Tíminn - 06.07.1960, Qupperneq 5
TÍMINN, mfövikudagmn 6. júlí 1960.
5
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdast.ióri: Tómas Árnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj.: Egili Bjamason. Skrifstofur
í Edduhúsinu — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasimi: 19523 Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
«._______________________________ >
Ekki veldur sá,
er varir
í ræðu þeirri, sem Ólafur Thors hélt 17. iúní síðastl.
minntist hann nokkuð á yfirvofandi verkfallshættu og
varaði við henni. Þessi orð voru ekki sögð að ástæðu-
lausu, þar sem nýlokinn fulltrúafundur Alþýðusambands
íslands hafði samþykkt með einróma atkvæðum manrja
úr öllum flokkum að krefjast kauphækkunar vegna
þeirrar kjaraskerðingar, sem hefði orðið af völdum ráð-
stafana ríkisstjórnarinnar Fundurinn fól svo stjórn Al-
þýðusambandsins að samræma þessar aðgerðir
Það er því bersýnilegt, að verkfailshætta er yfirvof-
andi, nema raunhæfar ráðstafanir verði gerðar til að af-
stýra henni með því að koma til móts við launastéttirnar.
Öllum má vera ljóst það tjón, sem getur hlotizt af
löngum og stórum verkföllum. Þess vegna tók Tíminn
fullkomlega undir þau orð forsætisráðherrans. er hann •
varaði við verkföllunum.
Orð ein nægja hins vegar ekki til að afstýra þeim.
Það þarf einnig í verki að koma til móts við launa-
fólkið.
Þetta hefur Tíminn talið sér skylt að benda á. Þess
vegna fórust blaðinu svo orð síðastl sunnudag:
„Ef ríkisstjórnin hverfur frá vaxnaokrinu, fellir niður
almenna söluskattinn, hættir við að koma upp stórkapí-
talisma á kostnað almennings, og gerir ráðstafanir til
almennrar uppbyggingar, þá ætti að geta skapazt hér
það ástand, að launastéttirnar sjái sig ekki knúðar til
verkfalla.“
Þótt furðulegt sé, er þessum ummælum Tímans mjög
illa tekið í Mbl. í gær Mbl túlkar þessi ummæli þannig,
að Tíminn hóti verkföllum. nema „ríkisstjórnin hverfi
frá öllum ráðstöfunum sínum til sköpunar jafnvægis í
efnahagsmálum þjóðarinnar “
Hér er vissulega beitt fölsunum svo að furðulegt er.
Það myndi einmitt auka jafnvægj í efnahagsmálum
að draga úr vaxtaokrinu og þeirri verðbólguþenslu og
dýrtíð, er hlýzt af því.
Það myndi einmitt auka jafnvægið í efnahagsmálun-
um, ef almenni söluskatturinn yrð’ felldur niður, þar
sem ríkissjóður hefur hans ekki þörf en niðurfelling
hans myndi lækka verðlag 1 landinu og verða óbein
kauphækkun.
Þá myndi það einnig skapa aukið jafnvægi í efna-
hagsmálum, ef hætt yrði við að koma hér upp stór-
kapítalisma á kostnað almennings. Sama gildir um ráð-
stafanir, sem gerðar eru til aukinnar uppbyggingar.
Tíminn hefur því eingöngu hvatí til ráðstafana, sem
miða jöfnum höndum að því að auka jafnvægi í efna-
hagsmálunum og að koma í veg fynr verkföllin.
Mbl. hafnar þessum tillögum og velur þeim hin
verstu nöfn.
Tíminn getur að sjálfsögðu ekki ráðið því, hvernig
ríkisstjórnin ætlar að haga gerðum sínum. Fulltrúafund-
ur Alþýðusambandsins. sem menn ur öllum flokkum
stóðu að, sýnir hins vegar ijóst, að kauphækkunarbar-
átta er á næstu grösum ef ekkert er að gert Stórfelld
kauphækkunarbarátta og verkföll eru vissulega síður en
svo æskileg. Við þessari hættu hefur Tíminn viljað vara,
cg að ráðstafanir yrðu gerðar til að mæta henni í tíma.
Þetta kallar aðalblað stjórnarinnar ábyrgðarleysi. Það
vill bara bíða þangað til holskeflan ríður yfir.
En með því taka ríkisstiórnin >s stiórnarflokkarnir
líka á sig ábyrgðina á því, sem á eftir kemur. Ekki veldur
sá, er varir.
- ERLENT YFIRUT
Glíraa Johnsons og Kennedys
Semur Kennedy við Humphrey sem varaforsetaefni?
NÆSTA mánudag hefst í
Los Angeles flokksþing demó-
krata, þar sem útnefnd ver'ða
forsetaefni og varaforsetaefni
þeirra í kosningunum í haust.
