Tíminn - 04.10.1960, Side 3
TÍMINN, þriðjudaginn 4. október 1960.
3
Nýjar ógnanir Krustjoffs:
Hammarskjöld fari frá eða
við beitum gagnráðstöfunum
Harður árekstur
á Suðurlandsv.
Hjón slasast er vörubíll lenti á sendifer'Öabíl
Nikita Krústjoff, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna fékk
framgengt þeirri kröfu sinni
að verða fyrstur á mælenda-
skrá á allsher jarþinginu í gær-
dag. Hann réðist harkalega á
Hammarskjöld og hótaði gagn-
ráðstöfunum, ef hann segði
ekki af sér. Auk þess kvað
hann gagnslaust að ræða við
Eisenhower forseta um af-
vopnunarmálin.
Krútsjoff var fram þá tillögu í
íyrstu ræðu sinni á allsherjarþing-
inu, að embætti framkvæmda-
stjóra yrði lagt niður sem slíkt en
í þess stað skipað þriggja manna
framkvæmdaráð. í ræðu sinni í
gær reyndi Krústjoff að skýra
þessa tillögu sína nokkuð nánar.
Hammarskjöld víki, eða ...
Krústjoff sagði að Hammar-
skjöld hefði misbeitt valdi sínu í
Kongó og farizt öll sfjórn mála þar
hrapalega illa úr hendi. Hann
skoraði á Hammarskjöld að segja
af sér þegar og sýna með því full-
an skilning á því, hversu málum
væri komið fyrir honum. Ef
Hammarskjöld segir ekki af sér,
sagði Krústjoff, munu kommún-
istaríkin gnpa til sinna gagnráð-
stafana. Mun forsætisráðherrann
hér vafalítið hafa átt við þá hótun,
að Sovétríkin segðu sig úr sam-
tökunum ásamt fylgiríkjum sínum
og stofnuðu sínar einka „Samein-
uðu þjóðir“
Krústjoff sagðist helzt vilja, að'
kommúnisti væri framkvæmda-
stjóri S.Þ. en hann vissi vel, að
Vestrveldin myndu aldrei fallast
á það. Hann hefði því viljað sætta
sjónarmiðin með tillögu sinni um
þviggja manna framkvæmdaráð
skipað einum manni frá Vesfur-
v eldunum, einum frá kommún-
istaríkjunum og einum frá hlut-
lausu ríki. Þetta væri gert til þess
ao efla S.Þ, sagði Krústjoff.
Loks vék Krústjoff að afvopn-
unarmálunum og kvað áríðandi að
allsherjarþingið tæki þau þegar á
dagskrá. Hins vegar kvaðst Krústj-
off ekki sjá að neinn árangur yrði
af því, þótt hann og Eisenhower
lokuðu sig inni tveir saman til
umræðna um þessi mál. Við getum
talað saman til eilífðar án þess að
komast að nokkru samkomulagi,
sagði Krústjoff. Þykir hann með
þessu hafa vísað á bug tillögu
ríkjanna fimm um að þeir hittist
Eisenhower og Krústjoff en full-
trúi Ghana, Nkrumah forseti, tal-
aði á allsherjarþinginu og mælti
ákaft með að fimmríkjatillagan
yrði samþykkt.
Hammarskjöld svarar:
Fer hvergí
Seint í gærk.veldi steig Dag
Hammarskjöld aðalritari í ræðu-
slólinn og svaraði ræðu Krústjoffs
Hann lýsti því yfir, að hann hefði
ekki í hyggju að segja af sér og
myndi sitja áfram. Segir í fregn-
um frá þinginu, að þessari ákvörð-
un Hammarskjölds hafi verið tek-
ið með dynjandi löfataki af þing-
heimi.
Þess er nú beðið með mikiili
eftirvæntingu, hver verði viðbrögð
Krústjoffs við þessari ákvörðun
Hammarskjölds. Flestir eru á einu
máli um það, að Krústjoff hafi
ekki sagt sitt síðasta orð í barátt-
unni fyrir því að koma Hammar-
sljöld burtu hvort sem Krústjoff
r.ú gerir alvöru úr þeirri hótun
s:nni, að Sovétríkin segi sig úr
samtökum SÞ.
Dróst út með
dragnótinni
Frá fréttaritara Tímans í Ólafs-
vík. — Á föstudaginn var varð það
óhapp á dragnótabátnum Fróða frá
Ólafsvík, að einn bátsverja festist
við nótina, er verið var að leggja
hana, dr’óst með henni út og marð-
ist við það á fæti. Hann náðist
strax um borð aftur án þess að
hann drykki nokkurn sjó, því að
hann mun hafa losnað fljótlega eft
ir að hann var kominn út fyrir
borðstokkinn. Marið hlaut hann
við að reka tærnar í bor’ðstokkinn
um leið og hann dróst út fyrir. JJ.
