Tíminn - 21.10.1960, Blaðsíða 16
Föstudaginn 21. október 1960.
237. bla'íí.
Veglegasta skólahús
ins tekið í notkun
lands-
í gær
Nauðsyn aö stofna hæli
fyrir taugaveikluð börn
Á morgun, fyrsta vetrardag,
er hinn árlegi barnaverndar-
dagur. Þá efnir Barnavernd-
arfélag Reykjavíkur til merkja
sölu á götum bæjarins, og
cinnig verSur rit félagsins,
Sólhvörf, selt Allur ágóði fé-
lagsins að þessu sinni rennur
i byggingarsjóð að hæli fyrir
taugaveikiuð börn.
Stjórn .Barnaverndarfélags
Reykjavíkur ræddi við frétta
menn í gær í þessu tilefni, og
hafði Matthías Jónasson, for
maður félagsins, orð fyrir
henni. Barnaverndarfélag
Reykjavikur var stofnað fyrir
ellefu árum, og kvað dr. Matt
hías félagið hingað til hafa
lagt megináherzlu á að styrkja
ungt fólk til náms í þeim grein
um kennslu- og uppeldisfræða
er varða veikluð, vanþroska og
afbrigðileg börn, en mikil
þörf hefur verið á sérmennt-
uðu fólki á þessum sviðum.
Eru sumir styrkþegar félags-
ins þegar komnir til starfa, og
mun félagið halda áfram svip
uðum styrkveitingum.
Hæli fyrir taugaveikluð börn
Þá sagði dr. Matthías að það
hefði lengi verið áhugamál fé
lagsins að upp kæmist sérstök
geðverndardeild fyrir börn.
Slik deild er nú tekin til
starfa við Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur undir stjórn Sig
urjóns Björnssonar sálfræð-
ings. Þessi deild vinnur hið
þarfasta verk fyrir börn sem
á einhvern hátt eru afbrigöi-
leg, en þó er hún ekki full-
nægjandi. Mörg taugaveikluð
börn verða að losna úr dag-
legu umhverfi sínu ef með-
ferð sérfræðings á að koma
þeim að gagni, og því er nauð
syn að koma upp sérstöku
hæli fyrir slík börn. Þar yrðu
börn tekin til skammrar vist-
ar undir handleiðslu sérmennt
aðra lækna og sálfræðinga,
sem þá héfðu færi á að fram
fylgja aðgerðum sínum ótrufl
aðir af daglegu umhverfi
barnsins. — Þetta er brýnt
nauðsynjamál, og hefur Barna
verndarfélag Reykjavíkur þvi
ákveðið að beita sér fyrir
stofnun byggingarsjóðs að
slíku hæli. Verður sjóðurinn
stofnaður á morgun, og hyggst
félagið leggja fram ekki
minna en 100 þúsund krónur
í upphafi.
Merki og rit
Á morgun verða merki
Barnaverndarfélags Reykja-
vikur seld á götum bæjarins.
Einnig verður selt rit fyrir
börn, Sólhvörf, en félagið hef
ur gefið það út árlega frá
stofnun þess. Vilborg Dag-
bjartsdóttir kennari hefur
séð um útgáfu ritsins að
þessu sinni, og er það vel úr
garði gert í hvívetna. Allur á
góði af sölu rits og merkja
rennur í byggingarsjóð hins
fyrirhugaða hælis, og heitir
félagið á bæjarbúa að leggja
nú góðum málstað lið. — Þess
má geta að lokum að alls
starfa nú tíu barnaverndar-
félög á landinu, og hafa þau
mörg unnið gott starf. Fyrsti
vetrardagur er árlegur fjár-
söfnunardegur allra þeirra.
—ó.
211 nemendur sitja þar á skólabekk
ÞaS var hátíðablær á börn-
um og fullorðnum við skóla-
setningu Mýrarhúsaskóla í
gærdag. Þá var skól-
inn settur í fyrsta sinn í hin-
um nýju og veglegu húsakynn
um. í setningarræðu sinni
lýsti skólastjórinn því fyrir
börnunum að þeim væru fal-
in mikil verðmæti til varð-
veizlu þar sem var hið nýja
skólahús.
Nýi skólinn er stór og vönd
uð bygging sem fullnægir kröf
um tímans um hagræði og feg
urð.
Kvikmyndir og landafræði
Á tveimur hæöum skóla-
hússins eru sjö skólastofur og
vakti það athygli blaðamanna
hvað þær voru bjartar og vist
legar. Eru þær útbúnar ýms-
um þægindum svo að öll börn
in hafa full not af kennsl-
unni. í hverri stofu er sérstak
ur krókur þar sem kennarinn
getur sinnt þeim börnum sem
hafa dregizt aftur úr og jafn
framt getur hann fylgzt með
öllum bekknum.
Ein stofan er útbúin fyrir
landafræði og sögukennslu og
er hægt að sýna þar kvikmynd
ir og skuggamyndir. Er kvik-
myndavélunum komið fyrir í
sérstökum klefa. — Loftið í
kennslustofum og göngum er
furuklætt og eyðir hljóði svo
bergmál er útilokað. — Guð-
mundur Guðjónsson arkitekt
hefur gert teikningar af hús-
inu.
Miklar skyldur
í setningarræðu sinni brýndi
skóiastjórinn fyrir börnunum
að ganga vel um húsakynnin
og krota ekki né rispa á veggi.
Hann kvað nemendur hafa
miklar skyldur að rækja gagn
vart skólanum og kvaðst vona
að nemendur reyndust menn
til að uppfylla þær skyldur.
Nýja skólahúsið væri eitt allra
glæsilegasta skólahús lands-
ins og þótt víðar væri leitað.
Jafnframt minntist Páll Guð
jónsson gamla skólahúss-
ins sem reist var fyrir 50 ár-
um af engu minni stórhug og
rausn en hið nýja. Þá bar
skólastjórinn fram þakkir til
þeirra sem stuðlað hefðu helzt
að því að húsið rlsi. Nefndi
hann þar sveitarstjórann, Jón
Tómasson og Erlend Einarsson
eftirlitsmann. Að lokum bað
hann skólanum allrar bless-
unar guðs og lýsti hann sett-
an.
Skólanum bárust ýmsar góð
ar gjafir sem sanna hlýhug
hreppsbúa í hans garð. Jón
Guðjónsson á Blómvöllum
færði skólanum falleg og til-
komumikil hreindýrshorn. Þá
færði Kjartan Einarsson á
Bakka skólanum steinasafn
að gjöf og Ólöf Pétursdóttir
lét fjölskrúðugt eggjasafn af
hendi rakna.
211 nemendur
í skólanum eru alls 211 nem
endur, þar af 172 í barnaskól
(Framhald á 15. síðu).
PÁLL GUÐJÓNSSON
skólastjóri
Við byrjum með myndasögur í lií á sunnudaginn