Tíminn - 15.05.1960, Blaðsíða 5
TÍ MIN N, laugardaginn 14. maí 1960.
s
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj.: Egill Bjarnason. Skrifstofur
í Edduhúsinu — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
íhaldið tekur ofan
grímuna
Fátt er svo með öllu illt aS ekki boði nokkuð gott,
segir gamalt máltæki. Og það hefur eins og önnur slík
sinn sannleik að geyma Stjórnarfar bað, sem nú er verið
að leitast við að koma á í landinu, er í flestum greinum
svo illt og öfugsnúið, að það jaðrar með nokkrum hætti
við þær plágur, mennskar jafnt sem ómennskar. sem
harðast léku þjóðina á umliðnum öldum. Þó fvlgir því
einn kostur, sem gjarnan má gjalda allmiklu verði:
Ihaldið kemur upp um sig.
Það hefur nú á 4. áratug orðið að deila hlut með öðr-
um, hafi það á annað borð haft aðstöðu til íhlutunar um
stjórn landsins. Almenntngur í landinu hefur þannig ekki
haft tök á að kynnast eð’i þess og innræti. Eggjarnar hafa
ávallt verið deyfðar. Þetta hefur á vissan hátt orðið
flokknum til framdráttar. Yngra fólk man ekki baráttu
umbótamannanna við íhaldið fyrir 1927, þegar heita mátti
að það kyrkti hvert það mál, er til íramfara horfði fyrir
almenning. Það man ýmist óljóst eða ekki eftir átökum
næsta áratugar, þar sem knýja varð hvert umbótamál
fjam gegn harðvítugri andstöðu íhaldsaflanna.
En upp úr þessu breytti íhaldið um baráttuaðferð.
Því var ljóst, að íhaldsstefnan var dæmd til áframhald-
andi áhrifaleysis ef hún birtist í réttu gerfi. Því var skipt
um flíkur. í Stað opinskárrar baráttu gegn umbótamálun-
um var klæðst kufli lýðskrumsins. Flokkurinn boðaði
stefnu, sem í ýmsu var áferðargóð: frelsi einstaklings-
ins, efnalegt og andlegt, ekki bara farra útvaldra, heldur
allra. Vegna þátttöku sinnar í ríkisstiórnum með umbóta-
mönnum fékk íhaldið á sig nokkurn framfarablæ og varð
það enn til að blekkja ýmsa um eðii þess og áhugamál.
Svo langt hefur það jainvel gengið á síðari árum, að
þakka sér sumar þær umbætur, er það svívirti freklegast
í öndverðu. Þannig hefur íhaldinu tekizt með taumlaus-
um og auðmögnuðum áróðri á aðra hönd og blvgðunar-
lausum blekkingum um raunveruleg stefnumið sín á hina,
— að verða fjölmennasti stjórnmálaflokkur landsins.
Og nú er þráðu takmarki náð. Flokkurinn fer með
stjórn. Að vísu ekki einn, heldur í félagi við flokksmynd,
sem þrátt fyrir sæmilega fortíð á ýmsum sviðum, er svo
heillum horfin, að íhaldið telur hana sér trúrri en eigin
liðsafla, (sbr. ummæli Jóhanns Hafstems, að betra sé fyrir
íhaldið að styðjast við Alþýðuflokkmn en hafa hreinan
meiri hluta).
Og nú gefur á að líta. í einu vetfangi hrynur blekk-
ingahrófatildrið til grunna. í stað „rrelsis fyrir alla“ er
almenningur færður í fjötra efnaskorts og aðstöðuleysis
til sjálfsbjargar á öllum sviðum. Framkvæmdafrelsi fjöld-
ans er nánast afnumið Örfáir „sterkir og stórir“ einstak-
lingar skulu einir hafa -íðstöðu til umsvifa á athafnasvið-
inu, en allur fjöldinn á að vera þeim háður, lúta boði
þeirra og banni. Þjóðinni skal í einu vetfangi að svo miklu
ieyti sem unnt er, þrýst niður á það stig er hún stóð á
áður en umbótamenn :óru að móta stjórnarfarið fyrir
röskum 30 árum.
