Tíminn - 19.03.1960, Qupperneq 2

Tíminn - 19.03.1960, Qupperneq 2
2 T f M IN N, laugardaginn 19. marz 1960. Námsmenn neyddir að hætta námi Blaðinu hefur nýlega borizt bréf frá í.slendingum búsett- um i Stuttgart, Þýzkalandi, en þeir hafa félag með sér, sem þeir nefna Félag íslend- inga í Stóðgörðum. Bréfið fer hér á eftir: „Félag íslendi’nga í Stóðgörðum þakkar þeim háttvirtu alþingis- mönnum ,sem studdu tillögu, er fram kom á Alþingi um að halda óbreyttu gengi á námsgjaldeyri. Enn fremur vill félagið þakka stuðning háskólastúdenta heima við málstað námsmanna erlendis, jafnframt því sem það lýsir full- um stuðningi við kröfur þeiira. Að lokum viljum við beina þeirri áskorun til allra íslenzkra námsmanna að stahda einhuga um hagsmunamál sín. Virði'ngarfylLst, Félag fsl. í Stóðgörðum.“ Auk bréfs þessa var afrit af bréfi til ríkisstj órnarinnar, og fer það hér á ftftir. Millifyrirsagnir blaðsns: Félag íslendinga í S'tuttgart, Þýzkalandi, þakkar bréf hæstvirts menntamálaráðherra, en harmar Séra Halldor Kol- beins sækir Vestur-íslend- inga heim Séra Halldór Kolbeins prestur í Vestmannaeyjum fór til Vestur heims í nóvember s.l. og dvaldi þar í þrjá mánuði og hiýddi fyrir- lestra í háskólum þar ytr'a, auk þess, sem hann prédikaði í mörg- að það inniheldur engar ákveðnar tillögur tffl úrlausnar á fjárhags- vandamálum námsmanna erlendis. Kjaraskerðing sú, sem íslenzkir námsmenn erlendis verða fyrir vegna efnahagsráðtafana hætvirtr- ar ríkitjórnar, er svo gífuleg, að fyrir'sjáanlegt er, að fjölmargir þeirra verða ag hæfta námi og hverfa heim próflausir. Frá stríðslokum hafa kjör ís- lenzkra námsmanna verið slík að segja má, að hver, sem hefur vilj að ljúka framhaldsnámi, hafi get- að það, oftast þó með líti'lsháttar hjálp aðstandenda og nokkurri skuldasöfnun. Meg tilkomu áður- nefndra efnahagsráðstafana gjör- breyfist þetta. Námskostnaður er- lendis verður nú svo hár, að eng inn getur staðið straum af hon- um af eigin rammleik, og einungis mjög fáar fjölskyldur eru þess umkomnar að veita þann fjárhags Lega stuðning sem með þyrfti. Meg þessu er horfið frá því grundvallarsjónarmiði, sem verið hefur stolt íslenzku þjóðaiinnar, að allir geti menntað sig sem vilja. Við leyfum okkur að mótmæla þessum aðgerðum harðlega. Þjóðhagslega séð er það óbætan legt tjón, að námsmenn, sem nú þegar hafa kostað miklu til, fái eigi lokið námi og því geti því eigi nýtt krafta sína til fulls í þágu þjóðarinnar. Á komandi árum mun þjóðin í sívaxandi mæli þurfa á séimennt- uðum starfskröftum að halda, það er því Wð háskalegasta glapr'æði að gera þeim, er hæfilei’ka og vilja hafa, ókleift að mennta sig vegna fjárhagsástæðna. Það eru eindregin tilmæli okk- ar til hæstvirtrar ríkissfjórnar, að hún hefjist nú þegar handa um að finna leiðir til að koma þessum málum aftur í viðunandi horf. Viljum við í því efni leyfa okk- ur að benda á tvær Ieiðir, er okk- ur virðast helzt til greina koma. Önnur er sú, að halda sérsföku gengi á námsgjaldeyri, sem y.rði þá allmiklu lægra en hin lög- boðna gengisskráning. Hin leiðin er, að stórauka styrkja- og lán- veitingar til námsmanna og yrði þá jafnframt að gjörbreyta styrkja og lánakerfinu. Ef síðarnefnda leiðin verður valin, eru það til- mæli okkar ag fulltrúar náms- manna verði hafðir með í ráðum. Afrit af bréfi þessu verða send dagblöðunum til birtingar. „Gestur til miðdegisverðar“ Hollywoodleikarinn Banjo gefur leiklistargagnrýnandanum Whiteside jóla- gjöf, brjóstahaldara,, sem borin hefur verið af sjálfri Hedy Lamarr. Flosi Ólafsson hefur tekið við hlutverki Banjo, sem Gísli Halldórsson lék áður, en hann er farinn til útlanda. 