Tíminn - 28.08.1960, Síða 2
2
T í MIN N, smumdaginn 28. ágúst 1960.
Vitni vantar
Eins og frá var skýrt í talað-
inu í gær varð harður árekst
ur milli sendibíls og strætis-
vagns á gatnamótum Öldu-
götu og Ægisgötu i fyrradag.
Ökumaður sendibílsins kast-
aðist út og hlaut slæman á-
verka á höfði, en mun þó
hafa fengið að fara heim til
sín í gærkvöldi.
En ennþá er ekki nógu
skýrt, hvernig árekstur þenn
an taar að höndum, því ekki
hefur náðst í nein vitni. Vitað
er, að strætisvagninn var full
ur af fólki, og nú eru það vin
samleg tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar, aþ þessir far-
þegar gefi sig fram við um-
ferðadeildina hið allra fyrsta.
Féli af
vinnupalli
Slys viíS Landssímahúsið
Laust fyrir kl. hálf tvö 1
gærdag féll maður af vinnu-
palli við Landsímahúsið. Var
maðurinn, Steingrímur Björns
son, Lönguhlíð 7, að vinna
þar við húsið. Talið er að fall
ið hafi verið allt að sjö metr-
ar, Steingrímur mun hafa
slasast talsvert, og var hann
fluttur i sjúkrataíl á Slysa-
varðstofuna og skömmu síðar
á Landspítalann. Mun Stein-
grímur hafa meiðst talsvert
á höfði, en steinstétt var þar
sem hann kom niður. Ekki
veit blaðið nánar um meiðsli
Steingríms né heldur líðan
hans, enda neitaði Landsspít
alinn með öllu að gefa nokkr
ar upplýsingar þar að lútandi.
Snemma sumar efndi Vikan til fegurðarsamkeppni á forsíðu blaðsins, og
fóku fimm sfúlkur þátt í keppninni. Af hverri stúlku voru teknar sex lit-
myndir og fengu þær síðan að velja mynd til birtingar á forsíðunnl.
Þegar allar myndirnar höfðu birzt, vxr efnt til atkvæðagreiðslu meðal
lesenda um það, hver þætti fegurst og sú sama kjörin „Sumarstúlka Vik-
unnar 1960".
Við talningu atkvæða kom í ljós, að Ágústa Guðmundsdóttir fékk
helmingl fleiri atkvæði en sú, sem önnur var í röðinnl, og gengur hún
með glæsilegan sigur af hólml í þessari keppnl. Önnur varð Sigrún Ragn-
ars, þriðja Hólmfríður Egilsdóttir, fjórða Sigrún Gissurardóttir og fimmta
Sigrún Kristjánsdóttir.
Ágústa er dóttir Guðmundar Ágústssonar, bakarameistara, Vesturgötu
46 og konu hans Þuríðar Þórarinsdóttur. Hún hlýtur að verðlaunum al-
klæðnað frá verzluninni Eygló.
en
Nógir peningar -
ekkert fyrir þá aö fá
Verðbólga er ekki ósjaldan
nefnd á esturlöndum, en ekki
heyrum við mikíð um slíkt
frá Iöndunum austan tjalds.
Nat White, ein naf fjármála-
sérfræðingum Christian Sci-
ence Monitor í Bandaríkjun-
um hefur heimsótt Sovétrík-
in og hér fer á eftir nokkuð
af upplýsingum hans um verð
Héraðsmót Framsóknarmanna í
Austur-Skaftafellssýslu
Framsóknarmenn í A.-Skaftafellssýsíu halda hina árlegu
sumarhátíð sína að Félagsheimilinu Mánagarði laugar-
daginn 3. september n. k. Hefst samkoman kl. 8.20.
Meðal þeirra sem fiytja ræður og ávörp eru Páll Þor-
steinsson, alþm. og Hörður Gunnar fulltrúi, sem flytur
ávarp frá S.U.F. j
Erlingur Vigfússon, tenór, syngur með undirleik Fritz!