• •
Frú Onnu Klemens-
dóttur veittur
riddarakross
Forseti íslands hefur, að
tillögu orðunefndar, sæmt
frú Önnu Klemensdóttur,
fyrrv. forsætisráðherrafrú,
Laufási, Reykjavík riddara-
krossi hinnar íslenzku fálka-
orðu.
Fréttir frá landsbyggðinni
Afli tregur
Fáskrúðsfirði, 29. sept. —
Tíðarfar hefur verið hér ljóm
andi gott — einkum til lands
ins. Gæftir hafa verið frem
ur stopular og afli tregur. —
Héðan stunda róðra 5—6 þil-
farsbátar og nokkrar trillur.
Slátrun á að hefjast upp úr
helginni og v*3rður slátrað
2—300 fjár. S.H.
Rigning og reytingsafli
Hellissandi, 29. sept. — Tíðar
far hefur verið stirt að undan
fömu hér um slóðir, rigninga
samt og hvassviðri á stund-
um. Tveir hátar hafa róið héð
an með línu undanfarinn hálf
an mánuð og haft reytings-
afla, 3—5 tonn í róðri. Einn-
ig stendur yfir sauðfjárslátr
un, en hún er ekki mikil á
Hellissandi, aðeins um 1000
fjár. M.P.
SlátratS á Barðaströnd
Patreksfirði, 29. sept. — Sauð
fjárslátrun verðnr meiri á
Barðaströnd i haust en
nokkru sinni fyrr og slátrað
5—6 þús. fjár. Slátrunin
hófst í dag, og er slátrað á
tveimur stöðum, Fossi og
Brjánslæk á Barðaströnd en
kjötið flutt á bifreiöum til
Patreksfjarðar. Það tafði
slátrunina að viðbygging
stendur yfir við frystihúsið
á Patreksfirði og var þvi ekki
hægt að taka við kjötinu fyrr
en nú. í haust er engin sala
á líflömbum af Barðaströnd,
en hún hefur verið mikil und
anfariii ár og sláturfé því ver
ið færra en nú. S.J.
Nýr bátur væntanlegur
Patreksfirði, 29. sept. —
Héðan eru menn á föurm um
þessar mundir til að sækja
nýjan bát sem byggður hef-
ur verið fyrir Hraðfrystihús
Patreksfjarðar í Austur-Þýzka
landi. Finnbogi Magnússon
verður skipstjóri og fer hann
utan við fimmta mann til að
vitja bátsins, en heim ern
þeir félagar væntanlegir á
bátnum um miðjan næsta
mánuð. Báturinn er 100 lest
ir, og gerir Hraðfrystihús
Patreksfjarðar út fjóra báta
þegar hann hefur bætzt í hóp
inn. S.J.
3 bleikíaxar
Vopnafiröi 29. sept. — Göng
um er nú lkið og gengu þær
vel, en smölun var allyfir-
griþsmikil. Tíð hefur verið
með aftarigSum góð í sumar
og var féð þvi mjög dreift um
afrétti.
í fyrstu skilarétt komu 15.
000 fjár, en fyrirhugað er að
slátra 17.000 alls eða 600 á
dag.
Tveir þilfarsbátar og tvær
trillur stunda róðra héðan og
leggja upp hjá frystihúsi kaup
félagsins. Afli hefur verið
sæmilegur.
3 bleiklaxar hafa veiðst
hér í Hofsá í Vopnafirði. 1 í
net í Ásbrandsstaðalandi og
2 á stöng í fellslandi. K.B.
Smalamennska í
Mjóafirðí
Mjóafirði, 27. sept. — Göng
ur eru nýlega hafnar í Mjóa
firði, og hefur verið smalað
sunnanmegin fjarðarins, en
sláturfé er rekið þaðan til
Norðfjarðar. í Mjóafirði hefst
ekki slátrun fyrr en í næstu
viku. — Heyskap lauk seint
hér, og hefur það tafið fyrir
haustverkum. Menn eru þann
ig enn að taka upp úr kart-
öflugörðum, og er uppskera
dágóð. V.H.
Kl. þrjú á laugardag varð
harður árakstur á SuSurlands-
vegi skammt fyrir neSan Ár-
bæ. Rákust þar á lítill sendi-
ferSabíll, R 4189 og vörubíll,
R 3718. Hjón sem voru í sendi-
ferSabílnum. Jón Dan, ríkis-
féhirSir og kona hans, Hall-
dóra Eiíasdóttir, slösuSust
bæSi mikiS viS áreksturinn.
Ái'eksturinn varð rétt eftir að
bíll ríkisféhirðis hafði beygt inn
á Suðurlandsveg á leið út úr bæn
um.
Hægra megin
Vörubíllinn var á leið í bæinn
og segir vitni að hann hafi ekið
fram úr bil sínum tii móts við
hitaveitU'Stokkinn. Segir vitnið að
vöru’bíllinn hafi síðan haldið sig
hægra megin á veginum allt þar
til árekstur'inn varð og var það
talsverður spölur.
