa kom fram tillaga frá Mexíkó, sem fól í sér möguleika til að hindra fulltrúa í að bera fram aftur til- lögur til umræðu, sem þegar væri búið að fella við atkvæðagreiðslu. Varaforsetár voru valdir m. a. aðalfulltrúar þessara ríkja: Banda ríkjanna, Bretlands, Kanada, Sovét ríkjnna, Ítalíu, Sviss og Mexikó. Fréttastofan Associated Press segir frá því, að ísland sé nú all- mjög til umræðu í blöðum í sam- bandi við ráðstefnuna vegna út- færslu fiskveiðilandhelgi hér í 12 sjómílur og „þorskstyrjaldarinnar" við Breta. Bretar munu beygja sig f skeyti frá Kaupmannaliöfn til biaðsins segir, að Sir John Hare, brezki fiskimálaráðherrann, hafi við brottför til Genfar lýst yfir, að Bretar myndu beygja sig fyrir | ákvörðunum ráðstefnunnar um stærð fiskveiðitakmarka, enda þótt þær ákvarðanir kynnu að j verða íslendingum í vil. f fregn 1 um frá Genf er þess getið, að Sir John hafi opinberlega viður- kennt að 3 mílna landhelgismörk in væru úrelt. Skýrt er frá því, að lögfræðileg- ur ráðunautur S. Þ. á ráðstefnunni Stavropoulos, vinni að samræm- ingu á málamiðlunartillögu, sem komið hafi fram frá fulltrúum nokkurra ríkja. Meginatriðin eru (Framhald á 3. síðu). Minkur varð undir bíl I 'vrradag skeði sá fátíði at- burðui austur á Þjórsárbrú, að minkur varð undir bíl og beið bana. Ekki er blaðinu fullkunnugt um tildrög að þessu, þar sem ekki tókst að ná í neinn þann aðila er gæti gefið skýrslu um atburðinn. En hins vegar heyrðist því fleygt, að ökumaðurinn hefði gert þetta viljandi, og er varla nema gott eitt um það að segja, að meindýr um þessum sé fækkaðL Lögun og stærð hnattar könnuð með gerfihnetti NTB—Wsshington, 18. marz. Bandarískir eldflaugasérfræð- ingar ætla að senda upp í árs- lok sérstaka tegund af gervi- hnetti, sem ætlað er að skera úr því með mikilli nákvæmni hver sé lögun jarðar og stærð. Sem kunnugt er hafa sovézkir vísindamenn komið fram með þá kenningu að hún væri peru- laga og sverari endinn norður- hluti jarðar. Byggðu sovézku sérfræðingarnir þetta á upplýsingum, sem fengust frá gervihnöttum Rússa. Muni aðeins 30 m. Gervihnöttur þessi mun vega 67,5 kg og verða útbúinn nákvæm um vísindatækjum. Hann mun senda frá sér með stuttu milli- bili mjög sterk ljósbrot í mrsmun andi litum. Með tílstyrk þeirra munu vísindamennir’nir geta mælt mjög nákvæml.ega eða svo ekki skakki meiru en 30 m afstöðu hnattarins tíl jarðar og þar með fengið nákvæma mynd af lögun og stærð jarðarinnar. Gervihnött urinn verður 90 cm í þvermál, mun verða á braut sinni um eitt ár og mesta fjarlægð hans frá jörðu verða 1600 km. Einnig verða sendir upp tveir gervihnettir til veðurathugana. Tveir bátar rekast á Stykkishólmi í gær. — í nótt varð árekstur á milli tveggja báta hér skammt frá bænum. Voru það bátarnir Þórsnes, sem er nýr bát- ur héðan og Kristján, frá Ólafs firði, en hann hefur verið gerður út héðan í vetur. Þórsnesið var að koma úr róðri, en Kristján að fara í róður. Báðir bátarnir voru (Framhald á 3. síðu). ps Fullnaðaráætlun um virkjun Jökulsár — hls. 3

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.