Tíminn - 15.05.1960, Side 7

Tíminn - 15.05.1960, Side 7
T Í iW.1 N N, sunudaginn 15. maí 1960. 7 SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ — Haldlaus afsökuu stjórnarinnar ~ Hvað sögðu hagfræðingar Sjálfstæðisflokksins um ástand efnahagsmálanna í desember 1958? - Útflutningssjóður og vinstri stjórnin - 250 millj. kr. hallinn, sem myndaðist hjá Emil Jénssyni - „Nýja efnahagsstefnan^ fjórfaldaði álögurnar Byggt á skökkum útreikningum - Hellumálið og Gunnar Thoroddsen, f jármálaráðherra - Það er nú þrautalending stjórnarsinna, þegar þeir eru að reyna að afsaka efna- hagsráðstafanir ríkisstj., að hún hafi verið nauðbeygð til að gera eitthvað svipað vegna viðskilnaðar vinstri stjórnarinnar. Af mörgum röngum stað- hæfingum, er stórnarsinnar hampa um þessar mundir, er einna auðveldast að hrinda þessari með þeirra. eigin orð- um, yfirlýsingum og útreikn- ingum. Þótt það hafi oft ver- ið gerð áður ,er ekki úr vegi að gera það einu sinni enn. Þegar vinstri stjórnin fór frá völdum í desember 1958, tók Ólafur Thors að sér að reyna stjórnarmyndun. Við- brögð hans urðu þau m. a. að hann fól helztu sérfræðingum flokksins að gera eins konar úttekt á efnahagsástandinu. Stjórnarmyndun Ólafs tókst ekki, en í greinarge'rð um til- raun hans, er var bi«t í nafni Sjálfstæðisflokksins í Mbl. 19. desember 1958, er þvi lýst, hvernig flokkurinn hefði leyst efnahagsmálin, ef hann hefði getað myndað ríkisstjóm. Yf- irlýsingin um það hljóðar á pessa leið: „Flokkurinn hefur lagt á- I herzlu á að finna þau úrræði, er þrautaminnst væru fyrir almenning, en væru þó um leið liklegust til þess að stöðva vöxt verðbólgunnar.1 Er það mat flokksins að eftir greindar ráðstafanir samrým ist bezt þessu tvíþætta mark miði: Launþegar afsali sér 6% af grunnkaupi sínu og verð landbúnaðarvara breytist vegna hliðstæðrar lækkunar á kaupi bóndans og öðrum vinnutilkostnaði við Iandbún aðarframleiðsluna. Þó verði grunnlaun engrar stéttar lægri en þau voru, þegar efnahagsráðstafanir ríkis- stjórnarinnar tóku gildi á sl. sumri. Yrði sú leið farin að lækka vísitöluuppbótina, sem þessu nemur myndi sú ráð- stöfun ekki hafa áhrif á verð landbúnaðarvara fyrr en næsta haust, en lækkun grunnkaups leiðir þegar í stað af sér lækkun landbún- aðarvara. Er því lækkun grunnkaupsins mun líklegri til árangurs en skerðing vísitöluuppbóta. Við þetta myndi vísitala lækka um 6— 7 stig. Gera mætti þá ráð fyrir breyttum uppbótum til sjávarútvegsins ,og sú hækk un á vöruverði vegna kaup- hækkana í október, sem enn er ekki fram komin, myndi falla niður eða varla nema meiru en 1 stigi. Til þess að halda vísitölunni í 185 stig- um, yrði að auka niðurgreiðsl ur á vöruverði ,er næmi 10— Sauðburðurinn er hafinn og má nú v ða sjá líka sjón og hér á myndinni. 12 stigum. Séu niðurgreiðsl- ur ekki auknar umfram þetta, ætti ekki að-þurfa að hækka beina skatta og al- menna tolla.“ í þessari yfirlýsingu Sjálf- stæðisflokksins felst óneitan- lega glögg úttekt á efnahags- ástandinu, er vinstri stjórn- in lét af völdum. Til þess að tryggja áfram rekstur atvinnu veganna og ríkissjóðs, án nýrra skatta og tolla, þurfti ekki annað en að lækka grunn kaupið um 6% eða að taka aftur þá kauphækkun, sem Sjálfstæðisflokkurinn knúði fram sumarið 1958. Umrædd kauplækkun var ákv. með lög gjöf í ársbyrjun 1959 og eftir það átti allt að vera í lagi samkvæmt framanggreindri úttekt hagfræðinga Sjálfstæð isflokksins. Úttekt Emils Önnur úttekt liggur einnig fyrir, sem veitir glöggar upp- lýsingar um viðskilnað vinstri stjórnarinnar. Það er grein- argerð ríkisstjórnar Emils Jónssr v um afkomu útflutn ingssjóðs á árinu 1958. Hana er að finna í greinargerð fyrir frv. um útflutningssjóð sem; stjórnin lagði fyrir þingið í marz í fyrra. Þar segir á þessa. leið: „Fjárhagsafkoma Útflutn- ingssjóðs hefur reynzt til- tölulega góð á árinu 1958. Samkvæmt bráðabirgðanið- urstöðum hefur hagur sjóðs- ins breytzt úr 34 millj. kr. skuld í árslok 1957 í 5 millj. kr. sjóðseign í árslok 1958.; Þess ber þó að gæta, að af- koman er betri en ella mundi, vegna þess, að sjóð- urinn hefur fengið tekjur af hinum nýju gjöldum síð- an 1. júní 1958, en hafði um áramót enn greitt tiltölu- lega lltsð af bótum sam- kvæmt hinu nýja kerfi. Þrátt fyrir þetta eru líkur fyrir því, að sjóðurinn hefði get- að orðið