Tíminn - 26.11.1960, Síða 3
TÍMINN, laugardaginn 26. nóvember 1960.
3
Fró Kennedy eigna'ðist son fyrir tímanin:
Fyrsta ungbarnið
í Hvíta húsinu
Kennedy var rétt kominn til Florida, e sneri
,vií á augahrag'Si
Washington—NTB, 25.11
Hin unga Jacqueline Kenn-
edy, eiginkona Johns Kenn-
edy, verðandi forseta Banda-
ríkjanna, fæddi son í nótt —
nokkru fyrir tímann þvi aS
ekki hafði hún átt von á sér
fyrr en um miðjar. desember.
Barnið var tekið með keisara-
skurði um miðja nótt og líður
barni og móður vei,
Flugvél Kennedys hafði
vart lent á flugvellinum
skammt frá Palm-Beach á
Florida er hinn verSandi for
seti fékk fréttina frá Was-
hington og ekki liðu nema
37 mínútur þar til flugvélin
var komin á loft aftur og
stefndi til Washington með
Kennedy innanborðs.
Sjóherinn
tekur við
Ríkisstjómir íslands og
Bandaríkjanna hafa rætt um
breytingar á skipulagi varn-
arliðs Bandaríkjamanna, og
hefur samkomulag orðið um
að sjóher Bandarikjanna
skuli taka að sér rekstur og
gæzlu þeirra vajnarstöðva,
sem veriS hafa á íslandi en
flugherinn hefur annazt und
anfarið- Breyting þessi er
talin æskileg vegna vaxandi
þátttöku flota Bandaríkjanna
1 vörnum norð-vesturhluta
varnarsvæðis Atlantshafs-
bandalagsins.
Gert er ráð fyrir að skipu-
lagsbreytingar þessar verði
gerðar næsta sumar, og tekur
þá flotaforingi um leið við
stjórn varnarliðsins á íslandi.
Utanríkisráðuneytið,
Rvík, 25. nóv. 1960.
Vel fagnað
í Washington var Kennedy
fagnað af ljósmyndurum og
blaðamönnum, en hann hrað
aði för sinni til sjúkrahússins
og var innan skamms kom-
inn að beði konu sinnar til
að sjá hinn nýja erfingja.
John Kennedy mun nú dvelj
ast um þriggja vikna tíma í
Washington, en þá mun hann
enn fara suður til Florida með
fjölskyldu sinni allri, sem nú
hefur stækkað að mun. Hinn
ungi Kennedy mun verða
skírður eftir föður sínum og
nefndur John.
Þctö hefu. aldrei áður kom
íð fyrir í amerlskri sögu, að
forseti eða nýkjörinn forseti,
sem ekki hefur sezt i,valda
siólana hafi eignazt Toarn á
valdatímabili sínu.
Þrátt fyrir það, að leynilög
reglumenn fyigdu frú Kenne
dy eftir er henni var ekið
með hraði að sjúkrahúsinu,
tókst ljósmyndara nokkrum
að fylgja henni eftir inn og
ná af henni myndum. Lögregl
Vegurinn miðaður við
80-100 kílómetra hraða
Hámarkshra'ði á þjó'Svegum íslands er 70 km. á klst,
í sumar hefur verið unnið
við mælingar fyrir nýjum vegi
frá Hafnarfirði til Keflavíkur.
Vegstæði er nú ákveðið frá
Hafnarfirði suður fyrir Hvassa
hraun.
Á Hvaleyrarholti sunnan Hafn-
avfjarðar tsngist þessi væntanlegi
vegur við áður byggðan veg ofan
Kafnarfjarðar. Frá Hvaleyrarholti
og suður undir Hvassahraun ligg
ur veglínan norðan núverandi veg
ar. Val vegstæðisins ákvarðast
fyrst og fremst af því sjónarmiði
að vegurinn komi ekki í bága við
hugsanlega flugvallarbyggingu í
Kapelluhrauni.
