Tíminn - 19.03.1960, Síða 12

Tíminn - 19.03.1960, Síða 12
12 TÍBIN'N, lattgardaginn 19. marz 1960. H&am 4. febr. s.l. andaðist á héraðshœlmu á Blönduósi einn af fyrirferðarmestu bændahöfðingj- um Húnavatnsþings, Páll Hannes- sqn, áður bóndi á Guðlaugss-töð- um. Hann var fæddur þar á Guð- laugsstöðum 2. jan. 1870, og því rúmum mánuði meira en níræður er hann lézt. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra Pálsdóttir bónda í Hvassa hrauni, Jónssonar, og Hannes smiður og bóndi Guðmundsson, bónda og alþm. Arnljótssonar, og var því Páll albróðir hins þjóð- þekkta gáíumanns Guðmundar Hannessonar prófessors. Hefur föðurætt Páls setið Guðlaugsstaði svo öldum skipti, enda var hann tengdur þeim stað svo traustum böndum, að trauðla verður betur bnndið. Þó þar hafi lokið langri og annríkri ævi, verður ekki sagt, að starfssviðið hafi borizt víða vm héröð. Hann fluttist með for- eldrum sínum á fyrsta ári að Eiðs- síöðum, og ólst þar upp til full- orðin.sára, við önn og athafnir á eríiðu fjallabýli. Eiðsstaðir liggja í næsla nágrenni við Auðkúlu- heiði, og fenaðarferð tímafrek og erfið, meðan allt var ógirt og aiiar leiðir því opnar inn til af- réttarinnar Glíman við hana, hversu sem annars horfði við, var því skólaganga Páls. Hann sótti þroska sinn í erfitt og harðbýlt umhverfi. Hinu má ekki gleyma, að' þótt um skólagöngu væri ekki að ræða, reyndist hann samt flestum hlutgengari, hvar sem hcnn hlaut rúm á langri ævi. Páll dvaidi óslitið á Eiðsstöðum fram yfir þrítugsaldur 13. maí 1897 kvæntist hann Guðrúnu Björnsdóttur, Eysteinssonar, — hins þjóðkunna bónda og ævintýra manns. Reyndist hún honum slík- ur förunautur að fágætt var. Mun torvelt að sanna, hvort þeirra óx meira af þeim samskiptum. Víst er, að þar var meira en vel um bæði. | Þau hjón hófu búskap á hluta af Eiðsstöðum vorið 1897, og bjuggu þar til vorsins 1903. Þá keyptu þau Snæringsstaði í Svína- dal og fluttu þangað. Þar bjuggu þau næstu fjögur ár og búnaðist hið bezta. Vorið 1907 festu þau kaup í ættaróðali Páls, Guðlaugs- stöðum, og bjuggu þar til vorsins 1947, við svo frábæra rausn og glæsibrag, að tæplega þótti lengra jcfnað um Húnavatnsþing og þó víðar væri ieitað. Þau bjuggu því hálfa öld og þar af fjóra tugi ára á Guðlaugsstöðum. Þá fengu þau bú sitt að mestu leyti í hendur Guðmundi syni þeirra. — Þegar augum er rennt yfir þenn an feril Páls, blasir við að hann var ekki barn byltinganna, — hinn síleitandi — sem hvergi festi yrdi. Hann dvaldi því nær alla ævi á tveim bæjum samliggjandi, og átti aldrei heima utan þeirrar sveitar er ól hann og fóstraði. Hann var því fyrst og fremst barn hennar Páll sagði mér fyrir fam árum, að hann teldi sig sér- stakan gæfumann og færðí þrennt tii. Hið fyrsta að fá að alast upp við handleiðslu foreldra sinna, sem hann mat mjög, og áreiðan- lega að verðleikum. Hið annað að hafa notið íylgdar og ástúðar konu s.nnar og barna, og sjá þau vaxa svo úr grasi, sem raun hefur gefið vitni. Hið þriðja að hafa fengið að eyða ævinm í dalnurr sínum. Og Páll var manna ólíklegastur til að fara með fleipur í slíkum mál- um. | Þegar minningum er beint til Fáls á Guðlaugsstöðum, mun flest- vm verða bóndinn minnisstæðast- ur, og verður þá oft fjármaðurinn fvrst fyrir, enda voru ýmsir þættir í fari hans sem fjármanns slíkir, að fágætt var Hann var svo næm- ur og stálminnugur á svipmót kinda, að ótrúlegt virtist. En glöggskyggni hans i því efni var ek£i nema einn þátturinn. Ást