20. sýningin verður í kvöld laugardagskvöld kl. 8. Óháði söfnuðurinn - tíu ára afmæli Óháði söfnuðurinn í Reykja- vík minntist nýlega 10 ára af- mælis síns með fjölmennu og ánægjulegu samsæti. Veizlu- stjóri var Sigurjón Guðmunds- son forstjóri og ræður fluttu Andrés Andrésson, sem verið hefur formaður safnaðar- stjórnar frá upphafi Bogi Sig- urðsson kennari, sem er gjaldkeri safnaðarins, séra Emil Björnsson safnaðarprest- ur, frú Áiíheiður Guðmunds- dóttir, sem verið hefur for- maður kvenfélags safnaðarins frá stofnun þess, og Stefán Sr. Halldór Kolbeins um lútherskum kirkjum í Kan- ada. Er þetta í fyrsta sinn sem séra Halldór og kona hans heim- sækja Kanada, en lengst af dvöldu þau hjónin í Vancouver. M. a. hafði séra Halldór guðsþjónustu fyrir íslendinga þar ytra hinn 31. janúar og var sú prédikun mi'kil nýlunda fyrir Vestur-fslendinga, sem þótti séra Halldór mikill auð- fúsugestur. f blaðaviðtölum við blöð þar vestra lætur séra Halldór einkar vel af dvölinni og telur hana hafa verið reynsluríka fyr'ir sig og konu sína. „Ég hef lært margt og mikið í ferðinni og mun hún gera mig ag betri predikara, er heim kemur“, sagði séra Halldór Kol- beins í viðtali við eitt blaðanna. Framsóknarvist á Akranesi Framsóknarfélag Akraness heldur skemmtisamkomu í Félagsheimili templara næstkomandi sunnudag og hefst hún kl. 8.30. Spiluð verður framsóknarvist og dansað. Aðgöngumiðar seldir í Félagsheimilinu kl. 4—5 og við innganginn, ef eitthvað verður eftir. Þetta er fjórða skemmtunin í fimm kvölda keppninni. Áðalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu Aðalfundur félagsins verður haldinn að Hlégarði í Mos- fellsveit sunnudaginn 3. apríl kl. 1,30 e. m. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Frumvarp að lögum fyrir félagið. 3. Venjuleg aðalfundarstörf 4. Önnur mál. Jón Skaftason alþingismaður mætir á fíindinum. 5TJÓRNIN. Árnason, er talaði af hálfu Bræðrafélags safnaðarins í forföllum Jóns Arasonar, sem hefur verið formaður þess fé- lags frá upphafi. Enn fremur töluðu Kristinn Ágúst Eiríkson járnsmiður, Ás- mundur Guðmundsson fyrrverandi biskup íslands, séra Bjarni Jóns- son vígslubiskup og fröken María Maack. Þuríður Pálsdóttir óperu- söngkona söng með undirleik Fritz Weisshappel, við fögnuð áheyrenda og sýnd var kvikmynd af vígslu kirkju Óháða safnaðarins s. 1. vor. Formaður og prestur safnaðarins vottuðu þakkir öllum þeím í söfn- uðinum, og utan vébanda hans, sem lagt hafg málum safnaðarins og kirkjubyggingu lið á undanförn- um árum. Góðar gjafir í afmæushófinu var skýrt frá veglegum gjöfum, sem kirkjunni hafa nýlega borizt. Kvenfélag safn- aðarins hefur ákveðið að gefa alt- aristöflu, sem íslenzkur listmálari málar í sumar, Bræðrafélag safn- aðarins gaf 5000 krónur til kirkj- unnar að þessu sinni og Vestur- fslendingurinn Skúli Bjarnason, sem