Tíminn - 26.11.1960, Side 9

Tíminn - 26.11.1960, Side 9
TÍMINN, laugardaginn 26. nóvember 1960. 9 STJÚRNARFLOKKANNA ! LANDHELGISMALINU Sagan um það, hvernig Framsóknarflokkurinn kom í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn og Álþýðuflokkurinn stöðvuðu útfærslu landhelginnar í maí 1958 og aftur í ágúst sama ár gagns sem hún gat orSið — en nú þurfti að koma t veg fyrirað hún yrði að þófi, okk- ur til tjóns. Ákvörðun varð að taka þegar í stað. Fundur var haldinn í Framsóknar- flokknum að kvöldi 20. maí. í fundargj örð þingflokksins þennan dag stendur: „Allir þingmenn flokksins andvíg- ir sérstakri rástefnu í NATO til að semja um landhelgis- málið.“ — Mótstaða Sjálfstæðisflokksins Afstöðu Framsóknar- flokksins tilkynnti ég á ráð- herrafundi að morgni 21. maí. — Eftir hádegi átti ég tal við Ólaf Thors, formann Sjálfstæðisflokksins, og með honum Gunnar Thoroddsen. Þar las Ólafur Thors yfirlýs- ingu frá Sjálfstæðisflokkn- um, er hófst á þessa leið: „Yfirlýsing Sjálfstæðis flokksins 21. maí: Forsætisráðherra hefur til kynnt Sjálfsæðisflokknum, að Framsóknarflokkurinn hafi ákveðið að hafna alger- lega frekari viðræðum við NATO-ríkin áður en fisk- veiðitakmörkin verði færð út“. Síðan er sagt, að Sjálf- stæðisflokkurinn sé andvíg- ur þessari vinnuaðf. og vilji ekki eiga þátt í henni. Miklu skifti fyrir íslendinga að hafa vináttu NATO-þjóð- anna o.s.frv. — En vináttuna á að kaupa fyrir að færa ekki út nema það sem NATO-ríkin leyfa. Eins og kemur fram í þess- ari yfirlýsingu. var Sjálf- stæðisflokkurinn andvígur ákvörðun um útfærslu. Móti því að slitið væri viðræðum við NATO-rikin; — með- mæltur áframhaldandi þófi, sem var sama og að stöðva málið. Hann skarst því úr leik. Mótstaða Alþýðuflokksins Á ráðherrafundinum 21. maí kom í ljós, að Alþýðu- flokkurinn vildi ekki, eins og Framsóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið, fall- ast á að taka hreina, já- kvæða afstöðu með því að reglugjörðin um útfærslu landhelginnar yrði gefin út 30. júní með gildistöku 1. sept. Þessi afstaða Alþýðu- flokksins byggðist auðvitað á engu öðru en því, að hann vildi — eins og Sjálfstæðis- flokkurinn áframhaldandi samningaþóf við NATO-rík- in. Ríkisstjórnin var raun- verulega klofin og Alþýðu- flokkurinn kominn í stjórn- arandstöðu í þessu máli — enda var hann þar eftir þetta þar til yfir lauk síðar á árinu. í þessu stappi stóð við Al- þýðuflokkinn á endalausum fundum allt til 23. maí. — Á þessu tímabili boðaði for- seti íslands tvívegis, að minni beiðni, ríkisráðsfund, þar sem ég kvaðst mundi biðjast lausnar fyrir stjórn- ina. Eru eftirminnilegar fréttatilkynningar um þetta í Morgunblaðinu um það leyti. Landhelgismálið hefði þá strandað á andstöðu Alþýðu flokksins og kosningar snú- izt um það. Þá var Alþýðu- flokkurinn ekki búinn að tengja sig Sjálfstæðisflokkn um að fullu— og átti því nokkurn veginn víst að verða algerlega þurrkaður út af Alþingi, ef kosningarnar snerust um það að hann hefði stöðvað útfærslu land- helginnar. En Alþýðuflokkurinn kærði sig ekki um Alþingis- kosningar um þessa afstöðu og þess vegna samþykkti hann útgáfu reglugerðar- innar. Þannig bjargaði