Tíminn - 25.08.1960, Blaðsíða 14

Tíminn - 25.08.1960, Blaðsíða 14
14 T f MIN N, fnrrmtndaginu 25. ígíst 1980. um hér sem gíslum. Ef við ekki fáum peningana köstum við ykkur í sjóinn. En eins og þér sjáiö, erum við fús að hjálpa. „Eg er ykkur mjög þakklát ur, en þetta er ekki eins ein- falt og það virðist vera. Þann ig er sem sé mál með vexti, að til þess aö fá arfinn, verð ég að drekka bikar af laxer- olíu, sem móðir mín sáluga vildi láta mig drekka þegar ég var sex ára, en ég hef kom ið mér undan til þessa dags. Bill kreppti hnefana. — Hvers kona'r andskotans kjaftavaðall er þetta? Haldið þér kannski, að við getum staðið hér til eilífðarnóns og hlustað á þessa heimskulegu brandara yðar? Þá sagði Filimario þeim alla söguna um laxerolíubikar- inn, og gaf sér góðan tima. — Þannig standa nú málin, sagði hann að lokum. — Þess vegna get ég þvi miðnr ekki fallist á tillögu yðar. — Hvað meinið þér með því? þrumaði Bill. — Að ég vildi heldur fórna lífi mínu og þessara aðals- manna, en aö drekka þennan skmttans laxeroliudrykk. Settambre, sem nú var vakn aður, kom til þeirra, sem stóöu framan við eldinn, Pio Pis fylgdi eftir. — Það er ekki það, að ég vilji mótmæla yður, sagði hann, — en afstaða yðar móti þessari laxeroliu virðist mér heldur óskynsamleg. Þér get ið ekki ímyndað yður, hve stórfengleg áhrif einn bikar af laxerolíu hefur á manns- líkamann. Pio Pis hjálpaði honum eft ir megni: — Ef þér þekktuð kvæði, sem ricinusplantan kom þekktu kínversku skáldi til að yrkja .... En Filimario leyfði honum ekki að tala út. Orðum Dublés verður ekki breytt, sagði hann alvarleg- ur. — Heldur deyja en rjúfa loforð sitt. Fremur mundi ég hefja ópíumsmygl en rjúfa íoforð, en ég tek dauða fram yfir ópíumsmygl. Ef ég ætti að velja á milli ópíumsmygls og þessarar laxerolíu, mundi ég velja ópíumsmygl. Stutt þögn. Svo sagði Ketty: — Ef þér hafið áhuga fyrir þvi, herra Dublé, þá er ópíum smygl okkar atvinnuvegur. Filimario hneygði sig bros andi. I GIOVANNI GUARESCHI : i I 1 Clotilde Troll i 1 n 14 — Það kemur mér ekki á óvart. Þar sem þessi flokkur er undir stjórn konu, var ég sannarlega búinn undir það j sem verra væri. Það rigndi, svo syndaflóðið virtist vera í nánd. Glæpa- mennirnir geispuðu sig næst- um úr kjálkaliðunum af leið- indum. Þegar lítil stund var liðin, höfðu þeir ekki frekari : áhuga fyrir föngunum. Pio Pis og Settambre höfðu lagt | sig til svefns á sama dívan- ; inn. Filimario hafði enn nóg 1 að gera við að þurrka fötin | sín framan við eldinn. j Klukkan nákvæmlega 15.45 j skeði minnisverður atburður. | Settambre sneri sér í svefni og teningarnir, sem hann hafði fundið á ströndinni, féllu úr vasa hans. (Auðvitað vissu bæði sexin upp). Hljóðið af teningunum vakti athygli Bilis. Hann var eins og skipstjórinn með það, að hann elskaði peningaspil, en mátti ekki spila við undir- menn sína. Ketty var mjög ströng meö það. Varastjórn- andi má aldrei komast í þá aðstöðu að þurfa að beina byssunni að undirmönnum sinum. Bill greip í axlir Settambr- es og hristi hann kröftuglega. Þetta skeði klukkan 15,45. Klukkan 16,45 var eftirfar- andi sjón að sjá i herberginu: Baksvið: Opið eldstæði, par; sem Filimario