Tíminn - 24.04.1960, Blaðsíða 16
Snnnudaglnn 24. aprfl 1960.
89. rsm.
Breytir Syngman Rhee
st jórnarháttum í Kóreu?
Embætti forseta verði hei'Sursembætti og
myndaí verSi forsætisráSherraembætti
Seul, Suður-Kóreu, 23. apríl.
Syngman Rhee forseti og
einvaldur Suður-Kóreu hefur
gefið út yfirlýsingu þess efnis,
að hann hyggist breyta stjórn-
arháttum í landinu og gera
þá lýðræðislegri. Ríkjandi fyr-
irkomulag er líkt og í Banda-
ríkjunum, þar sem forseti fer
jafnframt með vald forsæíis-
ráðherra. Hyggst forsetinn nú
gera forsetaembættið að heið-
ursstöðu, eins og víðast hvar í
Evrópu og mynda forsætis-
ráðherraembætti, þar sem
ráðherrann sé ábyrgur í
Hægviðri
VeSurstofan sagSi okkur í
gær að veSrið myndi verða
ágætt í dag, hægviðri,
skýjað en úrkomulaust.
Tilvalið að renna færi eft-
ir siiung.
stjórnarathöfnum sínum gagn
vart þingi.
Ráðuoeyti Syngman Rhees hef-
ur nú sagt af sér og lýst yfir, að
það beri nokkra ábyrgð á óeirðum
þeim, sem verið hafa í landinu
síðustu daga, vegna forsetakjörs-
ins fyrir skemmstu. Miðstjórn
flokks forsetans hefur og sagt af
sér af sömu ástæðu.
Nýtt ráðuneyti
Syngman Rhee forseti, sem nú
er 85 ára að aldri, virðist nú vera
farinn að óttast andúð þá, sem
gerræðislegt forseta-kjör hans hef
ur skapað í landinu. Hefur hann
unnið a<5 myndun nýs ráðuneytis
og skipun ráðherra, eins og fyrr
greinir. Ætlar -forsetmn að hið
nýja stjómarfyrirkomulag komi
til framkvæmda eftir 3 mánuði.
Rhee forseti hefur gefið út yfir
lýsingu, þar sem hann skorar á
i'ólik að koma sér til hjálpar með
að koma friði á í landinu, og hlýða
herlögunum meðan þau væru í
gildi, það mundi flýta fyrir því,
að þau yrðu afnumin.
Varaforseti núverandi stjórnar
í S-Kóreu hefur lýst því yfir, að
hann muni ekki gefa kost á sér
við nýjar kosningar.
Eftirlit með fangameðferð
Lögreglustjórinn í Seoul, Yoo
Chung Yul hefur sagt af sér, en
Shong Yo Shan hershöfðingi, yfir
maður setuliðsins hefur tekið við
störfum hans og framkvæmd her-
laganna.
í skýrslum frá honum segir, að
nokkrir tugir manna séu enn í
haldi í fangelsum Seoul vegna
óeirðanna, en ekki séu margir
stúdentar í þeim hópi. Liðsforingj
ar úr hemum hafa verið fluttir
í velflest fangelsin til að sjá um,
að fangar sæti ekki misþyrming-
um.
Urðum að talast við
fyrir „toppfundinn"
— sagíi de Gaulle vií komuna til Washingto’a
Charles de Gaulle forseti
om til Washington til við-
æðna við Eisenhower for-
,eta, en þetta er fyrsta heim-
sókn de Gaulle þar í landi í 15
ar. Með honum er kona hans
og nokknr stjórnarméðlimir.
Mun hann hafa fjögurra daga
viðdvöl í Washington og ræða
við Eisenhower, en til þessa
hafa viðræðurnar mest snúist
um væntanlegan fund æðstu
manna. Síðan mun forsetinn
halda í stutt ferðalag til New
York, New Orleans og San
Francisco.
Gífurlegur mannfjöldi fagnaði
þeim hjónum og föruneyti þeirra,
er þau óku frá flugvellinum um
götur borgarinnar og er álitið, að
enginn erlendur þjóðhöfðingi hafi
fengið betri viðtökur af almenn-
ingi áður þar í landi. For.setarnir
skiptust á kveðjum við komuna
með stuttum ávörpum. Eisenhow-
er sagði m. a., að sér væri sérstök
ánægja af að mega bjóða forset-
ann velkominn til Bandaríkjanna,
(FramhaJd á 15. síðu)
Hérna iiggur billinn í vatninu. Að sögn fór hann enn dýpra en þetta, því vatnið flaut yfir þakið að aftanverðu.
