Tíminn - 21.05.1960, Qupperneq 11

Tíminn - 21.05.1960, Qupperneq 11
TÍ-MIN N, laugardaginn 21. maí 1960. 11 Bílabrautin vinsælust Tívolí, skemmtigarður Reyk vlkinga, hefur um mörg ár haft aðdráttarafl, — jafnt á unga sem gamla. Þangað flykkjast foreldrarnir á sumr in með, börnin sín, því allir verða að skreppa í Tívolí og skemmta sér eina dagstund. Við hittum forstjóra garðs ins, Guðmund Þórðarson, að máli um daginn og xöbbuðum við hann stundarkorn. — Hvað hefur þú starfað lengi hér? — Síðan vorið 1946, eða alls 15 sumur. — Hvernig hefur rekstur- inn gengið þessi ár? — Ja, þetta er mikill kostn aður, að halda öllu gang- andi, og svo háir fámennið mikið garðinum. Hingað koma á ári svona 40—50 þúsundir. manns, miklu fleiri þó fyrsta árið, eða um 110 þúsundir. — Hvað um skemmtitæk- in? — Þau eru sniðin eftir tækj unum í Kaupmannahöfn og gefa þeim ekki mikið eftir. Og skemmtikraftar? Hingað hafa komið ýmsir frægir „artistar“. 1947 kom hingað fyrsta loftfimleikapar- ið „2 Larsowas“. Og ýmsir munu minnast fallbyssukóngs ins Leoni og fakírsins Tarano auk fjöldamargra annarra. Innlenda skemmtikrafta höf GUQMUNDUR — góðir sfcemmtitoraftar I um við oft haft, og vildi ég I gjaman fyrir hönd garðsins : þakka þá samvinnu og þá sér- ; staklega Baldri Georgs, sem á Ihverju sumri hefur lagt fram í krafta sína hér. Um skemmtiatriði í sumar viljum við aðeins segja það, að innlendir skemmtikraftar munu verða hér á sunnudög- um, en erlendir „artistar" hafa enn ekki verið ráðnir. Þar sem öll skemmtiatriði fara fram undir beru lofti, hefur því miður oft orðið að hætta við sýningar vegna veðurs. — Vinsælasta skemmtitæk ið? — Bílabrautin, — og svo parisaThjólið. Einnig skot- bakkamir og bátarnir. — Hafið þið ekki dýragarð? — Við höfum haft nokkur dýr undanfarin 4 ár, en það hefur verið erfitt að fá þau vegna mikillar eftirsóknar, t.d. höfum við haft bjamdýr, ljónsunga og hlébarða. — Hver á Tívolí núna? — ÍR - íþróttafélag Reykja víkur. _ ' Þeir feðgarnir, Guðmund : ur forstjóri og Guðjón sonur hans, hafa í miklu að atast og mörgu að anna með vorinu þegar Tívolí opnar eftir vetr arlanga tíð, og svo var einnig nú. Við vildum ekki tefja þá með fleiri spurningum að sinni, en ykkur, sem þessar línur lesið, vildum við ráð- leggja að skreppa í Tívoi' og reyna hin mörgu og 51- breyttu skemmtitæki garðs- ins. Sumarið er stutt, og líð ur fyrr en varir, — og þá verð ur of seint að ætla að fara að skemmta sér í Tívolí. B. BRÉFUM SVARAÐ lllilegt andlit Þetta' jgrimmdar- lega andlit tilheyrir ekki forhertum amer ískum Chicago-glæpa manni, eins og þið hafið kannski ætlað í fyrstu, — heldur heimsfrægum, ame- rískum kvikmynda- leikara, Robert Ryan. En hann er einmitt fæddur í Chicago 11. nóv. 1913. Hann er nú einn af vinsælli leikurum bandarísk- um, og hefur t.d. oft sézt í kvikmyndum hér á landi. Texti vikunnar Senn fer vorið á vœngjum yfir flóann, \aknar allt af vetrarblund um völl og hliS. Blómin spretta úr jörð og litla lóan Ijóðar glatt og leikur dátt sín lögin blið. Um hin kyrru, Ijúfu kvöld er hvísla létt við stein hin ástarljúfu orð, þá angar döggin á grein. Sevn fer vorið á vœngjum yfir flóann, vaknar allt af vetrarblund um völl og tilíð. Umsjón: Björn Bragi Svarið komið Hinar ungu vinstúLkur okkar, sem stjórna þriðjudagsþætti unga fólksins í útvarpinu, hafa nú svarað fyrirspurnum okkar varðandi vinsælustu lögin í þætti þeirra; segjast þær fara eftir óskum hlustenda. Er gott þær skuli nú hafa gert hreint fyrir sínum dyrum, og virðist mér engin ástæða til að vé- fengja þær í þessu efni, og fellur nú niður tal um þetta í þættinum. - -/ Verðlauna- samkeppni Verðaunakeppninni „Hver er þetta?