Tíminn - 04.10.1960, Page 2
2
Bílaleigan
Falur h/f
Nýlega var stofnað í Reykja
vík fyrirtæki, sem hefur það
markmið að leigja bíla án
ökumanns. Fyrirtækig nefn-
ist BÍLALEIGAN FALUR h.f.
og hefur einungis nýjar
Volkswagen-bifreiðir til leigu-
Þjónusta þessi er fyrst og
fremst hugsuð fyrir ferða-
fólk innlent og útlent, sölu-
menn o.fl., enda til komin
vegna mikillar efti'rspurnar
að undanförnu.
Fyrirtæki með þessu sniði
hafa um margra ára skeið
starfað í nágrannalöndum
okkar og þykja þar ómiss-
andi. Er vart að efa, að það
sama muni verða hér. Þess
má geta, að ferðaskrifstofu-
menn erlendir, sem hér voru
á ferð nýlega, létu þag álit
í ljósi, að mikilvægur liður
í því að gera ísland að vin-
sælu ferðamannalandi væri
að ferðafólk gæti fengið leigð
farartæki og farið um landið
að vild, eftir því, sem hver
og einn hefði tlma og getu
til.
Bílaleigan Falur h.f. mun
kappkosta að bílar fyrirtækis
ins verði ávallt í bezta lagi
og hreinir. Fyrirtækig mun
ekki leigja yngri ökumönnum
en 21 árs bíla sína og er það
í samræmi við reynslu er-
lendra fyrirtækja sambæri-
legra.
Stofnendur Bílaleigunnar
Fals h.f. eru tveir ungir
menn Hákon Daníelsson og
Stefán Gíslason. Þeir hafa
kynnt sér rekstur slíkra fyrir
tækja erlendis með það fyrir
augum að þjónusta fyrirtæk
is þeirra hér verði svipuð og
annars staðar í heiminum.
Bilaleigan Falur h.f. verð-
ur fyrst um sinn opin eftir
kl. 17 í Skipasundi 55 og allar
upplýsingar veittar í sima
35341 og 12476.
3 umferðarslys
nyrðra
Akureyri, 3. okt. — Þrjú um-
ferðaslys urðu norðanlands á
sunnudag. Ekki urðu mikil
slys á mönnum, en hins veg-
ar skemmdust tveir bílar veru
lega í veltum. — Á Akureyri
ók fólksbíll á fjögurra ára
gamlan dreng sem var að leik
I barnabíl við húsið Aðal-
stræti 14 á sunnudaginn. —
Drengurinn sem heitir Krist
ján Leósson fótbrotnaði, og
var hann fluttur á sjúkrahús.
— Þá urðu tvæy bílveltur
nyrðra, önnur í Glæsibæjar-
hreppi. Þar valt fólksbíli frá
Akureyri við Dvergastein í
Kræklingahlið, og skemmdist
billinn mikið við veltuna. Bíl
stjórinn og farþegi hans
sluppu hins vegar ómeiddir.
Hinn bíllinn var þingeyskur
íólksbíll og valt í Staura-
beygju vestan í Vaðlaheiði.
Einn maður var í bílnum,
Þórður Guðjohnsen kaupmað
ur frá Húsavik, og brákaðist
hann allmikið á baki. Þórður
var fluttur á fjórðungssjúkra
húsið á Akureyri, en bíll hans
er allmikið skemmdur. E.D.
T f MIN N, þriðjudaginn 4. október 1960.
Kosið í Frama í
Sitja þing alþjóða-
sambands sam-
dag eða á morgun
Kosning fulltrúa á 27. þing
Alþýðusambands íslands fer
fram í Bifreiðastjórafélaginu
Frama 4 og 5. okt. frá kl. 1
til 10 e. h báða dagana. Kosn-
ingin fer fram í skrifstofu fé-
lagsins, Freyjugötu 26.
