Tíminn - 15.05.1960, Blaðsíða 16

Tíminn - 15.05.1960, Blaðsíða 16
Sunnudaginn 15. maf 1960, 108. blað. Halldór fer til Akureyrar Akureyri, 13. maí. — N.k. sunnudagskvöld verður síð- asta sýning á íslandsklukk- unni á Akureyri, en hún hef ur verið sýnd þar um nokk- urt skeið við góða aðsókn og undirtektir, eins og kunnugt er af fyrri fréttum. — En þessi lokasýning verður eins konar hátíðasýning um leið, þvl þá verður höfundurinn Halldór Kiljan Laxness, við- staddur. Hann var erlendis (Framhald á 15 síðu) Gola „Austan kaldinn á oss blés". Ekki skal fullyrt að þeir kveði svo á veðurstof unni núna, en spá þeirra er: Austan gola eða kaldl, bjartviðri. Sem sagt: sama blíðan. Shanna Prokorenko — Hrellmgssaga hermannsins Goovion - friðsæld I fyrrinótt var brotizt inn í Bústaðabúðina og stolið 400 krónum í smáseðlum og ein- hverju' af vindlingum. Ann- ars hefur verið friðsamlegt hjá lögreglunni síðustu daga, lítið um þjófnaði, lltið um slys og lítið um árekstra hvers konar. Lögreglumenn þakka þetta góða veðrinu — og við skulum vona að það haldist sem lengst. Sovétríkin og Grikkland bera af á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes 1960 Þrátt fyrir allar hrakspár og ' vangaveltur, voru það samt sem áður Rússar, sem vöktu á i sér mesta athygli og fóru| lengst fram úr vonum manna | á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Framan af var ekkert vitað um, hvaða myndir þeir myndu bjóða þar upp á — og reyndar ekki hvað þeir gætu boðið upp á. Sovétrikin voru móðguð, og það ekki að ástæðulausu, ef tekið er tiliit til framkvæmdar kvikmynda- ihátíðarinnar í fyrra, þegar hin snjalla kvikmynd Bondartjúks eft ir sögu Sjolokoffs, Öriög manns, var látin vikja til þess að særa ekki viðkvæm fcvikmyndahjörtu Þjóðverja. Nú hefur hins vegar ekki þufft að hugsa um þau hjörtu, því að Þjóðverjar eru ekki með í leiknum. Þrjár stórar Sovétríkin hafa nú á síðustu stundu ákveðið að sýna þrjár mestu stównyndir sínar; Hrellinga saga henmannsins, Bréfið, sem aldrei var sent, og Konan með hundinn. Bréfið, sem aldrei var sent var tekin undir stjórn sama leikstjóra og hin fræga kvikmynd Trönurnar fljúga, Mikhails Kalato- zoff og auðvitað leikur aðalstjarna hans, Tatiana Samailova aðalhlut- verkið. Konan með hundinn er eft ir samnefndri sögu Antous Oheck ov. „Slógu í gegn" Rússarnir slógu í gegn þegar með fyrstu myndinni, sem þeir komu fram með: Hrellingasaga hermannsins. Samkvæmt áreiðan- legum heimildum er ekki ósenni- legt, að þar sé verðlaunamynd ’ á tjaldinu. HreJiingasaga hermanns- ins er meistaraverk, einfalt og stórbrotið. Hún fjallar um barn- ungan hermann, sem að launum fyrir hetjudáð í heimsstyrjöldinni „Héldum í sakleysi aö krakkarnir væru meira virði en rollurnar” Jules Dassin dansaði grískan á höfðinu. síðustu fær 48 klukkutíma leyfi til þess að heimsækja móður sína En gráglettni örlaganna sér til þess, að hann getur ekki verið nema eina einustu mínútu með móður sinni. Sagan er jafn spennandi og hún er einföld. Harmsagan, sem nær hámarki við hinzta fund móður og sonar, er sívaxandi á hinni Þessi mynd er tekin vlð eina íbúða blokkina I Álfheimum. Börnin leika sér I moldarhaug á óhirtu svæði. íbúarnir hafa ekki getað hatizt handa um að koma lóðinni í lag vegna þess að Reykjavíkurbær hef- ur ekki geflð sér tlma tll að ganga frá holræsum þelm megin götunnar, og því mundi vatnsagi gera að engu allar framkvæmdir á lóðinni. Sömu sögu er að segja um nær allar hin- ar stóru ibúðablokkir við