Tíminn - 19.03.1960, Qupperneq 16

Tíminn - 19.03.1960, Qupperneq 16
* 64. blað. Laugardaginn 19. marz 1960. Áskriftarverð kr. 35.00. Þjálfun flug- liða hjá F.í. Dvelja meðal annars á ímynduðum slysstað Frá upphafi farþegaflugs hafa flugfélögin lagt kapp á að ailt er lýtur að öryggismálum væri i sem fullkomnustu lagi og að áhafnir flugvélanna væru sem bezt undir það bún- ar að mæta óvæntum erfið- leikum. Flugfélag íslands hefur fr'á öndverðu tileinkað sér allar nýj- ungar, er fram hafa komið á þessu sviði og þjálfun flugliða félagsins er og hefur verið svo sem bezt gerisf á hverjum tíma. f vetur hefur Flugfélag íslands starfrækt skóla þar sem fluglið unum, þ.e. flugmönnum, flugleið- sögumönnum, flugvélstjórum og flugfreyjum eru kynntar nýjung- ar er fram koma, eldri fræði rifj uð upp o. fl. Flugfélagig hefur nú fengið fullkomin kennslutæki, sem gera kleift að öll þjálfun flug manna félagsins fari fram hér á landi. Nýr þáttur í þjátun flugáhafna hófst í dag. Hann er í því fólg- inn, að flugáhöfn er flutt með allan útbúnað, sem er í venjulegri farþegaflugvél ti'l staðar sem er innan við 80 km frá Reykjavík, en sem ekki er tilgreindur að öðru leyti. Áhöfnm hefur m.a. sendi- tæki en engan móttakara. Að nokkrum tíma liðnum er leitar- flugvélum gert aðvart. Þær eiga síðan að miða staðinn eftir send- ingum tækisins, finna hann og varpa niður birgðum. Áhöfnin dvelst á staðnum í tæpan sólar- hring. Æfingar þessar munu standa fram í næsta mánuð og taka allar flugáhafnir Flugfélags íslands þátt í þeim. Möi'g erlend flugfélög hafa tekið upp svipaðar æfingar og að ofan greinir en flest verða þau að leita lengra eftir æfingasvæði. r A „Þessi della greip mig fyrir nokkrum árum..” Valtýr Pétursson listmálari opnar málverkasýningu í Listamanna- skálanum í dag í dag opnar Valtýr Pét- ursson listmálari, sýningu í Listamannaskálanum. Sýn- ingin verður opin í hálfan mánuð frá kl. 2 til 10 á dag- inn. Á sýningunni eru 83 myndir, þar af 42 mosaik- myndir, en hitt eru olíu- myndir. „Þessi sýning er þriggja ára vinna/' sagði listamaðurinn við blaða- menn í gær. Er við komum niður að Lista- mannaskála mættum við menntamálaráði á útleið, vakti það strax grun okkar á því að þeir hefðu verið að kaupa mynd af listamanninum. Þegar við komum inn og færðum það í tal við hann vildi hann ekkert um það segja, en eflaust er þögnir. s.ama og samþykki. íslenzk efni í mosaik- myndunum — Megnið af mosaikmyndun- um sem þið sjáið hér eru gerð- ar úr íslenzkum steinum og þetta er fyrsta sýning sinnar tegundar hér. Við spurðum hann hvenær honum hefði dottið í hug að nota ísienzkt grjót í myndir. — Þetta er della sem greip mig fyrír nokrum árum. Þá spurðum við hvernig myndin væri búin til — Ég nota vissa blöndu undir mosaikið, sement, kalk o. fl. Ramminn er mótið og í botninn set ég vírnet, síðan blönduna Kaupir Menntamálaráð þessa mynd? — (Ljósm.: Tíminn KM). og raða síðan steinum í. Stund- um eftir skissu og stundum raða ég stórum steinum og litl- um sitt á hvað þannig að þeir spila saman. Sementsblandan helzt lin meðan ég skapa myndina. Grænlenzkt blýgrjót — amerískur steingervingur Við námum staðar við eina myndina, sem er sérstæð fyrir m. a. það, að hún er sett sam- an úr ísienzku grjóti, blýgrjóti frá Grænlandi og trésteingerv- ingi frá Bandaríkjunum. — Staingervinginn fékk Guð- brandur Magnússon, fyrrver- andi forstjóri í „Ríkinu“, hjá einhverjum kana, síðan gaf Guðbrandur mér steininn. Blý- ið gaf kunningi minn mér, en það hefur ekki reynzt eins vel og skyldi, molnar of mikið. En íslenzku steinunum hef ég svo Viðað að mér frá ýmsum stöð- um, svc sem úr Esjunni, frá Drápuhliðarfjalli og frá leg- steinasmiðum. Ekki eins hornóttur og áður fyrr Einn blaðamaðurinn sagði við Valtý: — Þú ert ekki eins horn- óttur og áður. Að öllum líkind- um átti hann við myndirnar, þar sem við sáum engin horn á listamar.ninum, en hann svar- aði: — Ég breytisf. Þar sem við erum á annað borð farnir að ræða um mynd- irnar hans þá sagði Valtýr okkur af manninum sem sá mosaikmynd í fyrsta sinn: Mos- aikmyndir þykja hvað fallegast- ar er þær eru nógu ójafnar, en maðurinn stóð og horfði á eina myndina og sagði: — Þetta er nú meiri andskotans klaufa- skapurinn hjá þér, ekkert jafnt af þessu.“ Við þökkuðum fyrir okkur og gengum með Valtý fram í and- dyrið og spurðum hann áður en við fórum: — Hvar í heiminum er listamönnum boðið upp á lé- legri húsakynni en hér í Lista- mannaskálanum? — Minnist ekki á það, þetta er góður staður, ég er einn af ráðamönnum hér. En ef við mundum fá lóð, þá byrjuðum við að byggja sama daginn, en á meðan er þetta alveg nógu stór og góður staður. jhm. Eru óvitar með skotvopn? Tvö blöð í Reykjavík hafa flutt þá fregn, að til landsins hafi verið smyglað miklum biTgðum af skammbyssum, sem unglingar hafi síðan keypt og noti fyrir leik föng. Á Áað hafa veiið smyglað 300 skammbyssum með einu skipi. svo eitthvað sé nefnt, og seldai hér fjrrir kr. 600,00 stykkið! Tíminn spurðist fyrir um það hjá lögreglunni í gær, hvort hún hefði nokkuð vitað um þetta mál Þau svör voiu gefin, að lögreglan hefði ekki haft veður af þessu, fyrr en það kom í þessum blöð- um, en að sjálfsögðu yrði reynt ag grafast fyrir um sannleiksgildi fréttar þessarar hið fyrsta. — Er heldur óglæsilegt til þess að hugsa, að óábyrgir unglingar hafi mannskæð skotvopn með höndum, einkum þar sem fæstir þeirra munu kunna nokkuð að fara með þau. Regn í dag er spáð allhvössu veðri á suðaustan og rlgn B ingu. Veður verður hlýtt K eins og undanfarna daga. í rauninni þýðir þetta hið versta slagveður og ætti s fólk að klæða sig eftir því. 1

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.