Tíminn - 09.12.1960, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.12.1960, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, föstudaginn 9. descmbcr 1960. JÓLAGJAFIR Og JÓLASKRAUT í miklu úrvali. Sími 13508 Kjörgarði, Laugavegi 59. Austurstræti 1 Auglýsið í Tímanura MINNING: Jón BjörgúSfsson Þorvaldssföðum í Breiðdal 10. maí s.l.- andaðist að heimili sínu, Þorvaldsstöðum í Breiðdal, merkisbóndinn Jón Björgólfsson. Hann var fæddur að Snæhvammi í sömu sveit 5. marz 1881 og var' því á áttugasta aldursári. Foreldrar Jóns voru hjónin Björgólfur Stefánsson í Snæ hvammi, bónda þar og Kristínar Jónsdóttur, bónda á Þverhamri. Björgólfur var sonur Stefáns bónda í Snæhvammi og seinustu konu hans Þórunnar frá Þver hamri, Eyjólfsdóttur frá Stuðlum í Reyðarfirði; voru þeir hálfbræð ur Þórður bóndi í Snæhvammi og Björgólfur. Bjuggu þeir bræður þar lengi í góðu tvíbýli við mikla atorku á sjó og landi. Stefán faðir þeirra var sonur Þórðar bónda á JíúukUn OFNINN - meí bláa loganum Kröftugur hiti á augabragði. Flytjanlegur og lyktar ekki. Tekur AVí líter af steinolíu, sem endist 16—25 klst. Aladdin Industries Ltd., Aladdin Building, Greenford, Engt ÞAKKARÁVÖRP Hjartanlega þakka ég öllum þeim vinum mmum og venslamönnum, sem með heimsóknum. gjöfum og skeytum heiðruðu mig á sextíu ára afmæiinu. Guð blessi ykkur öll. Sighvatur Einarsson, Stokkseyri. Hjartanlega þakka ég öllum, nær og fjær, sem á einhvern hátt minntust mín og sýndu mér vinar- hug í tilefni af 75 ára afmæli mínu 19. nóv. s.l. Guð blessi ykkur öll. 27/11 1960. Karl Guðmundsson, Valshamri. Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð op •'ináttu vi8 andlát og jarSarför elsku drengsins okkar. Gísla. Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg Gísladóttir, Óskar Heigason. Útför Karitasar Sesselju Þórðardóttur, Birtingaholti, sem andaðist 4. þ. m., fer fram frá Hrepphólakirkju, laugardaginn 10 des. Athöfnin hefst kl. 2 síðdegis. Sigurður Ágústsson. Ósi, Gíslasonar prests í Heydölum. Var Þórður á Ósi einn af fremstu bændum sveitarinnar á sinni tíð og kemur við opinber mál og skjöl innan sveitar og utan; kvæntur var hann Þóru dóttur Kristínar ríku Sturludóttur á Þverhamri og manns hennar, Stefáns Magnús sonar prests á Hallormsstað. Kristín kona Björgólfs var Jóns dóttir bónda á Hamri; hún mun hafa borið nafn Kristínar ríku, langalangömmu sinnar; koma þann ig sarnan ættir foreldra þeirra hjóna, Eydala og Þverhamarsætt, er lengi voru fjölmennar í Breið dal. Björgólfur Stefánsson var fjöl hæfur atorkumaður, smiður á tré og járn og svo vel að sér til bókar sem sjálffræddur maður mátti verða þá. Skar’pur reikningsmaður og snilldar skrifari, sem sjá má af gerðum funda, er hann hefur ritað. Greindur maður, er honum var samtíða, sagði að vel hefði honum látið að leiðbeina unglingum í reikningi og skrift, og mikið tóm- stundagaman hefði honum verið að fást við erfið reikningsdæmi. Krist ín var góð húsmóðir, ágætlega verki farin og stjórnsöm, léttlynd og úrræðagóð í hverjum vanda. Barnahópur þeirra Björgólfs og Kristínar var allstór, en efnahagur fremur þröngur Árin milli 1880—90 voru slíkum heimilum þung í skauti. Þá var það 1886, er Jón var fimm ára að foreldrum hans bauðst fóstur fyrir hann á Þorvaldsstöðum, hjá merkis hjónunum Björ’gu Stígsdóttur og Sigurði Guðmundssyni. Á Þorvalds stöðum var efnaheimili og myndar- bragur á öllu. Sigurður var silfur- smiður að iðn, en lagði gjörva hönd á flesta smíð. Björg var alþekkt gáfukona, víðlesin og