Tíminn - 25.08.1960, Qupperneq 4
4
T í MIN N, fimmiudaginn 25. ágúst 19fi0.
TtoEtiMU/
Á þrettán fundum
um herstöövarmálið
Frú Sigrííur Thorlacíus ræðir vi? frú Val-
borgu Bentsdóttur
Sumir íelja sumarleyfinu
bezt varið þegar þeir hafast
sem minnst að — aðrir þegar
þeir verja því tíl að sinna
bugðarefnum, sem dagleg
störf annars meina þeim að
gegna.
Fiii Valborg Bentsdóttir hlýtur
að tilheyra þeim síðarnefndu, því
sízt var á henni að sjá þreytu,
er hún leit inn eitt kvöldið eftir
■ ■’lffp&'-XVc '■ '
VALBORG BENGTSDÓTTIR
að hafa varið á þriðju viku af sum
arleyfinu til ferðalaga og funda-
halda um Norður- og Norð-Austur-
land á vegum samtaka þeii'ra, sejn
berjast gegn hersetu í landinu.
Kvaðst hún hafa tekið þátt í funda
höldum á svæðinu frá Skagafirði
til Borgarfjarðar eystra, þeim
þrettánda og síðasta í Hrísey á
þrettánda degi sumarleyfisins.
— Hvernig var aðsókn yfirleitt
að fundunum?
— Sums staðar mjög góð og alls
staðar sæmileg, en tiltölulega mun
hún þó hafa verið bezt í Bakkafirði,
þar sem um 20 manns af 60 íbúum
þorspins sóttu fund. Fjörugasti og
fjölmennasti fundurinn var að
Laugum í Þingeyjarsýslu, þar sem
um 20 manns tóku til máls, og
fundur stóð til kl. hálf tvö um nótt
ina.
— Hver voi'u þau rök, sem frum
mælendur og aðrir færðu einkum
fyrir því, að herseta sé óæskileg
á íslandi?
— Fyrst og fremst þau, að land
inu sé engin raunhæf vörn að
þessu svokallaða varnarliði og að
með nútíma hernaðartækni sé boð
ið heim stórkostlegri hættu með
staðsetningu herliðs hér. í ljósi
síðustu atburða væri það og aug-
ljóst, að aukin hætta myndi vera
á því, að héðan yrði stundað
njósnhrflug, því fremur sem öll
hin Norðurlöndin hafa harðlega
neitað um afnot lands í þeim til-
gangi. Njósnarflugi hlýtur að
fylgja mjög aukin árásarhætta
samkvæmt yfirlýsLngum Rússa í
sambandi við atburði síðustu mán-
aða. Þá virtust og allir á einu máli
um það, að margs konar ómenn-
ing fylgdi hersetu og fámenna
þjóð munar um hvert mannslíf,
sem spillist af þeim sökum. Hinn
peningalegi hagnaður af herset-
unni er meira en endurgreiddur
á ýmsan hátt. ísland hefur meira
en nóg verkefni fyrir allar vinn-
andi hendur og fólk er sannfært
um, að okkur sæmi ekki að leggja
fram vinnuafl til neins þess, sem
að hernaði lýtur. Mai’gir klifa nú
á gagnsleysi hlutleysisins, en hvert
smáriki, sem lýsir yfir hlutleysi,
veitir öðrum styrk til að taka
sömu stefnu.
— Hver virtist þér vera skoðun
manna á Atlantshafsbandalaginu?
— Það kom alveg sérlega
glöggt fr'am á fundinum að Laug-
um, að sú skoðun er almenn með-
al bænda, að ekki samræmist á
nokkurn hátt íslenzkum hagsmun-
um að vera í hernaðarbandalagi,
en að svo lengi, sem við séum í
bandalagi, sem nefna mætti því
nafni, þá sé varla hægt að neita
þvi að hafa hér her. Og ákaflega
kom það glöggt fram, að menn
álitu að með áframhaldandi her-
setu hlyti að dragast mikið vinnu-
afl frá framleiðslustörfunum, og
að jafn mannfátt land og lítt num-
ið hlyti að bíða af því varanlegan
hnekki.
— Komu engin andmæli fram á
fundunum gegn brottför hersins?
— Þau andmæli, sem fram
komu, voru sárafá og harla óljós.
Kelzt varð þeirra vart á Norðaust-
uriandi og vildu sumir halda
því fram, að ekki væri
öllum hollt nábýlið við
Heiðarfjall. En flestir eða allir
andmælendurnir töldu sig þó
vera á móti hersetu, hún væri ill
nauðsyn, gæti jafnvel verndað
heimsfr'iðinn. Aðrir virtust álífa,
að Rússar biðu hér við landstein-
ana albúnir að stíga á land.
— Virtist þér fundarsókn bund-
in við vissa stjórnmálaflokka?
— Nei, fundina sótti einmitt
fólk af öllum flokkum og stéttum
og allir voru sammála um, að nauð
synlegt væri að koma þessu máli
af flokkspólitískum vettvangi.
— Var efnt til innanhéraðssam-
taka þar sem fundir voiu haldnir?
— Ýmist voru stofnaðar héraðs
nefndir eða undirbúningsnefndir
til stofnunar þeirra, en þær munu
svo undirbúa frekaii fundahöld og
þátttöku í landsfundi í haust. Á
öllum þessum fundum voru sam-
þyktot mótmæli gegn hersetu í
landinu og ávörp um að fjölmenna
á landsfund hernámsandstæðinga,
sem haldinn verður í september.
Fyrst verður haldinn fuUtrúafund
ui' í Valhöll á Þingvöllum hinn 9.
september og fengizt hefur leyfi
til þess að halda almennan úti-
fund í landi Brúsastaða á vestur-
bakka Almannagjár, hinn 10. sept-
ember. Varðandi það, að ekki bafi
fengizt leyfi til fundahalda á Þing
völlum má upplýsa það, að árum
saman hafa engin fundahöld ver-
ið leyfð í þjóðgarðinum. Fyrir
norðan var víða mikill hugur í
(Framhald á 6. síðu).
V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V'V
/
}
}
}
}
}
}
}
?
?
/
}
}
}
/
}
/
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
.eh cmáú
ðah fayggt?
Heimilistryggmgar
Ennbústryggingar
ömboösmenn um land allt.
SKRIFSTOFUR LAUGAVEGI 105.
SÍMAR 14915, 16 og 17.
BRUNABÚTAFÉLAG ISLANDS
Vísindamennirnir fullyrða, að ekki sé ólíklegt, að fyrsfu mennirnir verði sendir út i geiminn á þessu ári.
í tilefni af því er þessi mynd teiknuð — úti í geimnum er ekkert aðdráttarafl — menn gaetu svlfið þar
til og frá — það er ekkert upp, ekkert niður, engar áttir. Þó að það verði ekki á þessu ári, líður ekki á
löngu þar tll maðurinn fer sjáifur að kanna þennan furðugeim, en tímann mun það taka, að gera það
til hlítar.