Tíminn - 15.05.1960, Page 2
z
TÍMINN, sunudagiim 15. maj. 1960.
Eins og getið var um f blaðinu í gær synjaði danska stjórnin Flugféiagi íslands um leyfi til áætlunarflugs til
Grænlands. Þessi mynd var tekin af Sólfaxa á flugvetlinum við Tkateq.
Fimmta norræna sund-
keppnin hefst í dag
5. norræna sundkeppnin
hefst á sunnudaginn kemur
og mun forseti íslands herra
Ásgeir Ásgeirsson ávarpa
þjóSina * fréttaauka annaS
kvöld af þessu tilefni.
Erlingur Pálsson, yfirlög-
regluþjónn, ræddi um sund
keppnina á fundi með frétba
mönnum í gær.
Gat hann þess, að þetta
væri 5. norræna sundkeppn
in en sú fyrsta hefði verið
háð árið 1949. Var þá keppt
um bikar Gústavs V. Svía-
konungs, en hann vann Finn
land. Árið 1951 vann ísland
keppnina, en þá tóku íslend
ingar í fyrsta sinn þátt í
keppninni og komu öllum á
óvart með yfirburða sund-
kunnáttu. 1954 unnu Svíar
keppnina, en þá var keppt
um bikar Friðriks Danakon
ungs. 1957 unnu Svíar. Nú er
keppt um bikar, sem forseti
íslands -gefur. íslendingar
standa á ýmsan hátt betur
að vígi nú en hinar frænd-
þjóðirnar. í fyrsta lagi höfum
við lægsta jöfnunartölu og í
öðru lagi aukna sundkunn-
áttu af 3 ára sundskyldu.
Nefndin hefur hlotið góðar
undirtektir um samsbarf og
gefur það góðar vonir um
mikla þátttöku. Öll gögn
varðandi keppnina hafa verið
send á alla sundsbaði sem iyi
eru opnir eða verða opnaðir
bráðlega, þannig að allt á að
vera tilbúið þegar keppnin
hefst. Sundmerki verða seld
með ártalinu 1960 og mun all
ur ágóði af sölu þeirra renna
til eflingar sundíþróttinni.
Leifur Kaldal vinnur að þvi
af miklu kappi að smíða for
setabikarinn, sem Norðurlönd
in keppa um i þessari keppni.
Verður bikarinn mjög vegleg
ur gripur.
Auk Erlings eru í Lands-
nefnd norrænu sundkeppninn
ar: Ingvi R. Baldvinsson for
stjóri; Þorsteinn Einarsson,
íþróttafulltrúi; Kristján Gests
son, verzlunarstjóri; Þorgils
Guðmundsson fulltrúi og Þor
geir Sveinbjarnarson forstj.
íþróttafulltrúi ríkisins, Þor
steinn Einarsson gat þess, að
Aðalfundur FUF í Árnessýslu
verður haldinn n. k. þriðjudagskvöld 17. maí kl, 9 i fundarsal
kaupfélagsins á Selfossi.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á þing S. U F.
3. Ýmis mál.
4. Umræður um stjórnmálaviðhorfið Framsögumaður
Ingvar Gíslason alþingism.
Félagar: Mætið stundvíslega og takið með nýja félaga
STJÓRNIN
318 ungmennafélög ynnu að
i því að framkvæma keppnina
' og að á sunnudaginn yrði byrj
að að synda í 32 sundlaugum.
Siggeir Guðmannsson fram
kvæmdastjóri' nefndarinnar
, ræddi um fyrirkomulag keppn
innar í Reykjavik. Gat hann
þess, að í fyrstu yrði aðalá-
, herzlan lögð á að fá nemend
. ur skólanna til þátttöku í
keppni, en almenningur hefði
' nægan tíma frá 1. júní. Auð-
ur Auðuns borgarstjóri mun
setja keppnina en forseti ís-
lands herra Ásgeir Ásgeirs-
son og Geir Hallgrímsson borg
arstjóri munu synda fyrstir.
Vorsýning Hand-
íða- og mynd-
listaskólans
í dag kl. 2 síðd. verður vor-
sýning Handíða- og mynd-
listaskólans opnuð í húsa-
kynnum skólans að Skip-
holti 1.
Á sýningunni eru sýnishom
af vetrarvinnu nemenda í
námsgreinum þeim, sem
kenndar eru í skólanum, en
þær eru: listmálun, teiknun,
sáldþrykk lítógrafía, dúk- og
trérista, mosaik, batik, mynzt
urteiknun, alm. vefnaður,
myndvefnaður, útsaumur, tau
þrykk, bókband. Þar ereinnig
fjölbreytileg vinna barna m.a.
teikningar, vatnslitamyndir,
mosaik, föndur o. fl.
Sýningin verður aðeins op-
in í dag og á morgun kl. 2—
10 síðd. Aðgangur er ókeypis
og öllum hemill.
ísland tekur þátt í al-
þjóðasýningu á Italíu
Hefur ekki áíur teki‘8 þátt í Jieirri sýningu
Síðan árið 1895 hefur farið
fram alþjóðleg listsýning í
Feneyjum á Ítalíu annaðhvert
ár nema þegar styrjaldir eða
aðrar óviðráðanlegar ástæður
hafa hindrað. Er sýning þessi
þekkt um allan heim undir
nafnnu: „La Biennale di Ve-
nezia“ og þykir jafnan mikill
viðburður meðal þeirra, sem
áhuga hafa á myndlist. — Á
sýningarsvæðinu hafa marg-
ar þjóðir komið sér upp sér-
stökum sýningarhöllum eða
sýningarskálum, þeirra á með
al Danmörk og Finnland, og
er finnski skálinn þó einungis
bráðabirgðabygging. Um hríð
hefur verið rætt um það með-
al ráðamanna á Norðurlönd-
um, að Norðurlöndin reistu
sameiginlega sýningarhöll.
