Tíminn - 21.07.1960, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.07.1960, Blaðsíða 6
6 / T f MIN N, fimmtudaginn 21. júlí 1960. Sextugur: Jóhann Þoríinnsson fyrrv. lögregluþjónn á SiglufirtSí Þegar ég var drengur norð ur á Siglufirði, þá ræddu jafnaldrar mínir og ég oft um ungan, stóran og sterkan mann, sem þar bjó, og hét Jóhann Þorfinnsson. Okkur fannst . hann fyrirmyndar maður. Hann var manna herðabreiðastur og karlmann legastur, lyfti þyngstu vogar lóðum með litla fingri, kleif Hafnarhymuna, Stráka og Snók þegar honum datt í hug og renndi sér á skíðum af Illviðrishnjúk með glæsibrag. Þessi' Siglfirðingur er í dag 18. júlí 60 ára. Hann flutti frá Siglufirði til Reykjavíkur með fjölskyldu sína fyrir 8 árum og býr nú að Miklu- braut 18. Mig langar til að senda honum litla afmæliskveðju í tilefni dagsins, því hvort tveggja er, að hann á það inni hjá Siglfirðingum aö har^ pé minnst og vegna sam tíðar og framtíðar á að segja frá mönnum eins og Jóhanni Þorfinnssyni. Æskuár Jóhanns voru lík æsku annarra Siglfirðihga, sem voru að alast upp nyrðra í byrjun aldiarinnar. Hann fæddist 18. júlí árið 1900 að Neðri-Skútu, sem stóð austan Siglufjarðar. Poreldrar hans voru hjónin sem þar bjuggu, Marsibil Ólafsdóttir og Þor- finnur Jóhannsson, skipstjóri. Þorfinnur fórst á leið til Akur eyrar er Jóhann var aðeins 3ja mánaða gamall. Hann var þá tekmn í fóstur til afa síns og ömmu, Jóhanns Þorfinns sonar og Petru Jakobsdóttur og hjá þeim ólst hann upp, en þau bjuggu skammt frá Neðri-Skútu. Jóhann Þorfinnsson yngri fékk að erfðum kosti foreldra sinna — karlmennsku og dirfsku föður síns og hjarta- hlýju og góðvild móður sinn- ar. Móðir Jóhanns, Marsibilar Ólafsdóttur, minnist ég jafn an með virðingu og þakklæti. Hún var góð kona, tíguleg og hjálpsöm svo af bar. Jóhann Þorfinnsson ólst upp á Siglufirði á þeim tíma sem Siglufjörður tók hvað mestum breytingum. Þó Siglu fjörður væri friðsæll, lítill staður á veturna á fyrstu tug um aldarinnar, gerbreytti hann um svip á sumrin þessi ár. Útlendingar í hundraða tali tóku sér þá bólfestu þar. Þessir „gestir“ voru að sjálf- sögðu velkomnir, en fóru ekki jafnan að lögum. Fyrir því varð að ráða gott lögreglu- lið á Siglufirði. Til þess starfa þurfti hraustmenni. Það var því enginn tilviljun að Jó- hann Þorfinnsson gerðist lög reglumaður í Siglufirði og starfaði að löggæzlumálum þar í aldarfjórðung. Jafnframt löggæzlumanns- starfinu sinnti Jóhann Þor- finnsson öðru starfi, sem ég vil sérstaklega gera að um- talsefni hér. Hann var sjálf kjörinn leiðsögumaður leitar- flokka og fór hvenær sem kall að var um fjöll og fjörur Siglufjarðar og næsta ná- grennis ef nauðleit, þurfti að gera að mönnum, skepnum eða bát. Hann var sjálfboða- liðinn, sem jafnan var leitað til þegar mest á reið. Sjaldn- ast var talað um borgun. A þessum ferðalögum kom sér vel að hann þekkti vel Dalatá og Sauðanes og hafði gengið á Hólshymu, Nesnúp og Hestfjall sér til ánægju áður fyrr. Árið 1948 varð Jóhann al- varlega veikur. Það duldist engum að hann hefði ofreynt sig og furðaði það fáa, sem fylgzt höfðu með férli hans. Hann hafði aldrei hlíft sér. Eins og fyrr segir fluttist hann til Reykjavíkur árið 