Tíminn - 22.12.1960, Blaðsíða 2
2
T f M IN N, fiinmtudaginn 22. desember »1960.
únaöarfélag Hvolshrepps minn-
ist 75 ára afmælis síns
Fyrra þriðjudagskvöld varj
myndarlegr hóf haldið a8 fé-;
lagsheimilmu Hvoli í Rangár-
vallasýslu í tilefni af því, aS
Búnaðarfélag Hvolhrepps1
hefði þá starfað í 75 ár. Er það
elzta búnaðarfélag í Rangár-
vallasýslu og jafnframt eitt af
elztu búnaðarfélögum á land-
inu.
Allmargt góðra gesta sótti af-
mælishófið. Þar var landbúnaðar-
ráðherra, Ingólfur Jónsson, Stein-
grímur Steinþórsson, búnaðar-
málastjóri, Þorsteinn^ Sigurðsson,
form. Búnaðarfélags íslands, Páll
Diðriksson, form. Búnaðarsam-
bands Suðurlands og ráðunautar
sambandsins. Fluttu þeir allir
ræður en einnig töluðu Sigurjón
Sigurðsson í Raftholti, Páll Björg-
vinsson á Efra-Hvoli og formaður
félagsins, Lárus Ág. Gíslason í,
Miðhúsum, sem jakti sögu félags-
ins. Þá flutti Ólafur Bergsteins-
son á Árgilsstöðum kvæði. Agnarj
Guðnason, ráðunautur sýndi ágæta'
og fróðlega kvikmynd og að lokum j
var dansað fram eftir nóttu.
Víða komið við
Formaður félagsins, Lárus Ág.
Gíslason, rakti sögu þess ýtarlega.
Benti hann á að félagið hefði á
þessum 75 árum komið við sögu
margra framfaramála sveitar og
liéraðs þótt ræktunarmálin hefði
oðlilega jafnan skipað þar hinn
æðsta sess. Árið 1928 keypti fé-
lagið dráttarvél í samvinnu við
Fljótshlíðinga. Iláku félögin vél-
ina sameiginlega meðan henni
entist aldur en upp úr því, eða
3947 stofnuðu þessi tvö félög,
ásamt Búnaðarfélagi Rangárvalla
sérstakt Ræktunarsamband og
taldi Lárus að stofnun þess hefði
rnarkað þáttaskil í ræktunarmál- i
um á sambandssvæðinu. Á sínum
tima beitti búnaðarfélagið sér fyrir
stofnun nautgriparæktarfélags í
hreppnum. Þá hefur það og látið
smíða steypumót fyrir votheys-
turna og húsbyggingar. Og nú sið- j
ast í ár keypti það stórvirka úða-!
dælu fyrir garðrækt
Enn má geta þess, að félagið
hefur gengizt fyrir skemmtiferð-i
um og árlegum þorrablótum.
Stjórn félagsins
Sá maður sem í öndverðu beitti1
sér mest fyrir stofnun félagsins
\ar Þorsteinn Thorarensen á Mó-
eiðarhvoli. Hann var og einnig
fyrsti formaður þess. Með honum
voru í fyrstu stjórninni þeir Jón
Arnason, Vestri-Garðsauka og
Magnús Guðmundsson, Kotvelli.
Núverandi stjórn skipa: Lárus Ág.
Gíslason, Miðhúsum, formaður, en
hann hefur verið formaður félags-
ins frá 1946 og alls í stjórninni í
25 ár, Páll Björgvinsson, Efra-
Hvoli, ritari og Hermann Sveins-
son, Kotvelli, meðstjórnandi
Ekkert samkomu
lag Þjóðverja enn
UmræÖum um viðskiptasamning slegit$ á frest
Berlín 21/12 (NTB).
Samningaumleitunum um
nýjan viðskiptasamning milli
Austur- og Vestur-Þýzkalands
var í dag hætt í bili eftir að
samninganefndirnar höfðu
haldið með sér sjö fundi án
nokkurs árangurs.
Stjórnin í Bonn hefur sett það
skilyrði fyrir því að viðskiptasamn-
mgur verði gerður, að austur-
þýzka stjórnin hætti takmörkunum
á ferðafrelsi milli Vestur-Þýzka-
lands og Vestur-Berlínar.
Ekkert hefur verið ákveðið um
það, hvenær samningaviðræður
1 erði teknar upp að nýju en for-
maður vestur-þýzku samninga- í
nefndarinnar Felix von Eckard
sagði hins vegar á blaðamanna-1
fundi í dag að ekki mætti líta svo
á, að útilokað væri að ná sam-
komulagi þótt illa gengi.
Viðskiptasamningur milli Aust-
ur- og Vestur-Þýzkalands var gerð-
ur 1951 og hefur' verið framlengd-
í.r á hverju ári til þessa. Vestur-
þýzka stjórnin sagði hins vegar
samningi þessum upp í sept. s.I.
til þess að mótmæla ferðatakmörk-
unum austur-þýzku stjórnarinnar.