“ sem tilkynnt var laugardaginn 30. apríl á síð- unni okkar, er nú lokið. Alls bárust 242 svör. Emelía Jónas dóttir fékk fimm atkvæði, Auður Auðuns 7, Adda Bára Sigfúsdóttir 11 og Helena Eyj ólfsdóttir fékk 219 atkv, og auðvitað var þetta hún Hel- ena! Við drógum siðan úr rétt um svörum og upp kom nafn Hrundar Hjaltadóttur, 10 ára, Barðavogi 26, Rvík. Hún kaus sér Kardemommubæinn, sem nýkominn er á plötu. Við óskum Hrund litlu til ham- ingju, — og þökkum henni og öllum öðrum, sem tóku þátt í samkeppninni og Hljóð færaverzluninni Drangey, Laugav. 5« sem gaf öll verð launin. Brynja Árnað-óttir: Tommy Sands er fæddur 27. ágúst 1937 í Chicago, og er ógiftur. Því miður hefur mér ekki tekizt að ná i heimilisfang hans. Guðborg Tryggvadóttr: Óð inn Valdimarsson er liðlega tuttugu ára gamall. GeVlaug Guðmundsdóttir: Þakka þakkirnar! I Ingibjörg Bragadóttir: j Þakka hrósið! I Kristín Erla: Eg vona að þú hafir fengið að vita nægju j þína um Ricky Nelson á laug ' ardaginn var, en annars get ur þú skrifað okkur og beð- ið um nánari upplýsingar. j Guðleif Sigbjörnsdót-tir: Elvis er 24 ára gamall og er ólofaður. Erla K. Kjartansdóttir: Skriftin þín er ágæt. j Hólmfriður GarðarsdóPtir: \ Eg birti sem Texta vikunnar annan textann, sem þú biður um. Kolur: James Byron Dean , var 24 ára gamall þegar hann dó, ókvæntur. Hann lék ! í sjö kvikmyndum um dag- ! ana. Gunnar Gunnarsson: Mari- lyn Monroe verður 34 ára í næsta mánuði, en ég er anzi hræddur um að maðurinn hennar, hann Arthur Miller 1 að hjarta hennar! skáld, muni varna þér veginn FABIAN Vegna hinna mörgu, sem beðið hafa um mynd af Fa- bian, birtum við hér eina nýja. Fabian er fæddur 6. ífebrúar 1943, dreymdi í barn jæsku um að verða verkfræð lingur, en var „uppgötvaður“ jáður en það kom til, og er nú jmargfaldur milljónamæring- jur og er átrúnaðargoð ungl- inga um allan heim. Þess má geta, að faðir hans er lög- regluþjónn. Þá er það einnig I frásögur færandi, að Fabian er skírnarnafn stjörnunnar. iFyrir skemmstu lék Fabian í nýrri kvikmynd ásamt Bing jGrosby. Talsverðar vonir eru jbundnar við Fabian sem kvik myndaleikara. Frank og Dean Hér sjáið þið þá Frank Sinatra og Dean Martin, en þeir léku — og sungu þá vænt anlega einnig — saman í kvik mynd nýlega (Saga Jimmy Durante). Þeir eru báðir fæddir árið 1917, en Frank er nokkrum mánuðum yngri í árinu. Hann er tvígiftur — og tvískilinn! Nú er hann sem sagt laus og liðugur. — Hann hefur um mörg ár ver ið einn allra vinsælasti dæg urlagasöngvari i Ameríku, en einnig fengið tvenn Oscar- verðlaun fyrir kvikmynda- leik, en þann heiður hljóta aðeins sárafáir. Dean Mart in hefur aldrei orðið eins stór stjarna, en er þó mjög vinsæll um allan heim, — bæði sem leikari og söngvari Hann er kvæntur og á sjö börn — og það má þá e. t. v. segja, að hann hafi verið af kastameiri á einu sviði held ur en Frank!

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.