Weisshappels. Hjálmar Gíslason gamanleikari fer meði
gamanvísur og eftirhermur. Örvartríóið leikur fyrir;
dansi. Söngvari með hliómsveitinni. j
>»
Agust með sól-
ríkustu mánuðum
Sólskinsstundirnar eru ortSnar um 260 og hafa
afteins einu sinni verií fleiri — Menn geta
gerzt áskrifendur aí „VetJráttunni“
Fjársöfnunin
Hér birtist listi yfir röð hæstu héraðanna í fjársöfnun-
inni og hefur hún dálítið breytzt frá fyrri viku. Dalasýsla
hefur skotið sér upp í 3. sæti og Gullbringusýsla í 7.
sæti:
1. ísafjörður 100%
2. Vestur-Húnavatnssýsia 100%
3. Dalasýsla 75%
4. Siglufjörður 60%
5. Vestmannaeyjar 47%
6. Norður-Múlasýsla 30%
7. Gullbringusýsla 29%
8. Austur-Skaftafellssýsla 29%
9. Eyjafjarðarsýsla 25%
10. Kópavogur 25%
lag og vörugæði þar austur
frá.
í stuttu máli sagt, hafa
menn mikið af peningum, en
fá ekki fyrir þá vörur eins og
þeir vildlu. Laun hafa hækk-
að um allt að 35% s.l. ár en
það er ekki hægt að kaupa
meira en áður. Fólk leggur
því peningana i banka eða
geymir þá á kistubotninum
heima hjá sér.
Nóg af seðlulm.
Til þessa liggja margar
ástæður: Ekkert offramboð er
af nauðsynjavarningi, ekki
þarf að greiða skóla- eða
sjúkrakostnað, húsaleigu er
haldið niðri og nýjungar eru
takmarkaðar. Því hefur fólkið
nóg af seðlum, sem lítið er
hægt að kaupa fyrir.
Gæði varanna eru léleg og
verðið hátt. Dollarinn er
keyptur á 10 rúblur. Bómull-
arskyrta kostar þrisvar sinn- j
um meira en vestan hafs mið- \
að við þetta gengi.
í verzlunarhúsinu GUM i j
Moskva var mest ösin við-ilm:
vörudeildina, segir White. j
Rússneskar konur vilja einn-
ig eiga snyrtivörur, en gæöi
þeirra eru ekki mikil.
Fylgzt með bröskurunum.
Það er dálítið um svartan
markað austan tjalds, segir
White, en yfirvöldin hafa
mikið eftirlit með að koma í
veg fyrir hann, Það eftirlit
er vel skipulagt og alls staðar
ru menn á verði ,þar sem von
er ferðamanna og fljótt hefst
upp á þeim, sem bjóða meira
en 10 rúblur fyrir dollarann.
Engar upplýsingar eru um
seðlaveltuna í Sovétrikjunum.
Þaö varðar menn ekkert um.
Allt útlit er fyrir að ágúst-
mánuSur í ár verði næst sól-
ríkasti, ef ekki sá sólríkasti
ágústmánuður síðan mæling-
ar á sólarstundum hófust í
Reykjavík 1923. sagði Adda
Bára Sigfúsdóttir, forstöðu-
kona Veðurfarsdeildar Veður-
stofunnar i viðtali við TÍM-
ANN í gær.
Sólskinsstundirnar á þess-
um mánuði voru orðnar 257
talsins, og sólin skein í ná-
lega fjórar' stundir í gær svo
heildartalan er líklega um og
yfir 260 stundir. Mesta sól-
skin sem mælzt hefur í ágúst
mánuði síðan mælingar hóf-
ust var 1929, en þá mældust
þær 273.
Litil úrkoma
Úrkoman í þessum mánuði
hefur verið sáralítil. í júlí
s. 1. var hún 43 millimetrar,
en þá rigndi þó ekki nema 6
daga, en þá mikið í hvert sinn
svo sem sjá má. Þá var júlí-
mánuður s.l. meðalheitari en
venjulegt er, en meðalhitinn
þá var 12,2 stig. í venjulegu
árferði er meðalhitinn í júlí
aðeins 11,3 stig, en í fyrra
mældist hann 11,6 stig. í júlí-
mánuði f fyrra mældust 105
sólskinsstundir en í sumar
urðu þær 259 talins.
Hvað veldur?
