Tíminn - 11.05.1960, Side 5

Tíminn - 11.05.1960, Side 5
TÍMINK, mSHvikndagirm 11. maí 1960. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Ámason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsingastj.: Egill Bjarnason. Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusimi: 12323. — PrentsmiSjan Edda h.f. --------------------------------------------------------------/ Styrkjakerfið í blóma Það er helzt notað af stjórnarsinnum til að réttlæta stefnu þeirra í efnahagsmálunum, að verið sé að hverfa frá styrkjakerfinu. Hér eins og á svo mörgum öðrum sviðum, stangast fullyrðingar þeirra við staðreyndir. Sannleikurinn er sá, að styrkjakerfið hefur aldrei blómstrað öllu betur en nú. í fjárlögunum fyrir þetta ár, er gert ráð fyrir því að verja yfir 300 millj. kr. til niðurgreiðslna á vöruverði eða 170—180 millj. kr. meira en varið var til þeirra árið 1958. Bersýnilegt er á skýrslu þeirri, sem viðskiptamála- ráðherra flutti nýlega á Alþingi, að þessi fjárveiting verð- ur notuð til fulls og sennilega ríflega það. Þá er ráðgert á þessu ári að verja um 100 millj. kr. til til fjölskyldubóta með 1. og 2. barni og er hér um alveg nýja styrki að ræða. Þessi stórfellda aukning styrkjakerfisins hefur það í för með sér að auka verður álögur ríkisins að sama skapi, svo að í flestum tilfellum gerist ekki annað en að tekið er úr einum vasa almennings og látið í annan. í ýmsum tilfellum verða því afleiðingarnar ekki annað en aukin skriffinnska. Útflutningsuppbæturnar haldast líka áfram, þótt ríkisstjórnin hælist af því að hafa felit þær niður Nýlega hefur hún veitt togurunum 30—36 millj. kr. auknar upp- bætur á framleiðslu ársins 1959. Þa hefur hún nýlega ákveðið að gefa fiskútflytjendum eftir helminginn af 5% útflutningsgjaldinu, er útflutningssjóður átti að fá og átti að fara til að greiða gamlar skuldir hans. Vitanlega er slíkt ekkert annað en útflutningsuppbætur í nýju formi, er nema um 60 millj. kr. á ári. Þannig blómstrar styrkjakerfið, uppbótakerfið og niðurgreiðslukerfið áfram, þótt stjórnarsinnar hrópi sig hása um það á götum og gatnamótum, að þeir hafi lagt það niður! Þetta kerfi mun líka halda áfram að blómstra meðan ríkjandi efnahagsmálastefnu er fylgt. Óðaverðbólgu- stefnan, sem gerir hina ríku níkari og fátæku fátækari, hefur í för með sér síaukið styrkjakerfi. Þannig er reynt að draga úr verstu afleiðingum óðaverðbólgunnar. Styrk- irnir koma mönnum þó raunverulega ekki að neinu gagni, því að þeir fara strax í hít óðaverðbólgunnar aftur. Slík stefna leiðir aðeins út í vaxandi óðaverðbólgu og styrkja- fen. Því er það þjóðarnauðsyn, að horfið sé frá henni sem fyrst. Ein skekkjan enn Enn hefur sannast ný reikningsskekkja á hagfræðinga ríkisstjórnarinnar. í vetur fullyrtu þeir, að útgerðin gæti fengið kr. 2.71 fyrir kg. xaf slægðum þorski á línuvertíð og kr. 2.65 fyrir kg. af þorski á netaverúð, þótt lagt væri á 5% útflutn- ingsgjald. Niðurstaðan er sú, að útgerðin fær 8 aurum minna fyrir kg. af línuþorski og 12 aurum minna fyrir kg. af netaþorski, enda þótt búið sé að lækka útflutnings- gjaldið um helming. Þetta er þó ekki nema lítið af þeim skekkjum sérfræð- inga ríkisstjórnarinnar sem eiga eftir að koma fram. Allt nýja efnahagskerfið er nefnilega byggt á meira og minna stórum reikningsskekkjum. Það mun því fara sömu leiðina og annað það, sem Dyggt er á