Tíminn - 04.10.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 04.10.1960, Blaðsíða 11
TÍMINN, þriðjudagúw 4. október 1960. 11 Sítrónur og fegurö Töfradrykkuir til að viðhalda grönnu vaxtarlagi eða öðlast það, og bæta meltinguna: Kreist er úr hálfri sítrónu í glas af volgu, •ekki of 'heitu vatni og drukkið úr glasinu í smásopum fyrir morg- unverð. Þessu skal þó hætt um sinn eftir nokkrar vikur. Sítrónusafi er sérstaklega sval- andi í hitum vegna sýrumagnsins. En þegar kalt er í veðri og hráslagalegt, er fátt betra en sítrónusafi, með þeim mun þó, að nú er hann drukkinn heitur. Mihi máltíða getur hann hjálpað þeim, sem vilja, að spara hita- einingar. Jafnvel fætur'nir kunna að meta sítrónusafa. Hætti mönnum til fótraka, má núa iljarnar með sítrónusafa kvölds og morgna. Þeir, sem gjarnt er að fá þvalar hendur, geta sömuleiðis strokið Vilji menn öðlast fagrar hend- ur, er ágætt að núa þær með sítrónusafa. Þær verða þá hvítar og sléttar. Sama máli gegnir um hrjúfa olnboga. Þó er ágætt að núa feitu næringarkremi í húð- ina á eftir, í báðum tilfellunum. lófana með sítrónusafa. Sítrónur í hárið? Jú reyndar. Sítrónusafi er frægur fyrir fegr- andi áhrif, sé hann látinn í skol- vatnið við hárþvott. Þá þarf að sía safann fyrst, til að ekki kom- ist tægjur úr aldinunum í hárið. Það þykir hæfa að skola hárið þannig einu sinni á mánuði. Vilji menn sótthreinsa munn sinn og kok, nægja nokkrir drop ar af sítrónusafa í vatnið, sem skolað er með. Sítrónuberkina má svo leggja í vatn að kvöldi, og er þá fengið tilvalið þvotta- vatn fyrir andlit og hendur næsta morgun. Þeir eru óteljandi hér, sem annars staðar, sem búa i einu herbergi. Stálpuð börn á heimili foreldra sinna, námsmenn annars staðar frá, sem leigja herbergi, ein stæðingar. Það má .gera her bergið sitt vistlegt með litl um tilkostnaði og láta það koma að miklu leyti í stað íbúðar, ef dálitlu hugmynda flugi er beitt. Eitt eru þó flestir í vandræðum með, en það eru rúmfötin. Yfirleitt þarf að nota sófann, sem sofið er á, til að sitja á á daginn, og ekki eru allir svo lánsamir að eiga svefn- sófa með geymsluhólfi, sem sökkva má rúmfötunum í á daginn. Alltaf er hálf leiðin legt að troða þeim í klæða- skápinn, það fer hvorki vel með fötin né rúmfötin. Sum ir reyna að rúlla þeim sam an á sófanum upp við vegg, og breiða rúmteppi yfir, en um leið og einhver hefur hallað sér upp að rúllunni, er hún komin úr skorðum. Hér eru sýndar þrjár leið ir til að koma rúmfötunum fyrir án þess að þurfa rúm- frek húsgögn. Plássins vegna er þessi lausn hentugust. Tíl þess þarf að láta smíða sér skúffu undir sófann. Má þá annað hvort hafa hana á litlum hjólum, til að auð- velda sér að draga hana út og inn, eða láta festa hana neðan við sófann á spori, sem henni er síðan rennt eftir. Flestir hafa einhvers kon ar skáp eða borð við höfuð- enda sófans. Þá má láta smíða skáp af sömu hæð og dýpt, sem komið er fyrir eins og myndin sýnir, og hafa hjarir á skáphurðinni í sófahæð, svo að opna megi skápinn án þess að færa sóf ann frá, og smeygja rúmföt unum inn fyrir. Þriðja leiðin er ódýrust, en tíma- og rúmfrekust. Engu að síður getur hún ver ið skemmtileg. Víða standa gömul ónotuð ferðakoffort uppi á geymsluloftum. Er ekki tilvalið að nota slíka kistu, ef fyrir hendi er? Til þess þarf að vísu að mála hana eða líma plastdúk á hana, helzt þá í stíl við eitt- hvað annað í herberginu, en árangurinn launar fyrirhöfn ina. Rúmfatavandamálið Skyrtublússutízkan enn við líði Dálítið strangari skyrtublússustíll en verið hefur virðist vera að ná vinsældum. Áhnepptu kragahorn- in, axlaspælar og spennur gera kjólinn sportlegan og unglegan. Þessi kjóll er úr Trevira-Gabardin. Þetta er mjög kvenlegt afbrigði skyrtublússukjólsins, alhnepptur kasakkjóll úr brúnsvörtu kamm- garn-pepita-efni. Honum fylgir trefill úr sama efni. Þessl belni, fellti kjóll er úr brúnu tropical-efni. Hann er tek- inn saman i miðju með lauslega bundnu belti. Sérlega hentugur fyrir grannar, smávaxnar konur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.