Tíminn - 11.05.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 11.05.1960, Blaðsíða 11
li Hann fékk boð frá Down Beat Ég fór strax til Akur- Fyrir viku síðan kom Andrés Ingólfsson, hljóð- færaleikari, heim frá Bost- on, en þar hefur hann dval- • ið í boði jazz-tímaritsins Down Beat. Andrés er vel kunnur hljóðfæraleikari hér, þó sérlega hjá yngri kynslóðmni, hefur hann leikið m. a. með KK. sext- ettinum og Orion. Það er mikill heiður fyrir hljóð- Hér er Andrés fyrir utan elna jazzklúbbinn r Boston. Hann bend- irá nöfn væntanlegra skemmti- krafta: Chico Hamiiton, Oscar Pet- erson og Dizzy Gillespie. færaleikara að fá þetta boð, þar sem aðeins eru valdir hæfileikamenn. Fréttamaður blaðsins náði tali af Andrési á sunnudaginn heima hjá honum inn á Laing- holtsvegi, í herberginu hans má sjá bækur, nótnablöð og fl., sem allt á það sameiginlegt að einhvers staðar á kápunum stendur orðið „JAZZ“. Á borði úfi í horni stendur útvarp, en fyrir neðan það er plötuspiiari eða svokallað „HI-FI-sett“. Á veggjum eru myndir af Orion, sem teknar eru bæði á skemmti stöðum og á tónleikum. — Hvar hefur þú alið mann- inn Andrés síðan þú komst eyrar .... — Já, þar er konuefnið þitt, ekki rétt? ■— Jú. — Segðu mér, Andrés, hvern- ig sfóð á því að þú fékkst þetta skólaboð til Bandaríkjanna. — Ég sá eitt sinn auglýsingu um skólastyrk þennan í Down Beat, svo ég skrifaði eftir um- sóknareyðublöðum og fékk þau. Síðan sendi ég þeim um- sóknina, einnig sendi ég þeim segul'bandsspólu, sem ég lék inn á. Svo leið og beið, ég heyrði ekkert frá þeim og gleymdi þessu. Þar til einn góðan veðurdag að bréf kom og þeir sögðu að ég hefði feng- ið styrkmn. — Hvað heitir þessi styrkur og hvað felur hann í sér. — Styrkurinn sem óg fékk nemur skólagjaldi fyrir tvö misseri, eða átta mánuði alis og heitir „1959 Hall of Fame“. Ég er þegar búinn með fyrri hlutann, annars er þetta fjög- urra ára nám og áður en ég fór heim buðu þeir mér að klára skólann, en það er ekki hlaup- ið að því að stunda nám í Bandaríkjunum þó svo að mað- ur fái skólagjaldið frítt. Ég er fimmti útlendingurinn sem fæ þennan styrk. — Hvað heitir skólinn sem þú ert á? — Hann heitir Berklee School of Music og er í Boston. — Þetta er stór og góður skóli, er það ekki? — Jú. hann er stærstur sinn- ar tegundar; í vetur voru 200 nemendur þar, en það er verið ið stækka skólann um helm- ing. Berklee er sagður bezti hljóðfæraleikaraskóli Banda- ríkjanna í jazz og dans'hljóm- list. — Á hverju byggist kennsl- an? — Við höfum einkatíma í hljóðfæraleik, ég hafði t. d. tvo einkakennara í saxófón- leik. Einnig lærum vio að út- setja fyrir stórar hljómsveitir svo og tónfræði, heyrnarþjálf- un, en hún byggist á að hlusta á lag einu sinni og geta síðan sezt niður og skriíað það. Þá er sameiginleg þjálfun í að leika í stórum og litlum hljóm- sveitum. — Spilaðir þú nokkuð opin- berlega fyrir vestan. — Ja, ég veit ekki hvað skal segja, við stofnuðum nokkrir nemendur í skólanum Inter- International-hljómsveitinni. nationai-hljómsveit og í henni voru fyrir utan mig: Indverji, Kanadamaður, Júgóslafi, Ung- verji, Kand, Afríkumaður og Tyrki. Júgóslafinn, sem er af rússneskum ættum, er fyrsti námsmaðurinn í Bandaríkjun- um síðan fyrir stríð sem er á rússnesku vegabréfi. Við spil- uðum tveggja tíma prógram áður