Tíminn - 25.08.1960, Blaðsíða 5
TÍMINN, finuntudaginn 25. ágúst 1960.
5
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framirvæmdast.iórj: Tómas Áxnason Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarmsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsmgastj.: Egili Bjarnason. Skrifstofur
í Edduhústnu. — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusimi:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Skipt um innheimtumann
Það má gerla sjá þaS á Morgunblaðinu þessa daga,
að það þykist hafa fengið sterk gögn í hendur til boð-
unar sæluríkis „viðreisnarinnar“ á íslandi, þar sem út-
svarslækkunin er, einkum í Reykjavík. Er básúnað há-
stöfum, að nú séu hinar góðu verkanir efnahagsráðstaf-
ananna að koma í ljós.
í gær birtir Morgunblaðið á forsíðu skýringarmynd
er sýna skal, hve mikið útsvör og tekjuskattur hafi
lækkað. Rétt er það, að tekjuskattur var afnuminn að
mestu á venjulegum launatekjum fjöiskyldumanna og út-
svörin hafa lækkað nokkuð. Þetta væri að sjálfsögðu
mikil og góð þróun, ef hér væri um raunverulegar lækk-
anir almennra og opinberra gjalda að ræða. En því
fer því miður víðs fjarn.
• Það, sem hér hefur gerzt, er, að breytt hefur verið
um innheimtuaðferð. Ríkið hefur tekið að sér að inn-
heimta með öðrum hætti nokkurn hluta útsvaranna og
tekjuskatturinn er innheimtur undir öðru nafni.
Um þetta væri heldur ekkert ilit að segja, ef ekki
væri innheimt meira í opinber gjöld af almenningi en
áður var, og ástæða til að hæla sér af því, ef þessi heild-
argjöld hefðu lækkað, svo að byrðar opinberra gjalda
væru almenningi léttbærari en áður. En hér verður enn
að segja: Því miður er þetta ekki svo.
Segja má, að fyrir tilstuðlan og iagasetningu stjórn-
arflokkanna hafi tekjuskattur stórlækkað og útsvörin
nokkuð, en á móti kemur það, að söluskatturinn var
hækkaður svo ofboðslega, að þar er innheimt hjá almenn
ingi margfalt hærri upphæð en sú iækkun. sem veitt
var í þessum tveim nefndu opinberu gjöldum.
Fyrir þann, sem greiðir, er munurinn sá, að annar
aðili hefur tekið að sér innheimtu hluta af því, sem menn
greiddu áður sem útsvör og tekjuskatt. og hann lætur
sér ekki nægja að innheimta þann hluta, heldur marg-
faldar hann, svo að samanlagt verða menn að greiða
miklu hærri opinber gjöld í söluskatti, útsvörum, skött-
um og tollum en áður.
Ef til vill þykir mönnum gott að sjá lækkun talna
á útsvars- og skattamiðum sínum, en ánægjan minnkar
þegar þess er gætt, að margfalda þá lækkun hafa menn
orðið að greiða smátt og smátt í hvert sinn sem ein-
hver vara er keypt í búð. Væri þeim söluskattsauka, sem
núverandi ríkisstjórn hefur á lagt. bætt á útsvars- og
skattmiðann, er hætt við að mönnum þætti minna til
„Iækkunarinnar“ koma.
Þá mundu menn sjá, að byrðin hefur ekki létzt,
heldur miklu fremur þyngzt við það, að núverandi
stjórnarflokkar færðu gjaldapokana dálítið til og bættu
drjúgum í þá um leið.
Gjaldendur munu og minnast þess, að það hefur ekki
allt lækkað í þjónustu Reykjavíkurbæjar. Menn muna
líklega, að hitaveitugjöld hafa stórhækkað og rafmagns-
hækkun stendur fyrir dyrum. Þá hefur blávatnið hækk-
að allverulega og sömuleiðis strætisvagnagjöld stór-
hækkað. Þegar á allt þettg er litið verður minna úr þeim
stóryrðum, sem nú eru uppi um útsvars- og skatta-
lækkanir.
Stofnsaga Framsóknarflokksins
Afbragðsgóftur bækli'ngur eftir Þorstein M.
Jónsson, skólastjóra, gefinn út af FræSslu-
ritastjó cSi Samb. ungra Framsóknarmanna.
A vegum Fræðsluritasjóðs
Sambands ungra Framsóknar-
manna er komin út lítil bók,
sem heitir „Stofnsaga Fram-
sóknarflokksins" eftir Þor-
stein M. Jónsson, skólastjóra.
Þetta er hin þarfasta handbók
fyrir þá, sem vilja kynna sér
stofnsögu flokksins, enda eru
nú fullir fjórir áratugir liðnir
frá því sú saga gerðist, nýjar
kynslóðir vaxnar upp og
nauðsynlegt að fræða þær um
þessa merku sögu.