Málgagn austur-þýzku stjórnar-
innar Neues Deutschland hefur
sagt, að aus'tur-þýzka stjórnin
rnuni banna alla flufninga frá
Vestur-Þýzkalandi til Vestur-
Berlínar, ef samningaviðræðurnar
tari út um þúfur.
Fluttu úr landi en
vilja nú aftur heim
Síöast liðinn mánudag lagð-
isr hafskipið Bergensfjord að
að bryggju í Kaupmannahöfn
eftir 10 daga siglingu frá New
York. /Vleð skipinu voru 615
farþegar og 157 þeirra gengu
á land í Kaupmannahöfn.
Meðal farþeganna til Danmerk-
ur voru Harry Bahnsen ásamt konu
sinni og þremur bör'num — það
yngsta er fætt vestan hafs. Bahn-
sen þessi fór til Kanada fyrir þrem
ur árum og hefur haft þar góða
atvinnu. Kaup hans hefur verið
nær 130 dollarar á viku og honum
hefur tekiz't að spara saman nægi
legt fé til þess að komast heim
til Danmerkur aftur nú um þessi
jól. Hann hefur meira að segja í
hyggju að setjast aftur að í Dan-
mörku og reisa þar bifreiðaverk-
Hér sést Harry Bahnsen ásamt fjölskyldu sinni um bor3 í Bergensfjord.
stæði.
Eiga ekki fyrir farinu
Bahnsen lét svo urnmælt við
blaðamenn, að laun hans í Kanada
: hefðu ver'ið sérlega góð og hann
I hefði sparað svo mikið, að hann
myndi geta reist sitt eigið bifreiða
verkstæði. Hins vegar sagði hann,
eru launakjör mjög misjöfn í
Kanada og þar er nú yfir ein
milljón manna atvinnulaus. í þe^s
um hópi eru fjölmargir danskir
menn, sem vildu gjarnan komast
heim ti] Danmerkur aftur en eiga
bara því miður ekki fyrir fargjald
inu yfir hafið.
V» V - \ - N -V V \VVN • -V • 'V*'V
Frímerkí
Allar tegundir at notuðum is-
ienzkum ‘rímerkium keyptar
nærra "erð. en áðut nefur
beKkzt.
Wiiliam F Pálsson
HaLoórsstöðun. Laxárdai
I S.-Þing.
Brátt hefst jólafrí hjá flestu vlnnandi fólki, og aS fáum dögum liðnum
hefjast störf þess aö nýju. Þessi fallega stúlka vinnur i frystihúsi. Við
skulum vona, að hún fái að njóta hvíldar og hressingar um jólin og gangl
endurnærð til sinna starfa á ný eftir að jólahaldi er lokið, og að svo verði
um flesta.
Flokksstarfið í bænum
Jólatrésfagnaður
verður í Framsóknarhúsinu miðvikudaginn 28. des.
Ólafur Magnússon frá Mosfelli skemmtir. Samkoman
hefst kl. 3.30 síðd. Miðasala 27. des milli kl. 5 og 7 og
eftir kl. 2 miðvikudaginn 28. des. Einnig er hægt að
panta miða í skrifstofu framsóknarfélaganna alla daga
til jóla, sími 15564.
FRAMSÖKNARFÉLÖGIN.
Fjársöfnunin
Orðsending fil félagsstjórna og söfnunarstjóra
um allf land
Nú ef ætlunin að Ijúka fjársöfnuninni fyrir áramót. Upphaf-
lega var áformað að henni yrði lokið í byrjun nóvemher, en af
ýmsum ástæðum hefur orðið dráttur á uppgjöri víða að.
Nokkur héruð hafa þegar náð settu marki og gert full skil.
Þau eru þcssi:
Dalasýsla 130%
Vestur-Húnavatnssýsla 100%
ísafjörður Jð0%
Norður-ísaf j arðarsvsla 100%
Norður-Þingeyjarsýsla (vestan heiðar) 100%
Annars staðar er söfnunin enn i fullum gangi, þótt mörg hér
uð hafi þegar skilað megiiihluta þeirrar uþphæðar, sem þau
ætluðu sér að ná. Þau, scm mestu hafa skilað nlutfallsiega,
eru þessi:
Suður Þingeyjarsýsla 75%
Vestmannaeyjar 72%
Rangárvallasýsla 66%
Eyjafjarðarsýsla 60%
Suður-Múlasýsla 60%
Siglufjörður 60%
N orður-Múlasýsla 50%
Vestur-Barðastrandarsýsla 58%
Hafnarfjörður 58%
Austur-Barðastrandarsýsla 51%
Skorað er á alla, sem að söfnuninni vinna. að ge-g nú mynctar
legt lokaátak og ná settu marki fyrir áramót.