Tíminn - 21.05.1960, Síða 13
T.fcMJN.jf, laugardagiim 21. maí 1#60.
13
Frá Mþifigi
(Framhaíd af 7. sfðu).
flutningsliöft, var undir for-
sæti Sjálfstæðismanns, Jóns
Magnússonar 1920.
Bg segi ekki fTá þessu nein
um til hnjóðs. Eg segi frá því
sem staðreyndum og til þess
að mótmæla því, að Sjálfstæð
isfl. geti talið sig hafa verið
á móti höftum, en Framsókn
arfl. sérstaklega sekan um
haftapólitík.
Þessu næst rakti Karl sögu
haftanna í verzlun og við-
skiptum íslendinga og nafn-
Bækur og höfundar
(Framhald af 9. síðu).
gaf hún vetlingana af hönd-
um sér eða stígvélin sem hún
stóð í“. Þ-essar varnir fyrir
Heiðu Lísu lætur höfundur
koma i hug þessa eina stund-
ar-ástvinar hennar, sem var
við jarðarförina- En þrátt
fyrir hlýhug höfundar til
Heiðu Lísu tekst honum ekki
að vekja fulla samúð lesenda
með henni. Til þess er frásögn
in ekki nógu vel byggð.
/ minningu safnara er nokk
uð öfgafull en í lokin fyndin.
Bróðurást hnyttin og fynd
rn ádeilusaga um hræsni í
sifjamál'.mi.
Kjörgripur er ágæt saga,
er sýnir, „að óskhyggjan er
veikur grundvöllur að byggja
á og eftirvæntingin tvíeggjaö
sverð“.
Vandkvæði er um kátlega
för sveitamanns til Reykja-
víkur, sem farin var í þeim
tilgangi að ná í konuefni, en
vegna klaufalegra aöfara
hans um framkvæmd erindis
síns, lendir hann í svarthol-
inu.
Ættarblóm, uni alger von-
brigði einkadóttur stórlátra
prófastshjóna um viðhald á
virðuleik ættarinnar.
Reykur. Velheppnuð saga
um sj álfsblekkingu.
Róður á Mikjálsmessu er
kímnisaga um ótrúan eigin-
mann og trúgirni konu hans.
Blindur maður að vestan.
Ágæt saga um atkvæðaveiðar
og ósvífni kosningasmala.
Man ég þig mey er saga um
' prestsson, er syrgir látna unn
ustu sina og situr öllum stund
um á leiði hennar. En prest-
urinn, faðir hans, finnur ráð
til þess að lækna sorg hans.
En það er ekki aðeins að sorg
prestssonarins fjari út á stutt
um tíma, heldur er einnig
ástin og minningin um hina
dánu unnustu svo vikin úr
huga hans eftir fá ár, að
hann sættir sig við, að bauta
steinn, er hann sjálfur hafði
reist á leiði hennar og greypt
á orðin: „Eg gleymi þér aldr-
ei“, væri tekinn og gerður E*,ð
hestasteini á hlaðinu. í sögu
þessari koma fram öll aðal-
einkenni rithöfundarins, bráð
skemmtileg frásögn, kimni og
ádeila á hverflyndi manna.
En mér virðist höfundurinn
ganga óeðlilega langt í ádeilu
sinni í lok sögunnar.
Eg hygg, aö flestir, sem lesa
þessa bók Einars Kristjáns-
sonar, munu bíða með eftir-
væntingu eftir næstu bók
hans.
Þorsteinn M. Jónsson.
greindi nefndir þær, sem hafa
farið með þau málefni.
Þá rakti hann frumv. grein
fyrir grein og sýndi fram á,
að stefna þess væri aðallega
tilfærsla valds, en ekki afnám
hafta. Enn fremur að ekki
væri hægt að sjá, að um nokk
um sparnað væri þar að
ræða. Afnám nefnda, samkv.
frv. (Innflutningsskrifstof-
unnar, úthlutunamefndar
jeppabifreiða og útflutnings
nefndar) væri gert tii þess
að ríkisstjórnin sjálf gæti tek
ið sér einræðisvald í innflutn
ingsmálum. Rökstuddi hann
þetta með dæmum um heim
ildarákvæði henni til handa
í frv. Síðan sagði hann:
Tilkynningar
Tilkynningar um aukið
viðskiptafrelsi einstaklinga og
afnám hafta eru blekkingar,
— þægilegt hjal í eyru al-
mennings, sem jafnframt á
að telja trú um, að öll bein
höft séu ólán hið mesta.
