Tíminn - 21.07.1960, Blaðsíða 13

Tíminn - 21.07.1960, Blaðsíða 13
TÁMI fiimnjtudagiiiii 21. júlí 1960. 13 f NORRÆNA NORDISK KULTURMISSION holder mede fra i dag NORDISK RAAD begynder sit mode den 27.juli MENNEVGARMÁLANEFNDIN byrjar fund! sína í dag NORÐURLANDARAÐ byrjar fundi sina 27. júlí itlag udsender í dag birtir POLITIKEN POLITIKEN sin store ISLANDSUDGAVE der kan faas imorgen i Island stóra ISLANDSHEFTIÐ sem fæst á íslandi á morgun POIITIKENSISLANDSUDGAVEINDEHOLDER BLANDT ANDET: , Hilsen fra Dacmarks og Islands udenrigsministrc Island som selvstændig stat Naturkraefternc og industricn i Island Islands kultur fra sagacrnc til nobelpristageren Torist-attraktionerne i Island kan udnyttes \ Island i fest og glædc Finansministeren fortæUcr om saneringen af den islandske okonomi Islapd som luftfartnation Islandsk bandcl og kultur i Kobcnhavn Island som mcdlcm af Nordisk Raad ÍSLANDS-HEFTI POLITIKENINNIHELDUR MEDAL ANNARS: Kveðjur fró utanríkisráðherruni Danmerkur og íslands ísland sem sjálfstætt ríki Náttúruöflin og iðnaðurinn á ísiandi Menning tslands frá sögutimunum til Nóbelsverðlaunaskáldsins Unnt er að nýta sérstaka möguleika fslands sem ferðamannalands ísland í fagnaði og gleði Fjármálaráðherrann scgír frá ráðstöfunum til endurbóta á fjármálum íslands ísland sem loftferðaþjóð tslcnzk verzlun og menning í Kaupmannahöfn ísland sem meðlimur Norðurlandaráðs ■ ■ ■ ■ ; /'Víví ' ; | POLIT TKEN ■ ' Frá borginni við sundið (Framhald af 5. dðu). hélt tveim dögum áður en boðað var til fundarins: — Við verðum að sjá hvort við erum þess megn- ugir að leysa vandann og komast lijá stjórnleysi. Frá sjónarmiði samtakanna getum við ekki góð- kennt mikið af ólöglegum verk- föllum. Okkur ber skylda til að virða gerða samninga hvort sem okkur líkar betur eða verr. — Hans Rasmussen vísaði á bug þeirri gagnrýni að samningarnir hefðu verið bundnir við of langam tima, 3 ár, og sagði að það hefði opnað möguleika fyrir bættri framleiðslu og framleiðsluaukn- ingu meiri en nokkru sinni fyrr. Vmnuveitendur hefðu því í sam- ræmi við hið sveigjanlega launa- kerfi getað hækkað kaup að veru- legu leyti. Hann vildi ekki viður- kenna að kaupkröfurnar hefðu skaðað samkeppnisaðstöðuna er- lendis. — Ráöstefna deiluaðila leiddi ekki til neinnar sameigin- iegrar stefnuyfii'lýsingar, og var því send út yfirlýsing frá hvorum aðila fyrir sig. Alþýðusambandið kom með sínar tillögur og vinnu- veitendas'ambandið með sín tilboð. Alþýðusambandið heldur því fram að frá 1958 hafi kaupgetan rýrnað svo að hún sé nú alltof lítil hjá þeim lægst launuðu, og stingur upp á tafarlausum aðgerðum. Vinnuveitendasambandið er reiðu- búið að fjalla um hærra kaup, Vettvanguriinn (Framhaid af 7. síðu). aðstoð hjá vandamönnum, sem hafa unnið hjá okkur kauplaust við heyskap, stund og stund, þá eru öll sund lokuö í svipinn. Uppbyggfng jaríanna eimasta við þá, sem eru að byrja. Fátækir bændur, sem lítið eru á veg komnir m-eð ræktun, eru sömu sökinni seldix. Ég geri t. d. ráð fyrir, að allmargir efnaminni bænd ur séu ekki verr settir en ég, þó lengur hafi búið. Það er að minnsta kosti vízt, að nú fer aft- ur að fækka í sveitunum. — Það er von þú spyrjir, hvers vegna ég fór út í þetta fyrir rúmu ári, fyrst þetta er svona vonlasut, heldur Gunnar bóndi áfram. Það stendur svo á því, að