Tveir listar eru í kjöri, A-
listi borinn fram af meiri-
hluta stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs og B-listi, borinn
fram af vinstri mönnum, and
stæðingum núverandi ríkis-
stjórnar. B-listinn er skipað
ur eftirtöldum mönnum:
Aðalfulltrúar:
Ingjaldur ísaksson, Hreyfill
Gísli Brynjólfsson, Hreyfill
Sæmundur Láru.s«on, Bæjarl.
Grímur Friðbjörnss., Steindór
Óskar Sigvaldason, Hreyfill
Hafliði Gíslason, Bæjarleiðir
Jónas Sigurðsson, Hreyfill
Varafulltrúar:
Jón Einarsson, Hreyfill
Egill Hjartarson, Hreyfill
Verkalýísfél.
Dyrhólahrepps
Kjörinn var Björgvin Salómonsson.
Félag ísl nuddkvenna
Fulltrúi er Kristín Fenger.
Rakarasveinafélag
Reykjavíkur
Kjörinn var Gunnar Emilsson.
Karl Pétursson, Bæarleiðir
Magnús Eyjólfsson, Steindóri
Sveinn Kristjánsson, Hreyfill
Kristján Kjartanss. Bæjarl.
Þorvaldur Jóhanness. Hreyfill
Kosningaskrifstofa B-list-
ans er í Framsóknarhúsinu,
uppi, — simi 12942.
A-listinn er skipaður eftir
greindum mönnum:
Aðalf ulltrúar:
Bergsteinn Guðjónss. Hreyfill
Andrés Sverrisson, B.S.R.
Óli Bergholt Lútherson Landl.
Garðar Gislason, Bæjarleiðir
Ármann Magnússon, Hreyfill
Jens Pálsson, B.S.R.
Gestur Sigurjónsson, Hreyfill
Varafulltrúar:
Þorgeir Magnússon, Bæjarl.
Ingim. Ingimundars. Hreyfill
Kári Sigurjónsson Steindóri
Hörður Guðmundsson Bæjarl
Guðjón Hansen Hreyfill
Erlendur Jónsson, B.S.R.
Jóhann V. Jónsson B.S.R.
Félagií Skjaldhorg
Kosinn var Helgi Þorkelsson.
Bakarasveinafél.
Islands
Kjörinn var Guðmundur Hersir.
Málarafélag Reykjavíkur
Kristján Guðlaugsson.
vmnumanna
Þeir Erlendur Einarsson,
forstjóri S.Í.S. og Jakob Frí-
mannsson, stjórnarformaður
S.Í.S., munu á morgun fara
af landi brott til Sviss, en þar
munu þeir sitja, af hálfu Sam
bandsihs, 21. þing Alþjóðasam
bands samvinnumanna (Int
ernational Co-operative Alli
ance), er háð verður í Lausi-
anne dagana 10.—13. október
n.k. Áður en þingið hefst
verða haldnir fundir i mið-
stjórn Alþjóðasambandsins,
en í henni á Erlendur sæti
fyrir hönd S.Í.S. Einnig verða
haldnir fundir í ýmsum nefnd
um, sem starfa á vegum ICA.
Þing þess eru háð þriðja hvert
ár, og var hið síðasta í Stokk
hólmi 1957.
Viggo Starcke
dregur sig í hlé
Leiðtogi Réttarsambandsins í
Danmörku s.l. 15 ár dr., Viggo
Starcke hefur tilkynnt, að hann
muni ekki vera í framboði við
þingkosningarnar í Danmörku í
r.óvember n.k. Starcke hefur átt
sæti í dönsku ríkisstjórninni án
ráðuneytis. Hann hefur vei'ið einn
harðvítugasfi andstæðingur íslend-
inga í handritamálinu.
Félag ísl hljómlistar-
manna
Kosinn var Hafllði Jónsson,
VerkalýlSsfél. Borgarness
Kosnir voru Guðmundur Sigurðs-
son og Halldór Bjarnason.
Fulltrúar á 27. þing A.S.Í.
