Tíminn - 30.12.1960, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.12.1960, Blaðsíða 3
TÍMINN, föstudaginn 30. desember 1960. 3 Húsbruni á Skagaströnd Útibú kaupfélagsins stórskemmdist af eldi um hádegisbilið í gærdag. í hádeginu í gær kom upp eldur í útibúi kaupfélagsins á Skagaströnd, og breiddist eid- urinn ört út. Slökkviliðið á staðnum kom fljótt á vettvang og tókst að slökkva eldinn, en fii þess varð að rífa þak og tróð í veggjum. Húsið stór- skemmdist af eldi svo og vör- ur af eldi, vatní og reyk Er tjón þetta hið tilfinnanleg- asta. Unni'ð var að vörutalningu í úti- fcúshúsinu, sem er einlyft asbest- cg timfcurhús. Er starfsmenn fóru í mat var allt með felldu, en þeg- cr komið var til baka, var eldur kominn í þakið og magnaðist ört. SlökkviliS staðarins kom brátt á vettvang og tók til óspilltra málanna. Logn var, og stutt til vitns og gekk greiðlega að ráða n.ðurlögum eldsins, þótt magn- aður væri. Varð að rífa meira en helming þaksins til að komast að eidinum, svo og tróð úr veggjum á þremur stöðum. Miklar skemmdir urðu á húsinu vegna þessa, svo og vörum, vegna e.ds, vatns og reyks. Álnavara og fafnaður, sem geymt var inn af vfTzluninni sjálfri, varð verst úti, en matvara var aðallega geymd frammi í sjálfri sölubúðinni og skemmdist hún minna. Úíibúið verður vart opnað í vetur vegna þessara skemmda. Ekki er fyllilega kunnugt um eldsupptök, en talið er að kviknað bafi í út frá olíukyndingu, sem vrr í skúr áföstuir, við húsið. Brann skúrinn allur innan en stendur þó enn uppi. Enn síður upp úr í Alsír Soustelle sakar de Gaulle um svik í Alsírmálinu Oran, Alsír 29.12. (NTB) Her- dómstóll í Oran hefur dæmt níu aisírska uppreisnarmenn til dauða. Þeir voru fundnir sekir um að hsfa xnyrt fjóra menn og sært fimm alvarlega í fjölmörgum árás- um er þeir stóðu fyrir á tímabil- iru ágúst—október s.l. Allir til- b.eyra menn þessir þjóðfrelsis- h'.-eyfingu Serkja og einn hinna dæmdu ber nafnið Krutsjoft. í dag kom víða til átaka í Alsír. Tveir menn úr hópi Serkja voru vegnir í Oran af frönskum her- ir.önnum og um tuttugu Serkir voru handteknir. Útgöngubann er í borginni. Aðstoðarforsætisráðherra upp- re.snarstjórnar Serkja sagði í Tunis í dag, að saroþykkt S.Þ. um Kærður fyrir ölvun annars manns vic- akstur . Sigurjón Ingason lögregluþjónn, sem nafnfrægur er orðinn i sam- bandi við morðbréfamálið, hefur nú verið kærður fyrir að láta það viðgangast, að maður æki bíl undir áhrifum áfcngis. — Kæra þessi er til komin vegna þess, að s.l. .voi var bíl, sem mágur Sigurjóns stjórnaði, ekið á mikilli ferð á brúarstólpa í Kópavogi. Bæði ek- iV og farþegi hans. — Sigurjón lrgason, — urðu fyrir meiðslum. Það þykir nú sannað, að öku- maðurinn iiafi verið undir áhrif- um víns, og er Sigurjón kærður fyrir að hafa látið bað viðg.-ingast. málefni Alsír þýddi endalok ný- iendustefnu Frakka þar. Alsírbú- f.r hlytu nú að eygja sjálfstæði í náinni fraintíð. Frá Paris berast þær fregnir, að einn harðsnúnasti andstæðing- ur stefnu de Gaulle forseta í Al- sítmálinu sé Jacques Soustelle. Hefur hann kvatt menn til þess að greiða atkvæði gegn stefiu for- setans í janúar n.k. Segir Sou- stelle, að stefna forsetans i Al- s'Tmálinu sé svik á svik ofan. Nú verði að byrja upp að nýju ising ekki minni á Ak. UnniS er nú af kappi aö við gerð