nýlega avaldist hérlendis, gaf 10 þúsund krónur til kirkju Óháða safnaðarins Kvenfélag og Bræðra- félag safnaðarins hafa lagt ómet- anlegan skerf til uppbyggingar safnaðarlífsins og byggingar kirkj; unnar á undar.förnum árum. í hinni nýju kirkju er í vetur sunnu- dagaskóli s hverjum sunnudags- morgni og sækja hann hverju sinni miklu fleir: börn en kirkjan rúmar í sðeti. Prestur safnaðarins veitir þessu vinsæ'a barnastarfi forstöðu. Gott félagslíf Óháði sötnuðurinn hefur byggt Umræður bún- aðarfiings Sigurlinni Pétursson byggingar- meistari, er mikill áhugamaður um að finna upp aðferðir til að byggja hús á ódýrari hátt en tíð- kast hefur. Telur Sigurlinni 15 ára reynslu hafa sannað að þetta hafi hon.um tekist. Gerð þessai'a húsa er ekki þörf á að lýsa því það hefur áður verið gert hér í blað- inu, í Frey og víðar. Sigurlinni Pétursson mun hafa sent Búnaðarþingi í fyrra erindi um þetta mál og ítrekar hann það nú. Búnaðarþing hefur nú af- greitt erindi Siguilinna með svo felldri ályktun, sem Benedikt Lindal hafði framsögu fyrir: „Búnaðarþing telur að þessi nýja byggingaraðferð Sigurlinna Pétui'ssonar sé að ýmsu leyti at- hyglisverð og skorar á ráðgefandi nefnd um bygingar í sveitum að taka þessa byggingaraðferð til at- hugunar og birta niðurstöður sín- ar svo fljótt, sem verða má.“ Berlínarbúar Dr. Konrad Adenauer kanzlari V-Þýzkalands gaf í skyn á fundi í blaðamannaklúbbnum í Washing ton, að halda bæri almenna at- kvæðagreiðslu í V-Berlín fyrir fund æðstu manna. Skyldu íbúar segja álit .sitt um það, hvort þeir vildu óbreytt ástand á stöðu borg arinnar eða innlimun í A-Þýzka- land. Kvaðst kanzlarinn ekki vera í vafa um úrslitin. Samsöngur Húsavík, 17. marz. — Kirkjukór Húsavíkur hélt samsöng á Húsa- vík s. 1. sunnudag. Áheyrendur voru margir og fóru ánægðir. Söng stjórar voru þrír að þessu sinni, sr. Friðrik A. Friðriksson, Ingi- mundur Jónson og Sigurður Hart- mannsson. Einsöng sungu þeir Eysteinn Sigurjónsson og Ingvar Þórarinsson. Undirleik annaðist frú Gertrud Friðriksson. Góður afli á • Akranesi Akranesi, 14. marz. — Allir stóiu bátarnir eru nú komnir á netaveiðar en tveir smærri eru með handfæri og fiska vel. Óvenjumikill afli var hér síð- ustu daga fyrir helgina og laugar- dagurinn mesti afladagur, sem sögur fara hér af. Þá fóru 19 bátar á sjó og fengu 514 tonn. Tólf þeirra voru með yfir 20 tonn. Þrír þeir aflahæstu voru: Sigurð- ur, skipstjóri Einar Árnason, meg 50 tonn, Sigrún, skipstjóri Helgi Ibsenson, með 48 tonn og Sæfari, skipstjóri Jóhannes- Guðjónsson, með 47 tonn. Á sunnudaginn réru 16 bátar og fengu 347 tonn. Þrír þeir hæstu þá voru: Sæfari, Heimaskagi og Sigurður með 30—35 tonn. Trillubátarnir eru nú að búa sig á handfæraveiðar. Að sjálf- sögðu vinna allir, sem vettlingi valda, nótt sem nýtan dag en samt vantar fólk. kirkju og félagsheimili á óvenju skömmum tima sem kunnugt er, safnaðarstarfið og félagslífið hefur jafnan verið þróttmikið og aldrci staðið með meiri blóma en nú. Starf þesss unga safnaðar hefur því verið þýðingarmikið íyrir kirkjulífið almennf og til fyrir- myndar, svo sem barnastarfið og ýmsar nýjungar í sambandi við rekstur safnaðarheimilisins við kirkjuna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.