Álfheima. Hins vegar virðast börnln afhafna- samari en bæjaryfirvöldin, því að þau hafa lagt vegi um moldarhaug- inn sinn þveran og endilangan og reist þar ýmis önnur mannvirki. Þau una sér vel ( leiknum. Hins vegarl eru mæður þelrra ekki jafn hrifn- ar þegar þarf a8 þrifa þau eftir vot- viðrisdag, því að þá verður leikvang- ur barnanna að ökladjúpri forar- eðju. Langt er í næsta barnaleikvöi! en grænir vellir eru stejnsnar frá húsunum. En þeir eru reyndar helg aðir sauðkindinni einni og bærinn hefur lagt blátt bann við að börn sjáist þar að leik. Þetta þykir íbú-! Aðalhetjan í Ekki á sunnudögum: Melina Mercouri. löngu lestarferð frá víglínunni heim til litla sveitaþorpsins, þar sem móðir hans bollokar. Þótt inn í séu fléttuð mikil og ægileg at- vik, svo sem loftárás á lestina, eru það minni atburðirnir, sem hafa meiri áhrif, sem lýsa upp sársauka og griimmd stríðsins. Ljóðrænn og grátbroslegur er fundurinn milli hermannsins unga og stúlkunnar jafnöldru hans tveggja barna, sem eiga sér ást, sem stríðið íeyfir þeim aldrei að njóta. Áhorfand- inn gleymir því ekki, þegar her- maðurinn ungi verður vitni að heimkomu örkumla herimanns úr stríðinu. Kona hans bíður glöð og spennt. Fagnandi konuandlit í manngrúanum, hamingjubros, sem um við Álfheima hart að vonum og einn þeirra sagði í viðtali við Tím- ann: „Við héldurn nú í sakleysi okk- ar að krakkarnir væru meira virði en rollurnar". þjóðdans með 30 glasa bakka tærist upp í taugaáfall, þegar hún sér líkamshrúguna, sem áður var hinn fallegi og hrausti eiginmað- ur hennar. Óður til hermannsins Á meistaralegan hátt hefur leik stjórinn Grigori Tohoukrai lýst þessum smáatvikum sem draga sig saman í vegg milli sonar og móður. Áhorfendur missa næstum hjartaslög við að fylgjast með áreynslu piltsins til þess að ná að lokum á fund móður sinnar. Hjá því verður ekki komizt, að mynd- in er eins konar óður tií hins fórn- fúsa henmanns, en svo sem í fyrri myndum sínum forðast Tchoukrai yfirdrifna hetjudýrkun. Myndin er sjálflýsandi af hlýhug og lífsvilja, en fordæmir hernað. Parið unga er leikið af Vladimir Ivashov og Shanna Prokhoenko. / Melina Mercouri Grikkland sýndi fyr.stu gaanan- myndina á kviikmyndahátíðinni í Cannes 1960, — Ekki á sunnudög- um, heitir hún. Það er ekki of- mælt, að hláturinn hafi glumið um alla borgina, er hún var sýnd. Sá maður er dauður, sem ekki fær kjálkaverki af hlátri yfir henni og allt þetta hefur leikstjórmn Jules Dassin á samvizkunni. Hann er fransk-bandarískur að ætt, og vakti fyrst athygli á sér með leikstjórn á kvikmyndinni Rififi. Það er auð- séð, að hann hefur notið þess að velta sér upp úr þessu nýja við- fangsefni, Ekki á sunnudögum, þar sem fjallað er um grískan hafnar- bæ og íbúa hans. Hann hefur orðið ástfanginn — ekki aðeins í grísk- um lifnaðarháttum og grískri skap gerð, heldur einnig í grísku stjörn unni Melinu Mercouri. Ástin sú er svo yfirgripsmikil, að hún smit ar alla áhorfendur. Melina Mer- couri er aðalstjarnan i Cannes i ár — næst á efttir Lollobrigidu, Brigitte Bardot og Soffíu Loren. Gleðikona og gáfumaður Ekki á sunnudögum er nútíma- útgáfa af Pygmalion. Eliza er hér allra dæilegasta gleðikona, Ilya í Pyreus. Hún lifir harla léttúðugu lífi, þar til Higgins hennar prófess or skýtur upp kollinum í ham alltof gáfaðs Bandaríkjamanns, Mr. Homers frá Connecticut. Hann hefur leitað til lands Aristótelesar til þess að finna hinn eina sann- (Framhald á 15. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.