hans á hjörðinni — hinn vökuli unaður, sem í því var fólginn að rétta líknandi hönd þeim, sem MINNING: PÁLL HANNESSON, á Guðlaugsstöðum bóndi hjálparvana voru innan hennar, hvort sem um vanburða ungviði var að ræða eða þá, sem atvik eða yfirsjónir höfðu lagt að leik- soppi pess miskunnarleysis, sem öræfi okkar eru svo auðug af. Hann var og, sem áður getur al- inn upp við fótskör þeirra og átti í ríkum mæli hvort tveggja: Það fegurðarskin sem til þess þurfti að njóta þess unaðar sem þau bjóða beztan, og það hugrekki sem til þe.-js þurfti, að horfast í augu Við grimmxPpeFrra''an’ þess að blikna. Eil hann var ekki aðeins fjármaðurinn, eins og það hug- tak er oftast skilið heldur engu síður fjárræktarmaðurinn. enda atti hann um skeið einn afurða- hæsta og samstæðasta sauðfjár- stofn héraðsins. En bóndinn á Guðlaugsstöðum var ekki bundinn þessu einu. Fyrirhyggja hans í smáu og stóru, átti séi fremur fáar hliðstæður. En þar var hann ekki einn um hituna. Mun þeim er bezt þekkja til, hafa orðið tor- leyst sú gáta hvort þeirra hjóna átti þar ríkari þáttinn. Svo sam- slungnir voru þeir í fari beggja. Vestur-íslendingur sem hér var á ferð, lét svo um mælt í ferðaminn ingum sínum. „Fannst mér ekkert ofsagt um heimilið það Sögðu menn að það mundi vera mesti vandi að geta upp á því, sem ekki væri til á Guðlaugsstöðum, sem betra væri að hafa til bús, en án að vefa, og hef ég hugboö um að það sé aiveg rétt.‘ Er „glöggt gests augað“.sem kunnugt er, og mun hinum glöggskyggna dreng- skaparmanni er þessi orð reit, ekki hafa missýnzt þar Og hin þjóðfræga rausn þeirra hjóna var slík same;gn þeirra, að á betra varð trauðla kosið. Páll rak löngum stór'bú, og hafði því margt fólk í heimili. Voru þau hjón s’;o hjúasæl að fágætt \ar. En þó fjárbú þeirra væri fyrir ferðarm’kið var það föst venja. að hjúin ættu alltaf talsverðan bústofn, og hélzt sú venja allan þeirra búskap. Fór jafnvel svo eftir að synir þeirra uxu úr grasi, að þótt bú þeirra væri með ágæt- um að stærð og afurðagetu, kom fyrir að þau ætf.u ekki yfir helm- ing þess sauðfjár, sem til var á heimilinu Héldu þau þannig mjög í heiðri hinn forna hátt að gera hjúin meðeigendur og sam- ábyrg um rekstur búsins Er sú mannrækt sem í því er fólgin tor- metin til íulls, — enda torskilin þeim, sem ekkert þekkja til ann- I ars uppeldis en þess, sem bundið er þjóðháttum vorum í dag. 1 Páll á Guðlaugsstöðum lauk sín- um léttustu sporum áður en sú bylting hófst, sem fram hefur far- ið tvo síðustu áratugina. Má telja að hann hafi haft þrjá aldarfjórð- unga að baki, er hún hófst. Hann var því að miklu Ieyti áhorfandi hennar. Hinu verður ekki neitað, að hann var aldrei hlutlaus áhorf- andi. Slíkt var fjarri honum. Hann var langa ævi einn þeirra, sem „kenna til í stormum sinna tíða“. Og honum var ógjarnt að fara í felur með sárindi sín þegar svo féll að þau voru vakin. Hann var því löngum bóndi aldamóta kyn- slóðarmnar, enda þá orðinn full- þroskaður maður, sem helgaði sér þá hætti. sem þá voru fremstir, og vanur þeim af heilum hug. Hann tók líka tveim höndum þeim nýjungum í verkháttum, sem syn- ir hans fluttu þangað heim, þegar þeim óx fiskur um hrygg. En hann var svo skapi farinn, að hann kaus sér að vera ekki aðeins barn nýj- unganna heldur og herra þeirra. Það væri ekki rétt að segja að Páll á Guðlaugsstöðum hefði ver- ið forustumaður í félagsmálum. Því olli skapgerð hans. Þess munu hafa verið mjög fá dæmi, að hann kveddi