Ekki kvaðst Adda Bára geta
sagt til um hvað valda muni
góðærinu nú. Þá sagðist þún
ekki trúa því að haustið yrði
nokkru verra þótt sumarið
væri gptt. „Veðurfræðingar
leyfa sér ekki að hafa neina
skoðun á slíkum hlutum, og
við trúum þvf ekki aö nokk-
urt samband sé á milli hausts
og sumars í þeim skilningi."
Sólmælingar á 7 stöðum
Áhald það, sem mælir sól-
skinsstundimar í Reykjavík
er staðsett efst i turni sjó-
mannaskólans. Tækið er ein
falt í sniðum, glerkúla í stál-
umgerð. Kúlan er sem brenni
gler og safnar sólarljósinu í
lítinn depil sem brennir gat
á pappírsræmu. Þar er lesinn
sá tími sem sólin skín hvern
dag.
Sólskinsstundir eru nú
mældar á sjö stöðum á land-
inu, i Reykjavík, Reykhólum
í Barðastrandasýslu, Hösk-
uldarnesi við Raufarhöfn, Ak
ureyri, Hallormsstað, Horna-
firði og nú síðast á Sámsstöð j
um í Fljótshlð. I
Veðurfarsdeildin
Því miður skapar Veður-
farsdeild Veðurstofunnar ekki
veðrið frá degi til dags, eins
og nafnið gæti gefið til
kynna. Þar er gert yfirlit um
veðurfar i landinu yfirleitt.
Yfirumsjón með þessu starfi
hefur Adda Bára Sigfúsdótt-
ir og hefur hún við þetta
starf þrjá aðstoðarmenn og
einn veðurfræðing að hálfu
leyti. Á Veðurfarsdeildinni er
endanlega unnið úr veður-
skýrslum af öllu landinu og
gert heildaryfirlit um veður-
farið. Deildin gefur út mán-
aðarrit, „Veðráttan", og end
anlega ársskýrslu, Geta menn
gerzt áskrifendur að „Veðr-
áttunni" með þvi að snúa sér
til deildarinnar og kostar ár-
gangurinn 60 krónur. -h.
Aðalfundur sunn-
lenzkra presta
Aðalfundur Prestafélags
Suðurlands verður haldinn í
Vindáshlíð, sunnudaginn 28.
ágúst 1960.
í sambandi vlð fundinn
verður þann dag messað á
eftirtöldum stöðum sem hér
segir;
Reynivallakirkja: sr, Magnús
Guðjónsson, Eyrarbakka.
Saurbæjarkirkja: sr. Jóhann
Hlíðar, Vestmannaeyjum.
Brautarholtskirkja: sr. Hann
es Guðmudsson, Fellsmúla.
Lágafellskirkja: sr. Sigurður
Pálsson, Selfossi. Dómkirkj -
an í Reykj avík:: sr. Sgurður
Einarsson, Holti. Frikirkjan í
Reykjavík: sr. Gísli Brynjólfs
son Kirkjubæjarklauntri.
Hallgrímskirkja: sr. Sveinn
Ögmundsson, Þykkvabæ
Hátíðarsal Sjómannaskólans:
sr. Gunnar Jóhannss., Skarði.
Laugarneskirkj a: sr. Bjarni
Sigurðsson, Mosfelli, Safnaö
arheimili Langholtssóknar:
Sigurjón Á. Sigurösson,
Grindavík. í Háagerðisskóla:
sr. Björn Magnússon, pró-
fessor.
Messur í sveitakirkjum hefj
ast klukkan tvö e. h. og i
Reykjavík kl. 11 f. h. Eftir
messurnar safnast prestarn-
ir saman í Vindáshlíð.
Aðalfundilrinn hefst með
messu í Vindáshlíð kl. 6 e. h.
Séra Bjami Jónsson vígslu-
biskup prédikar. Eftir kvöld-
mat verður uppbyggilegt er-
indi og kvöldbænir. Mánudag
inn 29. ágúst verða morgun-
bænir kl. 9. Aðalfundarstörf
kl. 9i/2- Framsöguerindi kl. 10:
Um fermingarundirbúning.
Framsögumenn: Séra Jöhann
Hannesson, prófessor og séra
Magnús Guðjónsson. Matar-
hlé kl. 12.
hlé kl. 12. Kl. li/2: Umræður
um fermingarundirbúnlng.
Fundinum lýkur með altar
isgöngu i Vindáshlíðarkirki u