Söngskemmtun
Ketils
Kl. 7,15 í kvöld efnir Ketill Jens
son, óperusöngvari, til söngskemmt
unar í Gamla bíó. Á efnisskránni
eru mörg lög eftir innlenda og er-
lenda höfunda. Þetta er fyrsta
sinn í fimm ár, sem almenningi
gefst kostur á að hlýða söng Ketils.
Hann hefur æft af kappi í sumar
með aðstoð Skúla Halldórssonar,
tónskálds, sem leikur undir á píanó
á söngskemmtuninni í kvöld.
Týndi 2000 krónum
Um hálfellefuleytið í gærmorg-
un varð gamall maður fyrir því
óhappi að glata tveimur þúsund
króna seðlum á Lækjartorgi. Gamli
maðurinn var á leið með ellistyrk
sinn í Útvegsbankann og var með
peningana ásamt sparisjóðsbók í
vasanum. Tók hann hvort tveggja
upp úr vasanum en veitti því síðan
athygli, þegar inn í bankann var
komið, að peningarnir voru horfn
ir. Fór hann þá út á torgið og byrj
aði að leita. Gaf sig þá strax fram
vegfarandi og innti gamla mann-
inn eftir þvi, hvort hann hefði
týnt einhverju. Kvað hann svo
vera. Sagði vegfarandinn þá að
hann hefði séð mann taka tvo
þúsund króna seðla upp af göt-
unni. — Eru það vinsamleg til
mæli að finnandi peninganna gefi
sig fram við rannsóknarlögregluna
svo að gamli maðurinn endur-
heimti peninga sína.
Vörum fyrir 15 þús.
stolið úr apóteki
Nú um helgina kom í ljós að
brotizt hafði verið inn í vöru-
geymslu Laugavegsapóteks og það
an stolið miklu magni af ýmsum
varningi, 150 kg. af svonefndum
„apótekar.aíakkrís", 20 dúsínum
af gúmmíhönzkum og 6 grossum
af dömubindum. Er þessi varning-
ur um 15 þús. króna virði. Talið
er að börn hafi koinizt inn í vöru
geymsluna og eru það vinsamleg
tilmreli til foreldra að láta rann-
sóknarlögregluna vita, ef vart verð
ur við að börn hafi áðurgreindan
varning undir höndum.
Fékk aðsvif
Laust fyrir kl. fjögur í gær vildi
það til á biðstofu tannlækninga-
stofu í Aðalstræti 16, að séra Sig-
urður M. Pétursson að Breiðaból
stað á Skógaströnd fékk aðsvif og
lézt skömmu síðar. Sjúkrabíll var
kvaddur til og var sr. Sigurður
fluttur á slysavarðstofuna en var
látinn þegar þangað kom. Séra Sig
urður var 39 ára gamall.
Barn fyrir bíl
Kl. 12 á hádegi í gær varð það
slys á gatnamótum Furumels og
Reynimels, að þriggja ára drengur
Sigurþór Skúlason, Reynimel 28,
varð fyrir bíl og meiddist. Sigurþór
var fluttur á slysavar’ðstofuna.
Meiðsli hans munu ekki talin al-
varleg.
Ölvaíur dettur af hjóli
og fótbrotnar
Um sexleytið á sunnudag ók lög
reglumaður fram á mann, sem
dottið hafði af hjóli á Suðurlands-
vegi skammt fyrir ofan Árbæ.
Hafði maðurinn dottið af hjóli, og
var undir áhrifum áfengis. Hann
var fluttur á slysavarðstofuna og
reyndist vera fótbrotinn.
Drukkinn maSur fyrir bíl
Á laugardagskvöldið varð drukk
inn maður fyrir bíl á mótum Laug
arnesvegar og Hátúns. Mun maður
inn hafa slasazt mikið, en ekki er
blaðinu nánar kunnugt um meiðsli
hans.