sér hljóðs á málþingum, og skorti hann þó hvorki vitsmuni né orðleikni til slíks. Og hann mun aldrei hafa leitað sér kjör- fylgis til nokkurrar vegtyllu. Hitt er annað mál, að annarra fylgd mun ekki hafa verið frekar kosin, enda var hann oft ótrúlega áhrifa- ríkur í sínu umhverfi, þó hann teygði ekki fundarsetur með fjálg legum ræðuhöldum, enda víst að oft var leitað að Guðlaugsstöðum þegar um hin vandasamari mál var að ræða. Það var og trú þeirra er bezt þekktu til, að „þau mál myndu sízt að engu verða er þar voru ráðin“ eins og Snorri goði lét um mælt um Helgafell. Sú mun og raunin á að snjöllustu úrræðin skapast ekki alltaf í ys fjölmennis. Eij Páli voru falin ýmis störf fyrir sveitina. Hann sat , hreppsnefnd »im skeið, hreppstjóri um allmörg &r, ag í stjórn Svínvetningabraut- arfélagsins um tugi ára og var þar átakagjarnt um skeið. Og þó Páll stæði þar ekki fremstur, mun oft- ar hafa brotið meira á honum en flesta grunar Hann var samvinnu maður af hugsjón og studdi Kaup- félag Húnvetninga og hliðargrein- a. þess af alhug, meðan orka ent- ist. Mun fárra fylgd hafa verið meir metin en hans, enda gerði kaupfélagið hann að heiðursfélaga sínum á efri árum. Þau störf er hann vann í þágu samfélagsins, rækti hann af alúð hins djúp- skyggna drengskaparmanns. Tvennt er minnisstætt í fari Páls, auk þess, sem áður er á drepið. Hið fyrr er mannþekking hans, — ekki aðeins minni hans á mannsandlitin, heldur hve auðgert honum virtist að kafa mannssál- iha, — meta manngildið. Var mér það oft ráðgáta, hve sú bók virtist honum auðlesin, — spjaldanna milli og alveg ofan í kjöl. — Hið síðara var hin létta gleði hans, sem aldrei virtist haggast eða breyta um s^ip, hversu sem annars við- horfis var. Hann var í gelði sinni eins og Halldór Snorrason: „æðru- laus og jafnhugaður*. Páll á Guðlaugsstöðum var einn þeirra manna, sem flestir munu þakklátir fyrir að hafa kynnzt. Guðm. Jósafatsson. Mér er mjög í minni er ég á unglingsárum mínum, kom að Guðlaugsstöðum í Blöndudal og sá með eigin augum reisn þess heim- ilis, er ég hafði svo mjög heyrt talað um af foreldrum mínum og ýmsum öðrum. Húsbændurnir hjónin Guðrún Björnsdóttir og Páll Hannesson voru bæði héraðskunn: Húsmóðir- in fyrir framúrskarandi þrifnað og myndarskap innan bæjar. sam- fara mikilli stjórnsemi og skör- ungsskap. Var talið að Guðrún væri á undan samtíð sinni í þessu efni. Bóndinn' fyrir umfangsmik- inn búrekstur og stóran. Sérstak- j lega fór þó mikið orð af sauðfé j Páls og því, hve hann var fjár- glöggur. En allur þótti búskapur þeirra hjóna mjög til fyrirmyndar. j Hér komu lika saman traustir stofnar: Faðir Guðrúnar var hinn ! sérstæð i maður Björn Eysteins- : son, er bjó um eitt skeið á Réttar- hóli í Forsæludalskvíslum, en fað- j ir Páls kunnur bóndi og orðlagður hagleiksmaður Hannes Guðmunds j son á Eiðsstöðum í Blöndudal. En annar sonur hans og oróðir Páls : á Guðlaugsstöðum var hinn þjóð- kunni læknir og frumlegi gáfu- maður Guðmundur prófessor. | Það var síðla vors að ég kom á hálsbrúnina fyrir ofan Guðlaugs- staði, og hafði að baki mér hið víðlenda og grösuga heimaland jarðarinnar, en neðar, allt að Blöndu, stórt og gróskumikið tún. Sunnan lækjarins í túninu gat að líta stóran og reisulegan bæ með hvítum baðstofuþiljum og há- reistum stöfnum fram á hlaðið. Hér var sjón sögu síkari: Slíkan bæ hafði ég eltki áður séð. Torfveggir hans voru sem steyptir í mót, hlaðið sópað og prýtt, og er inn var komið