Framkvæmdir hófusf í dag,
föstudaginn 25. nóvember 1960,
við undirbyggingu vegarins. Fyrst
um sinn verður unnið í Kapellu-
í dag kl. 2 e. hád verður al-
menningi opnuð sovézk bóka-
sýning að Hallveigarstíg 10
hér í bæ, og er það fyrirtækið
ístorg h.f., sem gengst fyrir og
sér um sýninguna Tilgangur-
inn með henni er að kynna hér
á landi betur en áður hefur
verið gert sovézka bókaútgáfu
á tungumálum, sem margir
islendingar geta esið.
Útgáfa Sovétríkjanna á bókmennt
um sínum á tung-umálum vestur-
■ landaþjóða hefur farið mjög í vöxt
| hin síðari ár og er orðin mjög
J mikil. Eru horfur á að hún muni
j enn vaxa ört. Samskipti íslendinga
\ við sovétþjóðirnar eru á síðari ár-
; um orðin töluvert mikil, og hér á
j landi er mikill áhugi fyrir því að
| kynnast þessum þjóðum. Það verð
: ur einmitt á auðveldastan hátt
i gert með bókum. Bókaútgáfa þessi
j er á ýmsum sviðum. Flestir munu
! ef til vill hafa mestan áhuga fyr’ir
klassískum skáldverkum rúss-
neskra höfunda, og er ágætt tæki
færi að ná í slíkar bækur í sam-
bandi við þessa sýningu. Fræðirit,
m. a. um sósíalisma, taka þar nokk
urt rúm, en einnig vísindarit,
barnabækur, listaverkabækur o. fl.
greinir. Einnig er að geta hljóm-
platna með miklu úrvali af klass
ískum • tónverkum og ftímerkja
bæði notaðra og ónotaðra.
Lágt verð
Bækurnar eru með afbrigðum
ódýrar og er það sumpart vegna
þess, hversu þær eru gefnar út í
stórum upplögum og seldar um
allan heim. Sumar bækurnar eru
til sölu, en allar er hægt að p'anta
og fá þær að sýningunni lokinni.
Af verðlistanum kemur í ljós, að
aðeins ör’fá slórverk fara yfir 50
umi tókst þó aS ha'ndsama
manni'n og filmur hans voru
gerðar upptækar. Kennedy-
hjónin áttu áður eitt barn,
þriggja ára gamla stúlku, og
varð einnig að gera keisara
skurð er hún fæddist. John
Kennedy hafa borizt heilla-
óskaskeyti I dag hvaðanæva
að úr heiminum.
hrauni og við kaflann frá Kapellu
hrauni að Hvaleyrarholti.
Samkvæmt þeim mælingum og
t’.llögum, sem fyrir liggja, ætti
vegurinn til Keflavíkur að geta
s'.ytzt um tæpa 2,0 km. Vegalengd
i’.i Hvaleyrarholt—Keflavík, yrði
þá um 33, 5 km. í stað 35,5 km.
Breidd vegarins verður 11,50 m.
að ofan. Steypt akbraut 7,50 m. á
breidd og 2.0 m. breiðir vegkant
ar hvoru megin. Beygjur verða
a.lar mjög rúmar, minnsti radíus
í beygju er S00 metrar og vegur-
inn að öðru leyti miðaður við að
chætt sé að aka með 80—100 km.
hraða á klst.
Áætlanir um kostnað við vega
framkvæmd þessa liggja ekki fyr
ir, enda nafa undirbúningsmæl-
ingar staðið yfir fram til þessa
dags, og er beim raunar ekki lokið
enn að fullu.
kr., svo að hér er um að ræða ein-
stakt tækifæri fyrir þá, senr kynna
vilja sér bókmenntir þessara
merkilegu þjóða. Bækurnar eru
langflestar á ensku, en einnig er
nokkuð á sænsku og þýzku. Sýn-
ingin verður opin í næstu viku
kl. 10—10 dag hvern.
Raupmannahöfn i gær
Einkaskeyti til Tímans.