1952. Hann fékk hér vinnu sem hentaði honum, en heils an var farin og síðustu 5 ár- in hefur hann ekki getað sinnt neinni vihnu. En í veik- indum sínum hefur hann virzt mér hvað herðabreið- astur, sterkastur og stærstur, þrátt fyrir allt. Hann var fyrirmynd er hann kleif fjöll in, þeystist áfram á skíðun- um, var forsvarsmaður björg unarleiðangra, en hann er það ekki síður nú, er hann veikur kvartar aldrei. En Jóhann Þctrfihnsson hefur heldur ekki róið einn á báti í lífsbaráttunni. Hann kvæntist 19. apríl 1925 Aðal- björgu Björnsdóttur, skag- firzkri bóndadóttur frá Á í Unadal, sem flutti ung til Siglufjarðar með foreldrum sinum, sæmdarhjónunum Stefaníu Jóhannesdóttur og Birni Guðmundssyni. Frú Aðalbjörg bjó manni sínum þegar i úpphafi gott og fall- egt heimili, enda er hún list- hneigð og hög. En hún hefur gert meira, hún hefur verið hin styrka stoð manni sínum í stormi veikinda síðustu ár- in, enda þótt hún vinni nú daglangt utan heimilisins. Þau frú Aðalbjörg og Jó- hann eiga þrjú börn, sem öll eru uppkomin. Ema dóttur gi'fta í Siglufirði og tvo sonu kvænta í Reykj avík og Hafnar firði. Fjölmargir vina þeirra hjóna senda þeim í dag árn aðaróskir, þakkir og kveðjur og fyrir nokkru samþykkti bæjarstjórn Siglufjarðar svo- hljóðandi tillögu, sem vert er að minnst sé í þessari grein: „Bæjarstjórn samþykkir að veita Jóhanni Þorfinnssyni, fyrrverandi lögregluþjóni kr. 30.000,00 heiðurslaun fyrir öll unnin störf í þágu Siglufjarð arkaupstaðar“. Ég lýk þessum orðum með því að óska þess, að enn megi ungir klífa • Síglú/jÚið^rfjöll- in líkt og Jóhann Þorfmnsson gerði um áratugi, og að þar ríki jafnan sá samhjálpar- hugur, sem var svo ríkur í fari Jóhanns Þorfihnssonar. Afmælisbaminu og fjöl- skyldu hans sendi ég innileg ustu árnaðaróskir mínar og fjölskyldu mmnar, með þakk læti fyrir góð og gömul kynni. Reykjavík 18. júlí 1960 Jón Kjartansson. Þér fáið Ijúffengan og nærandi drykk ef þér notið hið nýja INSTANT Qcomalt Auðnotað, bragðgott og hrelnlegt. Jafnvel börnin geta blandað sér án þess að óhretinka eldhúsKS. Helt eða köld mjólk og INSTANT COCOMALT innlheldur mikið af vítamínum og öðrum nauðsynleg- um næringarefnum. Reynið INSTANT COCOMALT strax I dag. „WHITE ROSÉ“ ,WHITE ROSE" er heimsþekkt merki á niður- suðuvörum. „WHITE ROSE" vörur hafa náð sömu vinsældum á íslandi og hvarvetna annars staðar. VANDLÁT HÚSMÓÐIR biður ávallt um „WHITE ROSE“ vörur. — Reynið þær strax i dag, ef oér hafið ekki kynnzt . ^ þeim áður. HOTEL BUÐIR Snæfellsnesi tekur á móti gestum til lengri og skemmri dvalar. Hópferðir einnig afgreiddar með mat og kaffi. Pantið með fyrirvara. Sími um Staðarstað HÓTEL BÚÐIR. v*v*x»v»v*v»v*v«v*v* Útboð Tilboð óskast í hita- vatns- og skólplagnir í við- byggingu Hrafnistu, Dvalarheimili aldraðra sjó- manna í Laugarási Uppdrátta og lýsinga má vitja á teiknistofu A.B.P. Borgartúni 7, gegn kr. 300,00 skilatryggingu Félagar I SJÁLFSBJÖRG Reykjavík: /" Hópferí verður farin sunnudaginn 24 júlí. Lagt verður af stað frá Sjafnargötu 14 k: 10. Væntanlegir þátttakendur tilkynni þátttöku sína í síma 1 65 38, þar sem veittar verða nánari upp- lýsingar. Skemmtinefndin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.