röngum grundvelli og skökkum undirstöðum. t '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ‘t '/ '/ '/ '/ t ’/ t '/ '/ 't '/ 't / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ‘/ 't '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ 't '/ '/ '/ 't 't '/ '/ '/ '/ '/ '/ t '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ERLENT YFIRLIT Ríkisstjðrinn og sakamennirnir Óvenjuleg barátta DiSalle fyrir afnámi dauðadóma. MICHAEL V. DISALLE, rík- isstj>óri í öhio, er uin margt óvenjulegur maður. Eitt dæmi þess er það, að hann hefur eingöngu vaiið menn, sem hafa verið dæmdir fyrir morð, til að gegna þjónsstörfum í ríkis- stjórabústaðnum. Það hefur iengi verið venja ,að faingar úr ríkisfangelsinu væru iátnir vinna slík störf, en það er fyrst í ríkisstjóratíð DiSalle, sem iþeir hafa emgöngu verið valdir úr hópi manna, sem hafa verið dæmdir fyrir morð til langrar fangavistar. Þetta er einn iþótturinn í bar- áttu DiSalle fyrir því að fá dauðarefsingu brott fehda úr lögum Ohioríkis. Hann hyggst 'þannig að sanna, að slíkir menn séu ekki neitt hættulegir. Með- an ákvæðið um dauðarefsing- una er í gildi, segist hann ekki viija beita náðunarheimild rík- isstjórans, nema samkvæmt venju, því að persónulegar skoðanir megi ekki róða fram- fcvæmd móla. Síðan hann varð ríkisstjóri hefur hann aðeins náðað tvo menn, sem höfðu ver ið dæmdir til dauða, en tveim- ur dauðadómum hefur verið fullnægt. Báðir hinna dæmdu höfðu myrt lögreglum. Fyrir dyrum stendur að framfylgja .sex dauðadómum í Ohio og þyk- ir efcki líklegt að Di Salle beiti náðunarvaldi sínu í sambandi við þá. Hins vegar mun hann halda áfram baráttu sinni fjTÍr afnómi dauðarefsingar úr lög- um. Tii frekari kynningar á Di- Salie, sfcal þess getið, að hann er einn af atkvæðamestu og fjörmestu stjórnmálamönnum Bandaríkjanna um þessar mundir. Hann er 52 ára garnall og 'hóf ungur afskipti af stjórn- málum. Ilann var kosinn borg- arstjóri í Toledo eftir að hafa setið á ríkisþinginu í Ohio um sfceið og varnn sér slífct álit fyrir borgarstjórn sína, að Truman gerði hann að yfirstjórnanda verðlagsmála í Bandarífcjunum. DiSalle var svo athafi.asamr.r í því starfi, að hann varð þefckt ur um öll Bandaríkin. Árið 1956 gaf hann fcost á sér sem ríkisstjóra í Ohio, en náði ebki kosningu. Árið 1958 bauð hann sig fram aftur og vann þá mik- inn kosmingasigur. ÞAÐ eru átta menn, sem allir hafa verið dæmdir fyrir rnorð, sem vinna daglega í rík- isstjórabústaðnum. Þrír þeirra sofa þar á nóttunni, án þess að nofckrir verðir líti eftir þeim. Hinir fimm koma þangað úr fangelsinu kl. 7 á morgnana og eru fluttir í fangelsið kl. 10 á kvöldin. Engir verðir fýl~jast með þeirn á daginn. Þeir þrír, sem sofa í ríkis- stjórabústaðnum án þess að þar sé annað fólk en ríkis- stjórahjónin og börn þeirra, eru þessir: Franfc Johnson, 45 ára gam- ail, sem var dæmdur fyrir morð 1952. Hann er dyravörður í rífcisstjórabústaðnum, og er eins konar yfirþjónn hj' ríkis- stjóranum. Áður en hann lenti í morðmálinu, var hann verk- stjóri í stálsmiðju og þekktur fyrir trúræfcni, sem efcki hefur minnkað síðan. Morðið gerðist þannig, að hann lenti í deMu Ríkisstjórafrúín og einkabílstjóri hennar, sem hefur verið dæmdur fyrir konumorS. við mann á veitingahúsi. Deil- unni lauk með slagsmálum, er kostaði andstæðing Juhnsons lífið. Johnson segist hafa verið í sjálfsvörn, því að andstæðing- urinn hafi beint byssu að sér, en eigi að síður var hann dæmd ur í lífstíðarfangelsi. Hann hef- ur hegðað sér sem fangi með miklum ágætum. Edwin Jamrozy, 40 ára, er einlkabílstjóri DiSolIe. