Tíminn - 30.12.1960, Blaðsíða 2
2
TÍMINN.
Öxnadalsheiði er
ófær öllum bílum
Hellisheiði var fær stórum
bílum í gærmorgun og kom-
ust mjólkurbílar leiðar sinn-
ar þar. Krísuvíkurvegur er
fær öllum bílum, og sama er
að segja um Holtavörðuheiði.
Öxnadalsheiði er hins vegar
lokuð allri umferð.
Hvalfjörður er fær öllum
bílum og sama er að segja um
Borgarfjörð. í gær var unið
að því að moka Fróðárheiði
til Ólafsvíkur. Til Stykkis-
hólms er fært um Kerlingar-
skarð og einnig var fært í Dal
ina um Bröttubrekku.
Holtavörðuheiði fær.
Á þriðjudagskvöldið var
Holtavörðuheiði rudd, og síð-
an mokuð út í fyrradag og
seint í gærkvöldi. Var heiðin
fær öllum bílum í gær.
Þung færð er nú í Eyjafirði
Auglýsið í Tímanum
en mokað var þar af krafti í
gær. Vaðlaheiði er ófær, og
verður ekki mokuð, enda veg
urinn um Dalsmynni og
Fnjóskadal notaður.
Öxnadalsheiði hefur verið
lokuð frá jólum, og hefur ekki
verið mokað þar síðan. Hins
vegar var ráðgert að mokstur
hæfist á heiðinni í dag. Þung
færð mun einnig vera í Öxna-
dal.
Sala Áfengisverzlunar ríkis
ins til loka nóvembermánaðar
þessa árs nam 166,4 milljónum
króna og er það um 13 millj.
króna hærri upphæð en á
sama tímabili í fyrra. Magnið
vUUV/ V I l’HMIIN'JAix n nM •
30 krónur miðinn
er þó minna en í fyrra, því að
í marz sl. hækkaði allt á-
fengi um 15—20%. Fyrstu 24
daga desembermánaðar hefur
salan verið 18 þús. kr. minni
en fyrstu daga des. í fyrra. Er
því um verulegan samdrátt að
ræða í desember.
Eins og áður hefur íslenzkt
brennivín selzt mest og sala
á vodka, gini og viskii hefur
verið svipuð og undanfarið.
Lítill samdráttur hefur orðið
i sölu á léttum vínum.
150 þús. flúðu
,,sæluna“ 1 ár
Samdráttur
áfengissölu'
Berlin 29.12. (NTB) Yfir 150
þúsund manns frá Austur-
Þýzkalandi hafa á þessu ári
leitað hælis í Vestur-Berlín
sem pólitískir flóttamenn. Frá
þessu skýrði Willy Brandt borg
arstjóri Vestur-Berlínar á
fundi með blaðamönum í dag.
Þetta eru allmiklu fleiri en í
ferðalamanir milli Austur- og
Vestur-Berlínar yröu að
hætta. Brandt sagði, að við-
skiptasamningar eVstur-Þjóð
verja og Rússa gengu að ósk
um. Hann sagöi og, að fram-
farir væru jafnar og stöðugar
í Vestur-Berlín.
Fyrir jólin var selt nokkurt
magn af útlendu brennivíni
og ákavíti og seldist það fljót
lega upp. Nú hefur áfengis-
verzlunin á boðstólum ársgam
alt íslenzkt brennivín, en það
er mun betra en glænýtt og
hrátt.
Eyja
reyndist hið bezta í alla staði.
Einn af eigendum bátsins, Stefán
Síefánsson frá Gerðum í Eyjum
Sjgldi bátnum heim og verður
hann skipstjóri á bátnum í vetur,
er hann verður að sjálfsögðu gerð
ur út á vetrarvertíðina, sem senn
er að hefjast. Halkion er hið fríð-
as'ia skip og búið öllum nýtízku
siglinga- og fiskileitartækjum.