Samband ungár Framsóknar-
manna stofnaði FræSsluritasjóð
sinn fyrir nokkrum árum og gaf
þá út bækling um sögu Sambands
ungra Fx'amsóknarmanna í tilefni
af tuttugu ára afmæli sambands-
ins. Stofnsaga Framsóknarflokks-
ins er því annaS ritið, sem út kem
ur á vegum sjóðsins.
Varla mun unnt að finna heppi-
legri mann til að rita þá sögu en
Þorstein M. Jónsson. Hann var
sjálfur í hópi þeiira þingmanna,
sem að stofnuninni stóðu og átti
þar drjúgan hlut að. Honum er því
saga þessi vel kunn, en auk þess
er hann flesfcum mönnum gleggri
í frásögn og afbragðs vel ritfær.
Ber þessi litla bók öllum þessum
kostum vitni, og er vafalaust, að|
hún er í senn mjög áreiðanleg
heimild um þessa atburði og skýr
mynd af þróun íslenzkra stjórn-
mála á þessum straumhvarfsárum.
f formálsorðum að bæklingi
þessum, sem er um 60 blaðsíður
að lengd með allmörgum myndum
forvígismanna Fxamsóknarflokks-
ins á þessum fyrstu árum, segir
Þorsteinn M. Jónsson:
„Af þeim stjórnmálaflokkum,
sem nú lifa, eru Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn
elztir, og sem þimgflokkur er
Framsókn.arflokkurinn elztur.
Hann er nú að verða 42 ára gam-
all. Á þessum 42 árum hefir
hann í full 30 ár átt fulltrúa íj
ríkisstjóminni, og alloft hefirl
forsætisráðheiTann verið Fram- j
sóknarmaður. Flokkur í lýðræð-j
isþjóðfélagi, sem lifað liefir um
ánatugi, og ráðið miklu um stjórn
landsins, á langlífi sitt því að
þakka, að hann á sterkar rætur
í þjóðfélaginu, ekki aðeins á
verðandi tíma, heldur elnn'ig í
fortíð.
í bæklingi þessum mun ég í
stuttu máli leitast við að segj,a
frá hinum sögulegu rökum, sem
til þess lágu, að Framsóknar-
flokkurinn var stofnaður, og úr
hvers konar jarðvegi hann óx.
Saga þessi er aðeins forsaga og
stofnsaga Framsóknarflokksins.
Hún er aðeins inngangur að fjöl
þættri og atburðaríkri sögu
flokksins, er síðar mun verða
skrifuð".
í upphafi ræðir Þorsteinn M.
Jónsson síðan um flokkaskiptingu
á síðari hluta 19. aldar og fram á
annan áratug 20. aldar. Hann lýs-
ir því, að aðalbaráttumál íslenzkra
stjórnmála á þeim tíma hafi verið
tilhögun sambandsins við Dani,
eða sjálf'stæðismálið. Hann rekur
í fáum en skýrum dráttum þróun
þeirra mála og stöðu helstu stjórn-
málamanna á því tímabili. Síðan
drepur hann á samtök bænda til
sjálfsbjargar um og eftir 1880, til-
komu og vöxt saimvinnufélaganna,
sjálfræði landsmanna í sérmálum,.
ÞORSTEINN M. JÓNSSON
upphaf ban'kastarfsemi og stofnun
fyrstu verkalýðsfélaga.
Síðan sýnir hann fram á, hvern-
ig fengið sjálfstæði og ráð yfir æ
fleiri þáttum þjóðmála leiddi
fraim ný viðhorf í stjórnmálum og
kallaði á nýja flokkaskipun í land-
inu. Hann lýsir glundroða þeim,
sem myndaðist í flokkaskipun trn
og eftir 1910 og síðan þeim gróðri,
sem úr þeim jarðvegi spratt, nýrri
flokkaskipun, sem haldizt hefur í
aðaldráttum fram á þennan dag,
flokkaskipun, sem miðuð var við
skoðanamun í innanlandsmálum
og viðhorf til þeirra verkefna, sem
við blöstu í sjálfstæðu ríki fá-
mennrar og fátækrar þjóðar, er
varð að snúast við þúsund verkefn-
um í einu.
Næst lýsir hann stofnun Bænda-
flokksins, er átti sér stutta lífdaga
en þar er að finna fyrsta hornstein
að stofnun Framsóknarflokksins.
Nokkurt hló varð á þróun mála
meðan meginátök fyrri heimssityrj
aldar áttu sér stað, en næsta leið-
arstein verður að telja fundinn í
Þjórsártúni 19. janúar 1916, og
þann vetur, vor og sumar rak hver
aitburðurinn annan með undraverð
um hraða, sögulegum kosningum
um sumarið og um haustið sam-
tökum þeirra þingmanna, er gerð-
ust stofnendur Framsóknarflokks-
ins. Sést að einkum eru afdrifarik-
ar til undirbúnings viðræður fimm
austfirzkra og norðlenzkra þing-
manna, er þeir biðu alllengi skips-
ferðar suður til þings á Seyðisfirði
á baustdögum 1916.