fróð; má enn, ef litið er í skápa á Þorvaldsstöð um sjá merki góðs bókakosts frá dögum þeirra hjóna. í þetta fóstur fór Jón og átti heima á Þorvalds stöðum meðan ævin entist. Foreldrar Jóns höfðu flutt frá Snæhvammi að Kömbum í Stöðvar firði. Það er hæg sauðjörð og út- ræði gott. Þar mundi hafa orðið góðum sjómanni, sem Björgólfi, gott til afkomu með efnilegan hóp barna, sem dróst ört á legg; en sonurinn lézt nær tvítugur og heiimilisfaðirinn féll frá á bezta aldri; varð þeirra skammt á milli. Ekkjan brá þá búi og börnin réðust á góð heimili hér um sveitir. Sjálf fór hún með yngsta drenginn að Þorvaldsstöðum til Bjargar og Sig- urðar, og gerðist þar önnur hönd húsfreyju um alla bústjórn. Mátti þá segja að fóstrið hafi1 þá verið orðið fulltraust Jóni og var þó gott áður. Ekki gekk Jón skólaveg er hann Droskaðist, þó var hann vetrartíma í Stöð hjá síra Guttormi Vigfús- syni, en hjá honum leituðu margir námsvistar og varð að góðu. Víðar leitaði- hann ekki náms, utan sjálfs námsins, sem mun, eins og föður hans, hafa orðið honum drjúgt. Hann mun snemma hafa verið með fóstra sínum að smíðum og búráðum. Bústörfin tóku hug hans allan, hann gerðist áhugasamur fjárræktarmaður, eignaðist margt fé, sem hann jók svo, að hann keypti fé og átti víða á fóðrum, og um það leyti, er haún tók við búforráðum á Þorvaldsstöðum, mun hann hafa verið einna fjár ríkastur af búlausum mönnum hér í sveit. Svo gott fé átti hann í sín- um búskap, að þangað þóttí mörg- um gott að ieita um kindur til að j bæta stofn sinn. Árið 1915 voru fósturforeldrar j hans með öllu afhuga búskap fyrir elli sakir og vanheilsu. Voru þá tveir kostir fyrir, að bú yrði selt og heimili leystist upp eða Jón keypti og fósturforeldrarnir yrðu í hans for'sjá ásamt móður hans. Þetta varð að ráði. Búið var gott og árferði hagstætt. Þetta ár flutti Guðný Jónasdóttir til hans og gift- ust þau á því ári. Guðný var frá Dísastaðaseli í Breiðdal, ágætu heimili; fóstur- dóttir þeirra Árna Björns Árna- sonar og Bjargar Björnsdóttur, hinna mestu merkishjóna. Guðný var hin mesta alúðarkona, sem naut velvildar og virðingar allra ei henni kynntust. Hún var stál- glreind, bókhneigð og prýðísvel hagmælt. Þorvaldsstaðir er innsti bær í Norðurdal í Breiðdalshreppi. Jörð- in er stór; afréttar'land hennar liggur að þremur næstu hreppum. Tvíbýli mun lengstum hafa verið þar; en Jón og Guðný bjuggu þar einbýli. Það þurfti atorku og hygg indi til að nytja þessa stóru jörð og bæta hana að húsum og ræktun svo sem þau hjón gerðu, og jafn- framt að koma upp mörgum börn- um, sem reyndust dugmikil í starfi með foreldrunum og mikið mann- dómsfólk, er það lagði á eigin leiðir. Bú þeirra Þorvaldsstaðahjóna var að vísu jafnan stórt og gagn- samt, en heimilið var fjölmennt og þurfti alls að kosta af húsbænda hálfu um stjórnsemi og fram- kvæmdir svo í góðu horfi væri haldið, og það tókst vel á fjörutíu- ára búskaparferli. Alkunn var gestrisni þeirr’a hjóna og alúðlegar viðtökur gleym- ast engum, sem þeirra nutu. Búhættir flestra gerbreyttust síð- ustu búskaparár þeirra. en þau sáu vel hvað af nýbreytninni hentaði heimili þeirra og bújörð og studdu að meiri umbótum með ráði og dáð. Gripi og jörð létu þau í hendur tveggja sona sinna, sem nú búa þar félagsbúi, en þriðja soninn létu þau fá land undir nýbýlið Tungufell. Rafstöð reistu þessir bræður — fyrstu vatnsaflsstöð í sveitinni og mun nægja þremur heimilum, skjöl er þeim framkvæmdum heyrðu, undirritaði Jón, þá liggj- andi í sjúkrahúsi. Nú