— Sigurgeir
fyrra en þá voru flóttamenn-
irnir 9Ó þúsund. Samtals hef-
ur um 1 og hálf milljón flótta
manna leitað hælis í Vestur-
Berlín síðan 1949.
Borgarstjórinn sagði í við-
tali sínu við blaðamenn, að
Berlínarmálið yrði enn á dag-
skrá á næsta ári. Fernt yrði
að hafa í huga þ.e.a.s. vilja
fóllfsins, ekki mætti draga úr
aðsSöðu Vesturveldanna, hið
nána samband við Vestur-
Þýzkaland yrði að haldast og
Nýr bátur til
Vestmannaeyjum 28. des
Hingað kom um jólin nýr bát-
ur. Ber hann nafnið Halkion
og er eigandi samnefnt hluta-
félag hér í Eyjum Bátunnn
er 101 smálest, stálskip smíð-
að í- Austur-Þýzkalandi.
Báturinn hreppti slæmt veður
nokkurn hluta heimleiðar og
<g> UTAV URUEim
Kennedy vann Hawaiif! j
WASHINGTON 29/12 (NTB).
Kjörinn forseti Bandaríkjanna
John F. Kennedy vann Hawai.
Þetta kann að hljóma næsta undar-
lega nú eftir að Kennedy hefur
formlega verið kjörinn forseti
Bandaríkjanna og kosningarnar
löngu um garð gengnar. En endan
leg úrslit á Hawai voru fyrst kunn
í dag. Kennedy vann hina þrjá
kjörmenn eyjarinnar. Fékk Kenn-
edy 115 atkvæði umfram Nixon,
en barátta þeirra á Hawai var æð>
tvisýn. Þetta þýðir að Kennedy
hefur fengið 303 kjörmenn þótt
aðeins 300 stæðu honum að baki
við útnefninguna í s.l. viku.
f T.««M Ti r, f ,1r> 1.1
1113.057 atkvæði umfram Nixon í
I forsetakosningunum.
Aldrei meíri hsotta en nú
NÝJU DEHLI 29/12 (NTB).
Kristhna Menon fulltrúi Indlands
hjá S.Þ. sagði í ræðu í dag, nýkom
inn heim frá þingi S.Þ. í New
York, að aldrei frá lokum síðari
heimsstyrjaldar hefði verið jafn
mikil hætta á ófriði og einmitt nú.
Enkum kvað Menon ástandið i
Kongó og Laos uggvænlegt.
Tveir létust í spre/igingu
LEVERKUSEN, V.-Þýzkalandi
29/12 (NTB). Tveir menn létu
lífið og 23 sær'ðust er sprenging
—■*' ' r>*r n:v>rp '
ursen í Vestur-Þýzkalandi í dag.
Verksmiðja þessi framleiðir ýmsar
efnavörur. Óttazt er um líf nokk-
urra þeirra, er mest særðust.
Komnai til Parísar
PARÍS 29/12 (NTB) Er Frakk-
ar sprengdu þriðju kjarnorku-
sprengju sína í Saharaeyðimörk-
inni fyrr í þessari viku, komu þeir
nokkrum dýrum fyrir í nánd við
sprengjusvæðið svo þau yrðu fyrir
geislunum. Voru þet!a einkum
rottur og mýs. Dýrin höfðu verið
sprautuð með nýjusýu varnarlyfj-
um gegn geislunum. í dag var svo
komið með nokkrar af rottunum
til Parssar, þar sem gerðar verða
á þrrr1 nákvæmar ramsóknir.
Ástandið í Belgíu
(Framhald af 1. síðu).
þessa snöggu heimkomu hans,
enda þótt öll þjóðin viti betur.
Fólkið tók vel á móti konungi
sínum — bað hann og droftningu
hans lengi iifa. Talið er, að stjórn
Evskens sé ekki í bráðri hættu
og muni ekki hafa í hyggju að
biðjast lausnar. Konungur sé ekki
heim kominn vegna þess -»• held-
m múni heimkoma hans eiga að
hafa róandj áhrif á fólkið.