Fyrsta bókaða fundargerð Fram
sóknarflokkBÍns er gerð 16. des.
1916, og stóðu þá átta þingmenn
að því, „að stofna sérstæðan þing-
flokk, óháðan hinum gömlu póli-
tísku flakkum". Raunar höfðu
fimmmenningarnir þó bundizt
þessum samtökum áður á Seyðis-
firði. Þingmennirnir áfcta voru
Ólafur Briem, Sigurður Jónsson,
Sveinn Ólafsson, Þorleifur Jóns-
son, Guðmundur Ólafsson, Jón
Jónsson á Hvanná, Einar Árnason
og Þorsteinn M. Jónsson. Auk
þeirra batt Jörundur Brynjólfsson
náið samstarf við flokkinn, en
gefck ekki í hann fyrr en síðar.
Eftir þetta tók, stjórn Jóns
Magnússonar við völdum um ára-
mótin og átti' hinn nýstofnaði
Framsóknarflokkur þar einn ráð-
henra, Sigurð Jónsson frá Yzta-
felli.
Eftir áramótin 1916—17 var
gengið frá höfuðdr’ögum að stefnu-
skrá flokksins. f fyrstu grein seg-
ir: „Hann tekur sér nafnið Fram-
sóknarflokkur og vili með því
tákna samhygð sína við stefnu
yngri kynslóðarinnar og sjálfstæð-
ishugsunina“.
Þessu næst rekur Þorsteinn til-
drög að sitofnun blaða flokksins,
Tímans og Dags og segir, að þar
hafi ýmsir merin að unnið, en þó
hafi einn maður unnið þar mark-
vissast, sá hinn sami og ötulast
vann að landskjöri óháða bænda-
listans, Jónas Jónsson frá Hrifiu.
Fyrsta blað Tímans kom út 17.
marz 1917 og þá 'ha.fi Jónas Jóns-
son verið búinn að fá nokkra
menn í félag við sig til þess að
hrinda blaðstofnun þessari af
stokkum. Fyrsti ritstjóri Tímans
var Guðbrandur Magnússon, en
eftir átta mánuði tók Tryggvi Þór-
hallsson við ritstjórn.
í bókarlok lýsir Þorsteinn svo
fyrsta flokksþingi Framsóknar-
manna — Þingvallafundinum í
júní 1919, en þar var skipulag
flokksins m-ótað og höfuðlínur lagð
ar í baráttu flokbsins hin næstu
ár. Sá fundur var í senn glæsileg-
ur og áhrifaríkur. Um hann sagði
Guðbrandur Magnússon í grein í
Tímanum skömmu eftir fundinn:
„En það, sem ef til vill er
stærst og mest um vert, er Iiug-
blærínn, hrifningin, sem þarna
ríkti, að henni búa menn lengst,
og hún mun reynast öllum örðug
leikum hættulegust, sem kunna
að verða á vegi sameiginlegu
áhugamálanna, sem þarna voru
borin fyrir brjósti.
Enda mun það svo, að ýmsir
þeir, og ekki sízt eldri og reynd-
ari mennirnir, munu telja sig
hafa skyggnzt inn í framtíð fs-
lands einmitt á þessum fundi“.
Með þessum orðum hefur Guð-
brandur Magnússon reynzt sann-
spár.
Með Þingvallafundmu'm telur
Þorsteinn, að stofnsögu Framsókn
arflokksins sé lokið, og endar hann
því frásögn sína við þann leiðar-
stein.
Þessi litla bók Þorsteins M. Jóns
sonar er afbragðs vel gerð, og þar
getur hver sem vill fengið á stuttr:
stundu glög.gt ^firlit um stofnun
Framsóknarflobksins og tildrög
þau, er að 'henni lágu. Sú saga er
ekki aðeins athyglisverð hverjum
Framsóknarflobksmanni yngri sem
eldri, heldur og hverjum lands-
manni, sem lætur sig íslenzk þjóð-
mál einhverju skipta, pví að svo
mikill og giftudrjúgur er hlutur
Fi'amsóknarf 1 okksins allt frá því
að íslendingar hlutu fullt sjálf-
stæði. Þessa litlu bók ættu sem
allra flestir að eignast og lesa með
athygli, og Þorsteinn á miklar
þakkir skyldar fyrir að hafa tekið
hana saman. A. K.
Gestir frá Atlants-
«
| hafsbandalaginu
I í fyrrad. kom hingað til lands
i Randolph Burgess, sendi-
jherra Bandaríkjanna hjá Atl
antshafsbandalaginu og Efna
; hagssamvinnustofnun Evrópu
í París. Með honum er Leon
Johnson, aðstoðarhershöfð-
ingi flughers Atlantshafs-
bandalagsins. Þeir félagar
voru á vegum sendiráðs
Bandaríkjanna hér í fyrrad.,
en í gær bauð utanríkisráðu-
neytið þeim til Þingvalla. Um
kvöldið sátu þeir kvöldveröar
boð Gylfa Þ. Gíslasonar.