Hefur það nú orðið að ráði, að
Noregur, Finnland og Svíþjóð
reisi í félagi sýningarhöll hjá
danska skálanum.
Sumarið 1958 átti Bírgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri,
viðræður við forráðamenn
sýningarinnar í Feneyjum um
það hvort og þá með hvaða
kjörum ísland myndi geta
orðið þátttakandi í sýning-
unni. Varð niðurstaðan sú, að
ísland myndi eins og marg-
ar aðrar þjóðir geta fengið að
sýna á Biennale di Venezia án
þess að leggja í kostnað við
byggíngu sýningarskála þar
eð ítalir lána mörgum þjóð-
um, stórum og smáum, sýn-
ingarhúsnæði í stórri höll,
sem þeir eiga á sýningarsvæð
inu.
Að fenginni þeirri vitneskju
var hætt að hugsa um þátt-
töku í skálabyggingu hinna
Norðurlandanna í Feneyjum,
sem myndi hafa orðið all-
kostnaðarsamt og vafasamt
að verja fé til, a.m.k. meðan
ekki er til viðhlítandi listsýn-
ingarhúsnæði á íslandi. En i
staðinn var sótt um að fá að-
stöðu til að sýna íslenzka
mynlist á Biennale í höll
ítala.
Tókst að fá hið umbeðna
leyfi til þátttöku, þótt eftir-
spurn eftir sýningarhúsnæði
sé jafnan mjög mikil.
Sýning sú, sem haldin verð
ur á þessu ári í Feneyjum, er
hin þrítugasta í röðinni og
hefst 18. júní n.k. og stendur
til 16. október. Sýningarrúm
það, sem íslandi er ætlað, eru
24 lengdarmetrar og var talið
hæfilegt að senda tíu málverk.
Hefur verið ákveðið að sýna
að þessu sinni tíu olíumál-
verk eftir Jóhannes Sveinsson
Kjarval og þrjár járnmyndir
eftir Ásmund Sveinsson.
Að beiðni menntamálaráðu
neytisins og að höfðu samráði
við Menntamálaráð íslands,
hafa þau dr. Selma Jónsdóttr,
umsjónarmaður Listasafnsins
og stjórn Félags íslenzkra
myndlistarmanna, listmálar-
arnir Sigurður Sigurðsson, for
maður, Hjörleifur Sigurðsson
og Valtýr Pétursson, valið
verk þau, sem sýnd verða.
Alþingi veitti fé til sýning-
arinnar.
Breyting á hreinsunar-
starfsemi bæjarins
Stofnað embætti hreinsunarstjóra
Undanfarin ár hefur tilhög-
un þeirrar hreinsunarstarf-
semi, sem Reykjavíkurbær
hefur með höndum, verið
þannig í aðalatriðum, að borg
arlæknir hefur látið fram-
kvæma sorphreinsun, salerna
hreinsun hreinsun á, holræsa
heimæðum í einkaeign, lóða-
hreinsun og rottueyðingu og
séð um rekstur sorpeyðingar-
stöðvar, en bæjarverkfræð-
ingur hefur séð um gatna-
hreinsun, snjóhreinsun hreins
un á holræsum bæjarins og
hreinsun á óbyggðum svæðum
bæjarins.
Fyrir nokkru ákváðu bæjar
yfirvöldin að sameina stjórn-
ina á allri fyrrgreindri hreins-
un og að hún skyldi vera á
verksviði bæjarverkfræðings.
Borgarlæknir hefur að sjálf-
sögðu eftir sem áður eftirlit
með hreinlætismálum bæjar-
ins eins og öðrum heilbrigðis-
málum í umdæmi sínu. Hefur
nú verið stofnuð sérstök
hreinsunardeild í stofnun bæj
arverkfræðings og ráðinn þar
deildarstjóri, Guðjón Þor-
steinsson.
Hreinsunardeildin tók til
starfa 1. maí s.l. og tók fyrst
við þeim hreinsunarverkum,
sem aðrar deildir bæjarverk-
fræðings höfðu annazt. Nú
um þessa helgi, 15. maí tekur
svo hreinsunardeildin við
þeirri hreinsunarstarfsemi,
sem borgarlæknir hefur séð
um og greint er frá hér að
framan.
Hreinsunarstjórinn hefur að
setur í Skrifstofu bæjarverk-
fræðings í Skúlatúni 2 og hef
ur þar viðtalstíma kl. 11—12
daglega. Eins og áður verður
starfrækt sérstök varðstöð á
Vegamótastíg 4, sem opin er
daglega kl. 7.40—18, nema á
laugardögum til hádegis.
Þangað geta bæjarbúar snú
ið sér með ábendingar sínar
eða óskir um aðstoð við hreins
un, rottueyðingu eða vegna
stíflaðra holræsa.
Um 135 menn starfa nú að
þeirri hreinsun, sem Reykja-
víkurbær framkvæmir