hallalaus á árinu 1959, ef engin ný hækkun bóta eða niðurgreiðslna hefði komið til og aðstæður hefðu orðið svipaðar og á síðasta ári. Verulegar birgðir út- flutningsvöru um áramótin, vænlegar horfur um afla- brögð ásamt aukningu skipa stóls og annarra fram- leiðslutækja sjávarútvegs- ins, mun stuðla að auknum útflutningi“. Þetta sýnir, aö vinstri stjórn in skildi þannig við útflutn- ingssjóð, að afkoma hans var góð og afkomuhorfur hans góðar ef uppbætur væru ekki auknar. Við þetta bættist svo, að mjög verulegur tekjuaf- gangur var hjá ríkissjóði og nokkrar birgðir útflutnings- vara í landinu, svo að gjald- eyrisástandið var með bezta móti. Hallinn, sem mynd- aðist hjá Emil Stjórn Emils Jónssonar hélt hins vegar þannig á spilun- um, að hún jók stórlega bæði niðurgreiðslur og uppbætur. Samanlagt jók hún uppbæt- ur og niðurgreiðslum um nær 300 millj. kr. Þrátt fyrir þetta, var hægt að halda ríkissjóði og atvinnuvegunum gangandi á síöastl. ári, án verulegra! tolla- og skattahækkana, og var það fyrst og fremst vegna þess, að vinstri stjórnin hafði látið eftir sig ríflegan tekju- afgang hjá ríkissjóði og drjúg ar birgðir útflutningsvara. Eftir að búið var að éta þetta upp, var hins vegar ekki hægt að rísa undir hinum auknu uppbótum og niðurgreiðslum, er stjórn Emils Jónssonar hafði stofnað til, án þess aö aflað væri tilsvarandi tekna.. Það var eitt af fyrstu verk- um Ólafs Thors eftir að núv. ríkisstjórn var mynduð' að skýra frá því hve mikillar tekjuöflunar væri þörf af þess um ástæðum. Hinn 21. nóv. 1959 skýrði Mbl. frá ræðu sem Ólafur hafði flutt á Varð- arfundi og sagðist því m.a. frá á þessa leið: „Næst ræddi Ölafur Thors stefnuyfirlýsingu stjórnar- innar í einstökum atriðum. Kvaðst hann telja líklegt, að þjóðin yrði að fórna ein- hverju í bili til að tryggja framtíð sína. Sagðist hann hyggja, að engin þau úr- ræði, sem til greina gætu komið yrðu almenningi þungbærari en 250 millj. kr. álögur sem þó væru óhjá- kvæmilegar, ef ekki yrði leit að nýrra úrræða“. í ræðu þeirri, sem Ólafur Thors flutti í útvarpið á gaml- árskvöld vék hann að þessu sama máli og sagði þá:, „Ef ekki verður tekin upp ný stefna í efnahagsmálun i um verður óhjákvæmilegt að Ieggja á þjóðina, strax 'og Alþingi kemur saman,' nýja skatta, er nema um 250 millj. kr. á ári. Þessir skattar og það, sem þeim fylgir, munu hækka vísi- töluna um 5—6 stig“. Það liggur þannig skjalfest fyrir, að ekki þurfti nema 250 millj. kr. nýjar álögur til að tryggja áfram hallalausan rekstur atvinnuveganna og ríkissjóðs á þessu ári, „ef ekki yrði tekin upp ný stefna í efnahagsmálunum“, eins og Ólafur Thors orðaði það í ný- ársræðunni. 1100-1200 millj. í stað 250 milj. Samkvæmt þeim upplýsing um Ólafs Thors um sein- ustu áramót, sem raktar eru hér á undan, hefði stjórnin ekki þurft að gera annað en að afla nýrra tekna fyrir rík- issjóð og útflutningssjóð, er hefðu munað um 250 millj. kr. Slíkar álögur hefðu ekki þurft að verða almenningi neitt sér lega tilfinnanlegar, og þær hefði mátt leggja á þannig, að auðveldara hefði verið að hverfa frá uppbótakerfinu síðar. Ríkisstjórnin valdi hins vegar ekki þessa stefnu. Hún greip til stórfelldrar gengis- lækkunar og stórfeldra nýrra skattaálaga. Samtals svarar þetta til þess, að álögur á þjóðina séu auknar um 1100 —1200 millj. kr. eftir að búið er þó að draga frá hinar auknu tryggingar og lækkun tekjuskatts. Þetta eru m.ö.o. fjórfalt meiri álögur en þörf var fyrir samkvæmt útreikn- ingum hagfræðinga stjórn- arinnar, ef ekki var breytt um efnahagskerfi. Ástæðan fyrir þvi, að stjórn in valdi þennan kost, er ein- göngu sú, að Sjálfstæðisflokk- urinn hafði fengið stuðning Alþýðuflokksins til að taka upp „nýja stefnu í efnahags- málum', eins og Ólafur Thoors orðaði það í áramótaræðunni. Þessi „nýja efnahagsstefna" er þó ekki önnur en gamla íhaldsstefnan sem ríkti hér fyrir 1927 og Sjálfstæðisflokk urinn hefur alltaf viljað taka upp aftur, en ekki fengið framgengt fyrr en nú, er hann hefur fengið forustu- menn Alþýðuflokksins til að bregðast stefnu sinni og ganga íhaldsstefnunni alveg á hönd. Kjami þessarar stefnu er að þrengja stórlega kjör alls ! almennings í landinu til hags bóta fyrir hina fáu útvöldu. Þessa stefnu var ekki hægt I (Framhald á 13. síðu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.