rafmagnslína í Eyjafirði. ísing á loftlínum hefur þó síð ur en svo minnkað frá því í gær og fyrradag, og má allt að eins gera ráð fyrir áframhald andi skemmdum vegna þessa. Stillt veður var á Akureyri í gær. Áramótafagn- aður stúdenta Stúdentafélag Reykjavíkur og Stúdentaráð Háskóla ís- lands gangast sameiginlega fyrir áramótafagnaði á Hótel borg á gamlárskvöld. Ýmis- legt verður til skemmtunar og mjög_ er til fagnaðarins vand að. Ómar Ragnarsson flytur annál ársins 1960, Gestur Þor grímsson syngur nýjar ára- mótavísur og áramótunum verður fagnað með stuttu á- varpi og sameiginlegri skál á kostnað hússins. Þá fá þeir gestir, sem koma á fagnaðinn fyrir áramótin ókeypis miða í glæsilegu happ drætti. Enn fremur gefst þeim kostur á kvöldvderði við vægu verði. — Síðar um nótt ina verður svo veitt nætur- hressing, sem innifalin er í verði aðgöngumiðans, sem kostar 170 kr. fyrir manninn. Aðgöngumiðar að fagnaðin- um verða seldir í suðurand- dyri Hótel Borgar kl. 5—7 í dag. Til kl. 7 í kvöld Sölubúðir verða opnar til ? í kvöld, en tíí hádegis á morgun. T aistöðin borgaði sig Eins og frá var skýrt hér í blaðinu fyrir skömmu, fengu nokkrir bílar á Bæjarleiðum og Hreyfli talstöðvar í bílana. Tækið kosiaði hverr. ökumann sem það rékk. rúmar 20 þús. krónur, en nú hefur blaðinu borizt til eyrna, að einn bíl- stjóranna á Bæjarleiðum hafi fengið tækið borgað á ör- skömmum tíma. Svo var mál með vexti, aó hann víj' á ferð í bíl smum skömmu íyrir jól, úti í Kópavogí að því er vér bezt vitum. Halka var á göt- línum, og ailt í emu tók bíllinn að renna og stefndi beint út af gf.tunni, en allhátt var niður Ekki hreyfa sig Ökumannmum tóks't bó að stcðva bílinn. er hann vóe salt á Miklar annir í sjúkraf lugi Annríkt hefur verið hjá Birni Pálssyni í sjúkrafluginu síðustu daga. Á þriðjudaginn sótti Björn 3 sjúklinga í einni ferð til Fagurhólsmýrar. Voru það tvær rúmliggjandi konur frá Skaftafelli, en þriðji sjúkl ingurinn var karlmaður frá Skaftafelli. Hann gat setið uppi. í gærmorgun flaug Björn svo til Hornafjarðar og sótti dreng, sem slasaðist í fyrra- dag og mun vera illa brotinn. Eftir hádegið í gær flaug Björn svo til Blönduóss með sjúkling af Landspítalanum. Til baka flutti Björn 18 ára pilt, Ragnar Karlsson, sem féll úr símastaur á Blönduósi nokkru fyrir jól og hefur legið rænulaus á sjúkrahúsinu á Blönduósi síðan. Ragnar kem ur nú til rænu öðru hvoru og er líðan hans talin batnandi. Var Ragnar lagður in á Landa kotsspítala og mun Bjarni M. Jónsson gera að meinum hans, en Ragnar er m. a. höf uðkúpubrotinn. Slydduhríð yfir jólin ísafirði 28. des. — Hér hef- ur verið slydduhríð yfir öll jólin. Er færð þung um bæ- inn af þessum sökum, þótt ver ið sé að moka og reynt að halda leiðum opnum. Héðan hefur ekki gefið á sjó síðan nokkuð fyrir jól en, afli hafði verið ágætur hjá bátunum. Munu þeir róa strax og gefur. Guðm. Landbúnaðarmálaráðherra Sovétríkjanna settur af Moskva 29.12. (NTB) Land- búnaðarmáíaráðherra Sovét- rrkjanna, V!tadimir Matske- vitsj, hefur verið sviptur því embætti og skipaður yfirmað- ur framkvæmdanefndar land- búnaðarmála í Kasakstan. Nefnd þessi var stofnuð s.l. mánudag. Tilkynningin um þessa stöðubreytingu var gerð opinber í Moskva í dag. Útvarpið i Moskva greindi frá þessu í dag en engar skýr ingar voru gefnar á þessu. Hins