Tíminn - 07.05.1960, Qupperneq 12
12
TÍMINN, laugardaginn 7. mai WM.
-jféyf&tífo
'<r
RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON
Síðari dagur sundmóts LR.
Danska sundfólkið bar sigur úr
býtum í fiórum greinum af sex
Hinu ágæta sundmóti ÍR
lauk í fyrrakvöld með
skemmtilegri keppni í mörg-
um greinum, þar sem tvö ís-
landsmet voru sett og tvö
jöfnuð. Sá árangur talar sínu
máli um framför íslenzks
sundfólks að undanförnu. og
virðist sem Ólympíuþjálfunin
hafi mikil áhrif. Dönsku kepp
endurnir þrír náðu allir ágæt-
um árangri — og sigruðu nú
i fjórum greinum af sex, sem
þeir tóku þátt í — en íslend-
ingar höfðu sigrað í þremur
Úrslitin í
bikarkeppn-
inni í dag
í dag ; fer fram á Wembley-
leikvanginum í Lundúnum úr-
slitaleikurinn í ensku bikar-
keppninni. Þá Ieika til úrslita
Blackburn og Wolverhampton.
Reiknafí er með sigri Úlfanna 13
gegn 8. Bæ3i liðin hafa mörg-
um mjög þekktum landsliðsleik-
mönnum á að skipa og má þar
nefna hjá Úlfunum fyrirliðann
Slater og framverðina Flowers
og Clamp og innherjann Broad-
bent. Hjá Blackburn eru það
Clayton, fyrirliði liðsins og fyrir
liði Englands, útherjinn Dougl-
as og innherjinn Dobing. Leik-
urinn hefst skömmu eftir hádegi
og er útvarpað lýsingu á báðum
hálfleikjum.
— Ágústa var mjög óheppin í 200 m skriÖsu'ndi
greinum af fjórum fyrra
kvöldið — og eru sigrar þjóð-
anna því ]afn margir
Þetta sundmót var sérlega vel
heppnað og á ÍR þákkir skilið
fyrir að fá hma ágætu dönsku
gesti hingað — en þátttaka
þeirra setti vissulega mestan svip
á mótið, þótt íslenzku keppend-
urnir sumír yninu ekki síðri af-
rek og í sumum tilfellum betri.
Margt áhorfenda var einnig síðara
kvöldið og m. þ. danski ambassa-
dorinn og frú hans.
Larsson er góður
Fyrsta keppnisgreinin var 200
m skriðsund og þar sýndi Lars
Larsson vel hve sterkur sund-
maður hann er. Guðmundur Gísla
son synti á móti honum og tókst
ekki að veita honum neina keppni.
Sund Guðmundar var „taktiskt“
rangt því hann átti alltof mikið
eftir í lokin. Fyrri 100 m synti
Larsson á 60,2 sek. sem er aðeins
4/10 lakara en han.n synti 100 m
á fyrra kvöldið.
AAetjöfnun hjá Einari
Bringusundskeppnin hér er
orðin mjög skemmtileg. Einar
Kristinsson náði ágætum árangri
í 100 m bringusundinu og jafn-
aði met Þorgeirs Ólafssonar
1:14.7 mín. Sigurður Sigurðsson
var skammt á eftir, en Einar er
nú greinilega betri á styttri
vegalbngdunum. Sama röð var
einnig í 50 m bringusundinu, en
Einar synti þar á 34,1 sek.
Ágústa óheppin
Ágústa Þorsteinsdóttir var afar
óheppin í 200 m skriðsundinu.
Hún sýndi yfirbu-rði gegn Strange,
en.tapaði samt sundmu — og kom
' tvennt til. Hún tók mikinn enda-
sprett, þegar hún hafði synt 130
m og hélt hún þá að sundinú væri
að ljúka. Stanzaði hún síðah við
rriarkið, en brautarverðir kölluðu
td hennar, að tvær umferðir væru
eftir. Missti Ágústa þá hið miMa
forskot sitt — en það virtist ekki
hafa nein áhrif og undir lokin
virtist hún ætla að sigra, en þá
kom hitt óhappið, hún synti út
í kaðalinn og tafðist mjög, svo
Strange komst aðeins framúr og
sigraði.
