Tíminn - 11.05.1960, Blaðsíða 1
HIÐ NYJfl EFNflHAGSKERFI Efi BYGGT Á
SKðKKUM liTREIKNINGUM HAGFRÆDINGA
Haukur Bjarnason rannsóknarlögreglumaður gengur inn í kjallarann til Elíasar. (Ljósm. Tíminn K.M.)
Fannst afmyndaður af
barsmíð í íbúð sinni
Stjórnin verður f»ví að
breyta etnahagslöggjöf-
inni strax á þessu þingi
Emil Jónsson sjávarútvegs-
málaráðherra svaraði í gær á
Alþingi fyrirspurn þeirri, sem
Skúli Guðmundsson beindi til
ríkisstjórnarinnar í fyrradag,
en hún var á þá leið, hvort
ríkisstjórnin teldi sér heimilt
án nýrrar lagasetningar að
gefa eftir helming af útflutn-
ingsgjaldinu, sem var ákveðið
5% í efnahagslöggjöfinni, er
var samþykkt í febrúar síð-
astl. Svar Emils var á þá leið,
að stjórnin teldi sér þetta ekki
heimilt og yrði borið fram frv.
um breytingu á efnahag^lög-
gjöfinni innan fárra daga.
Það musi ekki hafa komið fyrir
áður, að þaiunig hafi þurft aS
breyta efnahagslöggjof á sama
þinginu og hún er sett. Þessi 6-
venjulegu vinnubrögð stafa af
því, að útreikningar þeir, sem
cfnahagslöggjöfin var byggð á,
hafa reynzt alrangir. Samkvæmt
þeim átti útgerðin að geta búið
við svipuð kjör eftir gengislækk-
unina og hún bjó við áður, þótt
lagt yrði á 5% útflutninigsgjald.
Niðurstaðan hefur orðið sú, að
þrátt fyrir þá helmingslækkun á
útflutningsgjaMinu, sem ríkis-
stjórnin hefur nú heitið útflytj-
endum, fær útgerðin ekki það fisk-
verð, sem hún telur sér nauðsyn-
legt til að búa við svipuð kjör og
fyrir gengislækkunina.
í efnahagslöggjöfinni var út-
fiutningsgjaldið ákveðið 5% og
verður nú að breyta því ákvæði af
framangreindum ástæðum.
í umræðunum á Alþingi í gær,
sýndi Ey9teinn Jónsson fram á,
að þetta væri ekki í fyrsta sinn,
er útreikningar sérfræðinga ríkis-
Ofbeldisverk í kjallara á Bergsta’ðastraéti 19
Líkur til að reynt hafi verið
að kyrkja manninn.
í gær var ráSizt á eldri
mann, Elías Hólm, BergstaÖa-
stræti 19 og að því er virðist
gerð tilraun til að kyrkja
hann. Einnig er Elías mjög
illa farinn eftir barsmíð, af-
myndaður í framan, bólginn
og marinn bæði á andliti og
brjósti.
Eftir því sem blaðið hefur
fbegnað mun Elías hafa fund-
izt þannig á sig kominn í
íbúð sinm í kjallaranum á
Bergstaðastræti 19.
Var hann sofandi?
Rannsóknarlögreglumaður
kom á staðinn um klukkan
hálf fimm og skömmu síðar
var læknir kvaddur til að líta
á Elías, en hann hafði færst
undan að vera fluttur heiman
frá sér. Hann hafði málrænu
(Frarahald á 3. síðu).
(Framihald á 3. síðu).
„Vioreisnin“ rennur út í sandinn
Víða kemur „viðreisnin" og gengislækkunin við. Fæstum hefði
t.d. dottið í hug, að gengislækkunin þyrfti að ná til sands af fs-
lenzkri sjávarströndu, svo að hann hækkaði um 25%.
Grófur byggingasandur hjá fyrlrtæki í Reykjavík kostaði í fyrra
dag 18 kr. tunnan, í gær var sandurinn ekki fáanlegur, en ( dag er
verðið kr. 22,90 — hækkunin 25%.
Því skal svo sem ekki neitað, að kostnaður við sandnámið hafi
vaxið, en hverjum skyldi detta í hug 25%?
Miðvikudagsgreinin: Tómlæti - bls. 8