hræðsla Alþýðuflokksins við dóm kjósenda í landhelgismál- inu, þótt bæði hann og Sjálf stæðisflokkurinn væru því andvígir. Reglugjörðin var gefin út 30. júní með gildistöku 1. sept. 1958. TvÓfeldni milli þátta Næstu vikurnar var kyrr- ara um málið á yfirborðinu. — Þekktur íslendingur, ná- tengdur stjórn Sjálfstæðis- flokksins, kom að vísu fram í sjónvarpi í Englandi og fullvissaði Breta um að auð- velt væri að ná samningum við íslendinga í landhelgis- málinu. Bjarni Benedikts- son héít fund á Flateyri seint í júní 1958 og sagði, að við kæmumst aldrei lengra í landhelgismálinu en sam- komulag næðist um við stærstu siglingaþjóðir beims. Pétur Benediktsson sagði á fundi í Ölver 24. ágúst, að Kommúnistar og Framsókn- armenn hefðu svínbeygt Guðm. í. Guðmundsson í landhelgismálinu. Alit sum- arið var undirróður fyrir því að taka upp samninga í NATO. Enginn fylgdist betur ur með þessu en ambassa- dor Breta á íslandi. Og það er vitað, að hann, í samræmi við þær upplýsingar sem hann fékk frá Sjálfstæðis- mönnum, sagði ríkisstjórn sinni, að óeining væri með íslenzku þjóðinni í land- helgismálinu. Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokk- urinn vildu semja. Þessar röngu upplýsingar eru ástæðan til þess að brezka ríkisstjórnin sendi herskip inn í landhelgina. Það er fyrst og fremst verk Sjálfstæðisflokksins. En Bretar ráku sig á það síðar — en um seinan — að þess- ar upplýsingar voru rangar, að því er þjóðina áhrærði, þeir fluttu ambassador sinn burt og stórlækkuðu hann í tign. — Ný herferð Árás var gerð á mig í Morgunblaðinu, t.d. 13. ág. þar sem segir, að „sérstaða Sjálfstæðismanna var fyrst og fremst fólgin í því, að þeir voru andvígir þeirri á- kvörðun forsætisráðherra að hafna algjörlega frekari við- ræðum við NATO-ríkin á sl. vori, áður en útfærsla fisk- veiðitakmarkanna væri á- kveðin.“ — Glöggt er það enn hvað þeir vilja Eins og menn muna, hafði krafa NATO-ríkjanna verið að sérstök NATO-ráðstefna yrði haldin til að semja um landhelgismál íslands. Þeg- ar neitandi svar barst við fyrirspurninni til NATO 18. maí, neitaði íslenzka ríkis- stjórnin 20. maí og síðan sér stakri ráðstefnu í NATO um málið. Þessa kröfu, sem hvað eft- ir annað hafði vcrið neitað, vegna þess að hún leiddi til stöðvunar á málinu, gerir Sjálfstæðisflokkurinn enn á ný að sinni með bréfi til ut- anríkisráðh. dags. 22. ágúst, að sagt er í bréfinu til þess að afstýra voða á miðunum. Á forsíðu Morgunblaðsins 28. ág. birtist með stærsta letri þessi fyrirsögn: „Sjálf- stæðisflokkurinn leggur til að ráðherrafundur Atlants- hafsbandalagsins verði kall aður saman nú þegar.“ í und irfyrirsögn segir, að Ólafur Thors og Bjarni Benedikts- son hafi 22. ágúst átt ýtar- legt samtal um þessa tillögu Sjálfstæðisflokksins við ut- anríkismálaráðherra. Þessi stutta klausa segir mikla sögu. Með þessu var stefnt að því í leynisamtölum Ólafs, Bjarna og Guðmundar að ó- gilda reglugerðina um út- færsluna og hefja í st.aðinn samningamakk á sérstakri ráðstefnu. Hinn 30. ág. heldur her- ferðin enn áfram í Morgun- blaðinu. Þar er þessi fyrir- sögn með stærsta letrí: „Ráðherrafundur Atlants- hafsbandalagsins bezti vett vangur til að afla „skilnings og viðurkenningar“ á mál- stað ísla.nds.