Tíminn - 30.12.1960, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.12.1960, Blaðsíða 7
TÍMINN, föshidaginn 30. desember 1960. jög hörð andstaða gegn sölu sterks öls í landinu Frá Landssambandinu gegn áfengisbölinu Fjórða þing sambandsins var haldið í Reykiavík laug- ard. 26. nóv. s. I. Þingið sátu um 40 fuíltrúar frá 23 af 26 félögum og félagasamböndum, sem eru aðildarfélög sam- bandsins. Tillögur Stjórn sambandsins gerði grein fyrir störfum iþess á liðnu kjör- tímabili hennar, tveimur árum, en ekki mun fært að leggja það á dagblöðin að bir'ta skýrslu for- mannsins í heild. Helztu atriðin eru þessi: 1. 27. nóv. flutti formaðurinn erindi á þingi Alþýðusambands ís- lands.^ 2. í febrúar 1959 hafði stjórn sambandsins, ásamt Áfengisvarnar nefnd Reykjavíkur, fund með skólastjórum Reykjavíkur og Hafn arfjarðar. , 3. í júní sama ár var svo Þing- vallafundurinn, en undirbúningur hans og framkvæmd kostaði miklu meiri vinnu, en flesta mun gruna, sem ekki tóku þátt í því. 4. Haustið 1959 samdi stjórn landssambandsins við ríkisútvarp ið um flutaing þriggja erinda á komandi vetri. Erindin fluttu Baldur læknir Johnsen, Margrét Jóhannesdóttir og Þórleifur Bjarnason, námsstjóri. Erindi læknisins fé'kk svo Samband bind indisfélaga í skólum og gaf það út, en áfengisvarnaráð gefur út erindið, sem Baldur' Johnsen flutti á Þingvallafundinum. 5. í nóvember 1959 komu ung- templarar og stjórn landssambands ins á þriggja daga námskeiði í ýms um félagsmálastörfum. Séra Árelí- us Níelsson veitti því forstöðu. 6. í febrúar 1960 bauð stjóin sambandsins öllum alþingismönn- unum til fundar og kaffidrykkju til þess að ræða við þá áhugamál sín. Milli 20 og 30 alþingismenn komu til fundarins, sem stóð tvær klukkustundir. Þar gafst bæði áfengisvarnaráði, ^ framkvæmda- nefnd Stór’stúku íslands og stjórn landssambandsins tækifæri til að ræða við þessa fulltrúa þjóðarinn- ar áhugamál sín. Alþingismenn- irnir tóku góðan og ánægjulegan þátt í fundinum. 7. Annan apríl 1960 var fjöl- sóttur fundur í fulltrúar'áði sam- bandsins. 8. Bindindismálavikan 16.—21. október 1960, og var hún mesta átak stjórnar sambandsins, kostaði meiri vinnu og fyrirhöfn en flesta mun gruna. Allmörg aðildarfélög- in.öll stærstu samböndin, tóku góð an og ánægjulegan þátt í þessu. Milli 20—30 ávörp og erindi voru flutt í vikunni, hafa sum þeirra þegar náð til þjóðarinnar fyrir milligöngu útvarpsins og fleiri munu á eftir koma. Engin leið er að telja hér fram öll önnur störf stjói'nar sambands ins, fundarhöld, bréfaskriftir og margt annað á þessum tveimur árum. Þrátt fyrir kostnaðarsama liði, eins og Þingvallafundinn og bindindisvikuna, hélt stjórnin þó svo hygglega á fjáhmálunum, að hún fékk óspart þakklæti þings sam bandsins fyrir að hafa sparað mörg þúsund krónur á þann hátt. Á þinginu ríkti frábærlega góð- ur áhugi og samhugur, og störf gengu öll fljótt og vel. Sterkar raddir komu þar fram um nauðsyn þess að verjast því, að tekið yrði að selja sterkt áfengt öl í landinu. Allir voru þingfulltrúar þar á einu máli, að minnsta kosti heyrðist ekki annað. Tveir í stjóm sambandsins báð ust undan endurkjöri, frú Lára Sigui'björnsdóttir og Karl Karls- son, að öðru leyti var stjórnm endurkjörin. í henni eru nú: Pétur Sigurðsson, Björn Magnússon, prófessor, frú Jakobína Matthiesen, Guðbjartur Ólafsson, fyrrv. form. Slysavarnafél. ísl., Magnús Jóns- son, alþm., Axel Jónsson; sund- laugavörður, Tryggvi Emilsson, verkamaður. Þingið ræddi og samþykkti nobkrar tillögur. Helztar^ þeirra voru þessar: 1. Fjórða þing Landssambands- ins gegn áfengisbölinu sendir öll- um þjóðhollum mönnum og bind indisfólki í landinu kveðju sína og ' skorar á einn og sérhvern að leggja sitt lið til þess, að skapast geti ster'kt almenningsálit gegn drykkju skaparómenningunni og áfengis- tízkunni. 