vítt til veggja og hátt til lofts. Hér gat engum dulizt að hann var kominn á öndvegis sveitaheimili. Þau Guðlaugsstaðahjón voru þá í blóma lífsins og búskapar síns. Vinnufólkið margt og börn þeirra hjóna mörg uppkomin og farin að heiman til náms og starfs en þau yngstu enn heima. Hér hlaut að vera starfað af alúð og kostgæfni. Það gat engum dulizt. Síðar kynntist ég því hversu heilshugar bóndi Páll á Guðlaugs- stöðum var. Á unga aldri hafði bann eitt einn skipt á vasaúri sínu og gimbrarlambi, og átti aldrei úr eftir það. Til síðustu stundar var sauðkindin yndi hans og arðsvon. Það nægði honum ekki að fullnýta hina stóru bújörð sina, heldur átti hann og jafnan margt fé á fóðri annars staðar. Sá mun hafa verið háttur Páls á Guðlaugsstöðum, er hann tók úr fé sínu á haustin, að binda sig ekki við ákveðna tölu, heldur taka til lífs þá einstaklinga, ,sem hið glögga fjáraiannsauga taldi gott efni til viðhalds og aukninglr stofninum, enda var' hann jafnan heybirgur, og þvi sízt að furða þótt kindurnar yrðu stundum margar. Eg var eitt haust staddur í' Kúlurétt og sá Pál á Guðlaugsstöð- um draga fé sitt. Engan bónda hef ég séð sýsla að fé sínu með slíkri ánægju, sem hann. Það var eins og hann tæki á móti hverri kind með fögnuði. Páll var þá bæði fjallkóngur á i Auðkúluheiði og réttarstjóri í Auðkúlurétt. Hvorutveggja mun hafa þótt sjálfsagt. | Trúlega hefur verið gaman fynr ! Pál bónda að reka fé sitt heim að kveldi með húskörlum sínum og uppvaxandi sonum. Heirnilið beið hans að loknu dagsverki, með | hvíld og öryggi. Réttardagurinn hefur löngum verið mikill gleðigjafi íslenzka bóndans og er vonandi að svo verði jafnan. | Nú eru þau Guðlaugsstaðahjón bæði gengin til feðra sinna: Hún dáin fyrir nokkrum árum, en hann andaðist í hárri elli þ. 4. þ m. Elli Kerling hafði um nokkur ár komið Páli á Guðlaugsstöðum á kné, svo að hann varð að halda sig við rúmið. En hugur hans og sinni var hið sama til síðustu stundar. Allur við búskapinn og skepnurnar. Það er mikil hamingja hverj- um einstaklingi að eiga slík hugð- arefni, sem Páll á Guölaugsstöð- um, og mega helga sig þeim urn langa ævi og árangursríka. Guðrún kona hans dvaldi sem barn í miklu umkomuleysi á heið- arbýli svo sem segir í ævisögu fög ur hennar, er út kom fyrir stuttu. Sem húsfreyja á Guðlaugsstöðum var hún mjög rómuð fyrir hæfi- leika sína og hélzt það álit almenn ings til æviloka hennar. Þau Guðlaugsstaðahjón voru að mörgu leyti mjög ólík. En þau eru gott dæmi um það. hvernig sam- starf ábyrgra aðila getur reynzt, ef vilji og manndómur er fyrir hendi og allir aðilar njóta sín. Bú- skapur þeirra Páls og Guðrúnar sýndi þetta. Og börn þeirra hafa j óumde lanlega sýnt, að þau eru meiðar af sterkum stofni. En þau . eru: auk sex, sem dóu í bernsku, Hannes stjórnarráðsfulltrúi, áður bóndi á Undirfelli Elinbergúr (dó uppkominn). Björn alþm. á Löngu mýri, Guðmundur bóndi á Guð- laugsstöðum, Hulda húsfreyja á Höllustöðum, dr. Halldór sauðfjár ræktarráðunautur og Ásdís hár- greiðslukona í Reykjavík. Páll á Guðlaugsstöðum verður kvaddur á morgun og lagður við hlið konu sinnar i heimagrafreit á óðali þeirra Guðlaugsstöðum. En þeirra Páls og Guðrúnar mun | verða minnzt sem einna.merkustu hjóna sem byggðu Húnaþing á fyrri hluta þsssanar aldar 13. febrúar 1960. G. G. •■v. ’-X.* -V. • "S. Piíssningasamfiir Aðeins árvals pússn'ní?^ sandur Gunnar GuSmundsson Sími 23220

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.