standa á þessum jörðum myndarleg hús, og túnin eru orðin víð Þetta og fleira en sýnilegur vottur gæfuríkrar samvinnu þeirra og barnanna. Þeim, sem nú sitja þessi býli skiluðu þau skuldlausri jörð, en það er traustur grunnur hinna miklu framkvæmda, sem þeir hafa í ráðizt. Félagsmál urðu Jóni snemma við fangsefni. Hann var einn þeirra manna, sem kjörinn var til flestra trúnaðarstarfa hér í sveit um tugi ára. Sæti átti hann í hreppsnefnd, skattanefnd, sýslunefnd og sóknar- nefnd svo nokkurs sé getið, í sum- um þessum nefndum á fjórða tug ára. Endurskoðun og stjómarstörf hafði hann í samvinnufélagi sveit- ar'innar um tugi ára; og traustur samvinnumaður var Jón alla tið og vann þeirri stefnu allt, er hann mátti. Virðingar- og þakklætisvott fyrir störf hans sýndu hreppsbúar hon- um með heiðursgjöf á sjötugsaf- mæli hans. Þegar sveitarfélagið minntist ald arafmælis búnaðarsamtaka sinna, voru nokkrir eldri bændur kjörnir heiður'sfélagar Búnaðarfél. Breið- dæla, og var Jón einn þeirra. Starfstími Jóns að félagsmálum var langur, þekking hans á því sviði var traust og starfshæfni svo góð .að fáir voru honum þar jafnir. Hann ritaði hreina og blæfagra hönd og var reikningsmaður ágæt- ur. Skírlegt yfirbragð og hressileg framkoma vakti athygli á Jóni þar sem hann fór, glaðværð hans í kunningjahópi var alkunn og kast- aði hann þá gjarna fram hnittnum stökum, en ekki iðkaði hann þá íþrótt, nema sem stundargaman. Eftir þau Þorvaldsstaðahjón birt ust stökur í kvæðasafninu Austur- landi. Konu sína missti Jón 7. janúar 1956, var það honum mikið áfall, erfiður sjúkdómur hafði þjáð hann um nokkur ár og sjón hans tók að bila og varð ekki bót á ráðin. Síð astliðinn vetur var hann rúmfastur að mestu. Jón var lagður til hinztu hvíld- ar við hlið konu sinnar í fallegum heimagrafreit. Fjöldi sveitunga hans viðstaddur og börnin öll, flest um langan veg komin. Syn- irnir átta báru kistuna til grafar, en systumar sáu um hina rausnar- legu erfisdrykkju. Sóknarprestur- inn, síra Kristinn Hóseasson, jarð- söng og flutti hinum látna bænda- öldungi verðug kveðjuorð. Börn Guðnýjar og Jóns eru þessi: Sigurður, kaupmaður í Stein- nesi á Seltjarnarnesi, kvæntur Ástu Gunnsteinsdóttur. Kristín, búsett í Búðakauptúni í Fáskrúðsfirði; gift Sölva Ólasyni. Árni, bifreiðarstjóri, Seltjarnar'- nesi; kvæntur Jóhönnu Daníels- dóttur. Björgólfur, bóndi í Tungufelli í Breiðdal; kvæntur Valborgu Guð- mundsdóttur ljósmóður. Helga, gift Valgeiri Eiríkssyni, sjómanni á Akureyri. Einar, húsameistari, Seltjarnar- nesi; kvæntur Ragnheiði Ingimund ardóttur. Oddný, gift Þorvaldi Jónassyni, afgreiðslumanni í Fáskrúðsfirði. Hlíf, gift Jóni Sigurjónssyni, sjó- manni, Seltjarnarnesi. Jónas, vegavinnuverkstjóri í Breiðdal; kvæntur Guðbjörgu Steinsdóttur. Pétur, bóndi á^ Þorvaldsstöðum; kvæntur Mörtu Ólafsdóttur. Guðmundur, bóndi s. st., ókvænt ur. Óskar, húsasmiður, Seltjarnar- nesi; kvæntur Hólmfríði Þorsteins- dóttur. Þórey, gift Ólafi Þórðarsyni, skrifstofustjóra, Akranesi. Einn fóstursonur ólst upp hjá þeim, Pétur Guðmundsson, bóndi í fvar'sseli í Breiðdal; kvæntur er hann Borghildi Guðjónsdóttur, áð- ur bónda þar. Jón og Guðný voru fósturbörn tveggja merkisheimila í Breiðdal. Það er mælt, að fjórðungi bregði til fósturs, og má það vel sannast á þeim hjónum, og þegar þess er gætt og hins, að bæði voru búin góðum ættarkostum, skilst vel sú mikla heill, er var yfir sambúð þeirra og ævistarfi öllu. S. J. Snæhvammi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.