Tíminn - 22.12.1960, Síða 6
6
TÍMINN, fimmtudaginn 22. desember-lSgfl^
MINNING:
HaUdór Gíslason
bóndi á Sjónarhól
Þa5 kom mér dálítið á óvart
þegar ég frétti lát vinar míns
Halldórs Gíslasonar bónda á Sjón-
arhól. Mér var þó kunnugt að hann
lá á sjúkrahúsi og ég hafði heim-
sótt hann þangað og mætt þar
eins og endranær hans glaðværð
og gamansemi. En örlögin verða
ekki umflúin, kalli Drottinns
verða aflir að hlýða, hvort sem
vinnudagurinn hefur verið langur
eða skammur. Þegar menn falla í
valinn á góðum aldri, sýnist manni
að mörg verkefni hafi verið óleyst
af hendi, mörg erfiðisstund átt
eftir að breytast í sigurgleði að
loknu dagsverki, og mörg gleði-
stund með vinum og kunningjum
verið ókomin.
En þetta er aðeins það sem
mannlegri hugsun finnst.
Við stöndum öll við þrepskjöld
skapara vors, og öllum er það
hulin ráðgáta hver næstur verður
kaUaður yfir landamæiin, hver
næstur fær að líta vílend veldi
vona og drauma er þrýtur rökkur-
stíginn, og sjá hina helgu glóð
af ariineldi eilífa kærleikans á
bak við skýin.
Já, nú hefur sú breyting orðið,
að vinur og kunningi hefur verið
kaUaður yfir landamærin til starfa
í hinu víðlenda veldi vona og
drauma. Nú hefur rökkurstígur
jarðneskrar tilveru verið stiginn
til enda, en við skin hinnar helgu
glóðar hins eilífa kærleika er
ferðamanninum á landamærum
lífs og dauða rétt hin eilífa náðar-
hönd, sem bæði leiðir og og býður
hann velkominn til starfa í riki
föðurins.
Halldór Gíslason var fæddur á
Seyðisfirði á gamlársdag árið
1900. Hann ólst upp frá fæðingar-
degi hjá sæmdarhjónum þar í
plássinu, þeim foreldum Vilmund-
ar Jónssonar landlæknis, og heyrði
ég hann minnast þeirra oft með
sérstakri virðingu, og Vilmund
uppeldisbróður sinn mat hann að
verðleikum, enda reyndist hann
Halldóri í öllu sem bezti bróðir.
Sem maður á léttasta skeiði
kvaddi Halldór æskustöðvarnar við
Seyðisfjörð og flutti til Reykja-
vikur og vann ýmist þar eða í ná-
grenni bæjarins um nokkurra ár'a
skeið, og hefur mér verið sagt að
hann hafi jafnan verið eftirsóttur
til ailra verka vegna sérstakrar
trúmennsku í hverju sem var.
Fyrir tæpum 20 árum keypti
Halldór jörðina Sjónarhól á Vatns-
leysuströnd, ásamt Vilmundi upp-
eldisbróður sínum, og hóf hann
þar búskap ásamt eftirlifandi konu
sinni Sigríði Stefánsdóttur, mestu
dugnaðar- og myndarkonu.
Hófst nú eins konar sólskins-
tímabil í sögu þeirra Sjónarhóls-
hjóna, þar sem búið óx og Mómg-
aðist í höndum þeirra, enda eðli-
leg þróun, þar sem öllu var stjórn-
að með glaðværð, sérstökum dugn-
aði og reglusemi, jafnt utanhúss
sem innan.
En sólskinsárin urðu heldur fá.
Það fór að bera á lasleika hjá
Halldóri, sem ágerðist, og varð
hann rúmfastur á sjúkrahúsi um
nokkurn tíma. Samt lagaðist heils-
an það verulega, að Halldór gat
haft um alllangt skeið fótavist, en
sem maður til fullrar vinnu, varð
hann aldrei meir, og fór þá hið
blómlega bú þeirra hjóna að ganga
saman, enda mótti heita að öll
störf heimilisins hvíldu á herðum
Sigríðar, og kom þá gleggst í ljós
hve mikil afburða dugnaðarkona
hún var til allra verka. Enda mat
Halldór þennan ákjósanlegasta lífs
förunaut sinn mikils.
En þrátt fyrir legur á sjúkra-
húsi og daglega vanlíðan vegna
sjúkdóms síns, var Halldór léttur
í lund, höfðingi heim að sækja og
hrókur alls fagnaðar í vina hóp.
Ég átti því láni að fagna að
vera um 2ja ára skeið nágranni
hans á Vatnsleysuströndinni, og
kom þá oft fyrir, að við máttum
leysa ýmis vandamál sameiginlega,
og gafst mér þá gott tækifær'i til
þess að skyggnast inn í hans hug-
arheima, og fann ég þá glöggt
hvað Halldór var í hjarta sínu
góður drengur og hjálpsamur við
alla.
Og vil ég því að endingu færa
Halldóri þakklæti mitt og fjöl-
skyldu minnar fyrir hans sérstöku
greiðvikni og góða framkomu við
okkur í hverju sem var. Og fyrir
hans hönd færi ég konunni hans
innilegasta þakklæti fyrir allt sem
hún var honum í lífinu.
Valdimar Guðmundsson.
JSJ
Bezta trygging yðaz
BÖKUNAR-
DAGINN
ParkertM kúluPenní
Það eru Parker gæöin, sem gera imminn
ÞAÐ getur verið að aðrir kúlupennar séu
ódýrari, en hverjir þeirra hafa slíkar blek-
birgðir?
Parker T-BALL kúlupenni hefur blek-
fyllingu sem endist fimm sinnum lengur
en hjá venjulegum kúlupennum.
Hafið þér nokkurntíma keypt ódýran kúlupenna aðeins til að
eyða mörgum sinnum hans verði í endingarlitlar fyliingar.
Þetta kemur ekki fyrir ef bér eigið Parker T-BALL kúlupenna
því að hann er hinn frægi kúlupenni, sem skrifar allt að fimm
sinnum lengur með aðeins einni fyllingu.
Og nýjar fyllingar — fást hjé Parker sölum' af fjórum mismun-
andi oddbreiddum og fimm bieklitum á ótrúlega lágu verði
Þær hafa allar hinn einstæðr samsetta og hoiótta T-BALL odd,
sem tryggir áfeiðarfallega sKrift.
Parker i^JL kúlupenni
t PRODUCT OF fll§ THE PARKER PEN COMPANY
9-B642
. * 4 K. • "V. •• “N-•-X. • "X. • "X. • ‘
•X*X*X*X*X*^