En Ágústa sýndi vel hver af-
bragðs sundkona hún er síðar.
um kvöldið. Þá keppti hún í 50
m flugsundi. og náði betri tíma
en ísl. metið 33.0 sek — sem
hefði þótt góður tími hjá karl-
manni fyrir fáum árum — og
strax á eftir keppti hún í 50 m
baksundi. Hún var lengi vel í
fyrsta sæti, en Strange tókst að
komast framúr í lokin — enda
Ágústa þá búin að synda tvö
sund í striklotu. Þó var hún áð-
eins 7/10 frá íslenzka metinu í
greininni.
Guðmundur er fljótur
Guðmundur Gíslason sigraði
með yfirburðum í 50 m skriðsundi
og jafnaði met sitt 26,2 sek. Pét-
i'r Krisitjánsson, í lítilli æfingu,
kom á óvart og synti á 27,4 sek.
— og Larsson fékk sama tíma.
Þeir voru dæmdir jafnir, en ég
gat ekki betur séð en Pétur hefði
ver'ið á undan.
Helztu úrslit síðar/i kvöldið urðu
þessi:
| 200 m skriðsund karla.
Lars Larsson, Danm. 2.09,6 mín.
Guðm. Gíslason ÍR 2.13,5 —
.100 m skriðsund drengja.
Þorst. Ingólfsson ÍR 1.05,1 —
Jóhannes Atlason A 1.08,5 —
Þrösitur Jónsson Æ 1.13,4 ■—
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, til vinstri, og Linda Petersen háðu skemmti-
lega keppni í bringusundi — og kom á óvart hve Hrafnhildi tókst að
halda í við hina ágætu, dönsku sundkonu. (Ljósm.: Guðjón Einarsson).
100 m bringusund karla.
Einar Kristinsson A 1.14,7
(sama og met)
Sig. Sigurðsson IA 1.16,0
Hörður Finnsson IBK 1.16,9
Guðm. Samuelsson IA 1.17,5
100 m bringusund kvenna.
Lmda Petersen, Danm. 1.20,8
Hrafnh. Guðm.d. ÍR 1.24,5
200 m skriðsund kvenna.
Kirsten Strange, Danm. 2.30,7
Agústa Þorsteinsd. A 2.30,9
50 m skriðsund karla.
Guðm. Gíslason ÍR 26,2 sek.
Lars Larsson, Danm. og
Pétur Kristjánsson A 27,4 •—
50 m bringusund karla.
Einar Kristinsson A 34,1 —
Sig. Sigurðsson IA 34,7 •—
Iíörður Fiamsson IBK 35,4 —
Guðm. Samúelsson IA 35,7 —
50 m skriðsund drengja
Þorsteinn Ingólrs'son ÍR 36,5 —
(Framhald á 15 síðu)
Danska
knattspyrnan
Úrslit í 1. deild í dönsku' deilda-
keppninni urðu þessi um síðus'tu
helgi.
Frem—KB
Fr.havn—AB
Esbjerg—B1913
OB—B1909
Skovshoved—AGF
B1903—Vejle
2— 4
3— 0
2—1
3—1
1—1
3—1
Staðan í deildinni er nú þannig:
Hér sjást lokin á hinni tvísýnu keppni ■ 200 m. skriðsundi kvenna. Myndin er tekin alveg við markið og sést hendi Ágústu til hægri, þegar hún
er að komast frá kaðlinum, en það kostaði hana sigurinn í sundinu. 7V hmsyrl *ést .vmur og höfuð Strange.
OB 7 4 1 2 13- 9 9
1909 7 4 1 2 14-10 9
AGF 7 3 3 1 13-11 9
j kb 7 4 1 2 16-14 9
Fr.havn 7 4 0 3 11- 8 8
Esbjerg 7 3 2 2 6- 7 8
Vejíe 7 3 1 3 13-11 7
Frem 7 3 1 3 14-15 7
B1913 7 3 0 4 15-11 6
B1903 7 2 1 4 7- 9 5
1 Skovshoved 7 0 4 3 4-10 4
lAB 7 i i 5 7-1« 3