Ef til vill er íslendmgum það nauðsyn að kynnast
íhaldsstjórn, og má vera að nokkuð se til þess vinnandi.
En þau kynni munu þá líka leiða til þess að íhaldinu
verður komið í skilning um, að dýrðardagarnir fyrir 1927
eru liðnir og koma ekk:> aftur.
ERLENT YFIRLIT
Rockefellerbræðurnir fiiiini
Þeir halda vel uppi merkjum föður síns og afa
(
( FYRIR nokkram dögum lézt
( í Bandaríkjunum John D.
( Rockefeller II., sonur John
( D. Rockefelier, sem lagði grand
( völlinn að hinum miiklu auðæf-
( um Rockefellanna og var um
} langt skeið auðugasti maður
( heims. John D. Rockefeller II.
} var háaldraður er hann lézt og
} hafði mikið ævistarf að baki.
} Hann hélt vel í horfinu, hvað
} snerti auðævi þeirra Rockefell-
} anna og átti m. a. mikinn þátt
} í því að lagt var út á nýjar
} brautir og auðnum komið víðar
} fyrir en áður, m. a. í arðbærum
} og miklum fasteignum, t. d. hin
} ,um miklu Rockefellerbygging-
} um í hjarta New York (Rocke-
} feller Center). Seinustu áratugi
} lagði hann þó einkum stund á
} heimspekileg og félagsleg efni,
} en lét syni sína og aðra aðstoð-
} armenn fást við fjármálin. Fyr-
• ir atbeina hans var sú gjafa- og
• styrktarstarfsemi mjög aukin,
( er faðir hans hafði byrjað á,
} og nema nú samanlagðar gjafir
■. hinna ýmsu Rockefellerstofn-
j ana, er við þau mál fást, orð
■ ið á annan milljarð dollara og
• hafa þær dreifzt til vísindalegr
• ar og félagslegrar starfsemi
( víðs vegar um heim.
C Það hefur verið sagt, að
( auðurinn vilji spilla þeim ætt-
( um, sem bornar eru til mikils
( auðs. Þetta sannast þó ekki á
( þriðju kynslóð Rockefellanna.
( John D. Rockefeller II. lætur
( eftir sig fimm syni, sem aliir
( hafa reynzt dugnaðarmenn mikl
( 'hv-en þeir eru þessir:
(
( Elztur er John D. Rockefeller
( III., 54 ára gamall. Hann stund-
( aði á sínum tíma nám í Prince-
( ton, og gekk síðan í þjónustu
( ættarfyrirtækjanna. Nú tekur
( hann þátt í stjórn 17 fyrirtækja
( eða stofnana, en aðeins 2
( þeirra eru rekin með gróða fyr
} ir augum. Hann tekur mjög
} mikinn þátt í störfum Rockefell
( er Foundation, sem er helzta
( gjafastofnun Rockefellanna. Á
( síðari árum hefur hann mjög
( hneigzt að heimspekilegum efn-
( um, líkt og faðir hans. Hann
/ aðstoðaði John Foster Dulles,
( er sá síðarnefndi vann að frið-
} arsamningunum við Japani á
} vegum Trumans. Síðan hefur
} hann gefið málefnum Asíu sér-
} stakan gaum og elzti sonur
} hans stundar nú nám í Japan.
} í seinni heimsstyrjöldinni var
} John D. Rockefeller III. lengst-
} um í sjóhernum og gat sér þar
} gott orð.
} Annar í röðinni er Nelson
} Aldrich Rockefeller, 52 ára
LAURANCE
gamall, ríkisstjóri í New York.
