Tíminn - 25.08.1960, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.08.1960, Blaðsíða 12
13 T f MIN N, finuutudaginn 25. ágúst W60. Olympíuleikarnir í Um 6000 þátttakendur keppa á leikunum frá 85 þjótfam og er þatS mesti þátttakendafjöldi á Ólympíuleikum hingaÖ til. Sautjándu Sumar-Ólýmpíuloikarnir verða settir í dag með mikilli viðhöfn á Ólympíuleikvpnginum í Róm — borginni eilífu á hæðunum sjö. Um sex þúsund íþróttamenn og konur frá 85 löndum munu keppa þar næsta hálfa mánuðinn í hin- um ólympísku íþróttagreinum, og er það mun meiri þátttaka en nokkru sinni fyrr í sögu Ólympíuleikanna, bæði hvað þátt- takendafjölda og lönd snertir. Níu íslenzkir íþróttamenn, sjö frjálsíþróttamenn einn sundmaður og ein sundkona eru með- al þessa mikla fjölda, en á áhorfendapöllum verða um eitt hundrað íslenzkir áhorfendur, en það er mesti fjöldi íslend- inga, sem sótt hefur Ólympíuleika, að leikunum í London 1948 undanskildum. Setningarathöfnin verður ( ursstúkunnar verður honum mjög áhrifarík og þar verður heilsað með þremur trompett þröngt um manninn, því hver tónum og ítalska þjóðsöngn- einasti aðgöngumiði á hinn um. Að því loknu gengur fylk- mikla leikvang, sem rúmar ing íþróttafólks inn á leik- vanginn, þó ekki allir þátt- takendumir, en eitthvað um fjögur þúsund. Að venju ganga Grikkir fyrstir, og eru þeir all fjölmennir að þessu sinni. Síðan koma þjóðimar í stafrófsröð, gestgjafarnir þó síðastir. Undir fánum sumra þátttökuþjóðanna er ef til vill einn maður, nokkru fleiri hjá öðrum, en hundruö fylkja sér undir fána stór- veldanna, flestir eru þátttak- endur frá Bandaríkjunum og Sovétríkjunum, en Þjóðverj- ar — sem eru sameinaðir — eru einnig með mjög fjölmenn an hóp svo og ítalir. yfir hundrað þúsund áhorf- endur, er uppseldur. Síðustu miðarnir seldust á sunnudag, og var þá mjög löng biðröð við aðgöngumiöasöluna en aðeins stæði voru þá eftir, og fékk lítill hluti þeirra, sem vildu, miða. Forsetanum fagnað Þegar forseti ítalíu, Gio- vanni Gronchi, gengur til heið Ólympíuleikvangurinn í Róm — þar verða aðalviðburðirnlr næstu vikurnar. Þegar allir eru komnir inn á leikvanginn, en gangan mun taka langan tíma, flytur for- seti ítölsku ólympíunefndar- innar ræðu, en síðan biöur Bandaríkjamaðurinn, Brund- age, forseti alþjóðaólympíu- nefndarinnar, ítalska forset- ann að setja leikana. Þá er blásið f lúðra að nýju og átta ítalskir íþróttamenn bera ólympíufánann inn á leik- vanginn, en á eftir koma fjór ir ítalskir hermenn, sem, draga fánann að hún. Ól- Consolini — vinnur ólympíueiðinn. ympíusálmurinn verður sung inn á meðan af kón Þá hleypur ítalinn, Gian- carlo Peris inn á leikvanginn með ólympiukyndilinn log- andi, og verður öllum kirkju- klukkum Rómarborgar hringt, þegar hann tendrar Ólympíu eldinn á leikvanginum. Þetta er einn mesti heiður, sem ein um íþróttamanni getur veitzt. Því næst kemur kringlukast- arinn ítalski, Consolini, fram á sjónarsviðið og vinnur ól- ympíueiðinn. Consolini er frægasti frjálsíþróttamaður Ítalíu, ólympíumeistari í kringlukasti í London 1948, annar á leikunum í sömu grein í Helsinki 1952 og sjötti í Melbourne 1956. Consolini keppir í kringlukasti á leikun um nú, en hann er kominn talsvert yfir fertugt, en er þó stöðugt í fremstu röð. Þegar hann hefur unnið eiðinn, verður ítalski þjóðsöngurinn leikinn, og fánaberar ganga til hópa sinna og setningar- athöfninni er lokið. Á morg- un hefst svo keppnin — mesta íþróttakeppni allra tíma hing að til. Greinar í Róm Á Ólympíuleikunum í Róm verður keppt í frjálsum íþrótt um, en þar er þátttöknfjöld- inn langmestur, sundi, róðri, körfuknattleik, knattspymu, hnefaleikum, róðri á kajök- um, hjólreiðum, skylmingum, fimleikum, landhockey, glímu, nútíma fimmtarþraut, lyft- ingum, sundknattleik, sigl- ingum og skotfimi eða alls 17 íþróttagreinum. í sumum greinum eins og sundinu er nú keppt í greinum, sem ekki hafa verið á Ólympíúleikun-' um áður. Þá verða margar sýn ingargreinar á leikunum. Mestur áhuginn er fyrir frjálsum íþróttum á leikun- um. í 200 metra hlaupinu er mesti þátttakendafjöldinn í einni grein á leikunum, eða 77 þátttakendur, einum fleiri en í maraþonhlaupinu, en þar er þátttakendafjöldlnn næst mestur. í 1500 metra | hlaupinu eru þátttakendur 48 og í þeirri grein, sem okkur varðar mest, þrístökkinu, eru I þátttakendur 42. í kvenna- i greinum er mest þátttakan í frjálsum íþróttum i 10Q m. hlaupi, eða 37 stúlkur, en mest þátttaka hjá stúlkum veröur í 100 metra skriðsundi, eða um fjörutíu. Hvenær keppa ís- lendingarnir í Róm? Sjö íslenzkir frjálsíþróttamenn taka þátt í keppninni í Róm, en frjálsíþróttakeppnin hefst 31. ágúst. Fyrsti frjálsíþróttamaður okkar, sem lendir í eldrauninni, er Hílmar Þorbjörnsson. cn undankeppni í 100 m. hlaupinu fer fram þann dag fyrir hádegi. Ef Hihnari lekst vel upp, keppir hann í milliriðiínum síðar um daginn. Hástökkskeppnin fer fram 1. september og þar reynir Jón Pétursson snemma morguns við tvo metrana, sem gefa rétt til að komast í aðalkeppnina. Enginn íslendingur keppir á föstu- dag, en laugardaginn 3. september er keppt í undankcppni í stangarstökki og þar þarf Valbjörn Þorláksson að stökkva 4.30 metra til að kornast í úrslitakeppnina í greininni. sem verður miðvikudaginn 7. september. Svavar Markússon keppir í 1500 m. hlaupi á laugardag. Ekki er keppt á sunnudögum á leikunum, en mánudaginn 5. september keppa tveir fsíendingar. Pétur Rögnvaldsson í 110 m. grindahlaupi og Björgvin Hólm í tugþraut. Tugþrautarkeppn- inni Iýkur daginn eftir. Þriðjudagurinn 6. september verður sá keppnisdagurinn, sem íslendingar munu fylgjast bezt með. Þá fer þrístökkið fram og þar keppir sá Íslendingurínn, Vilhjálmur Einarsson. sem líkur hefur til að hljóta verðlaun á leikunum Undankeppni verður um morguninn, lágmark 15.50 m., en úrslitakeppnin hefst kl. þrjú uin daginn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.