Tíminn - 21.07.1960, Síða 1
Áskriftarsímmn er
1 2 3 2 3
iee. tw. _ 44.
Fimmtudagur 21. júli 1960.
☆ # #
Til Reykjavíkur komst hún
Hérna birtum við myndir af og úr hinni frægu ítölsku lystiskútu Franz Terzo. Les-
endum blaðsins er í fersku minni frásögnin af því er Þór bjargaði henni bágstaddri og
njálpaði henni til Vestmannaeyja, og enn í dag er það óútkljáð mál, hvort Landhelgis-
-:i gæzlunni ber að þiggja ómakslaun fyrir eða björgunarlaun. Til þess að kyrrsetja ekki
skútuna var sett trygging vegna þessa máls, og síðan lagði hún af stað til Reykjavíkur.
Ekki fór þó sú sjóferð betur en svo, að Franz Terzo fékk sjó á sig svo rúða brotnaði
i brúnni, og sneri þá við til Vestmannaeyja aftur. Að fenginni bót meina sinna þar
lagði skútan enn upp til Reykjavíkur, og komst htngað heilu og liöldnu í gærmorgun.
Ljósmyndari blaðsins tók þessar myndir skömmu eftir komu hennar hingað, og sýnir
sú neðri skútuna séða að utan. Hin myndin sýnir hluta af stjórntækjum í brú, og þess
má geta að Franz Terzo er búinn mjög fullkomnum siglingatækjum, en er annars að
sögn ekki jafn sterkbyggð og hún er glæsileg og íburðarmikil. (Ljósm. Tíminn, KM).
Kartöflumagnið, sem flutt hefur veríð
inn, á að nægja þar til fyrstu íslenzku
kartöflurnar koma á markaðinn
Sá ótti manna, að kartöflu-
laust yrði hérlendis fram eftir
sumri, vegna þess að mjög
mikiS magn kartaflna fórst
með Drangajökli, er nú að
engu orðinn, vegna þess hve
torráðamenn Grænmetisverzl-
unar ríkisins tóku fljótt og vel
við sér.
Þegar er fréttist um slys-
i'ð, var gerð gangskör aö því
aö útvega meira af kartöfl-
um erlendis, og leigja skip
til þess að flytja þær hingað.
Kartöflurnar voru keyptar í
Belgiu, en hollenzkt skip
flutti þær hingað.
Helgi Jónasson
látinn
Helgi Jónasson fyrrv. hér-
aðslæknir og alþingismaður
að Stórólfshvoli varð bráð-
kvaddur að heimili sínu í
Reykjavík í gær 66 ára að
aldri. Verður hans getið ýtar-
iegar hér í blaðinu síðar.
Hollenzka skipiQ kom með
400 tonn, en áður höfðu kom
ið smáslattar með tveim öðr
um skipum. Þær kartöflur
fóru viðstöðulaust út á land,
án þess að svo mikið sem ein
kartafla af því færi í geymsl
ur Grænmetisverzlunarinnar
hér, en það sem ekki hefur
þegar verið sent út á land
Oig í verzlanir hér af farmi
hollenzka skipsins er í geymsl
um í Reykjavík.
Þetta magn, sem nú var
flutt inn, á að nægja fram
í miðjan ágúst, en þá er búizt
vlð því að fyrsta íslenzka
kartöfluuppskeran komi á
markaðinn. Er þá búizt við
að framleiðendur í Þykkva-
bæ, Hrunamannahreppi og
Eyrarbakka verði fyrstir á
markaðinn. Nokkuð bar á því
að kartöfluframleiðendur
kviðu því að svo mikið af kart
öflum yrði flutt inn, að eng
inn markaður yrði fyrir sum
arsölu á íslenzkum kartöfl-
um, en samkvæmt framan-
sögðu er varla hætta á því —
þær útlendu verða uppétnar
um sama leyti og íslenzk upp
skera kemur á markaðinn.
—s.
Állt svart af síld
- sem ekki veiðist
Mikil síid út af Sléttu og fyrir Húnaflóa
Stöðugt er mikil síld djúpt
út af Sléttu, en hún er afleit
viðureignar, torfur þunnar og
dreifðar og næst litið úr þeim.
Þá fundu leitarflugvélar í
fyrrinótt mikla síld út af
Húnaflóa allt frá Skaga að
Horni, en ekki hafði frétzt um
veiði þar síðdegis í gær.
15 skip komu til Raufar-
hafnar í gær með slatta af
síld sem fengizt hafði út af
Sléttu. Skástan afla hafði
Helga, Húsavík, 300 tunnur.
Aðeins 2000 tunnur hafa ver
ið saltaðar á Raufarhöfn und
anfarið.
Út af Sléttu er einungis
glœráta í yfirborðinu, og
veldur það þvi að sildartorf
urnar þynnast og tryllast
út um allan sjó en hemjast
ekk> í nœtur sjómanna-
Komi hins \egar rauðáta á
vettvang má vœnta þess að
torfurnar þéUist, og verður
þá þarna mikil veiði.
Saltað á Siglufirði
7 skip komu til Siglufjarð-
ar í gær með síld af þessum
slóðum, Álftanes GK, með
250 mál; Reykjanes, 600; Guð
mundu rÞórðarson GK, 550;
Gjafar VE, 650; Mímir GK,
200; Magnús Marteinsson NK
130 og Eyjaberg VE, 60. Þar
var í fyrradag saltað í 5883
tunnur. — Eftir að leitarflug
vél hafði gert vart við síld
í Húnaflóa, tóku skip að tín
ast þangað, og munu nokkur
hafa reynt að kasta í gær.
En sama saga virtist gerast
þar og út af Sléttu að lítið
náðíst af síldinni.
Á austursvæðinu var enn
nokkur veiði í gær, og fengu
nokkur skip góð köst á Glett
inganesflaki og Seyöisfjarðar
dýpi, en síldin er léleg sem
fyrr. — Eftirtalin skip komu
með síld til Neskaupstaðar
í gær: Ásmundur 550; Sunnu
tmdur 300; Hafnarey 500;
Þorlákur 500; Þráinn 150;
Atli 130; Marz 100. — Síð-
degis í gær var að gera brælu
á austursvæðinu og skipin
tekin að leita landvars.
■miiw ihiwnMh..iia|Tiiawes!;
Lumumba biður Rússa um hernaðaríhlutun, bls. 3