“ Öllum, sem þessar tillögur lesa, er auðvitað ljóst, að á meðan samningar hefðu ver ið reyndir, hefði orðið að ó- merkja gildistöku og fram- kvæmd landhelgisreglugerð- arinnar frá 30 júní ,er átti að taka gildi 1. sept. — Rík- isstjórnin átti fyrst að lýsa ómerk og ógild öll sín verk í landhelgismálinu daginn fyr ir gildistökuna. Fljúga síðan til útlanda og setjast á samn ingafund með NATO-ríkjun- um. Hafa menn heyrt annað furðulegra. — Framsóknar- flokkurinn hafnaði þessu með fyrirlitningu, og þar með var þessari nýju herferð til að stöðva útfærsluna lokið. Skvndibreyting Eftir fund Péturs Bene- diktssonar að Ölver og fleiri tákn frá Sjálfstæðismönn- um ,munu útvegsmenn, skip- stjórar og stýrimenn á Akranesi hafa þó*zt, sjá hvert Sjálfstæðisflokkurinn stefndi. Þeir gerðu samþykkt 27. ág. — Hún er birt í Morg unblaðinu á 3. síðu m'eð fyr- irsögninni: „Hvergi að hopa frá settu marki í landhelgismálinu." Er talið'að Pétur Ottesen hafi staðið fyrir þessari sam- þykkt og afhent Morgunblað inu til birtingar, með vel völdum orðum. — En allt gerist nú jafn- snemma. Bjarni Benedikts- son, aöalritstjóri Morgun- blaðsins, fer norður í land 30. ág. og 31. ág. 1958 snýr Morgunblaðið við. Þann dag birtist grein með nýjum tón á forsíðu: „íslendingar ein- huga um sæmd sína og rétt“. — Ekki iðrun heldur yfirdrepsskapur Ég er ekki í neinum vafa um að samþykktin frá Akra- nesi — ásamt aðvörunarorð- um frá Pétri Ottesen — hef- ur skotið forustumönnum í Sjálfstæðisflokknum skelk í bringu í bráð. — Þeir vissu frá Alþýðuflokknum af nánu sambandi við þá um landhelgismálið o. fl., að rík- isstjórnin riðaði til falls. — Það varð að gæta sín fyrir kjósendum, ef stutt var til kosninga, og ekki hægt að treysta gleymskunni. Það er eftirtektarvert hvernig Sjálf stæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn hagræddu nú af- stöðu sinni og gerast nú í skyndi hinir skeleggustu í landhelgismálinu .— Þeir standa að samþykkt Alþingis 5. maí 1959 — þar sem lofað er hátíðlega að víkja hvergi í landhelgis- málinu. Þeir hafa hátt um þessa samþykkt í kosningunum 1959. Ambassador íslands í Lond on er kallaður heim rétt fyrir kosningar, og sagt að eigin- lega sé stjórnmálasambandi við Bretland slitið. Við þá ofbeldisþjóð hafi ríkisstjórn íslands ekkert að tala. En svo er ambassadorinn send- ur til London aftur nokkru eftir að kosningar eru bún- ar. — Miklu verri mótmæli en engin, því Bretum varð ijóst, áð ríkisstjórnin rneinti ekkert með þessu, enda hlæja þeir að öllu saman. Enginn íslendingur mátti mæta á NATO-fundi, sem haldinn var í Englandi sum- arið 1959. Átti þetta að sýna íslendingum fyrirlitningu ríkisstjórnarinnar á fram- ferði Bretanna. — íslendingar máttu ekki . einu sinni sækja kennara- þing í Bretlandi. — Þetta var allt leikaraskap- ur fyrir kosningar til þess að breiða yfir fyrri feril sinn og raunverulega stefnu. En skoðanir þessara manna hafa alltaf verið og eru þær sömu í landhelgis- málinu, að landhelgin geti aldrei orðið stærri en Bretar (Framhald á 7. síðu). ,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.