ÞAR MÆTTUST HELZTU
VATNAGARPAR LANDSINS
- og þess vegna gekk allt klakklaust
Einn er sá landshluti, sem
erfitt er að komast til á bílum,
nema helzt á vorin, þegar lítið
er í vötnum. Það er í Öræfin.
Um síðast liðna páska var ó-
venju mikill straumur manna
þangað, enda auglýstu tveir
aðilar ferðir austur, Ferða-
skrifstofa Úlfars Jacobsen og
hinn kunni fjallafari Guð-
mundur Jónasson.
Á vegum Úlfars fóru 90
manns á 6 bílum. Gu'ðmundur
hafði 4 bíla á sinum snærum,
en auk þeirra voru 8 aðrir
bílar á þessari leið, samtals
18 bílar. Er áætlað. að í þeim
hafi alls verið um 200 manns.
Það er því mishermi, sem eitt
dagblaðanna sagði s. 1. mið-
vikudag, að 18 bílar hafi ver-
ið á vegum Úlfars Jacobsen.
Lítið í vötnum austur
Bílamir höfðu ekki sam-
flot á leiðinni austur. Guð-
mundur fór með sína bíla alla
leið að Jökulsá á Breiðamerk
ursandi, en Úlfars bílar fóru
lengst að Skaftafelli í Öræf-
um. Þá var komin úrhellis-
rigning, svo lagt var af stað
heimleiðis án þess að dvelja
lengur fyrir austan. Þá kom í
ljós, að mikið hafði hækkað
i vötnunum, enda ekki að
furða, því laugardaginn fyrir
páska reyndist úrkoman á Fag
urhólsmýri vera 60 millimetr-
ar á 12 tímum ekki 11, eins
og einhvers staðar var sagt.
Svo versnaði í því
Þegar kom að Sandgígju-
kvísl var orðið æði hátt í
henni og straumur þungur.
Þar voru komnir bílar Guð-
mundar og hinir 8 aðrir, þar
á meðal kunnir vatnagarpar
eins og Sigurjón Rist og
Bjami í Túni. Má því segja,
að margir hafi verið vanir
svaðilförunum í þessum hópi,
og auk fyrrnefndra manna er
hægt að nefna Ingimar Ingi-
marsson og Valdimar í Borg-
arnesi,, „Kjerúlfana" á
Soffíu“ o. fl. Þeir á bílunum
8 höfðu beðið Guömund um
samflot yfir vötnin, og þegar
Úlfars bílar komu líka, voru
allir bílarnir 18 komnir i hóp
saman.
Bönd í bak og fyrir
Var nú farið að kanna leið-
ina, og gengu menn Guðmund
ar vasklega fram í því að vaða
árnar og velja heppilega leið.
Einn manna Úlfars mun hafa
verið útnefndur vaðari fyrir
hans hönd, en hann var svo
óheppilega búinn til þess, að
hann flaut upp fyrr en varði
og fann þá ekki botninn sem
skyldi. Það lenti því á Guð-
mundar mönnum, aðallega
Heiðari Steingrímssyni og Jó-
hannesi Briem og svo náttúr-
lega Sigurjóni Rist. Eftir að
leið hafði verið fundin, voru
festar taugar í bílana, önnur
að aftan til þess lands sem
þeir fóru frá, svo hægt væri
að draga þá til baka ef með
þyrfti, og einnig til þess að
draga taugina frá spilbílnum,
sem var hinum megin árinn-
ar, aftur til baka og festa
hana í næsta bíl.
Ingimar Ingimarsson dró
alla bílana yfir, nema 2—3
bíla, sem bíll frá G. J. dró.
Svo komu Núpsvötnin
Eftir langa mæðu voru loks
allir bílarnir komnir heilu og
höldnu yfir Sandgýgjarkvísl-
ina. Þaðan er ekki langur akst
ur að Núpsvötnum, en Núps-
(Framhaíd á 3. síðu)
Þessi mynd sýnir „eldhúsiS" hans Guðmundar dregið yfir Núpsvötn.
Undir stýrl situr Jósúa Magnússon, en sennilega sér hann ekki mikið út.
— Blaðið hefur fengið skýrslu frá Sigurjónl Rist vatnamælingamanni um
vatnsmagn í nokkrum ám, þar á meðal Sandgígjukvísl og Núpsvötnum,
og verður hún birt í þriðjudagsblaðinu. (Ljósm.: A. Þ.)
I