Miklar mótmælatjöngur
Verkföllin miklu í Belgiu hafa
r.ú staðið hálfa aðra viku og segja
jafnaðarmenn, að verkfallsmönn-
um fari fjölgandi með hverjum
degi. — í dag var farin mikil
kröfuganga í Antwerpen stærstu
hafnarborg landsins. Er ætlað, að
2þúsundir manna hafi tekið þátt
í þessari göngu. Hrópuðu verk-
fallsmenn Niður með Eyskens —
Niður með stjórnina. í Antwerp-
eu hefur orðið að taka upp víð-
tæka skömmtun á rafmagni vegna
verkfallanna. Þar í borg er lög-
reglu- og herlið við helzrtu bygg-
ingar og beitt hefur verið tára-
gasi og kylfum gegn verkfalls-
mönnum. Skemmdarverk hafa
verið unnin á járnbrautarstöð borg
a’-innar. Verkfallið er þó ekki al-
gert í Antwerpen.
f höfuðborginni, Brussel, var
og farin mikil mótmælaganga í
dag. Fór fylkingin um helz.u göt-
ui borgarinnar og lét ófriðlega.
Rúður voru brotnar í verzlunum
og bönkum, en herlið varnaði
verkfallsmönnum að komast að
þinghúsinu; Verkfallsmenn hróp-*
ufiu: í gálgann með Eyskens. Talið
er að 50 þúsundir hafi verið í þess-
ari göngu og var fólk komið að
viðs vegar frá landinu. Einn hóp-
urinn hafði uppi tuskubrúðu, sem
vera átt( Eyskens forsætisráð-
herra. Heryörðurina við þinghúsið
leyfði nokkrum mönnum að fara
með mótmælaskjal til forsætisráð-
herrans. Er þess krafizt þar, að
þ.ng verði þegar kvatt saman
Áframhald skemmdarverka
Þá hefur ekert lát verið á
skemmdarverkum. Járnbrautartein
ar í nágrenni Briissel hafa ver-
ið rifnir upp og vegatálmanir hafa
verið gerðar að heita má um allt
landið. f borginni Bruges voru
unnin mikil skemmdarverk á
strætisvögnum O'g kom þar til
harðra átaka milli lögreglu og
verkfallsmanna. Þá segir, að lest
ein hafi farið út af sporinu í nánd
við Briissel vegna skemmdarverka
þar á járnbrautarteinum. Þykir
furðu sæta, að enginn skuli enn
hafa látið lífið í öllum óspektun-
um og skemmdarverkaæðinu.
Sendinefnd frá jafnaðarmönn-
um skýrði frá því í dag, að Ey-
skens for'sætsiráðherra hefði boð-
izt til að senda efnahagsfrumvarp
stjórnar sinnar aftur til nefndar
en fyrst skuli það þó koma til um-
ræðu í þinginu, sem verður kvatt
saman á venjulegum tíma þ.e. 3.
jan. n.k. Jafnaðarmenn segja, að
á þess'u loforði sé ekkert að græða.
Stjórnin verði að gera betur.
Fréttastofa Reuters skýrir frá
því, aS aukin hætta sé nú á því,
að til klofnings komi milli frönsku
mælandi og flæmskumælandi
manna í landinu. VerkföIIin eru
einkum afgerandi í suðurhluta
landsins, en allmiklu minni þátt-
taka er í beim í norðurhluta lands-
ins. Nú hafa íbúar suðurhlutans
ákveðið að þeir vilji helzt engin
samsklpti eiga við þá, er flæmsku
tala þ.e. íbúa norðurhluta lands-
ins. Frönskumælandi menn hvetja
nú hvern annan ti] þess að standa
sa.man sem einn maður til þess að
koma efnaliag sínum á réttan kjöl.
