Tíminn - 10.12.1960, Síða 6

Tíminn - 10.12.1960, Síða 6
6 TÍMINN, laugardaginn 10. desember 1960. Jóhann M. Kristjánsson skriíar um: „Vængjaður Faraó” eftir Joan Grant í þyðingu Steinunnar S. Briem „Vængjaður Faraó“ er sag an um SEKEETU, sem var FARAÓ EGYPTALANDS á- samt bróðir sínum NEYAH, fyrir um það bil fimm þúsund árum. í þýðingu frú Steinunnar S. Briem, kemur þessi bók nú út í fyrsta sinn hér á landi. Heillandi nafn bókarinnar og fagurlega myndskreytt kápa, gefur henni strax við fyrstu sýn sérstæðan þokka, sem bendingu um, að inni- haldið muni uppfylla hógvær loforð ytri fegurðar. Þar eð orðamælgi er þreyt- andi, vil ég segja það strax að hér er um bókmenntaleg- an dýrgrip að ræða. Ef einhverjum kynni að finnast ég stóryrtur um þessa einstæðu bók, þá vil ég slá varnaglann strax með því að benda á, að aðrir eru djarf- yrtari um hana en ég, og á ég þar við erlenda ritdóma frægustu bókmenntagagnrýn enda heimsblaðanna og; frægra tímarita, sem hundr- I uðum saman eru allir á sama veg. Vil ég leyfa mér að vitna í fáeinar setningar í einstök- um þessara ritdóma: — .... „Bók fagurra hug- sjóna, djúprar samúðar og andlegrar speki, tær og sindr- andi af andríki, þrungin kær- leika og vizku“ .... Joan Grant — .........Einstætt lista- verk, aðdáanlega fögur og sönn bók“ ...... — .... „Joan Grant hlýt- ur að hafa sent sál sína inn í ósýnilegan heim“ .... — .... „Ég hika ekki við að mæla með henni sem ein- hverri fegurstu bók, sem ég hefi nokkurn tíma lesið“ .... — .......Vængjaður faraó“ er bók, sem ómögulegt er að skipa í flokk með neinum öðrum“ .... Þessar tilvitnanir eru tekn- ar úr fimm ritdómum heims blaðanna, allar götur frá New York Times, New York, til Egyptalands. Hver einasti maður hlýtur að gjöra öll þessi ummæli að sínum, eftir að hafa lesið | þessa undurfögru og heillandi bók. Hverjum mundi ekki holt að hugleiða heilræði sem þessi: Faðir Sekeetu segir við hana: „Mundu því þetta, Sekeeta, að tamin reiði er svipa í hendi þér, en stjórn- laus reiði er högg á herðar þér.“ „Ekkert er til, sem lífið á jöröinni getur ekki svift þig nema þín eigin vizka.“ „Hugsa þú ekki um fram- tíðina nema til að móta hana eftir nútíðinni, sem þú lifir í, og sáðu aðeins þeim fræum, sem þig fýsir að uppskera.“ Húnvetningar athugið! r v líUS Kaupfélagið býður ykkur nú, sem áciur, mikií úrval af nauftsynja- vörum. Jólaávextirnir nýkomnir, s. s. epli og appelsínur. MikiS úrval af nið- ursoÖnum ávöxtum, einnnig þurrkaÖir ávextir. Fjölbreytt úrval leikfanga og allskonar sælgæti. Skoöiö Hið mikla Úrval okkar af skófatnaÖi, vefnaíarvöru og margs konar fatnaÖi. Vanti yður ísskáp. hrærivél, r/ksugu, saumavél eða önnur heimilis- tæki þá vinsamlegast athugiÖ hvaÖ viÖ getum boÖiÖ ykkur af þessum tækjum. BÓkabÚð Okkar hefur til sölu allar fáanlegar bækur, ein’nig margs konar silfurmuni og fjölda annarra smekklegra muna, sem henta til gjafa. Nú stendur jólaverzlunin sem hæst. — VERIÐ VELKOMIN! Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi Heimilishjálp Tek gardínur og dúka í strekningu UppJýsingaJ í síma 17045 Lögfræðiskrifstofa. Laugavegl 19. SKIPA OG BATASALA Tómas h.rnascn, hdl. Vilhjálmur Árnason, hdl. Símar 24635 og 16307 „Það nægir ekki að segja: „Dauðinn er ,góður“. — Það þarf að segja mönnunum frá honum, þar til þeim finnst hann sem glötuð ást, er þeir endurheimti." Steinunn S. Briem „Háar byggingar eru ekki fegurri en blóm, né heldur eru 20 hörpur kliðfegum en söi?gfugl. Við ættum að hugsa um alla hluti eins og þeir væru við sjálf, því að einu sinni tókum við þátt í lífi þeirra — á fyrstu ferð okkar úr höndum Ptahs.“ „Því þræði ég orð mín upp á þráð þakklætisins fyrir fegurð jarðarinnar — svefn- ugan klið hafsins, hið þolin- móða laufskrúð gamals vín- viðar, daufgullið sólskinið gegnum þokuna og kyrra þrá fjallsins eftir himninum — og úr orðunum mynda ég háls- festi hugsana minna til dýrð ar þeirri, sem aldrei hlýjar hana með snertingu sinni.“ Hver er sá maður, sem ekki mundi vitkast við lestur þess arar bókar, og hver er sá, sem ekki getur — sér að skað- lausu — bætt við sitt vit? „Vængjaður Faraó“ berg- málar dýpstu rök tilverunnar, sem eru viska og kærleikur. Það er gott fólk, sem safnar gimsteinum á förnum vegi til að gefa þá öðrum. Með þýðingu á þessari fögru bók hefur frú Steinunn S. i Briem auðgað íslenzka tungu dýrri perlu fagurra bók- mennta. Hún hefur líka gefið þessari sömu perlu dýpra og bjartara skin með gneistandi stíltöfrum göfugrar tungu, sem eima verkið allt eins og stef í fagurri hljómkviðu. Ég get ekki gefið þeim, sem þessar linur lesa betri jóla- ósk, en þá, að þeir leyfi „Vængjuðum Faraó“ að lyfta hug þeirra frá rökkurmóðu hversdagsleikans til hærra sjónarflugs, ef ske kynni að þeir greindu geislabrot hins hvíta loga, sem mannsandinn er neisti af. Reykjavík 6. des. 1960. Jóhann M. Kristjánsson. Kaupmannahöfn — Rostock — Reykjavík M.s. Jökulfell lestar 25.—26 ágúst í Kaupmanna- höfn og Rostock. SKIPADEILD S!S ÞAKKARÁVÖRP Öllum hinum mörgu vinum mínum, sem heimsóttu mig á áttræðisafmæli mínu hinn 28. nóv. s.i. eða minntust mín á annan hátt með hlýjum kveðjum og gjöfum, þakka ég af heilum huga. Eigl sízt þakka ég Torfastaðasóknarmönnum hug þeirra til mín. Megi Guðs blessun gefa ykkur öllum gleði- legar hátíðir og alla farsæld á nýju ári og árum. Svemn Eiríksson Miklaholti. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er sýndu mér vináttu og samúS viS fráfall og jarSarför eiginmanns míns Ludvgs Pedersen Matthildur Pedersen. Öllum þeim, sem sýndu mér og fjölskyldu minni samúS viS fráfall og jarðarför mannsins míns þakka ég innilega. Þórðar Guðmundssonar, Bersatungu, Indriðína Indriðadóttir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.