Tíminn - 19.03.1960, Page 8

Tíminn - 19.03.1960, Page 8
8 TÍMINN, laugardaginn 19. marz 1960. SS smálum? ..... •• Hömlur til bóta Pétur Sigurðsson, ritstjóri Einingar. svaraði þannig: 1) — Þetta er dálítið vafamál. Við héldum, bindindismenn, að það væri miklu ákjósanlegra; að það væri í höndum ríkisins. Aðui' en nokkur reynsla var fenginn, treystum við því, að ríkið sem heimilisfaðir í þjóðfélaginu mundi gera sitt ýtrasta til þess að draga úr áfengissölu. Ég fyrir mift leyti er meira kominn á þá skoðun, að það sé kannski ógæfa að þetta hafi komizt í hendur ríkisins, því það er miklu erfiðara fyrir okk- ur, bindindismenn, að sækja á þar heldur en ef salan hefði verið eins og upprunalega, í höndum einstaklinga, þá mundum við eiga miklu léttara með að fá samþykkt þjóðarinnar fyrir að banna það algjörlega. 2) Ég svara hiklaust eins og ég hygg að flestir bindindismenn myndu gera, að auðvitað sé það fil bóta að banna áfengissölu í samkomuhúsum, en sérstaklega 1) Er það rétt að láta ríkið hafa einkasölu á sterkum drykkjum? 2) Er það til bóta að banna áfengissölu í samkomubúsum og veitingastöðum? 3) Hvaða áhrif mundi sala á sterku öli hafa á áfengismálin? 4) Hvað er því til fyrirstöðu' að Islendingar megi umgangast fengi á sama hátt og þjóðir, sem búa við frjálsan áfengis- markað? 5) Draga ríkjandi hömlur á áfengisneyzlu úr drykkjuskap? B!a9ið hefur lagt þessar spurniugar fyrir fimm þjóðkunna menn, sem allir hafa að þó ég ég væri þar í hálfan fjórða mánuð, iðulega úti á kvöld in, og kæmi þá á matsölu- og kaffihús, þá varð ég aðeins einu sinni var við drukkinn mann inn- an um þann sæg og fjölda, sem þar var. Það vildi svo til, að þetta var hagyrðigur, sem var að lesa upp kvæði. Þess vegna varð ég var við, að hann var kenndur, en hann hagaði sér ekki að neinu leyti ósómasamlega. Ég held að ribbaldahátfur, sem oft er sam- fara drykkjuskap, sé líka að vissu leyti uppeldisatiiði. Þetta er ein- hvem veginn svona með okkur Norðurlandabúa, við verður svo andskoti sterkir og miklir menn, þegar við erum oiðnir kenndir. Við íslendingar erum ekkert verri hvað þetfa snertir, kannski skáiri en Noiðmenn og Svíar. Ég um- gekkst þá mikið, þegar ég var ungur maður, og ég leit svoleiðis á, að þeir væru miklu viðsjálli fylliraftar en við. kynni af áfengi eða afleiðingum þess, hver á sinn hátt. Þeir hafa allir svarað fallið“ úr Biblíusögunum. Þar munnlega án nokkurs undirbúnings. Svörin voru tekin upp á segulband. þar" hefst bannið. Ef drottinn Pétur Sigurðsson samkomuhúsum þar sem alltaf er mikil hætta á vandræðum og eyði leggingu á ske-mmtunum manna; í veitingahúsum einnig. Því minna sem veitt er, því minni drykkju- skapur. Það er okkar skoðun. 3) Við höfum haldið því fram stöðugt, að það væri mikið böl fyrir íslenzku þjóðina, ef við ætt- um að fá hér sterkt öl. Við telj- um nægar sannanir fengnar, bæði hjá Þjóðverjum, Dönum og öðr- um, fyrir því hvað mikið böl öl- drykkjan er. Danir dr'ekka um það bil þrjá lítra á mann af um 100% áfengi og af því er aðeins 0,5%, eitthvað svoleiðis, sterkir drykkir. Hitt er allt saman öl- þamb. Það er skoðun lækna og margra annarra, að öldrykkjan sé hin skaðlegasta, óhollast, og leiði einnig til drykkjuskapar. 4) Hvað gæti verið því til fyrir stöðu, að íslendngar hefðu frjáls ar hendur í áfengismálum eins og sumir aðrar þjóðir, er auðvit- að ekkert annað en það, að við viljum forða þjóðinni frá þeim afleiðingum, sem slík frjál-s sala hefur haft fyrir þessar þjóðir. Ég átti heima í Kanada, þegar barátt- an var sem hörðust um að af- nema bannið og kann þá sögu og man vel hversu fögur voru loforð um að laga og bæta allt áfengisböl, ef bannið væii afnum ið. Nú er það ekkert launungar mál, að áfengissala þar hefur margfaldast svo að hún er orðin ý-msum ráðandi mönnum þar hið Ólafur H. Sveinsson mesfa áhyggjuefni. Alveg sama var að segja um Bandaríkin. — Áfengisbanninu var kennt um -allt illt þar og svo kom að lokum, að með því að fórna mörgum milljón u-m til þess að vinna gegn því, bæði fil að kaupa menn og neyta allra bragða til að fá bannið af- numið. Niðurstaðan hefur or'ðið sú, að áfengisneyzla hefur ekki aðeins tvöfaldast heldur margfald ast. Sama er að segja um Frakka, sem hafa búið við frjálsa áfengis verzlun, frjálsari en líklega flest ar eða allar þjóðir aðrar, að hvergi er útkoman raunalegri. Það nálgast að segja megi um þjóðina í heild, að hún sé áfengis sjúklingur. Og það er orðið mikið áhyggjuefni bæði sumra forystu- manna þjóðarinnar og sérfróðra manna þar í landi, enda er nú byrjað að upplýsa þjóðina um þann voða, sem þar er á ferðum. 