Dansk-íslenzka félagið
(Dansk-lslandsk Samfund) hélt
aðalfund i Kaupmannahöfn I
gær. Eftir venjuleg aðalfund-
arstörf var gengið til stjórnar-
kosningar og var fyrri stjórn
endurkjörin að undanteknu
því, að próf Jón Helgason
baðst undan endurkjöri.
Stjórnina skipa því próf.
Einar Meulengracht form.,
Kaj Pedersen, hæstaréttarlög
maður, varaform., en aðrir í
stjórn eru þeir M. Bartels,
bankafulltrúi, próf. Thor
Cramer, stjórnarráðsfulltrúi,
Carstei Nielson ritstjóri, próf.
Nielg Nielsen og dr. phil Ole
Widding.
Á fundinum voru ræddar
áætlanir fyrir næsta ár, m.a.
var rætt um að bjóða dr. Páli
ísólfssyni að koma og flytja
fyrirlestur um íslenzka tón-
list. Enn fremur var rætt um
hugsanlega íslenzka listsýn-
ingu, þar sem sýnd yrðu um
100 listaverk og fluttir yrðu
fyrirlestrar af þekktum is-
lendingum. Formaður skýrði
frá því, að Halldór Lax.res
Frá Hvaieyrarholt) suður að
Stapa liggur vegurinn á samfelldri
hraunbreiðu. Lengd vegarins á
þessu svæði verður 22,4 km. Á
samtals 2,3 km. kafla liggur veg-
urinn um apalhraun (1,2 km. í
Kapelluhrauni og 1,1 km. í Af-
srapahraunri og er þar hægt að
r.ota jarðýtur við ur.dirbyggingu
\egarins. Á hinum köflunum 20,1
km„ er Vegarstæðið helluhraun
og verður þvi að trytja að nær
aiit efni, sem þarf ti) fyllinga. Að-
keyrt fyllingarefni a helluhrauns
keflanum mun verða milli 450.000
cg 500.000 rúmm., en auk þess
þ?rf um eða yfir ÍUO.OOO rúmm.
af frostheldu burðarlagsefni í
veginn yfir Stapann.
Bráðkvaddur
í strætisvagni
Um miðjan dag í fyrrad. varð
Loftur Loftsson, fyrrum út-
gerðarmaður frá Sandgerði,
bráðkvaddur í strætisvagni
inn á Langholtsvegi.
Loftur heitinn var nýstig-
inn inn í vagninn, þegar
hann hneig niður. Sjúkrabíll
kom þegar á vettvang og flutti
hann í Slysavarðstofuna, en
hann var látinn, er þangað
kom. Loftur var 76 ára að
aldri.
hefði gefið vilyrði um að koma
og flytja fyrirlestur á slíkri
listsýningu. Aðils.
Síldin er helzt út
af Grindavík
Síldin hefur nú fært sig
nökkru vestar á miðin Skipin
halda sig nú tíest undan
Grindavík, og síldin virðist
hreyfa sig um set í áttina á
Reykjanes.
Veður er óhagstætt til veiðanna,
ívið of hvass austan kaldi til að
athafna sig með nerpinót, en
tómt mál er að tala um rekneta-
afla meðan sildin er jafn smá og
hún er. Hún smýgur netin. Veður
er heldur lygnara á nóttunni og
er þá helzt hægt að kasta.
Til Akraness komu í gær á 13.
hundrað tunnur. Hæsti báturinn
var með 375. Til Keflavíkur komu
5 snurpubátar með samtals 650
tunnur. Til Sandgerðis komu sam
tals 860 tunnur úr 7 bátum. Sumir
telja, að síldin, sem fengizt hefur
í netin síðasta sólarhringinn bendi
heldur til batnaðar, því að hún
hefur verið ívið stærri en fyrr. Er
vonandi, að þeir menn reynist
sann=páir. Ekki er blaðinu kunn-
ugt. hversu mikið barst til Grinda
víkur r gær.
Einstaklega ódýrar sov-
étbókmenntir á sýningu
Bækurnar eru til sölu
íslenzk list-
sýning í Höfn
Frá atSalfundi Dansk-Islandsk Samfund í Khöfn