Tíminn - 17.11.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.11.1960, Blaðsíða 1
 Áskríftarsíminn er 12323 Fimmtudagur 17. nóvember 1960. r Sfe ifePfíT Nóbelsverðlauna? bls. 9. 260. tbl. Ólafur Thors upplýsti á Alþingi í gær að Ríkisstjórnin ætlar að fara á bak við Alþingi með landhelgismálið þrátt fyrir hátíðlega gefin loforð TOGURUM HAFNI zim"m*1*** FIRÐINGA LAGT Flökunarvélar innsiglaðar — Viðreisnin í verki í heimabæ i ^ sjávarútvegsmálaráðherra mmmmmmmmmm Við bryggju í Hafnarfirði liggja tveir togarar bæjarút- gerðarinnar bundnir. Það eru Maí, hinn nýi og glæsilegi og Júní. Maí hefur legið þarna í viku en Júní eina tíu daga. Togarinn Ágúst er á leiðinni til hafnar með farm, og á- lcveðið mun að leggja honum líka. Fjórði togarinn, Keilir, sem Axel Kristjánsson gerir út, er hættur að leggja upp í Hafnar- firði, vegna þess að þar stendur' á honum 28 þús. kr. hafnargjalda- skuld, og bæjartogararnir munu skulda í hafnargjöld um hálfa milljón. Þetta er hálfur togarafloti Hafnfirðinga. Því hefur verið við borið, að togurunum hafi verið lagt vegna aflaleysis, en það er aðeins viðbára. Afli þeirra hefur verið sæmilegur, og þeir hafa komið með góða farhia að landi, og fiskurinn verið unninn í fisk- verkunarstöðvum bæjarins, þar sem atvinna hefur verið allmikil. InnsiglatSar vélar í hraðfrystihúsi bæjarútgerð- arinnar er nú hins vegar svo komið að flökunarvélar hafa verið innsiglaðar, og er þar nú harla dauflegt. Er svo komið, að nokkurt atvinnuleysi er orðið í bænum, enda er fiskverkunin ein helzt atvinnubót í bænuni. í umræðum, sem urðu utan dagskrár í gær á Alþingi, vegna fyrirspurnar Eysteins Jónssonar til forsætisráð- herra, hvað gerzt hefði í við- ræðunum við Breta og hvers vegna Alþingi fengi ekkert að vita um gang málsins, þrátt fyrir fréttir í brezkum blöð- um höfðum eftir oninberum WMWIMWWHWH heimiIdum f Breí{aSdi. upp. lýsti forsætisráðherra það, að ríkisstjórnin ætlaði ekki að hafa samráð við Alþingi um málið og gang viðræðnanna. Reyndi Ólafur Thors for- Þrír rátSherrar Bæjarútgerðin í Hafnarfir'ði hef ur verið eitt helzta stolt Alþýðu- flokksins, og forystumenn hans (Framhald á 2. síðu). sætisráðherra að snúa út úr þeirri yfirlýsingu, sem hann hafði gefið á þingsetningar- daginn, að haft yrði samráð við Alþingi um triðræðurnar við Breta. Reyndt hann að fúlka yfirlýsingu sína á þann veg, að hann hefði aðeins sagt að Aiþingi yrði tilkynnt um málið, þegar úrsl'itaá- kvarðanir hefðu verið teknar. Forsætisráðherra neitaði því að nokkrar ti/lögur hefðu farið milli brezku og ísl. ríkis- stjórnarinnar, Það væru slúð- (Framhald á 2. síðu). Eftir dönsku þingkosningarnar: Ný ríkisstjórn jafnað- armanna og radikala? Ól. Thors vissi um skeytið áSur en það var sent Nato I Forsætisráíherra vartS á í ósannindamess- unni á Alþingi í gær Ólafur Thors sagði í umræðunum í gær að umræð- urnar á Aiþingi um samningaviðræðurnar við Breta hefðu snúizt stjórnarandstæðingum í óhag, þegra Ijóstr- að hefði verið upp efni skeytisins frá 18. maí 1958. í skeyti þessu var eins og kunnugt er, látið í Ijós við Nafo, að hugsanlegt væri að Íslendíngar væru fáanlegir til lítilsháttar tilhliðrunarsemi um framkvæmd útfærsl- unnar, ef fyrir lægi áður afdráttarlaus viðurkenning á rétti íslands til einhliða útfærslu. Ólafur Thors kall- aði þetta skeyti tilboð um samninga og tilslakanir. — Var á honum að skija að þessar „uppljóstranir" hefðu breytt málinu og afstöðunni til samninga við Breta. Skömmu síðar varð forsætisráðherra á í ósanninda- messunni. Það fer oftast svo fyrir þeim, sem halda - (Framhald á 2. síöu). Kommúnistar þurrkaÖir út af þingi RéttarsambandiÖ svo og Kaupmannahöfn í gær. — Einkaskeyti til Tímans: — Ýms óvænt tíðindi gerðust í dönsku þingkosningunum í gær og miklar breytingar verða í þjóðþinginu. Erik Eriksen fyrrv. forsætisráð- herra lét svo ummælt í nótt, að hinn raunverulegi sigurveg ari kosninganna væri Axel Larsen, leiðtogi hins nýja sósíalistíska þjóðarflokks, en flokkur hans hlaut nú 11 þingmenn. Eftir sigur jafnaðarmanna er talið víst að Kampmann verði falið að mynda ríkis- stjórn. Enn hefur Kampmann ekki beðizt lausnar. Ástæðan fyrir því mun vera sú, að Radikaliflokkurinn, en Kam- mann mun hafa farið þess á leit, að hann héldi stjórnar samstarfinu áfram, mun hafa beðið um frest til að svara, en það mun hann gera á morg KAMPMANN. un. Kampmann gekk í dag á fund konungs, en hann bað stjórnina að sitja þar til ný stjórn hefði verið mynduð. Aðils. Lokaúrslit urðu þau, að jafnaðarmenn hafa nú 76 þingsæti (höfðu 70); Radi- kalir 11 (14); íhaldsflokkur inn 32 (30); Réttarsamband- ið beið mikið afhroð og tap- aði öllum þingmönnum sín- um 9 að tölu, en Réttarsam- bandið var stjórnarflokkur. Hinn ný iflokkur Lxeis Lar- sen fékk 11 þingmenn eins og fyrr er sagt; kommúnistar biðu mikið afhroð og voru nú þurrkaöir út úr þinginu (höfðu 6 þingmenn áður); Óháðir unnu á og fengu 6 þingmenn (0) og Slésvíkur- flokkurinn fékk einn mann kjörinn (1). Hver er orsök linkindar landhelgisgæzlunnar? - bls. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.