En á bak við býr einræðis
hugur ríkisstj órnar, sem vill
hafa tögl og hagldir í sinni
hendi, til að geta hert á höft
um eftir eigin geðþótta, — og
engar nefndir af öðrum kjörn-
ar til að flækjást fyrir sér.
Hin mikla hefting
Ríkisstjórnin hampar því,
sem sönnun fyrir frelsisstefnu
sinni, aö hún hafi aukið stór-
lega frílista til innflutnings
og ætli ekki að skylda menn
til að sækja um fjárfestingar
leyfi.
Þetta lítur i fljótu bragði
út sem rýmkun hafta. En ann
að kemur á móti og meira
en það. Stórkostleg hefting af
völdum ríkisstjórnarihnar á
sér stað.
Kaupgeta almennings hef-
ur verið skert svo skemmi-
lega, að frílistaaukningin og
fj árfestingarheimildirnar eru
storkun við almenning.
Verðlagshækkanimar, sam
dráttur útlána, vaxtaokrið,
sparifjárránið til bindingar í
ríkisbankanum, eru fjötrar,
sem ríkisstjómin leggur al-
menning í.
Slík og þvílík höft eru ekki
í samræmi við menningu nú
tímans, tæknilega þróun
hans og þá félagslegu og efna
hagslegu möguleika, sem nú
tíminn býr yfir.
Þetta eru ,,höft“ afturhalds
ins.
Risirm og kóngsdóttirin
Meöferð ríkisstjórnarinnar
á alþýðu manna minnir á
ævintýrið um risann, sem
rændi kóngsdótturinni. Dró
hana í helli sinn og fjötraði
hana þar með hári hennar
sjálfrar niður í óhreyfanleg-
an stól. Og þegar hann hafði
bundið hana þannig við stól
inn, að hún gat hvorki hreyft
hönd né fót, setti hann á
kjöltu hennar disk með lost
ætum réttum, sem hún horfði
á og fann ilminn af, en hafði
engin ráð til að geta neytt,
hversu sárt sem sulturinn
svarf að henni.
Alþýða landsins er nú svipj
að sett og kóngsdóttirin. Frí
listi ríkisstjórnarinnar og
fjárfestngarheimildirnar er
diskurinn með réttunum, sem
alþýöa manna, sem er í fjötr
um kjaraskerðlngarinnar,
nær ekki til — og gerir því
vont verra.
Að vísu geta þeir, sem eru
ríkir að fé, notað sér diskinn.
Maturinn er handa þeim. En
það bætir lítið úr skák hjá
fjöldanum.
Að lokum sagði Karl:
Núgildandi lög um gjald-
eyris- og innflutningsmál eru
á engan hátt þannig, að nú
verandi hæstv. ríkisstjórn
hafi ekki samkvæmt þeim
eðlilegt svigrúm.
Hin dulbúna einræðissteína
sem gegnsýrir frv. á engan
rétt á sér. Þess vegna á að
fella frv.
Hins vegar tel ég eðlilegt,
að löggjöf viðskipta- og pen
ingamálanna verði tekin til
endurskoðunar. Þess þarf
með alltaf öðru hvoru á tím
um framfara og breytinga
eins og verið hafa að undan
förnu, — og þá fyrst og fremst
með tilliti til áframhaldandi
og meiri framfarasóknar. —
Endurskoðunina á aö gera af
nefnd allra flokka.
En umfram allt má ekki
hafa skortinn fyrir skömmt
unarstjóra.
Vélbátar
Ég hef til sölu nokkra vélbáta frá 25 til 50 tonna.
Jón Hjaltason, hdl.
Heimagötu 22 — Sími 447,
Vestmannaeyjum.
Grasfræ
Grasfræblanda með smára
Grasfræblanda án smára
Óblandað:
Háliðagras
Vallarfoxgras
Túnvingull
Fóðurmergkál
Sáðhafrar
MJÓLKURFÉLAG REYYKJAVÍKUR
Laugaveg 164. — Sími 11125.
af mörgum dráttarvélum munu því lækka um
nærri helming á næsta gjalddaga.
BÆNDUR!
Látiö það ekki henda vður að vera með
dráttarvél yðar ótryggoa.
Sambandshúsinu. Sími 17080.
Umboð hjá næsta kaupfélagi.