Allt belgískt herlið í Vestur-
Þýzkalandi hefur nú verið kvatt
heim. Tass fréttastofan sagði í
morgun, að þýzkir hermenn hefðu
verið kallaðir til landsins, en belg-
ísk stjórnvöld hafa borið frétt
þessa til baka og segja hana upp-
"yur.3 e:nn.
föstudaginn 30. * desember/i 1960,
Kongó \ u i
(Framhald af 1. síðu).
sagði í dag, að lestin hefði ekki
orðið fyrir árás Balubamanna, en
þrír farþegar hefðu hins vegar ver
ið vegnir meðan Iestin dvaldizt
yfir nóttina í Luena. írskir her-
menn fylgdu lest þessari, en þeir
vo urekki í lestinni meðan hún
dvaldizt um kyrrt. Formælandi
þessi sagði, að fólkið hefðí hrópað
til írsku hermannanna en þeir ekki
skilið orð þeirra. Flúðu sumir far-
þega til skógar', er þeir urðu árás-
armanna varir, en voru aftur í lesf
inni um morguninn er haldið var
áfram til Bukama.
Misþyrmingar.
Frá Leopoldville berast þær
fregnir, að Evrópumenn í Bukavu,
höfuðborg Kivu héraðs, sem nú er
á valdi stuðningsmanna Lumumba,
séu handteknir unnvörpum og mis-
þyrmt. Hermenn frá Nigeríu i'eyna
að halda uppi lögum og reglu í
borginni. Búizt er við í Leopold-
ville, að Mobutu ofursti muni brátt
gera árás á vígi stuðningsmanna
Lumumba í Orientale og Kivu
héruðum.
Grænlandsfiugií
(Framh af 1 síðu).
Sólfaxi, sem kemur til
Reykjavíkur í dag frá Kaup-
manuahöfn og Glasgow, fer
í fyrramálið til SySri-Straum
fjaröar og flytur þaðan þrjár
lestir af áríðandi flut-ningi
til Kulusuk. Flugvélin er
væntanleg aftur til Reykja-
víkur í dag.
Innanandsflugið gekk mjög
vel fram að jólum. Á aðfanga
dag var t.d. flogið til allra
áætunrstaða innanands nema
ísfjarðax, en þar versnuðu
veðurskilyrði snögglega og
sneri flugvélin þá við til
Reykjavikur. Síðastliðna tvo
daga hefur hins vegar verið
erfitt um flug til Noxðurlands
og austur vegna snjókomu,
og hvassviðri hamlaði flugi
til estfjarða. Þessa tvo daga
var flogið til Vestmannaeyja.
í gær var betra veður norð
anlands, og er flogið til Ak-
ureyrar, Sauðáxkróks, Egils-
staða, ísafjarðar, Patxeksfj.,
Þingeyrar, Flateyrar og Þórs
hafnar.
Stóreignaskattsmálií
(Framh af 1. síöu).
heimta þessi væri brot á mann
réttindasáttmála Evrópu og
þó einkum á viðbótarákvæði
sáttmálans um friðhelgi eigna
réttarins.
Mannréttindanefndin taldi
málið ekki á þann veg að á-
stæða væri til að taka það upp.
Mun nefndin ekki hafa talið
skattafyrirkomulag það, sem
hér um ræðir fela í sér rang
láta mismunun.
Fjölstefnuvitar
(Framhald af 16. síSu).
annar fjölstefnuviti, og hefur
bandaríska flugmálastjórnin
nú lánað íslendingum þetta
tæki til 15 ára. Standa vonir
til að því verði komið upp í
nágrenni Reykjavíkur næsta
sumar, en það eykur mikið á
öryggi flugsamgangna hér,
enda er fjölstefnuvitinn full-
komnasta og öruggasta loft-
sigh'ngr.tæki sem ti1 er f dag.