eins og að- staða bænda var þá, gat maður komist áfram. Hér þurfti auðvitað að auka framleiðsluna að mun. Til þess þarf að kaupa gripi, smíða fjós og hlöðu, því húsakost- ur er enginn fyrir fleiri nautgripi. Maður gerði ekki ráð fyrir okur- vöxtum, enda þekktust þeir ekki þá. Nú er hins vegar vonlaust að leggja út í slíkat- framkvæmdir, nema fyrir þá, sem eiga peningana til, hinir geta ekkert. Þetta á ekki þar sem jafnframt gæti verið um frdmleiðsluaukningu að ræða, einnig er hugsanlegt að slíkt gæti gerzt þar sem meðal-launakerfið er í gangi. En atvinnurekendur setja það skilyrði að friður kom- isc á. Horfur eru því engan veg- inn góðar eftir þessar árangurs- lausu tilraunir, og margt bendir til að þær geti leitt til aukinnar spennu og átaka á vinnumarkaði. Geir 4ðils Amelia Earhart (Framhald af 4. síðu). niennirnir komu aftur, einir. Er sennilegt að Josephine hafi búið þessa sögu til? Ef hún hefði ætlað sér að hagnast á henni, því gerði hún þá ekki tilraun til þess þau 10 ár, sem Bandaríkja- menn voru búnir að vera á Saip- an? Dr. Sheft efaðist ekki um að hún segði satt og að lokum var raálið rannsakað gaumgæfilega. Hafi Amelia Earhart ætlað að lenda á Howlandeyju, þá hefði hún þurft að gera um 100 gráðu skekkju í áttavitalestri til að lenda á Saipan. Hún hafði eitt sinn áður gert mjög svipaða skekkju. Hafi hún snúið til norðurs á meðan siglir.gafræðingurinn dott- aði og hafi hann vaknað og séð ryjar, getur hann hafa talið víst, að það væru Gilbertseyjar, þó að það hafi verið Caroline-eyjarnar, báðar voru jafnlangt frá Lae, en í sinn hvora átt. Hnattstaðan, sem Amelia gaf upp, þegar síðast heyrðist til hennar, hefur sam- KEFLAVIK Skrá yfir niðurjöfnun útsvara í Keflavík árið 1960, liggur frammi í skrifstofu bæjarins. við Hafnargötu og Járn og skipadeild Kaupfélags Suðurnesja við Vatnsnesstorg dagana 18. júlí til 1. ágúst n.k. að' báðum dögum með- töldum á venjulegum skrifstofutíma. Kærufrest- ur er til 1. ágústs og skal kærum skilað á skrif- stofu bæjarins eigi síðar en þann dag. Niður- jöfnunarnefnd verður til viðtals í skrifstofu bæj- arins dagana 18. til 22. þessa mánaðar kl. 5—7 e.h. daglega. Bæjarstjórirm í Keflavík, 16. júlí 1960. Eggert Jónsson Sófasett Vel með farið sófasett til sölu. Selst ódýrt Blóm- vallagötu 11, 2 hæð. kvæmt athugunum flotans verið sólarmiðun, en ekki radíómiðun. Það er hugsanlegt, að jafnvel svo vanur maður sem Noonan, tæki ekki eftir því að hann væri 2.600 mílur af leið. Allir útreikningar hans, sem leiddu til þess, að hann áleit Saipan vera Howlandeyju, gátu staðizt, ef Amelia hafi stýrt skakkt um nóttina. Bandaríski flotinn reiknaði út, að benzín Electru hefði átt að end asl til hádegis 3. júlí. Það var á hádegi, sem Josephine Blanco sá tveggja hreyfla vélina nauðlenda á höfninni í Saipan Allt virðist benda til þess, að þar hafi Amelia Earhart og Fred Noonan látið lífið með þeim hætti, sem Josephine og mágur hennar skýrðu frá- Hnakkur tapaðist Sá sem tók nýjan hnakk, síðast liðinn sunnudag á fjórðungsmótinu að Faxa- borg, vinsamlegast skili borg, vinsamlegast skili honum til Jóns Bjarna Guð- mundssonar söðlasmiðs, Borgarnesi. Öskilahestur í Þingvallahreppi er hestur í óskilum. Rauður með hvíta stjörnu. járnaður styggur. »Hreppstjórinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.