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi 1940 fyrir að aka inn á bann- svæði við olíustöð og verða verðinum að bana. Ervin Ingle, 26 ára, er einka- bílstjóri ríkisstjórafrúarinnar. Hann var ásakaður fyrir það 14 ára gamall að hafa- orðið hjón- um að bana, en fram til þess tíma hafði hann haft á sér gott orð. Hann bar í fyrstu, að hann hefði myrt þau til þess að geta ekið í bíl þeirra á danssfcemt- un, en böndin bárust þannig að honum, að hann hafði sézt 1 bílnum. Seinna breytti hann framburðinum þannig, að kon- an hefði sent hann eftir byssu, en síðan hefði hún skotið mann sinn til bana. Ingle sagðist þá hafa reynt að ná byssunni af henni, og í þeirn sviptingum hafi sfcotið lent í henni. Dóm- arinn félst á þennan vitnisburð hans og dæmdi hann, er hann var 15 ára gamall, í ævilangt fangelsi fyrir að hafa orðið kon unni að bana. Ingle þykir hafa reynzt vel sem bilstjóri ríkis- stjórafirúarinnar. FANGARNIR fimrn, sem vinna í ríkisstjórabústaðnum á daginn, eru þessir: Nick Cosmai, 33 ára gamall, sem var dæmdur í lífstíðar- fangeisi fyrir morð er hann var 17 ára gamall. Hann er nú aðal bryti í ríkisstjórabústaðnum og hefur unnið sér orð sem einn bezti matreiðslumaður í Ohio. Hann lenti kornungur í bófafé- lagi, sem gerði árás á bjórstofu með þeim afleiðingum, að veit- ingamaðurinn var skotinn til bana. Böndin báru að Cosmai. Þótt hann hafi jafnan afneitað, var hann dæmdur í lífstíðar- fóngelsi fyrir morð. Joe Wiloher, 48 ára gamali, isem var dæmdur í 20 ára fang- elsi fyrir 19 árum síðan. Hann er aðstoðarmaður Cosmai í eld- húsinu. Hann var dæmdur fyrir að hafa orðið að bana keppi- naut sínum í ástamáium, en þeim hafði lent saman í áflog- um. Oharles DiPrima, 27 ára gam all, var dæmdur í 20 ára fang- elsi, er hann var 18 ára gamall. Hann hugðist að gefa stúlku, sem hann var ástfanginn í, jóla- tré, en hún afþakkaði það kuldalega. Hann drakfc sig þá ofurölvi, náði siðan í by.ssu, fór heim til stúlkunnar og skaut föður hennar, er hann kom til dyra. Hann er nú garðyrkju- maður á ríkisstjórasetrinu. Willie Carroll, 52 ára gam- all, vaV dæmaur i lífstíðarfang- elsi 1948 fyrir að skjóta mann til bana, en strax á eftir gaf hann sig sjálfur fram á næstu lögreglustöð áður en lögreglan hafði fengið nokkra vitneskju um atburðinn. Hann vinnur sem garðyrkjumaður á rífcis- stjórasetrinu. Jöhn Mcltoch, 48 ára gam- al1, var dæmdur í lífstíðarfang- elsi 1952. Kunningi hans hafði ekið á bílinn hans og neitaði að borga skaðabætur. Þetta leiddi til slagsmála, er lauk þannig, að Mclntosh skaut hann til bana. Hann gegnir nú ýmiss konar þjónustustörfum í rífcis- stj órabústaðnum. RÉTT þykir að geta þess, að allir þessir átta menn hafa ver- (Framhald á 13. síðu). / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ 't 't '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ { '/ '/ 't '/ '/ '/ '( 't '/ '/ '/ '/ 't '/ '/ '/ '/ '/ '( '( '( '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ‘/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ■ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ »*>

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.