Tíminn - 07.05.1960, Blaðsíða 16
Laugardaginn 7. maí 1960.
101. bla».
Þar finna þau
þrúttinn á ný
Heimsókn í ÆfingastöÖ fatlaÓra og lamaÖKa
ROGNVALDUR
— áður varð að bera mig.
Okkur finnst alltaf hssldur
ónotalegt að þurfa að ríá»a úr
rekkju á morgnana til úinnu,
kjósum heldur að sitja í stræt-
isvagni en ganga langa leið og
það er með hangandi liendi
sem við vinnum ýmis skyldu-
störf sem okkur leiðist. Sízt
verður okkur hugsað til þess
að fjöldi manns vildi fegið
gefa hálft líf sitt til að geta
klæðst af sjálfsdáðum, gengið
iim göturnar og unnið hcvaða
starf sem væri í þjóðfélaginu.
Það er fólk, sem hefur verið
stegið lömun og getur ekki veitt
sér neina björg. Fréttamenn Tfm-
ans brugðu sér í heimsókn til
iþessa fólfcs á æfingarstöð styrkter-
félags fatlaðra og lamaðra á Sjatn-
argötu 14 í gær.
Tólf manna starfslið
Styrfctarfélagið var stofnað árið
1952 og nú eru félagsmenn hátt á
fjórða hundrað. Eiris og menn
muna gekk skæður mænuveikis-
faraldur ’hér á landi seint á árinu
1955, og var þá þegar hafizt handa
um að koma upp æfingarstöð, þar
sem mænuveikissjúklingunum og
öðrum yrði hjálpað til að ná heilsu
sinni.
Sveinbjörn Finnsson, fram-
kvæmdarstjóri stöðvarinnar, skýr-
ir okkur frá rekstri hennar og til-
högun.
— Til skamms tíma höfðum við
eingöngu útlent starfslið, sagði
hann, stöðinni var komið upp í
snarihasti snemma árs 1956, hjúkr-
Æfingarnar eru margvíslegar og flóknar.
RÖGNVALDUR æfir sig með því aS kasta og grípa bolta.
unargögn fengin frá Danmörku,
Noregi, Svíþjóð, Þýzkalandi og
Bandarifcjunum. Nú er allt starfs-
liðið orðíð íslenzkt. Við erum 12
talsins auk læfcni-sins, 6 nuddfcon-
ur, sundfcennari, aðstoðarstúlkur
og bílstjóri. Allmargir sjúkling-
arnir eru það illa settir, að þeir
lcomust ekki leiðar sinnar og við
sækjum þá á heimili þeirra í bíln-
um.
£00 sjúklingar
— Hvað hafa verið margir sjúkl
ingar á heimilinu frá upphafi?
— Þeir eru um 500 talsins, kari-
ar og konur á öllum aldri, svaraði
Sveinbjörn, fjöldamargir þeirra
hafa fengið bata. Og það er ekfci
aðeins lífcamlega heilsubót, sem
fólfcinu veitist hér, það öðlast sál-
í.rstyrk, sem ekki fæst amnars stað-
ar. Það er ómetanlegur styrkur
fyrir- fólkið að kynnast öðru, sem
eins er ástatt um. Það er allt ann-
að en að hírast i hálfgerðri ein-
angrun innan um fullfríslkt fólk,
þó það vilji vel. Hjá ofckur hafa
verið piltar, sem hafa fengið það
mifcla bót meina sinna, að nú eru
þeir í þann mund að Ijúka erfiðum
langskólaprófum, þeir hefðu aldrei
átt þess kost ef þessi stofnun hefði
efcfci orðið til.
— Hvert er algengasta meinið?
— Margir eru að ná sér eftir
mænusóttina, sem gekk hér 1955,
segir Sveinbjörn, annars eru böm
hér í meirMuta og það er lama-
stjarfi, sem hrjáir þau flest. Það
tr meðfædd lömun. Orsök henn-
ar má refcja til þess að barnið
toafi skaddazt í móðunlífi eða við
fæðingu. Við höfum haft um 70
slífca sjúfclinga og sjúkdómurinn
er á mismunandi stigi hjá þeim
ölium. Hættan á lamastjarfa hefur
minmkað við aukna tækni í fæð-
ingarhjálp, en að öðru leyti er nær
ógerlegt að feoma í veg fyrir sjúfe-
dóm sem þennan. Það nægir efeki
að bólusetja eins og við mænu-
sótt.
Að hnýta skóreimar
— Hvaða lækningaraðferðir eru
helztar?
— Það eru allskyns æfingar,
lelkfimi og gönguæfingar, sund,
nudd og rafmagnslækningar, svar-
ar Sveinbjörn, sjúklingarnir lœra
einnig ýmislegt föndur til að
styrkja taugarnar. Það sem okkur
virðist einfalt og auðvelt, getur
reynzt þeim allt að því óviðrððan-
reynzt þeim ailt að því éviðráðan-
en að hnýta Skóreimar.
Sveinbjörn sýnir okkur sfcó, sem
er til þess notaður að æfa sig á.
Rútubílstjóri
í einum æfingarsalnum hittum
við að máli Rögnvald Óðinsson, 9
ára pilt, sem þjáðst hefur af löm-
un frá fæðingu. En hann hefur þó
sýnt af sér þann dugnað og þrek
að ganga daglega í sfcólann, hvern-
ig sem viðraði.
— Ég er í 9 ára bekk E í Breiða-
gerðisskólanum, segir Rögnvaldur,
mér finnst mest gaman að læra
skrift. Það var þó ekki auðvelt
til að byrja með, því ég var svo
sjálfhentur. En nú er það mikið
að lagast. Og mér þykir líka mjög
gaman að reikna.
— Hefurðu verið hér lengi?
— í tvö ár, svarar Rögnvaldur,
ég var með Iömun í fótum og
skjálfta í höndunum. Fyrst var ég
í æfingaleikfimi á Eiliiheimilinu,
og svo 'hérna. Pabbi varð að fara
með mig í leigubíl fyrst, svo bar
hann mig út í strætó, en nú fer ég
aleinn.
— Og þú leikur þér með krökk-
(Framhaid á 15 síðu).
Börn borin út af æfingastöðinni.
't'to/ '' 1 ', '
Skúrir
Enn einn daginn fá krakk-
arnir að leika sér í pollin-
jm, því í dag er spáð
suðvestan kalda og skúr-
um. Hitinn í Reykjavík f
gær var 9 stig, Akureyri
5 stig.