Ýmsir forvígismenn flokksins
eru nú komnir þangað og
flökksþingsfulltrúarnir eru byrj
aðir að koma þangað víðs veg-
ar að. Meðal þeirra er nú rek-
inn ákafur áróður af hálfu for-
setaefnanna, einkum þó af
hálfu þeirra Kennedys og
Johnsons. en aðalbaráttan
stendur nú á milli þeirra og
benda flesfar líkur til þess í
dag að annar hvor þeirra muni
sigra í annarri eða þriðju at-
kvæðagreiðslu.
Eins og dæmið stendur nú.
virðast sigurhorfur Kennedys
öllu betn. Hann hefur að baki
sér 600—700 fulltrúa, er munu
greiða honum atkvæði strax í
fyrstu atkvæðagreiðslunni, en
nokkrir þeirra eru ekki skuld-
bundnir til að greiða honum
atkvæði eftir það. Hins vegar
hefur hann von um að fá í ann-
arri atkvæðagreiðslu atkvæði
margra fulltrúa frá Kaliforníu,
New Jersey, Iowa og Kansas,
en þessir fulltrúar munu í
fyrstu atkvæðagreiðslunni
kjósa ríkisstjóra viðkomandi
ríkja sem forsetaefni. en eru
ekki skuldbundnir til að gera
það aftur í síðari umferðun-
um. Ef Kennedy fær ríflegan
meirihluta þessara fulltrúa,
ætti það að nægja honum til
sigurs í annari atkvæðagreiðslu,
en til þess þarf hann að fá
761 atkv
JOHNSON mun fá færri
atkvæði en Kennedy í fyrstu
atkvæðagreiðslunni eða um
500 atkv., en fylgismenn hans
vonazt til að hann fái um 650
atkv. í annarri atkvæðagreiðsl-
unni, m.a. vegna þess, að þá
kjósi fyigismenn Symingtons
hann. Þeir gera sér svo vonir
um, að Johnson sigri f 3. eða
4. atkvæðagreiðslunni, þar sem
vitað er um að eftir aðra at-
kvæðagreiðsluna fer fylgi
Kennedvs að riðlast, því að
margir fulltrúanna hafa ekki
lofað að kjósa hann nema í
tveimur fyrstu umferðunum.
Fylgismenn Johnsons munu
hins vegar fylgja honum, unz
hann gefur þeim sjálfur fyrir-
mæli um annað, en líklegt er
að hann styðji þá Symington,
ef hann telur sjálfan sig orð-
inn vonlausan.
Hins vegar er líklegt, að
Kennedv veiti Stevenson braut-
argengi, ef hann telur sjálfan
sig úr leik. Lokaglíman gæti
þá orðið milli Stevensons og
Symingtons. Þetta þykir þó
orðið heldur ólíklegt. Líklegast
þykir nú • að sigurinn falli
Kennedy eða Johnson í skaut
HUMPHREY
— verður hann varaforseti með
Kennedy?
áður en til margra atkvæða-
greiðslna kemur.
ÞAÐ HEFUR orðið til þess
að draga aukna athygli að á-
tökunum hjá demókrötum, að
Truman hélt blaðamannafund
á laugardaginn, þar sem hann
lýsti yfir því að hann hefði af-
salað sér fulltrúaréttindum á
þinginu og myndi ekki sækja
það í mótmælaskyni gegn því,
að fylgismenn Kennedys væru
með áróðri og þvingunum bún-
ir að tryggja honum sigur fyrir
fram. Truman lét það jafn-
framt í ljós, að hann teldi
Kennedy of ungan og óreynd-
an til þess að verða forseta,
eins og nú væri ástatt í heim-
inum. Hann endurnýjaði þá
yfirlýsingu sína, að hann kysi
Symington helzt sem forseta-
efni, en nefndi jafnframt átta
menn aðra, sem væru vel
hæfir og var Johnson þar efst-
ur á blaði. Hins vegar voru
Stevenson, Kennedy og Hum-
phrey ekki meðal þessara átta
manna.
Heldur er talið líklegt, að
þessi afskipti Trumans verði til
að veikja Kennedy og hjálpa
Johnson, þar sem Symington
er nú vfirleitt talinn úr leik.
Þó er bent á, að Truman hafi
á flokksþinginu 1956 reynt að
hindra útnefningu Stevensons,
en mistekizt það.
ÞÓTT það komi ekki beint
fram, er það eigi að síður Ijóst,
að átökin milli þeirra Kenn-
edys og Johnsons eru að verða
meira og meira átök milli
vinstri og hægri, einkum hvað
snertir viðhorf til alþjóðamála.
