Tíminn - 10.12.1960, Qupperneq 1
MANNRÉTTINDADAGURINN
í dag er mannréttindadagur SameinuSu þjóSanna. Mannréttinda-
yfirlýsing S. Þ. var samþykkt 10. des. 1948, eftir tveggja ára um-
ræSur. í mannré'ttindanefndinni, sem um máliS fjailaSi, áttu m. a.
sæti herra Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands, Bodil Begtrup, fyrrv.
sendiherra Dana á íslandi, og frú Eleanor Roosevelt, ekkja F. D.
Roosevelts fyrrum Bandaríkjaforseta. — Mannréttindayfirlýsing
S. Þ. hefur veriS höfS sem fyrirmynd, er sá hluti stjórnarskráa
hinna nýju ríkja, sem fjallar um mannréttindi, hefur veriS saminn.
— Myndin hér aS neöan er tekin í Etíópiu, en þar hefur TækniaSstoS
S. Þ. unniS aS því aö bæta landbúnaSinn. Hér aS ofan sést starfs-
maSur S. Þ. sýna bændum nýtízku sigS.
Uggvænleg tí'Örndi í Stanleyville:
Hótað að lífláta
alla Evrópumennina
Stuðningsmenn Lumumba í Orientfylki setja Kasavubu og Mobutu úrslitakosti
OSKERTAR
TÓLF MÍLUR!
Leopoldville—NTB 9.12:
Þau uggvænlegu tíðindi
hafa nú gerzt í Kongomálinu,
að héraðsstjórinn í Stanley-
ville, Bernard Salamu, hefur
hótað að láta myrða alla
Evrópumenn í borginni, ef
L umumba og félagar hans
verði ekki látnir lausir í
skeyti til þeirra Mobutos of-
ursta og Kasavubus forseta
segir Salamu, að hann muni
gera alvöru úr þessari hótun
sinni, ef Lumumba verði ekki
sleppt fyrír miðnætti í nótt.
í skeytinu seglr orðrétt, að ef
I ekki verði orðið við kröfu hans
i muni hann þegar í stað handtaka
ekki einungis alla Evrópumenn í
Stanleyville heldur alla Belgíu-
menn í Orientfylki og taka þá
hvern af öðrum og gera þá höfð-
inu styttri.
Er fréttir þessar bárust til yfir-
herstjórnar Sameinuðu þjóðanna í
Leopoldville var öiiu herliði S.Þ.
i Orient-héraði þegar í stað beint
til Stanleyville, en í fylkinu hafa
S.Þ. um 1800 hermenn, allir frá
Eþíópíu. Talsmaður S.Þ. í Leopold-
ville sagði, að ef Salamu léti verða
af hótun sinni, myndi hann vænt-
anlega ekki gera neinn greinar-
mun á Belgiumönnum og öðrnm
Fvrópumönnum.
Herlið S.Þ. á verði
Herlið S.Þ. hefur þegar tekið sér
stöðu við skólabyggingu í Stanley-
ville, þar sem koma má fyrir a.m.k.
500 manns. Yfirmaður herliðs
Eþíópíu í Kongó, Menghasa Iyassu
hershöfðingi hraðaði sér í dag til
Orient-fylkis til að taka við yfir-
stjórn herdeilda sinna.
Skv. fréttaskeyti frá AFP hefur
(Framhald á 2 siðu).
LUMUMBA
— verður hann látinn laus?
Myndin er tekin á velmektardö.gum
____________hans.__________
Tekur F.í. að sér
ískönnunarflug?
Kaupmannahöfn 9. des.
— Einkaskeyti.
Blöðin skýra frá því í dag, að
samningar séu hafnir með Flugfé-
lagi fslands og Grænlandsverzlun-
inni um, að íslenzkar Skymaster-
í'lugvélar taki við ískönnunarflug-
ftrðum, sem farnar eru frá Nars-
sarssuaq. Þessi flugvélargerð er
talin betur til þessara ferða fallin
en Katalínavélar þær sem Danir
nota nú, m. a. vegna þess, að þær
eru búnar betri radartækjum og
fljúga hraðar, svo að með þeim
má kanna stærri svæði á hinum
skamma vetrardegi en hinni flug-
vélargerðinni. Auk þess gæti Sky-
master farið slíkar ferðir oftar en
hægt er með Katalína, þar sem
hann getur haldið áfram til
Keykjavíkur, ef ekki er fært til
löndunar aftur í Narsssarssuaq.
Áskoranir Ólafsfirðinga til ríkisstjórnarinn
ar að hvika hvergi í landhelgismálinu
Varð undir bílnum
og beið þegar bana
Nær allir karlmenn, sem aö
sjávarútvegi starfa á Ólafsfirði
hafa skrifað undir mótmæla-
ályktun um undanhald í land-
helgismálinu. Allir sjómenn,
útgerðarmenn og aðrir þeir,
sem vinna að fiskverkun og
við útgerðarstörf í landi, und-
irrituðu ályktun þessa, — að
undanskildum sex mönnum.
Alls voru þetta 153 menn, sem
mótmæltu.
Úti um land er mikill uggur
í mönnum vegna þess undan-
halds, sem ríkisstjórnin hefur
boöað í landhelgismálinu.
Einkum eru menn kvíðafullir
í sjávarplássum og kaupstöð-
um, þar sem afkoma manna
er mjög háð sjávarafla. í
mörgum kaupstöðum og sjáv
arplássum hefur verið hafin
undirskriftasöfnun við mót-
mæli til ríkisstjórnarinnar
um undanhald í málinu og á-
skoranir um að hvika í engu
frá 12 mílna fiskveiðilög-
sögunni.
Eins og áður segir gengu
undirskriftalistar meðal karl
manna á Ólafsfirði, sem að
sjávarútvegi starfa. 153 rit-
uðu nöfn sín undir eða nær
allir. Innan við 10 karlmenn
rituðu ekki undir. Ályktun
þeirra Ólafsfirðinga er svo-
hljóðandi:
„Þar sem teknar hafa ver
ið upp viðræður við fulltrúa
Breta um landhelgismálið og
þrálátur orðrómur er um, að
samningar verði gerðir er
feli í sér undanhald af ís-
lendinga hálfu í málinu, þá
viljum við undirritaðir skora
mjög eindregið á ríkisstjórn
íslands að breyta í engu yf-
irlýstri stefnu þjóðarinnar í
landhclgismálinu og treyst-
um því, að engir samningar
verði gerðir, sem skerði í
nokkru 12 mílna fiskveiði-
landhclgina allt í kring um
landið.“
Um fjögurleytið í gærdag
varð það sviplega slys við
fiskverkunarstöð Einars Þor-
gilssonar við Reykjavíkurveg,
að vörubíl var ekið afturábak
yfir fjögurra ára gamlan
dreng, með þeim afleiðingum
að drengurinn beið sam-
stundis bana. Hann hét Lúther
Guðmundsson, til heimilis að
Austurgötu 29, Hafnarfirði. —
Málavextir voru þeir, að vöru
bílnum var ekið að húsinu, og
síðan bakkað upp að því.
Dimmt var orðið og hefur öku-
maðurinn því ekki séð dreng-
inn. Var hann þegar fluttur á
St. Jósefsspítalann í Hafnar-
firði, en var látinn er þangað
kom. Mun hann hafa látizt
þegar. — Drengurinn var
dóttursonur ökumannsin«