en ég fór fyrir „Voice of Amerika". Einnig getur verið að bandið spili á „Newport Jazz Festival" nú í júlí, en ég get ekki orðið þar með þar sem ég verð ekki kominn út. — Þú hlýtur að hafa séð ein- hverja fræga jazzleikara? — Já, ég sá þá nokkra, m. a. Count Basie, Maynard Fergu- son, Jimmy Rushing, Bob Brookmeyer og marga fleiri. — Hvenær ferðu út aftur? — Ég fer snemma í sept- ember. — Ætlar þú að spila hér í sumar? — Ég veit það ekki, það er ekki gott að fá vinnu. Einhver samdráttur er hjá skemmti- stöðunum. Hver veit nema maður fari bara í að grafa skurði. jhm. heim? 11 UNGFRI) ÍSIAND 1960“ Þegar hefur verið getiS í blöðum og útvarpi, að fegurð- arsamkeppnin um titilínn „Ungfrú ísland 1960" fer fram í júní n. k., en það verð- ur í 10. sinn, sem slík keppni fer fram hér á landi, í tilefni af þessu afmæli verður sér- staklega vel vandað til keppn- innar, og verða verðlaun glæsilegri en nokkru sinni áður. Má meðal annars benda á, að allar stúlkur, sem kom- ast í úrslit, hljóta ferðir til útlanda. Það nýmæli verður og nú, að tvær stúlkur eiga kost á að fara til Bandaríkjanna, önnur til Miami á Florida, en hin til Langasands, og taka þar þátt í „Miss Universe" og „Miss international“ fegurðar- Eamkeppnum. Þrjár þær næstu hljóta ferðir til Evrópulanda, m. a. t:I Vínarborgar og London. rerðmæti þeirra verðlauna, sem veitt eru efstu fimm stúlkunum hér heima, eru áætluð um 150.000.00, en þær hinar sömu munu á erlendum vettvangi koma til með að keppa um ca. tveggja EiiMjón króna verðmæti, en í Bandaríkjunum fá 15 efstu stúlk- urnar m. a. peningaverðlaun, allt að 10.000.00, dollara og sú efsta hlýtur þar að auki nýjustu gerð af Chevrolet' bifreið ásamt kvik- myndasamningi. Þess utan keppast kvikmyndaframleiðendur um að velja úr hópi fegurðardísanna. Þá berast þeim einnig mörg freist- andi tilboð frá eriendum flugfé- lögum, tízkuhúsum, sjónvarps- stöðvum og öðrum auglýsendum iim heim allan. Þess er skemmst að minnast, að Ísland hefur tvisvar komizt í úrslit ei'lendis, en full- trúar okkar voru þá Rúna Brynj- ölfsdóttir, árið 1957 í Baden- Baden, og Sigríður Þorvaldsdóttir í Bandaríkjunum nú í fyrra, og dvelst hún enn erlendis' við sýn- ingarstörf og nám. Eins og að líkum lætur er hér um mjög áhrifaríba landkynningu cð ræða, þar sem myndir af þess- um stúlkum birtast á forsíðum heimsblaðanna og svo í sjónvarpi, enda gera ýms lönd mikið' fyrir fiilltrúa sína og verja til þess ærnu fé. Þess hefur orðið vart í vaxandi niæli, að aimenningsálitið til þess- ara keppna hér heima hefur breytzt mjög til betri vegar und- anfarin ár. Rétt til þátttöku í keppninni bafa allar stúlkur hvaðanæfa af landinu á aldrinum 17—28 ára. Stúlkur utan af landi fá fríar ferðir og uppihald meðan á keppn- inni stendur. Það er einlæg ósk forráðamanna keppninnar, að ef menn vita um stúlkur, sem til greina geta komið, að láta vita í símum 14518 og 16970, eða póst- hólf 368. Stúlkurnar koma fyrra kvöldið fra mallar í sa-ms konar tjólum, en síðana kvöldið keppa þær til úrslita í baðfötum. Auk þessa munu margir skemmtikraft- ar koma fram í tilefni af 10 ára afmælinu, sem áður er skýrt frá. Fegurðardrottningar frá 1958. Sigríður Þorvaldsdóttir, sem nú er í Bandarfkjunum er önnur til vinstri. \

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.