þurrkaði sig.1 Til vinstri: Pio Pis sofandi. Fyrir miðju: Borð, þar sem 20 smyglarar beygðu sig á- fjáðir hver yfir annan, og á borðinu tveir teningar, sem í 826. sinn sýndu tvö sex. Enginn sagði aukatekið orð. Bill starði stórum augum á teningana. í hvert sinn, sem Settambre kastaði þeim, sýndu þeir ófrávíkjanlega [ tvö sex. Klukkan 16,50 hafði Bill eytt, ekki aöeins sínum eigin peningum,'heldur einn ig allra manna sinna. Sett- ambre var með alla vasa fulla af dollurum. Þegar hann fékk síðasta peninginn, sem til var, varð uggvænleg þögn. Svo spratt Bill á fætur, veif- aði skammbyssunni og öskr- aði: — Upp með hendurnar. Peningana eða lífið. Settambre bölvaði í hljóði og afhenti allan sinn vinn- ing. Þeir leyfðu honum að halda eftir einu centi. — Þá byrjum við íaftur, sagði Bill. Eftir klukkutíma leik hafði Settambre fengið „tólf“ 841 sinnum, var flokkurinn blank ur öðru sinni. Þá fékk Sett- ambre aö þefa af skamm- byssunni, meðan menn Bills tæmdu vasa hans, að undan teknu þessu eina centi. — Þegar þessu hafði farið fram 8 sinnum, var Sett- ambre orðinn þreyttur. En hann beit á jaxlinn, og hver taug hans titraði, þegar hann kastaði teningunum á borðið. Einn og einn. Eftir að hafa kastað ten- ingunum 6311 sinnum i röð, fékk hann loksins einn og einn. — Þú svindlar, hrópaði Bill með þrumuraust, og rétti skammbyssuna upp að and-| liti Settambres. Settambre roðnaði, hneygði j höfuðið skömmustulegur ogj hélt síðan áfram að vinna. Nóttin leið, og nýr drunga legur dagur rann upp. Um miðdegisverðarleytið kom Bill til Filimarios og sagði: — Meðan þér hafið ekki fengið mér bréf upp á þessa fimm hundruð þúsund franka þá fáið þér ekki mat. — Þá það, þá deyjum við{ bara úr sulti. — Því þá það? spurði Bill! og hnyklaði augabrýrnar. — Af því að þér fáið þá aldrei. — Það er ekki orð af viti að fá út úr yður, urraöi Bill um leið og hann gekk burt. Settambre, Filimario og Pio Pis höfðu geispað allann daginn. Þeir geispuðu alla nóttina líka. Um miðdeigis- verðarleytið næsta dag kom Bill og sagði Filimario að Ketty vildi tala við hann. Litlu seinna barði Filimario að dyrum uppi á annarri hæð. Fegurri en nokkru sinni fyrr, í kjól, sem afhjúpaði yndisþokka hennar fremur en hylja hann og gaf ástæðu til að ætla, að það sem ekki sást væri eins fullkomið og það sem sást, sat Ketty við borð, hlaðið girnilegustu rétt um og flöskum. Matarlyst hennar virtist vera í góðu lagi. — Góðan dag, herra Dublé. Gerið svo vel að setjast. Filimario settist og kross- lagði armana. Ketty hélt á- fram að borða, og endrum og eins talaði hún um matinn. — Eg fullvissa yður um, hr. Dublé, um að þessi styrju- hrogn eru alveg fyrirtaks mat ur . . . Að mínu áliti eru nið- ursoðnir kalkúnar betri en nýir . . . Þegar svínasteikin er eins meir og þessi, er hún aldeilis fyrirmyndarmatur. Filimario kinkaði kolli, al- varlegur og sammála. Að lokum gat Ketty ekki étið meira. Hún leit á Fili- mario og sagði: — Er það ókurteisi aö spyrja, hvort þér hafið nokk urn áhuga fyrir tillögu minni? Annars skal ég endurtaka hana i kvöld, fyrramáliö, miðj an dag og kvöld, eða svo oft sem þér óskið. — Eg fyrir mitt leyti verð aldrei leiður á þeirri sjón, sem fyrir