Þegar bílarnir rákust saman, var
ferðin á vörubílnum slík að hann
ýtti sendiferðabílnum kippkorn á
undan sér. Lagðist sendifer'ðabíll-
inn saman við áreksturinn og Hall
dóra Elíasdóttir kastaðist út. Jón
Dan klemmdist fastur í bílnum
sökum þess að vélin gekk aftur
við áreksturinn og varð fótur Jóns
á milli vélar og sætis. Varð að
skríða inn um glugga á sendiferða
þílnum til þess að losa Jón.
Slösuðust mikið
Hjónin slösuðust mikið og voru
þau flutt í sjúkraþíl á slysavarð-
stofuna og þaðan skömmu síðar á
Landsspítalann. Bæði voru hjónin
brotin, en með meðvitund. Ekki
reyndist unnt að gera að beinbrot-
um Jóns sökum höfuðmeiðsla.
Mun báðum hjónunum hafa liðið
vel eftir atvikum í gær.
Þrjár stúlkur slasast
í árekstri á sunnudag
Bíll ók á brúarhandrið á Þingvallavegi
Um hálf fimm leyfið á
sunnudagskvöld var lögregl-
unni í Reykjavík tilkynnt að
slys hefði orðið við brúna við
Leirvogsvatn á Þingvallavegi.
Var stórum sex manna bíl ekið
þar á brúarhandriðið og
meiddus allir sem í bílnum
voru meira og minna.
í framsæti bíisins voru þrjár
stúlkur og urðu þær verst úti, en
þrír piltar í aftursæti sluppu með
minni'háttar meiðsli. Var einn
þerira, Frank Benediktsson,
Njörvasundi 40, fluttur í sjúkrabíl
ásamt stúlkunum í slysavarðstof-
una, en hann hafði meiðzt á hendi
og skorizt á vör.
Bifreiðin stórskemmd
í Slysavarðstofuna voru enn-
fremur fluttar Hanna Gunnarsdótt
Norræn listsýning
hér að ári
í september næsfa ár verður
haldin hér á landi samnorræn list-
sýning, og verður það trúlega
stærsta listsýning sem hér hefur
verið haldin. Slíkar norrænar sýn-
ingar eru haidnar annað hvert ár
og til skiptis á Norðurlöndum.
| Siðasfa sýning var haldin í Dan-
mörku, en 1948 var slík s'ýning
síðast haldin hér á landi. Það eru
samtök norrænna listamanna,
Nordisk kunsfforbund, sem gang-
ast fyrir þessum sýningum, og er
urdirbúningsnefnd þeirra stödd
hér á fundi um þessar mundir. í
r.efndinni eiga sæti Tage Hedquist
frá Svíþjóð, Sören Sten John-
sen frá Noregi, Kaj Mottlau frá
Danmörku og Áge Hellman frá
Finnlandi og íslendingarnir Val-
týr Pétursson, Hjörleifur Sigurðs-
son, Sigurður Sigurðsson og Þor-
valdur Skúlason. Á sýningunni
verða allar greinar myndlistar, en
synendur 15—20 frá hverju landi.
Verður sýningin til húsa bæði í
Listasafni ríkisins og Listamanna-
skálanum.
ir, Smáragötu 9, sem ók bílnum,
Kristín Þorvaldsdóttir, Rauðalæk
73 og Maria Hadna, norsk stúlka.
Var hún talin hafa meiðzt mest
þeirra sem í bílnum vor'u og var
flutt í Hvítabandið skömmu eftir
komuna til Reykjavíkur. Hinar
stúlkurnar munu hafa marizt og
tognað.
Bíllinn stórskemmdist við árekst
urinn O'g varð að fá bíl frá Vöku
til að flytja hann til bæjarins.
Rýrir dilkar og
rjúpnaleysi
— En veftur gott og kart-
öflur spretta vel
Fosshóli — 28. sept. — Hér er
sólskin og sunnanvindur upp á
hvern dag, en því miður ekki mikið
um fréttír. Síðast þegar blaðið
hafði samband við mig, bjóst ég
við að fjárhöld yrðu í góðu lagi
og dilkar alls ekki verri en venju-
lega, og markaði það af mjög góðu
tíðarfari í vor og sumar. Nú verð
ég að éta þetta allt ofan í mig, því
að þegar farið er að smala, er
reyndin sú, að dilkarnir eru hálf-
gerðir vesalingar og a. m. k. tveim-
úr kílóum rýrar'i en venjulega.
Þetta á við um alla Þingeyjarsýslu,
kannske nokkuð- misjafnt eftir
bæjum þó. Ekki vita menn um
fullgilda skýringu á þessu, nema
ef vera kynni, að gróður hafi söln-
að snemma, vegna þess hve
snemma greri í vor. — Rjúpa sést
ekki frekar en glóandi gull, og
hægt er að fara upp um öll fjöll
án þess að sjá tangur né tetur af
henni. Ilins vegar er kartöfluupp-
skera með allra bezta móti.
FIosi.