Tíminn - 28.08.1960, Side 12
TfMINN, wnmattegfam 28. ágösfe m».
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Þátttakendur ganga inn á Olympíuleikvanginn.
Þrír leikir í íslands-
mótinu fara fram í dag
Tveia fengu
solsting
Dönsku hjólreiöamennirnii'
hafa þolað mjög illa hina miklu
hita í Róm. Eins og skýrt var
frá í blaöinu í gær lézt einn
hjólreiðamahnanná,': Knud. Ene-
mark, af sólstirig, jen hann var
þátttakandi í fjögurra manna
sveitakeppni, 100, km. Tveir
aðrir danskig hjóíreiðamenn'
fengu einnig sólsting þennan
sama dag, en lífi þeirra tókst
að bjarga. Dönsku hjólreiða-
mennirnir hafa hætt bátttöku í
leikunum og munu halda heim
til Danmerkur í dag. Síðustu
fréttir: Danir munu halda
áfram keppni í hjólreiðum.
íslandsmótiö í knattspyrnu
i 1. deild, heldur áfram í dag
og fara þá fram þrír leikir i
deildirmi, sem allir hafa
mikla þýðingu fyrir liðin.
Mesta athygli mun þó senni-
lega vekja leikurinn á Akur-
eyri, en þar leika heimamenn
gegn Fram.
Hinir tveir leikirnir fara
fram á Akranesi og Reykja
vík. Á Akranesi keppa Akra-
nes og.Valur, en Akurnesing-
ar eru 'nú í efsta sseti í deild
inrii, og hafa mikla möguleika
til að sigra Val. Hins vegar
hefur Valsliðið komið nokkuð
á óvart í sumum leikjum sín
um að undanfömu, og ef þeir
geta stillt upp sínum beztu
mönnum, en það var ekki al-
veg víst í gær, ættu þeir að
geta gefið Skagamönnum
kepprii.
Úrslit í gær
Þegar blaðið fór í prentun var
kunnugt um þessi úrslit á Ólympíu
leikunum í Róm. Rúmenía vann
Tékkóslóvakiu í körfuknattleik
I með 75 gegn 69 (39—43 í hálfleik).
í glímu sigraði Frakkinn Mann-
hard Danann Pedersen í 2. umferð.
í fluguvigt I hnefaleikum sigraði
Fólverjinn Stefan Rajouk Danann
Jensen á stigum. Júgóslafía sigraði
Suður-Afríku með 7—1 í sund-
kúattleik. Dýfingar karla hófust í
gær og Bandaríkjamaðurinn Sam
Hall náði þar öruggri forustu og
er falinn nokkuð öruggur með
sigur. í öðru sæti var landi hans
Tobias, þriðji Mexikani og Þjóð-
verji í fjórða sæti.
f gær hófst á Rómarleikunum I tvísýnasta, sem verið hefur á leik-
keppni í 4x100 m. fjórsundi, bak-! unum hingað til. Japan sigraði á
sundi, bringusundi, flugsundi og' 4:16.0 og Ítalía fékk sama tíma.
skriðsundi. Þessari keppni var lýst' Rússar urðu þriðju á 4:16.2 og
mjög skemmtilega í BBC. í fyrsta | Bretar fjórðu á 4:16.8 mín. í þriðja
riðlnium sigraði Ásralía á 4:14.8' nðli sigruðu Bandaríkjamenn með
mín., sem er nokkuð langt frá miklum yfirburðum, voru hálfri
heimsmeti sveitarinnar, en sumir' sundlaugarlengd á undan, eða '25
af beztu mönnunum voru að keppa metrum. Næstir voru Kanadamenn,
í einstaklingsgreinunum um morg- þriðju Hollendingar eftir geysi-
uninn.og voru því varamenn þeirxa harða keppm við Ungverja. Send-
notaðir í boðsundi. í öðru sæti var ingin hætti eftir þennan riðil og
Þýzkaland og Frakkland í þriðja, voru tímarnir ekki gefnir upp, en
rétt á undan Mexico. Keppni í öðr- sennilegt að Bandaríkjamenn hafi
um riðlinum var mjög tvísýn, sú slveg verið við heimsmetið.
KR-ingar leika geng Kefl-
víkingum á Laugardalsvell-
inum og verða að sigra í þeim
leik ef þeir ætla sér að hafa
möguleika til að berjast um
íslandsmeistaratitilinn. Leik-
urinn er einnig mjög þýðing
armikill fyrir Keflvíkinga,
sem eru í mikilli fallhættu,
ef þeir tapa þessum leik og
Akureyringar sigra Fram,
falla þeir niður í 2. deild.
Rómverski hlauparinn Giancarlo Peris tendrar ólympíueldinn á leikvanginum.
TugþrautarmaSurinn Rafer Johnson var fánaberl Bandaríkjanna og er
fyrsti svertinginn, sem hiýtur þann heiður.