Tíminn - 09.12.1960, Qupperneq 16

Tíminn - 09.12.1960, Qupperneq 16
Föstudaginn 8. desember 1960. 279. blað. Skautarnir hækkuðu um 65 kr. á þremur dögum Dæmi eru þess. aí verzlanir snögghækki vöruver<$ rétt fyrir jólin Húsmóðir nokkur kom á ritstjórnarskrifstofur blaðsins í gær og greindi frá viðskipt- um sínum við verzlun eina í miðbænum, en þar hafði kon- an hugsað sér að kaupa skauta handa ungri dóttur sinni. Brá svo við er hún spurðist fyrir um verð skautanna að þeir hækkuðu í verði dag hvern. Á þriðjudaginn hringdi konan til umræddrar verzlunar og spurði iivort þar fengjust skautar nr. 35. Var því til svarað að eitt par væri cítir af þessari stærð og væri verðið 585 krónur. Drjúgar hækkanir Síðan hringdi konan í ýmsar acrar verzlanir og innti eftir verði. í fyrradag hringdi hún svo aftur í (Framhald á 15 siðu) Dæmdur í fangelsi fyrir nauðgunartilraun í Hæstarétti hefur verið kveðinn upp dómur í nauðg- unarmáli. Var hinn seki, Guð- jón Atli Árnason, 33 ára, dæmdur í 216 árs fangelsi, sviptur mannréttindum og gert að greiða stúlkunni skaða bætur og málskostnað. Ofsaregn hefur gert skaðræðis- usla á Suður-Engiandi og Wales og er fjöldi manna heimilislaus af þessum sökum, og allar sam- göngur hefa lagzt niður, nema helzt á bátum. Þessi mynd er frá SuSur-Englandi, og sýnir hvernlg ekki veröur komizt milli húsa utan róandi. Málsatvik voru þau að stúlkan, sem þá var 15 ára, var gestkom- andi í húsi þar sem Guðjón Atli var staddur. Fór Guðjón Atli á brott nokkru áður en stúlkan hélt heimleiðis. Sat hann fyrir stúlk- unni er hún átti leið um Kringlu- inýrarhverfið, og réðst að henni við jarðhús eitt. Felldi hann sfúlk- bna, tók fyrir kverkar henni og reif föt hennar. Ekki tókst honum að hafa fram vilja sinn og sleppti loks stúlkunni gegn loforði hennar um að láta að vilja hans síðar, svo og að hún þegði yfir athæfi hans. Framburði bar ekki saman Ekki bar framburði stúlkunnar saman við það sem Guðjón Atli (Framhald á 15. síðu). Handknattleiksmót Reykjavíkur hélt áfram í fyrrakvöld og fór þá m.a. fram hinn þýðingarmikli leikur ÍR og KR í meistaraflokki karla. Úrslit urðu þau, að ÍR-ingar sigruðu örugglega með 10 mörkum gegn 7 og leikur Fram og ÍR á sunnudaginn verður því hreinn úrsli'taleikur. KR er núverandi Reykjavíkurmeistari, en tap í tveimur síð- ustu leikjunum hefur gert stöðu þeirra í mótinu vonlausa. Þá fór einnig fram annar leikur í meistarafiokki karla. Víkingur sigraði Ármann með miklum yfirburðum 14—4. í 1. flokki karla vann KR. Ármann með 11—8 og Fram vann Val með 10—9. Myndin hér að ofan er úr leik Víkings og Ármanns. Björn Kristjánsson, Víking, er með knöttinn á línu, og hrökkva Ármenningar af honum.Ljósmynd Sveinn Þormóðson. Kafbátur við vísinda- störf á Atlantshafi Blaðinu barst í gær greinar- gerð frá rússneska sendiráð- inu varðandi ferðir rússneska kafbátsins „Severyanka" og fer hún hér á eftir í iauslegri þýðingu. Þá barst blaðinu einnig einkaskeyti frá frétta- ritara sínum í Færeyjum um fyrrnefndan kafbát og er sú frétt einnig hér á síðunni. „Sovézki rannsóknakafbáturinn — segir í fréttatilkynningu frá sendiráfti Rússa hér Severyanka, hefur látið úr höfn í Murmansk í sjötta leiðangur sinn. Áður en skipið kemur til Jan Mayen mun það halda til íslands og þaðan til Færeyja. (Kafbátur- inn er nú í Færeyjum, en hefur ckki sézt hér, svo eitthvað hefur ferðaáætlunin brenglast! — Aths. blaðsins). Fiskimenn frá Murm- ansk, Kalingrad og Litháen eru nú við síldveiðar á N-Atlantshafi, milli fslands og Færeyja. Þar mun Severyanka hitta rannsó.knaskipið Akademik Berg. Kafbáturinn mun fara 4000 mílna leið á 20—25 öögum. Tilraunir varðandi mismunandi togdýpi fyrir togara að meðalstærð hafa undanfarin ár verið gerðar af siávarútveginum í Baltnesku Iönd- u.num o. fl. en vísindastofununum hefur ekki tekizt að ná viðunandi árangri. Hvað gerist með trollið neðansjávar? Ef til vill eru skipin sem nú eru notuð, ekki nógu öflug til að ná hinum rétta toghraða? G'etur það verið að síldin sé troll- inu fljótari og „stingi af“? Svör við þessum spurningum fást aðeins r.eð neðansjávarrannsóknum kaf- báta. Severyanka er sérlega hentugt skip til slíkra rannsókna. í þriðja leiðangri þess náðist mikill árang- cr í Barentshafi, en þar voru tekn- ■ar myndir af trollinu á ýmsum dýptum. Nú er skipið enn betur buið, og má þar nefna sérstaka (Framhald á 15 síðuj Kafbátur við Færeyjar Þórshöfn í Færeyjum — Einkaskeyti til Tímans 8. des. Rússneski kafbáturinn Sev- eryanka er nú við Færeyjar, og leggur stund á fisk’rann- sóknir ásamt skipinu Akadem- ik Berg. Kafbáturinn hefur mjög sterkan Ijóskastara sem hann notar við neðansjávar- síldarrannsóknir sínar. Það er launmál manna í Færeyjum, að ekki muni rannsóknir báts- ins allar, þar sem þær eru sé8ar- ■ vi'Hiffy°hn- a

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.