Féll á götu og meiddist
Það slys varð fyrir framan húsið
Hafnarstræti 23 Iaust eftir kl. 11 í
gærmorgun, að maður, Vigfús Guð-
mundsson, féll á götuna og meiddist
á fæti. Sjúkrabíll flutti Vigfús á
slysavarðstofuna.
Fulltrúakjör í Þrótti
á Siglufirði
Frá fré'ttaritara Tímans á Siglu-
firði í gær. — í gær fór fram alls'-
herjaratkvæðagreiðsla í Verka-
mannafélaginu Þrótti á Siglufirði
um fulltrúa á Alþýðusambands-
þing. Voru tveir listar í kjöri. A-
listi, borinn fra maf féla^sstjórn
og trúnaðarmannaráð: hlauf 212
atkvæði en B-listi, borinn fram af
nokkrum félagsmönnum hlaut 164
atkvæði.
Atkvæðatölur þessar sýna
greinilega að stuðningsmönnum
félagsstjórnarinnar hefur fjölgað
allverulega frá því stjórnarkjör
fór fram i félaginu síðast liðið
vor. B.
Krústjoff óíur
(Framh. af 16. síðu).
Hann heimtaði að Klna fengi
aðild að S.þ. ella væru af-
vopnunarviðræður gagnslaus
ar. Hann hótaði þvi, að Sovét
ríkin og fj<tgiríki þeirra
gengu úr S.þ. og þýddi það
dauðadóm yfir samtökunum.
Krustjoff varð sífellt æst-
ari er á ræðuna leið. Hann
kallaði Franco einræðisherra
á Spáni böðul spönsku þjóð-
arinnar, og hlaut þá áminn
ingu frá þingforseta, sem
sagði að níg um þjóðarleið-
toga væri ekki leyft í um-
ræðum á þingi S.þ. Krustjoff
kvaðst virða slíkt að vettugi,
sagði, að Wadsworth aðalfull
trúi Bandaríkjanna hefði bak
talað Kína og ekki verið á-
minntur. Krustjoff sagði síð-
an, að ef Bandaríkin hefðu
ekki haldið verndarhendi yfir
Formósu væri Chang Kai
Chek löngu kominn til hel-
vítis. Mun flestum hafa þótt
orðbragðið heldur ófagurt.
Þannig standa málin nú.
Framkoma Krustjoffs hefur
valdið miklum vonbrigðum.
Greinilegt sr, ag fyrir hpnum
vakir að veikja samtök S.þ.
og auka á kalda stríðið og
ringulreiðina í h^ipiinum. Vit
firringsleg framkoma og gíf
uryrði sýna og þjóðum heims
ins afstöðu þeirra austur frá
til friðar í heiminum.
Tæplega verður annars
vænzt en að Krustjoff hafi
hrundið frá sér öðrum þjóð
um með síðustu ræðu sinni
á allsherjarþinginu, því mann
kynið virðist nú eiga þá von
eina, að þjóðirnar fari að ráð
um Eisenhowers forseta og
efli samtök S.þ. og reyni þar
að vinna gegn hótunum og
ofbeldi Sovétleiðtogans, og
koma á sættum en ekki ringul
reið ein sog hans ósk virðist
vera. Vonandi skilst Krust-
joff, að hann hefur skotið
yfir markið og að hinar hlut-
lausu þjóðir fylgja ekki æs-
ingastefnu hans. Vonandi sér
hann, að það gagnar þjóð
hans ekki til frambúðar að
einangra sig og hóta öllu og
öllum — og síðast en ekki
sízt mætti Krustjoff skiljast,
að draumar um heimsyfirráð
eru f jarstæða. Mannkynið bið
ur um að tilgangslausum
skollaleik sé hætt, að menn
sættist og haldi friðinn. Til-
vera þess er undir þvi kom-
in — einnig Sovétríkjanna.
Krustjoff ætti að láta af ógn
unum sínum og ruddaskap
og sýna þessari staöreynd
fullt tillit.