Nafnið Aldrieh hefur hann frá
móðurföður sínum, er var öld-
ungadeildarþingmaður, sem
naut mikils álits, og má vera að
þaðan hafi hann áhuga fyrir
stjórnmálum. Móðurafi hans
átti líka sæti í stjórn Ohase
Bank, sem Rockefellarnir eiga
nú mikið í, og þar byrjaði Nel-
son fyrst að starfa eftir að
hafa lokið námi í Dartmouth
College. Síðar gekk hann í þjón
ustu Roosevelts forseta, Tru-
mans og Eisenhowers og likaði
sízt við hinn síðastnefnda. Á
þessum árum fékk hann sérstak
an áhuga fyrir málum Suður-
Ameríku og hefur 'hann haldizt
síðán. Þá íiefur h'ann sýnt mál-
ara- og höggmyndalist mikinn
áhuga og stutt ýmis söfn ríf-
Iega, t.d. Museum of Modern
Art í New York, en hann hefur
lengi átt sæti í stjórn þess.
Hann hefur lengi átt sæti í
stjórn Rockefeller Center og
átt mikinn þátt í því að koma
þeim miklu byggingum upp.
Fyrir áhrif hans gáfu Rocke-
fellarnir lóð undir höll S. þ. í
New York og réði það miklu
um, að hún var byggð þar.
Hann var kosinn ríkisstjóri fyr-
ir tveimur árum og er oft nefnd
ur sem forsetaefni.
Þriðji í röðinni er Laurance
S. Rockefeller, 49 ára gamall.
Hann er of mörgum talinn
langslyngastur fjármálamaður
þeirra bræðranna og jafnframt
mestur heimspekingur þeirra,
enda lagði hann stund á heim-
speki í Princeton. Hann stjórn
ar nú helztu gróðafyrirtækjum
þeirar bræðra og leggur einnig
mikla stund á að fylgjast með
fyrirtækjum í nýjum starfs-
WINTHROP
greinum, sem þeir bræður }
leggja oft fé í. Auk ættarfyrir- }
tækjanna, á hann sæti í stjórn }
ýmissa stórfyrirtækja annarra, }
eins og Olin Mathieson Chemi- }
cal Corporation og Internation }
al Nickel Company of Canada. }
Hann lætur margvísleg ræktun- }
armál og náttúruminjar til sín }
taka, og á sæti í stjórn margra }
félaga, er fást við siík mál og ■.
ekki era rekin í gróðaskyni. ■.
Hann er reglumaður orðlagður •
og bragðar t.d. hvorki vín eða •
tó'bak. (
Fjórði í röðinni er Winthrop }
Rockefeller, 48 ára. Hann gerð- }
ist stórbóndi í Arkansas eftir ■.
að hafa lent í umtöluðu hjóna- •
skilnaðanmáli. Bú hans er talið
hafa kostað 2.5 miljl. dollara, ■.
enda talið eitt mesta fyrirmynd- •
arbú í Bandaríkjunum á sínu •
sviði. Síðan hann settist að í •
Arkansas, hefur hann látið •
mjög til sín taka mörg framfara (
mál þess ríkis og hefur í seinni (
tíð oft verið nefndur sem ríkis- (
stjóraefni þar. (
Yngsti bróðirinn er David •
Rockefeller, 44 ára gamall. }
Hann stundaði háskólanám }
bæði í Chicagoháskóla og Har- }
wardháskóla, enda hefur hann }
gefið þeim síðarnefnda 2.6 }
millj. dollara. Hann er nú full- }
trúi bræðranna í stjórn Chase }
Bank, en aðallega hefur hann }
nú með höndurn undirbúning j
að uppbyggingu ýmissa stórra ■.
fátækrahverfa í New York, sem •
þeir bræður munu ætla að '■.
leggja íé í. Hann hefur stund- '■
um verið nefndur sem borgar- '■
stjóraefni í New York. (
ÞÓTT þeir bræður leggi (
(Framhald á 13 síðu) }
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
t
'(
DAVID (
.•V»X*V*V»V*V»V*V*V*V*X*‘V»V«V*%0