augu mín ber nú sem stendur, svaraði Filimar io. — Eg prísa mig sælan að sjá munn og tvær raðir af fallegum tönnum að störfum. Ef það skoðast ekki sem ókurt eisi, fröken Ketty, vil ég biðja yður að endurtaka þessa sýningu. jpg nýt þess einnig að horfa á yðar dásamlega barm, sem að vísu ekki tekur þátt í sjálfri máltíðinni, en á þó sinn stóra þátt i að gera sýnina ennþá skemmtilegri. Ketty reis á fætur og gekk um gólf. iiiiiiiiiig 'gkéj gké bgkéj gkéæ Mig langar mikið tll aö vita, hvort þér verðlð svona borubrattur annað kvöld, hf. Dublé, sagði hún skyndilega. — Kannski yður þyki þá ekki mikið að borga 500,000 oo franka fyrir ehia máltíð, — Nei, ekki 500.000.oí> franka. En bikar af laxeroliu væri of mikið. Eg hef svarlð að láta hana aldreí koma inn fyrir mínar varir. Eg er Du- blé, fröken Ketty. Afi minn Gugelielmo Dublé, var um- setinn Rússum heilan mánuð. Að lokum var aðeins einn sekkur af mjöli eftir í her- búðunum. Óvinurinn vissl það, og eftir að hafa athugað vindstöðuna, stillti hann svo til, að ilminn af matnum bar inn yfir múrana. Þriðja dag- inn sendi afi minn, Gugleimo Dublé, ofuirsti, rðandi boð- bera til óvina foringjans — Yfirmaöur minn, Gugleimo Dublé, sagði boðberinn, hefur tekið eftir því, að í ilminn. sem leggur inn yfir múrana til okkar vantar alveg ilm ar nýbökuðu brauði. Hann hefur dregið þá ályktun af því, að 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 13,00 „Á frívaktinni", sjómannaþátt- ur (Guðrún Erlendsd.). 15,00 Miðdegisútvarp. 16.30 Veðurfregnir. 19,25 Veðurfregnir. 20,00 Fréttir. 20.30 Erindi: Á helgileikjamóti i Frakklandi (séra Jakob Jóns- son). 20,55 Frægir söngv&rar: Jussi Björling syngur lög eftir Schu bert og Strauss (Hljóðritað í Camegie tónleikahöllinni í New York). 21,20 Hagyrðings getið: Sigurður Jónsson frá Brún fer með stök- ur eftir Jóhann Kristjánsson frá Bugðustöðum. 21.30 „Vín, víf og söngur": Valsar eftir Jóhann Strauss (Karia- kór og drengjakór Vínarborg- ar syngja. Söngstjórar: Alois Melichar og Vikitor Gomboz). 21,45 Ólympíui'eikair í Bóm, — Ítalíu bréf frá Eggertá Stefánssyni söngvara (Andrés Bjömsson flyfcur). 22,00 Fréttír og veðurfregnir. 22,10 Kvöldsagan: „Trúnaðarmaður í Havana" eftir Gnaham Greene; V. (Sveian Eðcorri Höskuldsson). 22.30 Frá tóniistarhátíðiimi BJörg- vin í júní s. I.; Sinfónía nr. 6 op. 64 (Lenin-siníónían) eftir Hmitri Sjostakxrvitsj (F£fharm íusveit Óslóar leikiar; Odd Gruner-Hegge stjómar). 23,00 Da-gskrárlok. EIRÍKUR VÍÐFÖRLI og GUNNAR GRIMMI 23 Þegar þeir koma til búðanna, óskar Eiríkur eftir að líta til hins særða Haralds jarls. — Með þínu leyfi vil ég stinga upp á, að við rannsökum fyrst dýflissuna, sog- ir Gnupa. — Mín vegna, svarar Eiríkur. En ég heimita, að þú gangir á undan um dimman ganginn. Gnupa réttir Eiríki víðförla lykl- ana. — Opnaðu dyrnar, Eiríkur konungur! Eirí'kur horfir hvasst á hann. — Þetta var síðasta tækifæri þitt til að yfirbuga mig! Opnaðu sjálfur! — Það hefur nú komizt upp um alla klæki þína, heldur Eiríkur áfram með fyrirlitningarrómi. Farðu í fangaklefann og; bíddu þar dómsins. Þú munt hljóta rétt- láta hengingu innan skamrns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.