Johnson hefur í þeim efnum
nálgazt meira og meira sjónar-
mið Eisenhowers, og það hefur
Truman einnig gert. Kennedy
hefur hins vegar skipað sér
meira og meira við hlið Stev-
ensons, og sama hefur Hum-
phrey gert. Symington hefur
meira þrætt bil beggja.
Eins og flokksþingið verður
skipað fulltrúum, er bersýni-
legt að fylgismenn Kennedys,
Humphreys og Stevensons
verða í meirihluta Ef þeir
Humphrey eða Stevenson létu
þá fulltrúa, sem fylgja þeim,
fara yfir á Kennedy strax í ann
arri atkvæðagreiðslunni, myndi
það tryggja honum sigur. Jafn-
vel myndi það nægja, að annar
þeirra gerði það. Um það er
líka talað meira og meira, að
fylgismenn Kennedys vilji fá
Humphrey sem varaforseta-
efni með honum, enda myndi
vart ánnað varaforsetaefni
tryggja betur fylgi meðal
bænda, verkamanna og svert-
ingja. Auk þess hefur Hum-
phrey yfir að ráða 60—70 full-
trúum, er sennilega gætu
tryggt Kennedy sigur eins og
áður segir. Líklegra þykir, að
Humphrey verði fúsari en Stev
enson til þess að veita Kennedy
brautargengi, þar sem hann er
úr leik sem forsetaefni hvort
eð er, en Stevenson kemur
hins vegar mjög til greina, ef
Kennedy skyldi eitthvað hlekkj
ast á.
Eins og nú standa sakir, er
það engan veginn ólíklega spáð,
að keppinautarnir frá próf-
kjörunum í vetur, Kennedy og
Humphrey, verði frambjóðend-
ur demókrata, Kennedy sem
forsetaefni og Humphrey sem
varaforsetaefni.
FLOKKSÞING republik-
ana, er útnefnir forsetaefni
þeirra, verður haldið hálfum
mánuði seinna en þing demo-
krata. Fullvíst er enn talið,
að Nixon verði útnefndur for-
setaefni republikana þótt Nel-
son Rockefeller s’é talinn sig-
urstranglegri. Það þykir spá
heldur iTla fyrir republikana-
flokknum, að nýlega fór fram
aukakosning á öldungadeildar-
manni í Norður-Dakota og
sigraði demokrati þar í fyrsta
sinn í sögu ríkisins, en Norður-
Dakota hefur jafnan verið talið
eitt sterkasta vígi republikana.
Nú töpuðu þeir þar vegna þess,
að bændur sögðu skilið við þá-
í stórum stíl. Þetta þykir benda
til þess, að bæpdur muni al-
mennt snúast gegm republik-
önum í haust, en von þeirra
er sú, að Nixon njóti heldur
meira fylgis meðal bænda en
flokkurinn. Slíkt er þó vafa-
samt, þar sem Nixon hefur
ekki texið afstöðu gegn stefnu
ríkisstjórnar Eisenhowers í
landbúnaðarmálum. Þ.Þ.
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
(
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
r
/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
Æðarvarp við Brelðafjörð í hættu
Það eru mjög al arleg tíðindi
sem berast frá varplöndum við
Breiðafjörð Svartbak fjölgar þar
nú mjög, þar sem ekki er leyfi-
legt að .„ra fyrir hann, sv- "em
áður var, og ungar komast upp
í stórum stíl, þar sem engin
samtök ru urn að lóg? þeim. En
fyrr var talið sjálfsagt að drepa
alta sv -’tbaksu-ga, sem til náð-
ist til að hreinsa varplöndin af
vargi. -.ú berast þ::r fregnir úr
æðarvarpinu við Breiðafjörð að
svartbakurinn drepi mestan
hluta aí æðarungunum, jafnvel
áður en þeir komast í sjóinn.
Við sumar eyjar sést -.rla ungi.
Æðardúnn er verðmæt vara, sem
ísl. landbúnaðu- iramleiðir -g
fyrir hann er takmarkalaus
markaður utanlands og innan.
Vafalaust má margfalda æðar-
í„rpið, ef eitthvao væri f;nir það
gert, t.d. með útungun í vélum.
En höfuð-skilyrði er að ungarnir
k.mist upp. Fir bvki. ekki ólík-
legt, að eins og ástandið í Breiða
fjarðareyjum er nú, að svartbak-
urinn drepi nú um .: af ung-
um, sem komast úr eggi.
Er nú ekki kominn tími til,
að þeir sem varplönd eiga,
myndi samtök um allsberjar
sókn gegn veiðibjöllunn: áður
en hún útrý ' - æða’-'-iglinum?
Það opinbei'a ætti ekki síður
að . erðlauna fyrir hvcrja feUda
/eiðibjöllu en mink og ref.
Vonandi heyrast um þ;. radd
ir frá þ-k.., sem va'",1örul:n eiga,
(Framhald á 13. sí5u).