vegar hefur Matskevitsj sætt harðri gagnrýni upp á síðkastið austur þar vegna stjórnar sinnar á landbúnað- armálum. Stjórnmálamenn í Moskva segja því, að brott- vikning hans úr embætti land vegarbrúninni. Sá hann þá í hendi scr, að ef hann opnaði harð til þess að fara út, mundi bíllinn velta út af veginum, og þyrfti reyndar ekki nema litla hrevfingu til þess að hann færi. Hann taldi því ráðlegast að hreyfa sig alls ekki, en kallaði gegnum talstöð- ina og sagðj sínar farii ekki siétt- ar. og lét það fylgja með að þær gætu orðið ennþá ósléttari. Félag- ar hans báðu hann að bíða róleg- ?n og von oráðar vorv þeir komn- ir til hans a nokkrum bílum. 1 Tugþúsunda tap Gengu þeu síðan allir í senn á Lílinn, og héldu við hann eð= ýttu hcnum upp á veg;nn aftur — Taldi maðurjnn víst að ef hann fcefði þurft ■'ð hreyía sig úi bíln- um hefði hann oitið nið’ir af veginum og stórskemmzt svo kr-stað hefði tugþusundir að gera við hann, fyiir utan vir.nutan með- an á viðgerð hefði staðið. Dæmdir fyrir morðið Amman 29.12. (NTB). Dómstóll í Amman höfuðborg Jórdaníu hef- ur dæmt ellefu manns til dauða vegna sprengjutilræðis við Hazza Majali forsætisráðherra 29. ágúst s ' í sprengingu þessari lét for- sætisráðherrann lífið auk eiiefu ■annarra. Hafði sprengjunni verið fyrir komið í stjórnairráðsbygg- ingunni í borginrii cg sprask hún þar snemma morguns. Konungur hafði ætlað að sitja ráðuneytis- fund á sama stað einmitt á þess- um tíma en fundinum var irestað á síðustu stundu. Voru menn þfirrar skoðunar ið sprengjunni hrfi og venð ætlsð að granda hcnum. Hussein konungur ug 'or- sætisráðhe.va han? Majali höfðu lengi átt í erjum við Nasser for- seta Arabiska samoandslýðv'eidis- íns og taldi konungur hann standa vð baki ódæðisverksins Af þeim ellefu, sem dæmdir vr.ru í dag, voru siö fjarverandi. Komust þeir ur landj eftir aYburð- u'i- í sumar og hafa ekki náðsí siðan. búnaðarráðherra komi ekki á óvart. Matskevitsj er fimmtug ur að aldri. Hann hefur verið ráðherra frá 1955 en var lengi áður aðstoðarráðherra. Kruts joff forsætisráðherra talaði til landbúnaðarsérfræðinga í Moskva í dag og kvað nauð- synlegt að Sovétríkin efldu landbúnaðarframleiðslu sína. Hún yrði að vera meiri en sem næmi þörfinni heima fyrir. Tímarit um land- bónaSarbygg- ingar Samband þeirra þjóða, sem kenna sig við OEEC eða Org- anisation for European Eco- nomic Cooperation, en það eru Austurríki, Belgía, Danmörk, Frakkland, Þýzkaland, Grikk- land, ísland, írland, Ítalía, Luxemburg, Holland, Noregur, Portúgal Spánn, Svíþjóð, Sviss og Bretland, eru að hefja út- gáfu tímarits, sem heitir Agri- cultura og er gefið út í Svíþjóð. Tímarit þetta verður prentað á ensku, frönsku, þýzku og sænsku og á að fjalla um at- huganir, tilraunir og nýungar er snerta landbúnaðarbygging ar. Þetta efni verður þá tekið á mjög breiðum grundvelli, eins og sjá má á því, að ákveð ið er, að þriðja hefti útgáf- unnar fjalli um varðveizlu og geymslu landbúnaðaraf- urða. Markmið tímaritsins er að safna efninu frá öllum með limalöndunum og ætlazt til, að það geti oröið sem næst tæmandi viðkomandi áðurgr. atriðum. Tímaritið kemur út tvisvar á ári og kostar $ 2.00 til áskrifenda. Teiknistofa landbúnaðarins sér um málefni tímaritsins af íslands hálfu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.