5) Við teljum hiklausf, bind- indismenn, að allar hömlur ævin- lega hafi dregið úr áfengisneyzlu, og því ster'kari og meiri, því betra. Það er að segja, að lög- gæzla sé slík, að hún geri skyldu sína í þeim efnum. Ekki skipulags- atriði ' Ólafur H. Sveinsson. fyrrum sölustjór: hjá Áfengisverzlun Jónas Guðmundsson ríkisins, svaraði spurningun- um á þessa leið: 1) — Þetta atriði er bara fjár- hagslegt spur-smál fyrir ríkissjóð- inn. Það þykir sjálfsag-t að ilkis- sjóður hafi tekjur og helzt sem mestar af áfenginu, og ef hann getur haft þær mestar' af einka- sölu, þá er hún sjálf-sagt bezta s-öluaðferðin. 2) Meðan áfengi er til í land- inu, sem það verður sjálfsagt alltaf, annað hvort löglegt eða ó- löglegt, þá held ég nú að það sé alveg fráleitt að banna sölu á því í samkomuhúsum og veif- ingastöðum, því það myndi bara leiða fil þess að menn annað hvort drykkju áður en þeir kæmu á sam komuna eða hefðu með sér vasa pela með áfengi, og ég hel.d að reynslan í samkomuhúsum hér, eftir sögn þeirra manna, sem þar starfa og ég hef talað við, sé sú, að ástandið með drykkjuskap sé v-erra, þar sem áfengi er ekki selt. heldur en þar sem leyfilegt er að seljá það. 3) Sumum þykir gott öl, og mundi sjálfsagt þykja gotf að fá sterkara öl heldur en það, sem við höfum. En ef það á að taka þetta frá því sjónarmiði, að það sé bezt að þjóðin drekki sem minnst áfengi, sem líklega er rétt sjónarmið, þá held ég að bez-t sé að láta sterka ölið vera. Ég held að það bætist bara við það áfengi-s magn sem drukkið er áður en það . Krlstján Krlstjánsson kæmi til sögunnar. Það verður ekki til þess að menn drekki minna vín. Ég held minnsta kosti að reynslan fyrir a-ustan hafið og kannske lika vestan sé sú, að þeir sem drekka mesf öl, þeir drekka hérumbil eins mikið af öðru á- fengi. 4) Ég held að umgengnin við áfengi sé ekki skipulagsatriði. Menn trúa alltof mikið á skipu- lag í ýmsum greinu-m eins og þessari. Ég held að þetta sé fyr-s-t og fremst uppeldisatriði, sem stjórn-a-st af því, hvað almennt er álitið sómasamlegt í umgengnis- háttum. Til dæmis hef ég heyrt að á 17. og 18. öld og töluvert fram á 19. öldina hafi v-er'ið mik- ill drykkjuskapur í þessu landi og samkomur oft svoleiðis, að það var ógnarlegt, jafnvel svo stórslys hlutust af. En um það leyti sem ég var að alast upp, um aldamótin, hafð'i verið hér bindindisstarfsemi töluvert öflug í landinu um tuttugu ára skeið, og hún virtist hafa haft þau áhrif, til dæmis þar sem ég er uppalinn, austur á fjörðum í lítilli sveií, að þar var eiginlega álitið gjörsam- lega ósómasamlegt að lá-ta sjá á sér áfengi eða koma dnikkinn á mannamót. Eg held að það hafi ekki verið fyrir nein boð eða bönn, heldur aðeins það, að hugs unarhátturinn var svona. Nú, ég er nýbúinn að vera suð- ur í Rómaborg Eitt af því sem méi þótti merkilegasf þar var, Sigurður Heiðdal hefði nú ekki fundið uppá því að banna ávextina af skilningstré góðs og i-lls, þá hefðu kannski for feður okkar, Adam og Eva, aldrei úr paradís farið, og við værum þar ef til vill líka. Náttúrlega hef ur skrattanum alltaf verið kennt um þetta eins og allf misjafnt, en þá er bara spursmál, hvort drott- inn er ekki jafn sekur. Það var bannið, sem eyðilagði þessa para- dísarvis-t og það getur vel verið að bannið sé ennþá að eyðileggja fyrir mönnum ýmiskonar para- dísarvist, því við erum yfirleitt ekki fyrir það að búa undir lög- málinu, við erum aldrei sælir und ir því, við eriim helzt sælir þegar við erum lausir við það. Hömlur eða bönn geta haft áhrif í bráð- i ina, en það er gömul saga, að ! menn finna alltaf leiðir framhjá bönnunum. Og þegar menn eru f-arnir að gera ýmislegt svoleiði-s, semsagt að brjóta lögmálið, þá fara menn að verða mjög .vansæl- ir. Og þegar menn eru farnir að brjóta lögmálið á einu sviði, þí fara þeir að brjóta það á mörg- um sviðum. Svona bönn geta leitf til siðspillingar, þegar þau ekki eiga grundvöll í siðferðismeðvit- und fólksins, sem oft vill vera. — Þess vegna vil ég fara mjög var- lega í það, -sem kallað er áfengis- bann og bann yfirleitt á hvaða sviði sem er. Menn freistast oft til að gera það s-em bannað er, og

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.