2. Þar sem nú er fullreynt, að gildandi áfengislöggjöf nær ekki þeim tilgangi, sem henni var ætl- aður, samkvæmt 1. grein laganna, að „vinna gegn misnotkun áfengis í landinu og útrýma því böli, sem henni er samfara," þá skorar fjórða þing Landssambandsins gegn áfengisbölinu á ríkisstjórnina, að láta fram fara endurskoðun á áfengislöggjöfinni hið allra fyrsta. 3. Þar sem þeim veitingahúsum, sem selja og veita áfenga drykki, fer stöðugt fjölgandi og áfengis- vandamálið eykst að sama skapi, en tekjur ríkissjóðs aukast árlega um tugi milljóna króna vegna áfengissölunnar, skorar fjórða þing landssambandsins á Alþingi og i’íkisstjórn að auka svo fjár- framlag til bindindismála að unnt verði að ráða minnst þrjá fasta starfsmenn til viðbótar þeim mjög svo takmörkuðu starfskröftum, sem fyrir eru. 4. Þingið skorar á löggjafarvald ið að banna allar vínveitingar á kostnað ríkisins og stofnana þess, bæja og sveitafélaga. 5. Þingig vítir harðlega, að hús sem leyft hefur verið að byggð væru sem veikstæði eða fyrir iðn- að, sé síðan breytt í veitingahús og notuð fyrir klúbbstarfsemi, þar sem seldir eru og veittir áfengir drykkir. 6. Fjórða þing landssambandsins gegn áfengisbölinu telur reynslu þjóða og vísindalegar rannsóknir hafa sýnt og sannað, svo að ekki verði um villzt, að framleiðsla á sterku öli og sala þess í landinu myndi auka að mun áfengisneyzlu þjóðarinnar og bjóða heim aukinni ómenningu. Þess vegna treystir þingið því, að þótt fram kynni að koma á AI- þingi frumvarp um framleiðslu á sterku öli og sölu þess, muni þing- menn ekki Ijá því fylgi sitt. Bendir þingið væntanlegri stjórn sinni á, að heppilegt væri að hún kysi nefnd áhuga- og áhrifa manna til samstarfs við sig um þetta mál. 7. Þingið harmar þá ákvörðun stjórnarvalda, að framlengja veit- ingatíma vínveitingahúsa tvö kvöld í viku u-m eina klukkustund eða til kl. 12,30 eftir miðnætti, þvert ofan í ákvæði 7. gr. reglugerðar um sölu og veitingar áfengis. Skor ar þingið því á dómsmálaráðherra að afturkalla nefnt leyfi þegar í stað. Ennfremur skorar þingið á dómsmálaráðherra^að fjölga eftir- litsmönnum vínveitingahúsanna, svo að hægara verði eftirlitið með því að unglingum sé ekki selt þar áfengi. 8. Þing landssambandsins gegn áfengisbölinu varar alvarlega við þeirri hættu, sem bömum og ungl ingum er búin af sífjölgandi „sjoppum" og sælgætissölubúðum. Felur þingið því stjórn landssam- bandsins að taka mál þetta til al- varlegrar athugunar og leita heppi legra ráða til þess að vinna gegn þessai'i hættu. 9. Vegna hins þráláta orðróms um misnotkun félagsheimila, felur þingið sambandsstjórninni að ræða þetta mál við menntamála- ráðherra og fylgja því fast eftir, að tryggt verði með reglugerð, lög- um eða á annan hátt, að félags- heimilin starfi í hvívetna á' þann hátt, að til eflingar sé hollu menn- ingar- og félagslífi. * v/ s f ' V V> : H u s G • • O G N Gleðilegt nýtt dr! Þökk fyrir viðskiptin! S krifs tofuskrifb o rð úr eik — tvær stærðir, Ritvélaborð úr eik, teak. Skjaiaskápar úr teak og eik Heimilisskrifborð úr eik, mah., teak. Svefnsófar. Svefnbekkir. Skrifborðs- og standlampar. Hansahillur. ) ) > ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) - ) ( ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) > HURÐIR ÞILJUR úr mah., eik teak og hnotu Sertdum gegn póstkröfu um land allt Skúlason & Jónsson Skólavörðustíg 41 — Laugaveg 62 Síðumúla 23 Skólavörðustíg 41 SÍMAR: 13107 og 16593, 35760

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.